Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2011, Side 22
22 | Lífsstíll 30. mars 2011 Miðvikudagur
Chili
súkkulaðikaka
Súkkulaði og chili eiga einstaklega
vel saman. Mörgum finnst það ótrú-
legt en súkkulaði og chili er vinsælt
að tefla saman. Prófaðu að laga
súkkulaðiköku með chili. Bragð-
laukarnir taka kipp og það er gaman
að bera fram köku á við þessa eftir
þunga kjötmáltíð.
Uppskrift:
200 g smjör
200 g dökkt súkkulaði
250 g sykur
5 egg
Rúm msk. hveiti
1½ tsk. afar fínt skorinn chilipipar
Aðferð:
Bræðið smjörið og súkkulaðið saman í litlum
potti. Færið yfir í skál og bætið sykrinum
saman við. Hrærið með trésleif og leyfið
blöndunni að kólna aðeins. Bætið þá eggj-
unum út í, einu í einu, og hrærið vel á eftir
hverju eggi. Bætið rúmri matskeið af hveiti
og afar smátt skornum chili út í og blandið
vel saman. Hellið í form og bakið í 10–12
mínútur. Kælið á grind og skreytið með
flórsykri og rifnum appelsínuberki.
Skiptu um
áklæði
Ef fjárráðin eru lítil geta litlar breyt-
ingar á innanstokksmunum gert
mikið fyrir heildarútlitið. Skiptu til
að mynda um áklæði á stólum og
sjáðu hvort það lifnar ekki yfir heim-
ilinu. Í sumum tilfellum þarf fag-
mann til verksins en ef á stólunum
eru lausar sessur er verkið tiltölulega
einfalt og krefst minniháttar kunn-
áttu á saumavél.
K
eflavík í mars. Snjórinn ræð-
ur ríkjum úti en inni í hús-
inu er gulklædd stelpa að
sippa á striga. Það hefur
hún gert í þó nokkur ár. Stelpan er
eitt af fólkinu hennar Sossu. Kannski
minning úr bernsku. Það er fleira fólk
að bardúsa eitthvað á striga á þessu
heimili.
Sossa var sjálf lítil stelpa þegar
hún fékk áhuga á myndlist. Henni
fannst gaman að teikna og það gerði
hún oft. Hún var fimm ára þegar hún
málaði mynd af reiðri konu með
hatt og fjöður. Sú mynd er ennþá til.
Myndin er gul og rauð. „Ég er búin
að vera með sama litaspjaldið síðan
ég var fimm ára,“ segir listakonan en
guli og rauði liturinn eru áberandi í
málverkunum hennar.
Hún segist vera upptekin af fígúr-
um. Konum. „Ætli ég sé ekki að mála
sjálfa mig; hvernig mér líður, hvernig
ég er og hvað ég hef upplifað. Fígúr-
urnar hafa orðið ferkantaðri á und-
anförnum árum; á einhverjum tíma-
punkti endaði einn haus sem hús.
Ég mála hausa og hús eiginlega ná-
kvæmlega eins.“
Hún er líka farin að mála lands-
lag. Hún ferðast mikið og verður fyrir
áhrifum. Hún fór einhvern tímann til
Færeyja og hélt áfram að mála þegar
heim kom. „Ég var greinilega inspí-
reruð af Færeyjum. Litirnir breyttust.
Ég fór að nota græna liti sem ég notaði
yfirleitt ekki. Ég veit ekki hvernig þetta
gerist. Það bara gerist.“
Hvað með stílinn? „Þetta er ein-
hver expressjónismi. Fígúratívur ex-
pressjónismi. Samt yfir í abstrakt. Það
er erfitt að henda reiður á hvernig stíll
þetta nákvæmlega er. Þetta er bara
minn stíll sem er innblásinn af mörg-
um öðrum.“
Hlýlegt, notalegt og
persónulegt
Sossa situr við eldhúsborðið þar sem
er líka eldað. Eldhúsborðið er svolítið
eins og skúlptúr. Listaverk. Það sama
er að segja um eldhúsinnréttinguna
sem Baldvin Baldvinsson innanhúss-
arkitekt hannaði. Hún er blá og rauð.
Stálið leikur líka örlítið hlutverk.
Reið kona með
hatt og fjöður
Myndlistarkonan Sossa galdrar fram ævintýra-
heima á striganum; fólk í gul- og rauðleitum
heimum. Það má kannski segja að heimilið hennar
sé strigi út steypu. Svava Jónsdóttir heilsaði upp
á Sossu og fólkið hennar.
Innlit
Eldhúsið Baldvin Baldvinsson innanhússarkitekt hannaði innrétinguna og Einar Gunnarsson sá
um smíðar. Hallandi skápurinn minnir á þá sem voru í eldhúsum á þeim tíma þegar húsið var byggt.
Sofðu til
að léttast
Rétt eins og gott mataræði og góð
hreyfing er lykillinn að þyngd-
artapi hefur svefnleysi og aukið
stress þveröfug áhrif. Vísinda-
menn við Kaiser-heilbrigðisstofn-
unina í Portland framkvæmdu
rannsókn á 472 einstaklingum
sem glíma við ofþyngd og fylgdust
með þeim í nokkra mánuði. Sam-
kvæmt niðurstöðunum léttust þeir
einstaklingar minnst sem sváfu
minnst. Að sama skapi léttust þeir
mest sem voru með góðar svefn-
venjur, eða sváfu að jafnaði átta
klukkustundir á hverri nóttu. Að
sama skapi áttu þeir einstaklingar
sem þjáðust af stressi erfiðara með
að losna við aukakílóin en aðrir.