Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2011, Blaðsíða 24
24 | Sport Umsjón: Tómas Þór Þórðarson tomas@dv.is 30. mars 2011 Miðvikudagur
Adel Taarabt gæti fengið spilað með Real Madrid á næsta tímabili:
Real fylgist með liðsfélaga Heiðars
Marokkómaðurinn Adel Taarabt
hjá QPR er undir smásjá stór-
liðsins Real Madrid samkvæmt
frétt í spænska íþróttablaðinu AS.
Þessi 21 árs gamli framherji hefur
gjörsamlega farið á kostum með
QPR í Championship-deildinni
á Englandi, þeirri næstefstu. Þar
er hann búinn að skora fimmtán
mörk og gefa fimmtán stoðsend-
ingar í þrjátíu og sjö leikjum.
Íslenski landsliðsframherjinn
Heiðar Helguson spilar með Taa-
rabt hjá QPR og hefur notið krafta
hans í framlínunni. Það er ekki
síst vegna frammistöðu Taarabts
að QPR er langefst í Champion-
ship-deildnni og býður liðs-
ins sæti í ensku úrvalsdeildinni
næsta haust.
Taarabt hefur allt tímabilið
verið undir smásjá Manchester
United og Arsenal en bæði lið
hafa verið sögð áhugasöm um að
landa framherjanum unga. Taa-
rabt kom til Englands árið 2007
þegar Tottenham keypti hann frá
franska liðinu Lens. Hjá Totten-
ham gekk honum illa að fóta sig
og var hann sendur á lán til QPR
árið 2009. Sá lánssamningur varð
að varanlegum félagaskiptum
síðasta sumar en síðan þá hefur
hann fest sig í sessi sem besti leik-
maður liðsins.
Spænska íþróttablaðið AS
heldur því fram að Taarabt sé
leikmaður sem Real Madrid horfi
nú til og ætli sér að gera tilboð í
hann í sumar. Taarabt hefur á
sínum ferli spilað átta leiki fyrir
landslið Marokkó en í þeim hefur
hann skorað þrjú mörk.
tomas@dv.is
Botnbaráttan
í algleymingi
n Tuttugasta og næstsíðasta um-
ferð N1-deildar karla fer fram á
fimmtudagskvöldið. Mikil barátta er
á botninum þar
sem úrslit geta
ráðist í þessari
umferð. Botnlið
Selfyssinga mæt-
ir Valsmönnum
að Hlíðarenda
á meðan Aftur-
elding heim-
sækir nýkrýnda
deildarmeistara Akureyrar. Takist
Aftureldingu að leggja Akureyri og
Selfoss tapar fyrir Val er það ljóst
að það verður Selfoss sem fellur
en Afturelding fer í umspilið um
áframhaldandi sæti í deildinni.
Hverjir fara
í úrslitakeppnina?
n Það er einnig mikil spenna í N1-
deildinni um hvert verður fjórða
liðið inn í úrslitakeppnina. Um
það bítast HK
og Haukar sem
bæði hafa 20 stig.
Haukar mæta FH
í Hafnafjarðar-
slag á fimmtu-
dagskvöldið á
meðan HK á leik
úti gegn Fram
sem er komið aft-
ur á mikið skrið. Þó má ekki útiloka
Valsmenn í baráttunni um fjórða
sætið því ef þeir vinna báða sína leiki
sem eftir eru og HK og Haukar tapa
sínum fer Valur í úrslitakeppnina.
Úrslitakeppnin
heldur áfram
n Úrslitakeppnin í Iceland Ex-
press-deild karla í körfubolta er í
algleymingi og verður spilað bæði
á miðvikudags-
og fimmtudags-
kvöld. Í kvöld,
miðvikudag,
mætir Keflavík
liði KR en Suður-
nesjamenn þurfa
heldur betur að
girða sig í brók
eftir tapið í DHL-
höllinni. Í Stykkishólmi taka svo
Íslandsmeistarar Snæfells á móti
Stjörnunni en síðastliðið sunnu-
dagskvöld varð Stjarnan fyrsta liðið
til þess að leggja Snæfell á þess
heimavelli.
Víkingar mæta Fram
n Þrír áhugaverðir leikir eru í
Lengjubikarnum á fimmtudag-
inn. Pepsi-deildar liðið Víkingur
og Fram eigast
við á gervigrasi
Víkinga klukkan
19.00 en á sama
tíma mæta sjóð-
heitir Valsmenn
liði Leiknis í Eg-
ilshöllinni. Fyrir
norðanmenn er
um að gera að
minna á Akureyrarslag Þórs og KA
sem hefst klukkan 20.00 í Boganum
á Akureyri. Þórsarar leika í efstu
deild í fyrsta skipti í sjö ár ár í sumar
en KA menn leika í 1. deild eins og
undanfarin 6 ár.
KR samdi ekki
við Danann
n Danski miðvörðurinn Mikkel Christ
offersen sem hefur verið á reynslu hjá
KR að undanförnu fær ekki samning
hjá liðinu. Hann
þótti ekki standa
undir vænt-
ingum og hefur
verið sendur
heim á leið. KR-
ingar reyna nú
hvað þeir geta að
bólstra varnar-
línu sína en þar
vantar liðinu breidd fyrir sumarið.
Gunnar Þór Gunnarsson er enn að jafna
sig af krossbandaslitum og er óvíst
hvort hann verði klár í fyrsta leik.
Molar
Óvænt félagaskipti?
Taarabt gæti farið til Real
Madrid. MYND REUTERS
Brasilíumaðurinn Neymar er á
allra vörum þessa dagana enda
talinn einn allra efnilegasti knatt-
spyrnumaður heims um þessar
mundir. Neymar, sem heitir fullu
nafni Neymar da Silva Santos
Júnior, leikur með Santos í heima-
landinu en hann er fæddur 5.
febrúar árið 1992 og er því nýorð-
inn 19 ára.
Skoraði í sínum öðrum leik
Útsendarar Santos voru fljótir að
koma auga á hæfileika þessa unga
Brassa og þegar hann var ellefu ára
gekk hann í raðir félagsins. Þar hélt
hann áfram að vaxa og dafna og
þegar hann var sautján ára lék hann
sinn fyrsta leik fyrir aðallið félags-
ins í 2–1 sigurleik gegn Oeste. Og í
öðrum leik hans fyrir Santos, aðeins
viku síðar, kom fyrsta mark hans fyr-
ir félagið í sigurleik gegn Mogi Mi-
rim.
Neymar hefur verið líkt við fjöl-
marga goðsagnakennda leikmenn
brasilíska landsliðsins. Nægir í því
samhengi að nefna Pelé og Robinho
sem báðir léku með Santos. Augu
fjölmargra stórliða í Evrópu bein-
ast nú að leikmanninum og má þar
nefna Manchester United, Chelsea,
Manchester City, Inter, Barcelona
og Real Madrid. Þá hefur Ronaldo,
sem nýlega lagði skóna á hilluna,
fullyrt að Neymar sé lykillinn að
velgengni brasilíska landsliðsins á
komandi árum.
Mikill markahrókur
Neymar vakti mikla athygli um
helgina þegar hann skoraði bæði
mörk brasilíska landsliðsins í 2–0
sigurleik gegn Skotum. Óhætt er að
segja að ferill hans með brasilíska
landsliðinu byrji vel því hann er bú-
inn að skora þrjú mörk í jafnmörg-
um leikjum fyrir þjóð sína. Árangur
hans með undir 20 ára liði Brasi-
líu er einnig eftirtektarverður – níu
mörk í sjö leikjum. Og með Santos
hefur Neymar skorað 27 mörk í 64
deildarleikjum.
Neymar var orðaður við Chel-
sea síðasta sumar en samningavið-
ræður Santos og Chelsea sigldu í
strand þar sem félögin komust ekki
að samkomulagi um kaupverð. Þó
svo að það stefni í harða baráttu um
krafta leikmannsins í sumar er ekki
víst að Neymar fari strax til Evrópu.
Hann er samningsbundinn Santos
til ársins 2014 og hefur sjálfur lýst
því yfir að hann ætli ekki að flýta sér
til Evrópu.
Góð tengsl við United
Eftir frammistöðu hans gegn Skot-
um um helgina keppast fjölmiðar
við að orða hann við hin og þessi
stórlið. Vefmiðillinn Soccernet
greinir til dæmis frá því að Neym-
ar fari til Englands í sumar og þá til
Manchester United, Chelsea eða
Manchester City.
Umboðsmenn kappans eru þeir
Wagner Ribei og Pini Zahavi en sá
síðarnefndi er sagður hafa afar góð
tengsl við Sir Alex Ferguson, knatt-
spyrnustjóra Manchester United. Er
Ferguson sagður sjá Neymar fyrir
sér sem arftaka Ryans Giggs.
Þrátt fyrir þessi tengsl á milli
Fergusons og Zahavis virðast for-
svarsmenn Chelsea og Manchester
City hafa meiri áhuga á leikmann-
inum. Carlo Ancelotti og Roberto
Mancini létu sjá sig á leik Skota og
Brasilíu um helgina en forsvars-
menn Manchester United voru ekki
sýnilegir á svæðinu.
Gæti vanist veðrinu
Þó svo að Neymar sé enn ungur að
árum er ljóst að hann verður ekki
ódýr. Í samningi hans er klásúla
þess efnis að hann megi yfirgefa
Santos komi tilboð upp á 45 millj-
ónir evra, eða 39,6 milljónir punda,
í hann.
Neymar hefur áður lýst því yfir
að hann hafi meiri áhuga á að leika
á Ítalíu en á Englandi. Eftir leikinn
gegn Skotum um helgina, sem fór
fram á Englandi, sagði hann hins
vegar: „Leikvangurinn er frábær,
völlurinn er góður. Veðrið er ekkert
sérstakt en ég gæti vanist því.“ Það
er því aldrei að vita nema Neymar
verði næsta stórstjarna ensku úr-
valsdeildarinnar. Aðdáendur enskr-
ar knattspyrnu hljóta að fagna því.
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
Næsta
stjarna
Brasilíu
n Brasilíumaðurinn Neymar er talinn einn efni
legasti knattspyrnumaður heims n Skoraði tvö
mörk með landsliðinu um helgina n Stóru liðin í
Evrópu keppast um að fá leikmanninn í sumar
Tvö mörk um helgina Neymar sýndi hvað í honum býr þegar hann skoraði bæði mörk
Brasilíu í 2–0 sigri á Skotum í vináttuleik. MYND REUTERS
„Leikvangurinn er
frábær, völlurinn
er góður. Veðrið er ekkert
sérstakt en ég gæti
vanist því.
Gríðarlegt efni Neymar er
afar útsjónarsamur og tæknilega
góður leikmaður. Ljóst er að
öll helstu stórlið Evrópu munu
berjast um leikmanninn í sumar.
MYND REUTERS