Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2012, Side 20
20 Viðtal 7.–9. september 2012 Helgarblað
Þ
að má að mörgu leyti segja
að þingið sé sjálfu sér verst,“
segir Steingrímur J. Sigfús-
son, atvinnuvega- og ný-
sköpunarráðherra og for-
maður VG, aðspurður um þá ímynd
sem Alþingi gefur af sér. „Þingið birt-
ir oft af sér neikvæðar myndir. Af
þeim mætti kannski draga þá álykt-
un að þar sé ævinlega allt í upplausn.
Allt í deilum, illindum og leiðindum.
Það er auðvitað röng mynd því það
er unnin mikil og fagleg og vönduð
vinna í þinginu og þingnefndunum.“
Steingrímur segir mikilvægt að
setja ákveðna fyrirvara við tal um
þverrandi traust á þinginu. Erfitt sé
að mæla slíkt. „Nú er þetta tal um
traust á þinginu vandasamt og þegar
menn vitna í skoðanakannanir verð-
ur að hafa í huga að það er dálítið
annað að mæla viðhorf til fyrirbæris-
ins þjóðþings og svo fulltrúanna sem
þar sitja. Þeir sem hafa kosið einn
flokk eru kannski ekkert líklegir til
að lýsa yfir miklu trausti yfir stofnun
sem að stórum hluta samanstendur
af fólki sem er í flokki sem það kaus
ekki,“ segir Steingrímur sem telur
að almennt ríki traust til þeirrar að-
ferðarfræði sem felist í löggjafarsam-
kundu eins og Alþingi. „Þetta er auð-
vitað sambland af mörgu og spilar út
í andrúmsloftið í samfélaginu sem er
tortryggið. Það er að ýmsu leiti enn í
sárum eftir hrunið. Það er takmarkað
traust á ýmsum stofnunum og þar á
meðal stjórnmálum. Þetta leggst allt
saman og þingið hefur átt svolítið á
brattann að sækja.“
Vanhugsað upphlaup
Steingrímur segir að þingmenn
verði að líta í eigin barm. „Menn
hugsa kannski út í hvað þeir eru að
gera þegar þeir fara sjálfir í pontu
og skammast yfir því að þingið njóti
einskis trausts. Þeir eru svo kannski
sjálfir að bæta í með því sem þeir
segja og gera. Við verðum að horf-
ast í augu við það að sjálf hljótum við
að bera höfuðábyrgð á trausti þings-
ins.“ Hann segir þingstörfin verða að
vera skipulegri. „Við þurfum að bæta
vinnubrögðin hjá okkur.“
Sérstaklega nefnir hann tafir á
síðasta þingi vegna síendurtekinna
málþófa. „Við höfum orðið fyrir töf-
um og erfiðleikum út af löngum um-
ræðum og átökum í málum sem eru
ekki endilega stórar pólitískar deil-
ur um.“ Þar vitnar Steingrímur til
endurtekinna málþófa á Alþingi
stuttu áður en fresta átti þingi. Með-
al þess sem deilt var um var hækkun
á kvóta sem greiddur var í íslenskri
mynt hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.
Deilt var um breytta stjórnskipan
ráðuneyta auk þess sem umræða um
ráðgefandi kosningu vegna draga
stjórnlagaráðs að breyttri stjórnar-
skrá tafðist töluvert vegna umræðu
í þinginu. „Það sem fer enn meira í
taugarnar á mér er þegar tímanum er
bara sóað í einhverja vitleysu. Þegar
ekki er verið að takast almennilega
og heiðarlega á um raunveruleg póli-
tísk ágreiningsmál,“ segir Steingrím-
ur og nefnir umræðuna um fjölda
ráðuneyta.
„Ég verð að viðurkenna að í um-
ræðunni um sameiningu ráðuneyta
fannst mér menn komnir í vissar
ógöngur. Þingið var komið í mótsögn
við sjálft sig. Þingið notaði vikur og
jafnvel mánuði af sínum dýrmæta
tíma í málþóf um það. Gleymum því
ekki að hér situr þingbundin ríkis-
stjórn í landinu. Við búum nú einu
sinni við þingræði og ríkisstjórn sem
sækir umboð sitt til Alþingis og þess
meirihluta sem hún styðst við.“ Hann
segir marga gjarna á að stilla fram-
kvæmdavaldinu upp sem algjörri
andstæðu við löggjafann. „Það er
mótsagnarkennt þegar menn annars
vegar tala um aðgreiningu vald-
þátta og mikilvægi þess en hins vegar
þegar kemur að hreinu verkefni
framkvæmdavaldsins, þá eyði þing-
ið óhemju tíma í að samþykkja ein-
falda nafnabreytingu á ráðuneytum.
Það er hreint verkefni framkvæmda-
valdsins að skipuleggja sig sjálft.“
Að drekkja stofnunum
Steingrímur segir umhugsunarvert
fyrir þingið hvernig það ætli að styrkja
stöðu sína. „Þingið styrkir sig ekki
endilega með innihaldslitlum mót-
þróa við mál. Það gagnast því lítið að
vera með endalaust tal um hvað mál
komi seint.“ Steingrímur segist hafa
áhyggjur af því sem hann segir tilraun
til að drekkja ráðuneytum og stofnun-
um í fyrirspurnum. „Mér finnst fólk
eiginlega komið í ógöngur með þessi
mál. Þegar menn fara að nota það
gríðarlega mikilvæga tæki þingsins að
óska eftir upplýsingum til að drekkja
ráðuneytunum í endalausum fyrir-
spurnum og skýrslubeiðnum. Það er
ekki mjög uppbyggilegt.“
Alþingi hefur á árunum eftir hrun
tekið á sig nokkurn niðurskurð. Laun
þingmanna voru lækkuð stuttu eftir
hrunið og aðstoðarmönnum þing-
manna fækkað. Bent hefur verið
á að þingið sé í raun undirmann-
að. Spurður hvort þetta spili inn í
og hafi áhrif á þingið segir Stein-
grímur; „Þingið hefur þurft að herða
beltið eins og aðrir svo víða í samfé-
laginu. Það hefur aðeins verið reynt
að styrkja nefndarsviðið enda álag-
ið verið mikið. Það er alveg rétt að
álagið á þinginu undanfarin ár hef-
ur ekki hjálpað. Menn verða pirrað-
ir og þreyttir. Þetta hefur verið erfiður
og krefjandi tími fyrir þingið en guð
minn góður, hvað má þá segja um
ráðuneytin og marga aðra aðila.“
Hlaupið hratt
„Það er verið að hlaupa hratt allstað-
ar hjá hinu opinbera. Almennt hafa
opinberir starfsmenn unnið þrek-
virki þessi erfiðu ár eftir hrun. Þing-
ið er svo sem ekkert öðruvísi hvað
það varðar.“ Hann tekur fram að
þótt hann gagnrýni mikið magn fyr-
irspurna sem hann sjálfur telur oft
vera kall eftir upplýsingum sem auð-
veldlega má finna á vefsíðum ráðu-
neyta og stofnana, telji hann óund-
irbúinn fyrirspurnartíma þingsins
mikilvægan. „Ég er ekki að tala um
að við hættum því. Við þurfum samt
að fá á þingið þann blæ að til við-
bótar við mikilvæg störf sem unn-
in eru í þinginu komi ekki endalaus
læti undir liðnum störf þingsins eða
um fundarstjórn forseta. Þar bætist
kannski hálftími til fjörutíu og fimm
mínútur við þingfund sem fer bara í
einhverja steypu.“
Steingrímur rifjar upp heimsókn
sína til Þýskalands þar sem hann
heimsótti þingið fyrir nokkrum
árum með hópi þingmanna. „Við
vorum að bera saman bækur okk-
ar og spurðum Þjóðverjana hvort
þeir hæfu þing með umræðum um
fundarstjórn og jafnvel dagskrána.
Þeir vissu ekkert hvað við vorum að
tala um. Við spurðum hvort menn
væru ekkert að rífast um fyrirkomu-
lag fundarins? Nei, heldur þú að við
bjóðum þjóðinni upp á að þjóðþing-
ið hennar geti ekki verið búið að
koma sér saman um dagskrá fund-
ar.“ Hann segir það alltaf sitja í sér
hve ólík nálgun þýskra þingmanna
var á málefni þingsins. „Þeir nálguð-
ust þetta út frá virðingu fyrir þinginu
og þjóðinni. Það væri ekki þjóðinni
bjóðandi að hennar æðsta stofnun
sýndi á sér svona tætingslegt yfir-
bragð. Þetta er auðvitað hinn þýski
agi og allt það en þessi ólíka nálgun
situr alltaf í mér.“
Enn aðhaldssöm fjárlög
Talið berst frá störfum þingsins að
fjárlagafrumvarpi næsta árs. Sam-
kvæmt venju mun fjármálaráðherra
leggja fram frumvarp að fjárlögum
á fyrsta degi þingsins. Á sinni tíð
sem fjármálaráðherra mælti Stein-
grímur fyrir þremur erfiðum fjárlög-
um. Sjálfur segir hann þau raunar
hafa verið fjögur þar sem aukafjár-
lög í upphafi árs 2009 hafi í raun
verið ný fjárlög. „Þetta er enn að-
haldssamt frumvarp. Við erum ekki
komin alla leið upp á bakkann. Við
erum mjög að nálgast og það er að
grynnka. Frumvarpið verður þó ekki
nálægt því eins erfitt og þau sem eru
að baki.“
Uppselt Ísland
Talið berst að fyrirhugaðri hækkun
virðisauka á ferðaiðnað. Fram hef-
ur komið að málið sé til skoðunar
og að vilji sé til að veita lengri að-
lögun en í fyrstu var ætlað. Stein-
grímur vildi ekki fara of ítarlega í
innihald frumvarpsins enda hafi
það ekki enn verið lagt fram. „Ég vil
nú ekki detta í mitt gamla hlutverk
sem fjármálaráðherra, það er auð-
vitað hann sem leggur frumvarp-
ið fram.“ Spurður hvort ekki sé þó
rétt að þingið taki tillit til gagnrýni
sem fram hefur komið á fyrirhugaða
hækkun virðisauka og þá sérstak-
lega hvað varðar stuttan frest. „Varð-
andi þetta með virðisaukaskattinn á
ferðaþjónustuna þá verð ég að segja
að ég held að menn hafi gert alveg
óskapleg mistök þegar menn í ör-
læti sínu í meintu góðæri lækkuðu
virðisaukaskattinn úr fjórtán í sjö
prósent. Það var kannski sök sér að
vilja gera vel við menningu og lækka
matvælaverð en að láta hluti eins og
gistingu á hótelum fylgja með, var
mikið örlæti. Þar fyrir utan var þetta
efnahagslega mjög óheppileg að-
gerð sem ýtti frekar undir þenslu en
að skila sér í verðlagið.“ Steingrímur
segir stórt skref að fara til baka í fullt
þrep. „Við ætlum að gefa ákveðna
aðlögun. Hvort hún er næg verðum
við að ræða.“
Ferðaiðnaður á Íslandi hef-
ur undanfarin ár notið lágs geng-
is gjaldmiðilsins og nokkur vöxtur
hefur verið í greininni undanfar-
in ár. Þetta gerir Steingrímur að
umtalsefni. „Það má segja að Ís-
land sé bara nánast uppselt suma
mánuðina. Það er auðvitað mark-
mið í sjálfu sér að ná virðisauka úr
þessari grein eins og öðrum. Það
eru efnisleg og skynsamleg rök fyrir
því að endurskoða núverandi fyrir-
komulag.“
Landspítalinn að þolmörkum
Tækjabúnaður Landspítalans hefur
verið til umræðu undanfarið og full-
yrt að spítalinn sé kominn að þol-
mörkum hvað þetta varðar. Hvort
meira verði skorið niður hjá spítal-
anum segir Steingrímur að það séu
auðvitað takmörk hvað hægt sé að
ganga langt. „Stjórnendur Landspít-
alans hafa staðið sig feikilega vel,
þrátt fyrir takmarkaðar fjárveitingar.
Þeir meta það sjálfir og segja eflaust
af einlægri sannfæringu að ekki sé
hægt að ganga lengra.“ Hann seg-
ir þær aðhaldsaðgerðir sem verði í
frumvarpinu verði minni en undan-
farin ár. „Við munum fara að geta
sett meira fjármagn í velferðar- og
heilbrigðisþjónustuna sem og rík-
isstofnanir sem við viljum leggja
áherslu á að efla þegar við erum
komin upp á bakkann.“
Virkjanasinnar ekki út á guð og
gaddinn
Steingrímur leggur áherslu á að
Rammaáætlun verði samþykkt á
komandi þingi. Hann segir vinnuna
við hana vandaða og undrast deilurn-
ar í kringum málið. Hann segir sam-
þykkt hennar verða áfangasigur fyrir
umhverfisvernd. „Þarna eru fjölmörg
svæði sem hafa verið bitbein að
undanförnu í verndarflokki þó ekki
séu þau þar öll.“ Hann segir ekki
rétt að láta að því liggja að verið sé
að útiloka flest svæði frá virkjunum.
„Það er ekki eins og verið sé að setja
orkufyrirtækin út á guð og gaddinn.
Hundruð megavatta verða tilbúin til
virkjunar í nýtingaflokki. Ekki síst í
jarðhitanum. Sumum finnst reynd-
ar um of eins og á Reykjanesinu en
aðrir kostir eru minna umdeildir
eins og háhitasvæðin sem búið er að
rannsaka og að hluta til virkja í Þing-
eyjarsýslum. Þar bíða margir virkj-
anamöguleikar sem menn geta far-
ið í um leið og búið er að ganga frá
samningum um sölu á orku.“
Steingrímur telur of mikið gert
úr deilunum um einstaka virkjana-
kosti. „Menn eiga bara að hætta
þessum deilum og klára þetta mál.“
Aðspurður hvort hann undrist þá
sem gagnrýna tilfærslu nokkurra
virkjanamöguleika yfir í biðflokk að
loknu umsagnarferli iðnaðar- og
umhverfisráðuneytisins segir Stein-
grímur svo vera. „Ef menn eru með
gagnrýni sinni að segja að engu hafi
mátt breyta, þá eru menn líka að
segja að umsagnarferlið hafi verið í
plati.“
320 þúsund sérfræðingar
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráð-
herra sagði nýlega að mikil áhersla
yrði lögð á að klára breytingar á
fiskveiðistjórnun á komandi þingi.
Spurður hvort hann sé vonsvikinn
vegna þess að ekki hafi tekist að ná
breytingunum í gegn á síðasta þingi
segir Steingrímur að ekki megi líta
framhjá því að stórt skref sé stig-
ið með veiðigjöldum. „Ég trúi því
að hægt verði að landa þessu máli
þannig að allir verði sæmilega sátt-
ir.“ Hann segir málið flókið og það
standi nærri hjarta fólks. „Við höfum
öll skoðanir á þessu. Það eru næst-
um 320 þúsund sérfræðingar um
sjávarútveg í landinu.“ Steingrím-
ur segir margt sem taka þurfi tillit til
í þessu máli. „Sjávarútvegurinn er
ekki einsleitur út um allt land. Það
eru litlar útgerðir og stórar. Það eru
litlar byggðir og stórar byggðir. Sum-
ar hafa farið vel út úr kvótakerfinu í
þeim skilningi að þeir búa að mikl-
um veiðiheimildum í dag. Önnur
svæði, byggðarlög eða útgerðir hafa
farið illa út úr kerfinu og hafa misst
sínar veiðiheimildir og eru í sárum.“
Margir hafa gagnrýnt stjórnar-
flokkana fyrir að ganga ekki nægjan-
lega langt í breytingum. Bæði Sam-
fylking og VG hafa verið sökuð um
að svíkja eigin kosningaloforð í til-
raun til þjónkunar við kvótaeigend-
ur. Steingrímur segist þrátt fyrir þetta
trúa að hægt sé að ná sáttum um sjáv-
arútveg. „Þegar menn koma svo með
hetjuyfirlýsingar um að þetta sé bara
aumingjaskapur að gera ekki þetta
og hitt held ég að menn séu ekki vel
innvígðir í þennan heim. Þetta er
gríðarlega flókið og erfitt mál.“
Röklaus Evrópusambands umræða
Steingrímur segir VG alvara með að
„Alls stAðAr verið
Að hlAupA hrAtt“
Steingrímur J. Sigfússon, atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra og formaður VG, býr sig undir lokaþing
kjörtímabilsins. Alþingi verður sett þann 11. september næstkomandi. Atli Þór Fanndal hitti Steingrím í
tilefni af komandi þingi til að fara yfir stöðu þingsins og atburði kjörtímabilsins. Á næstu dögum mun DV
birta viðtal við formenn stjórnmálaflokkanna á þingi.
Atli Þór Fanndal
atli@dv.is
Viðtal „Ég er ekki í nokkrum vafa um
að það hefur skipt miklu
fyrir velferðarsamfélagið
á Íslandi að það tókst að
mynda þessa ríkisstjórn.