Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2011, Page 10
10 | Fréttir 6. apríl 2011 Miðvikudagur
Faðir eins mótframbjóðanda Stefáns
Einars Stefánssonar, nýkjörins for-
manns VR, skrifaði ummæli við frétt
á DV.is síðastliðinn föstudag þar sem
hann sagði að augljóst væri að Stefán
Einar hefði afritað kjörskrá VR, þrátt
fyrir fullyrðingar um annað. Í frétt DV
kom fram að fjölmargir einstakling-
ar, sem áttu það sameiginlegt að vera
bæði skráðir í Sjálfstæðisflokkinn og
félagar í VR, hefðu fengið símtöl og
póst frá Stefáni Einari varðandi fram-
boð hans og vildu einhverjir meina að
hann gæti hugsanlega hafa samkeyrt
þessar upplýsingar til að ná til ákveð-
inna einstaklinga.
Í kjölfar ummælanna á DV.is fékk
faðirinn Facebook-skilaboð frá Stefáni
Einari. Hann hafði greinilega kynnt sér
bakgrunn viðkomandi því hann vísaði
í starfsheiti hans hjá ákveðinni stofn-
un þar sem hann starfar. Viðkomandi
vill hvorki koma fram undir nafni né að
nafn stofnunarinnar sem hann vinnur
hjá komi fram. Þær upplýsingar hafa
því verið fjarlægðar úr skilaboðunum
sem DV hefur undir höndum og birtir
hér:
„Heill og sæll (hér kom nafn yfir-
manns stofnunarinnar)
„Ég harma það mjög að þú skul-
ir fullyrða án nokkurra fyrirliggjandi
gagna að ég hafi afritað félagatal VR. Þú
sakar mig þar um hlut sem ég get ekki
sætt mig við að sitja undir. Sem innri
endurskoðandi (hér kom nafn stofn-
unarinnar) hefði ég talið að þú legðir
ríkulega upp úr því að hafa staðfest-
ingu fyrir þeim hlutum sem þú heldur
fram.
Ég vona að þarna hafir þú hlaupið á
þig fremur en að orð þín lýsi því hvern-
ig þú vilt koma fyrir sjónir fólks, jafnt
sem fagmaður og einstaklingur.
Með vinsemd, Stefán Einar Stefáns-
son.“
Fannst sér hótað
Eins og sést í upphafskveðju skilaboð-
anna ávarpar Stefán Einar yfirmann
stofnunarinnar en ekki umræddan
starfsmann sem fékk skilaboðin. Hann
virðist því hafa gert mistök við ritun
skilaboðanna. Umræddum starfs-
manni þótti það sérkennilegt og hvarfl-
aði að honum að yfirmaður hans hefði
því einnig fengið póst frá Stefáni Einari
varðandi málið. Hann hafði því strax
samband við yfirmann sinn og rakti
fyrir honum málavexti. Á þeim tíma-
punkti hafði yfirmaðurinn þó ekki
fengið nein skilaboð frá Stefáni Einari.
Þrátt fyrir að skilaboðin séu tiltölu-
lega kurteislega orðuð fannst umrædd-
um starfsmanni ákveðin hótun felast í
þeim. Þá fannst honum líka athyglis-
vert að Stefán Einar hefði haft fyrir
því að grafa upp starfsupplýsingar um
hann.
DV hafði samband við Stefán Einar
og spurði hann út í skilaboðin. Hann
sagði fráleitt að hann hefði ætlað að sér
að hafa einhver áhrif á störf mannsins
hjá stofnuninni. Þetta hefði eingöngu
verið vinsamleg athugasemd vegna
ummæla föðurins við fréttina. „Það
að kveðjan skyldi orðuð jafnklaufalega
og raun ber vitni skrifast á klaufaskap
minn og ekkert annað,“ sagði hann
aðspurður hvers vegna hann hefði
ávarpað yfirmann stofnunarinnar í
upphafskveðju skilaboðanna, en ekki
starfsmanninn sjálfan.
Hótaði að hafa áhrif á
viðskiptasamning
Þrátt fyrir að í þessu tilfelli hafi Stefán
Einar ekki sett sig í samband við yfir-
mann viðkomandi starfsmanns eru
dæmi þess að hann hafi sett sig í sam-
band við yfirmenn ef einstaklingar
hafa, á opinberum vettvangi, látið um-
mæli falla sem ekki eru honum að
skapi.
Stefán Einar varð uppvís að slík-
um afskiptum eftir að Teitur Atlason,
guðfræðingur, bloggari á DV.is og þá-
verandi starfsmaður tölvufyrirtækis-
ins EJS, lét í ljós andstöðu sína gegn
Þjóðkirkjunni í viðtali sem snerti
vinnu hans. Stefáni Einari, sem einn-
ig er guðfræðingur að mennt og starf-
aði hjá Biskupsstofu, þóttu ummæli
Teits óeðlileg í ljósi þess að Biskups-
stofa væri stór viðskiptavinur EJS.
Stefán Einar viðurkenndi í sam-
tali við DV fyrir síðustu jól að hann
hefði sett sig í samband við einn af
framkvæmdastjórum fyrirtækisins
vegna málsins. „Ég sagði að ef þeir
myndu ekki koma í veg fyrir að þetta
gerðist aftur þá myndi ég setja mig
í samband við aðila innan kirkjunnar,
sem myndu eflaust líta það alvarleg-
um augum. Fyrirtæki sem þeir væru
með viðskiptasamning um tölvukaup
og þjónustu við, og þyrftu þá að endur-
skoða afstöðu sína til þess samnings.
Það er bara málefnalegt sjónarmið sem
ég myndi hafa í mínum rekstri,“ sagði
hann þá.
Teitur sagðist hafa hrökklast úr
starfi og jafnframt úr landi vegna of-
sókna af hálfu Stefáns Einars, en Teitur
sagði starfi sínu lausu í kjölfar afskipta
hans af málinu og flutti úr landi í kjöl-
farið.
Hafði samband við
ritstjóra Moggans
Þá hefur DV heimildir fyrir því að Stef-
án Einar hafi sagt við nokkra af þátt-
takendum á framboðsfundi VR, sem
haldinn var í höfuðstöðvum fjölmiðla-
fyrirtækisins 365 í Skaftahlíð á meðan
kosningarnar stóðu yfir, að blaðamað-
ur Morgunblaðsins sem hefði skrifað
frétt um hann kæmi til með að missa
vinnuna. Umræddur blaðamaður,
Hugrún Halldórsdóttir, skrifaði frétt
á mbl.is um kæru mótframbjóðanda
Stefáns Einars, Guðrúnar Jóhönnu
Ólafsdóttur, til kjörstjórnar VR og varð
það á að fullyrða að kæran væri vegna
afritunar hans á kjörskrá VR í stað
þess að tala um meinta afritun. Frétt-
inni á mbl.is var breytt síðar sama dag
og beðist var afsökunar á rangfærslu
fréttamannsins. Stefán Einar sagði
í samtali við DV að það væri af og frá
að hann hefði látið þessi orð falla eða
reynt á einhvern hátt að hafa áhrif á
störf Hugrúnar á Morgunblaðinu.
Hann viðurkenndi þó í viðtali í þætt-
inum Harmageddon á útvarpsstöðinni
X-inu 97,7 að hann hefði orðið brjálað-
ur út í blaðakonuna og húðskammað
hana. Hann sagði jafnframt að vinnu-
brögð hennar gæfu til kynna að henni
væri ekki treystandi. „Ég hef hins
vegar ekki, og þið getið spurt Har-
ald Johannessen ritstjóra út í það,
ég hringdi í hann, ég hringdi í hann
beint út af þessu og þið getið spurt
hann hvort ég hafi sko imprað á því
eða komið að því með einhverju
móti að þessi starfsmaður ætti að
missa vinnuna, það er bara kjaftæði
og enn eitt dæmið um það hvernig
reynt er að ljúga að fólki til þess að
skaða það í sinni kosningabaráttu,“
sagði Stefán Einar í viðtalinu og við-
urkenndi þar með að hafa haft sam-
band við ritstjóra blaðsins í kjölfar
birtingar fréttarinnar. Hugrún hafði
sjálf sagt upp störfum hjá Morgun-
blaðinu þremur mánuðum áður og
umrædda frétt skrifaði hún á síðustu
vakt sinni á mbl.is.
n Sendi föður mótframbjóðanda skilaboð n Föðurnum
fannst ákveðin hótun felast í þeim n Hefur orðið uppvís að
því að beita sér gegn fólki sem ekki er sammála honum
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
blaðamaður skrifar solrun@dv.is
„Ég vona
að þarna
hafir þú
hlaupið á þig“
Uppvís að þrýstingi
Stefán Einar hefur oftar
en einu sinni reynt að
beita sér gegn fólki sem
honum hefur sinnast við.
18 | Fréttir 1.–3. apríl 2011 Helgarblað
„Ég er flokksbundinn og konan mín
er flokksbundin og ég fékk stað-
fest frá fleiri félögum mínum að það
hefði verið hringt í þá. Þetta get-
ur ekki verið tilviljun,“ segir flokks-
bundinn sjálfstæðismaður og félagi
í VR sem fékk símtal frá Stefáni Ein-
ari Stefánssyni, nýkjörnum formanni
VR, meðan á kosningabaráttunni
stóð. Viðmælandinn segir að í sím-
talinu hafi Stefán Einar listað upp þá
kosti sína sem myndu gera hann að
góðum formanni félagsins ásamt því
að ræða almennt um kosningarnar.
Viðmælandi DV, sem ekki vill koma
fram undir nafni, segir að hringt hafi
verið úr símanúmerum sem öll byrj-
uðu á sömu tölustöfunum og voru
óskráð. Hann telur því nokkuð ljóst
að um lánssíma hafi verið að ræða
sem notaðir voru eingöngu í þetta
verkefni.
Viðmælandinn telur að svo virð-
ist sem kjörskrá VR hafi verið afrit-
uð með einhverjum hætti og hún
samkeyrð við félagaskrá Sjálfstæð-
isflokksins með það fyrir augum að
ná til þeirra sjálfstæðismanna sem
einnig eru félagar í VR. „Ég hef séð
svona lagað gert þannig að ég veit al-
veg að þetta er hægt.“ Slík samkeyrsla
á upplýsingum er brot á persónu-
verndarlögum.
Samkvæmt heimildum DV fengu
fjölmargir aðrir einstaklingar, sem
eiga það sameiginlegt að vera bæði
skráðir í Sjálfstæðisflokkinn og vera
félagar í VR, kosningasímtöl frá Stef-
áni Einari sjálfum eða félögum hans
úr starfi Sjálfstæðisflokksins.
Fékk sent kynningarefni á
gamalt lögheimili
Það eru þó ekki eingöngu úthring-
ingar Stefáns Einars og félaga hans
í Sjálfstæðisflokknum sem þykja
renna stoðum undir það að hann
hafi með einhverjum hætti samkeyrt
kjörskrána við félagaskrá Sjálfstæð-
isflokksins, heldur fengu fjölmargir
einstaklingar einnig sent kynningar-
efni frá honum vegna framboðsins.
DV talaði við nokkra einstaklinga
sem staðfestu þetta.
Einn viðmælenda DV, sem vill
heldur ekki koma fram undir nafni,
staðfesti að hann hefði fengið bréf
frá Stefáni Einari. „Það get ég stað-
fest,“ sagði viðmælandinn. „Ég fékk
sent bréf frá honum og hjá mér vakn-
aði grunur um að þetta væri ekki allt
eins og átti að vera, þar sem bréfið
var sent á heimili foreldra minna,
þar sem ég hafði lögheimili í síðast-
liðnum kosningum. Ég er á skrá Sjálf-
stæðisflokksins og er þar skráð með
eldra lögheimili.“ Annar viðmælandi
hafði svipaða sögu að segja. „Ég get
staðfest það að hafa fengið bréfapóst
frá Stefáni Einari formannsfram-
bjóðanda til VR og símhringingu og
er flokksbundinn sjálfstæðismaður.“
Dræm kosningaþátttaka
Stefán Einar Stefánsson var kjörinn
formaður VR með 20,6 prósentum at-
kvæða, en aðeins 4.867 félagsmenn,
af þeim 28.419 sem voru á kjörskrá,
greiddu atkvæði í kosningum. Kjör-
sókn var því ekki nema rétt rúm 17
prósent. Samkvæmt heimildum DV
hefur töluverðrar ólgu gætt meðal
félagsmanna í VR eftir að tilkynnt var
um úrslit kosninganna og ljóst var
að Stefán Einar yrði næsti formaður
félagsins. Hann hefur gegnt ýmsum
trúnaðarstörfum innan Sjálfstæðis-
flokksins en hyggst láta af þeim í kjöl-
far kosningarinnar. Hann hefur full-
yrt að störf hans þar muni ekki koma
til með að hafa áhrif á störf hans sem
formanns VR.
Mótframbjóðandi Stefáns Einars,
Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, kærði
hann til kjörstjórnar á meðan á kosn-
ingum stóð. Guðrún vill meina að
Stefán Einar hafi brotið gegn reglum
um meðferð á útprentaðri kjörskrá
VR og að hann hafi fengið aðgang að
kjörskránni á tölvutæku formi. Kjör-
stórn vísaði málinu frá því ekki þóttu
nægar sannanir fyrir því. Sjálfur ber
Stefán Einar af sér allar sakir og seg-
ist hafa handslegið inn hluta af kjör-
skránni og sent á brot af félagsmönn-
um.
Ætlar að halda málinu til
streitu
Þykja heimildir DV og staðfesting
viðmælenda á bæði símhringingum
og póstsendingum frá Stefáni Ein-
ari styrkja mál Guðrúnar, og þrátt
fyrir að kjörstjórn hafi vísað málinu
frá hyggst hún ekki láta þar við sitja.
„Það er á kristaltæru af minni hálfu
að halda þessu til streitu,“ sagði hún
í samtali við DV. „Það er svo ásætt-
anlegt að tapa ef heiðarleg kosning
hefur átt sér stað en ég get ekki sætt
mig við ef eitthvert svindl er í gangi,“
sagði Guðrún sem vill fá úr því skorið
hvort heiðarlega hafi verið að kosn-
ingum staðið. „Ég vil ekki að þetta
séu línurnar sem eru lagðar til fram-
búðar.“ Hún hefur haft samband við
lögfræðinga sem eru að fara yfir mál-
ið og skoða hvað hægt sé að gera í
framhaldinu.
Ekki náðist í Stefán Einar við
vinnslu fréttarinnar.
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
blaðamaður skrifar solrun@dv.is
„Ég get staðfest
það að hafa feng-
ið bréfapóst frá Stefáni
Einari formannsframbjóð-
anda til VR og símhring-
ingu og er flokksbundinn
Sjálfstæðismaður.
n Hringt í fjölmarga flokksfélaga í VR sem eiga það sam-
eiginlegt að vera skráðir í Sjálfstæðisflokkinn n Kynningar-
póstur sendur á gamalt lögheimili n Mótframbjóðandi telur
að kjörskrá hafi verið afrituð og heldur málinu til streitu
Heldur málinu til streitu Guðrún
Jóhanna Ólafsdóttir: „Það er á kristaltæru
af minni hálfu að halda þessu til streitu.“
EKKI VERIÐ
„ÞETTA GETUR
TILVILJUN“
Öflug kosningamaskína Samkvæmt
heimildum DV hafði Stefán Einar samband við mjög
marga sjálfstæðismenn sem einnig eru félagar í VR
og kynnti fyrir þeim framboð sitt.
Bröns
alla laugardaga og sunnudaga
Aðalstræti 2 | 101 Reykjavík | Sími: 517 4300 | www.geysirbistrobar.is
Verð
aðeins
1.795
með kaffi
eða te
Stefán Einar er ekki einn um að hafa orðið
uppvís að því að reyna að beita áhrifum
sínum gegn fólki ef honum líkar ekki mál-
flutningur þess. Flokksbróðir hans, Davíð
Oddsson núverandi ritstjóri Morgun-
blaðsins, kallaði Hallgrím Helgason
rithöfund á teppið eftir að hann skrifaði,
árið 2002, harðorða grein þar sem hann
kallaði Sjálfstæðisflokkinn Bláu höndina
og sakaði Davíð meðal annars um
ofsóknir í garð Baugs og Jóns Ásgeirs.
Á fundi þeirra Hallgríms og Davíðs gagn-
rýndi sá fyrrnefndi flokksráðningar og í
kjölfarið bar föður hans, Helga Hallgríms-
son þáverandi vegamálastjóra, á góma.
„Það eru allir flokksráðnir hjá ríkinu, líka
pabbi þinn,“ segir Hallgrímur að Davíð hafi
sagt. Hallgrímur lýsti því í viðtali við Arn-
þrúði Karlsdóttur á Útvarpi Sögu árið 2004
hvernig hann hefði þá orðið hræddur. „Og
þá allt í einu verð ég hræddur um að pabba
yrði bara sagt upp daginn eftir. Og mér
fannst það nú leiðinlegt fyrir hans hönd því
að hann átti nú mjög farsælan feril að baki
hjá Vegagerðinni, 40 ára starfsferil og átti
bara tvo mánuði eftir, en það kom nú ekki
til,“ sagði hann.
Notaði svipaða aðferð
1. apríl 2011
Svaðilför á norðurpólinn:
„Bara ævintýra-
mennska“
„Hann hefur aldrei farið í svona ferð
áður,“ segir Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra
og formaður Samfylkingarinnar. Eig-
inmaður hennar, Hjörleifur Svein-
björnsson, er þessa dagana staddur
á norðurpóln-
um ásamt hópi
Íslendinga og
Kínverja. Alls eru
átta í hópnum,
þar á meðal
sonur þeirra
Ingibjargar og
Hjörleifs. Þá eru
einnig í hópnum
Ragnar Baldurs-
son, fyrrverandi
sendiráðsritari í
sendiráðinu í Peking, tveir Kínverjar
og fararstjórar.
Ingibjörg segir að hópurinn hafi
verið væntanlegur á norðurpólinn
í gær, þriðjudag, en hópurinn hafði
stutta viðkomu á Svalbarða áður en
lagt var í hann. Stefnt er að því að
hópurinn komist á pólinn þann 14.
apríl næstkomandi. Ingibjörg seg-
ist bjartsýn á að eiginmanni sínum
takist ætlunarverkið – að komast á
norðurpólinn – en segir þó að hann
sé ekki beint reyndur fjallagarpur.
„Hann er mikill útivistarmaður og
vel á sig kominn en hann er ekki
reyndur fjallamaður,“ segir hún.
Með í för er kínverskur vinur
þeirra Hjörleifs og Ragnars en þeir
þrír voru allir saman við nám í Pek-
ing-háskóla árin 1976 til 1980. Sá
er afar reyndur fjallgöngumaður og
segir Ingibjörg að hann hafi klifið
hæstu fjöll allra heimsálfa auk þess
að hafa fengið á suðurpólinn. Ferð á
norðurpólinn er það eina sem hann
á eftir að afreka.
Hjörleifur varð sextugur fyrr á
þessu ári en aðspurð hvort ferðin
tengist afmælinu segir Ingibjörg að
svo sé ekki. „Nei, nei. Þetta er bara
ævintýramennska af engu sérstöku
tilefni. Nema ef vera skyldi til að
fagna 40 ára stjórnmálasambandi Ís-
lands og Kína,“ segir Ingibjörg.
einar@dv.is
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir
Fjölmenni hjá Sam-
tökum lánþega
Hátt í 400 manns mættu á fund
Samtaka lánþega á mánudags-
kvöldið. Á fundinum var fjallað
um endurútreikning og innheimtu
gengislána. Flytja þurfti fundinn
í stærri sal á Grand hóteli vegna
mikillar aðsóknar, að því er fram
kemur á heimasíðu samtakanna,
lanthegar.is: „Markmiðið var að
leita svara við því hvernig lánþegar
eigi að svara bankanum sínum,
hvort þeir þurfi aðstoð lögfræðings
og hvort líkur séu á að lánþegar fái
bakreikning seinna vegna gengis-
lána. Guðmundur Andri Skúlason,
talsmaður samtakanna, segir að
fólk sé gríðarlega óánægt með end-
urútreikning bankanna og að fólki
finnist augljóslega á sér brotið.“