Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2012, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2012, Blaðsíða 34
34 7.–9. september 2012 Helgarblað Stórafmæli Stórafmæli Séra Lena Rós Matthíasdóttir 40 ára 7. sept. Haukur Þór Sveinsson 40 ára 8. september 33 ára 8. sept. Rokksöngkonan með viskíröddina, Pink, sem gaf út Get The Party Started. 47 ára 9. sept. Hinn sífyndni Adam Sandler fagnar afmæli á sunnudaginn. 58 ára 7. sept. Corbin Bernsen leikarinn sem leikur hinn ógeðfellda lögfræðing í LA Law. 7. september 1191 – Þriðja krossferðin: Ríkharður ljónshjarta sigraði Saladín í orrust- unni við Arsuf. 1822 – Brasilía lýsti yfir sjálfstæði. 1874 – Sigurður Guðmundsson málari lést, 41 árs. Aðeins mánuði fyrr hafði hann ásamt Sigfúsi Eymundssyni séð um þjóðhátíðina, sem haldin var á Þingvöllum. 1972 – Ísland og Belgía gerðu með sér samning um heimildir fyrir belgíska togara til fiskveiða innan 50 mílna markanna í tvö ár. 1992 – Haraldur 5. og Sonja, konungshjón Noregs, komu í þriggja daga opinbera heimsókn til Íslands. 1998 – Fyrirtækið Google var stofnað. 2000 – Íslenska kvikmyndin Íslenski draumurinn frumsýnd. 8. september 1208 – Víðinesbardagi milli liðs Ásbirninga og Svínfellinga og liðs Guðmundar Arasonar Hólabiskups. 1636 – Elsti háskóli Bandaríkjanna, New College, síðar þekktur sem Harvard-háskóli, var stofnaður. 1891 – Brú yfir Ölfusá var vígð að viðstöddu miklu fjölmenni. Þetta var fyrsta hengibrú á Íslandi. Þessi brú var í notkun þar til annar burðarstrengur hennar slitnaði 6. september 1944. 1908 – Peter Adler Alberti Íslandsráðherra játar á sig fjársvik og skjalafals. 1921 – Goðafoss, annað skip Eimskipafélags Íslands með þessu nafni, kom til Íslands í fyrsta sinn. 1931 – Staðfest voru lög um notkun bifreiða. Hámarkshraði var hækkaður úr 18 í 25 kílómetra á klukkustund í þéttbýli og 40 km/ klst utan þéttbýlis. 1931 – Tóbakseinkasölu aftur komið á á Íslandi. 1943 – Síðari heimsstyrjöldin: Tilkynnt var um vopnahlé milli bandamanna og Ítalíu. 1973 – Rússnesk njósnatæki fundust í Kleifarvatni. 1975 – Dagblaðið, frjálst og óháð dagblað, hóf göngu sína. 1977 – Þriðja hrina Kröfluelda hófst og gaus norðan við Leirhnjúk. Þetta gos stóð aðeins til næsta dags. 1979 – Tvö hundruð ár voru liðin frá andláti Bjarna Pálssonar, fyrsta landlæknis á Íslandi, og var þess minnst með minnisvarða, sem afhjúpaður var við Nesstofu á Seltjarnarnesi, en þar bjó Bjarni. 1991 – Lýðveldið Makedónía varð sjálfstætt ríki. 2007 – Bílsprengja varð yfir 50 manns að bana í Dellys í Alsír. 9. september 1000 – Svoldarorrusta átti sér stað í Eystrasalti þar sem Ólafur Tryggvason lést. 1087 – Vilhjálmur rauður varð konungur Englands. 1208 – Víðinesbardagi var háður í Hjaltadal, en þó gæti hann hafa verið daginn áður. Höfðingj- ar sóttu með mikinn her að Guðmundi góða Arasyni, biskupi á Hólum. Í þessum bardaga féll Kolbeinn Tumason. 1913 – Íþróttafélagið Þór stofnað í Vestmannaeyjum. 1914 – Orrustunni við Marne lauk. 1926 – Snjókoma var og vöknuðu Reykvíkingar við alhvíta jörð að morgni. Talið er að aldrei hafi gert alhvítt fyrr að hausti í Reykjavík. 1942 – Breskum flugmanni tókst á síðustu stundu að beina flugvél sinni frá húsi í Elliðaárdalnum er hann brotlenti þar í kartöflugarði. 1998 – Háhyrningurinn Keikó kom til Vestmannaeyja. Merkis- atburðir Prestur með dómara- próf í knattspyrnu É g fæddist í heimabæ móður minnar, Akureyri þann 7. september 1972 klukkan 7 mínútur í sjö um morguninn og er því orðin fertug í dag. Föðurfólkið mitt er frá Ólafsfirði þar sem ég ólst upp við allt það ríkidæmi sem lítið þorp úti á landi hefur upp á að bjóða,“ segir Lena Rós. Ólst upp á Ólafsfirði Lena segir að fyrstu árin hafi hún búið í seilingarfjarlægð frá fjörunni í húsi langömmu sinnar og lært snemma á skóflu og fötu og listina að láta sjóinn ekki ná sér: „Stundum kallað­ ist maður á við hafið, stund­ um sat maður flötum beinum í sandinum og rann einhvern veginn saman við hvissið í sjónum og gargið í fuglunum. Allt um kring iðaði bryggjan af vinnandi fiskvinnslufólki og lyktin af seltu og þara smaug inn fyrir merg og bein. For­ eldrar mínir voru útgerðar­ menn og því má segja að ég hafi snemma pissað í saltan sjó.“ Lena segir að Ólafsfjörð­ ur sé annáluð vetrarparadís og þegar hún stálpaðist æfði hún skíðagöngu yfir vetrar­ mánuðina en langhlaup og fót­ bolta á sumrin. „Svo var þetta eins og gengur, maður tók þátt í öllu sem í boði var, skátum, kór, frjálsum íþróttum, æskulýðs­ fundum, tónskóla og svo fram­ vegis.“ segir Lena Rós um lífið fyrir norðan. „Einhver fallegasta minning mín úr æsku er einmitt tengd brölti mínu og frænku minn­ ar, Kristjönu J. Ásbjörnsdóttur. Við höfðum komið okkur upp fínasta búi úr tóftum sem við fundum lengst uppi í Ós­ brekkufjalli og lærðum löngu síðar að hefði verið Ósbrekku­ kot. Við gerðum samning við Skíða frænda á Trésmíðaverk­ stæðinu og fengum timbur í skiptum fyrir að naglhreinsa vænan spýtnahaug á bak við verkstæðið. Svo roguðumst við með þetta upp í fjall, settum upp borð og bekk og gerðum þetta voðalega huggulegt. Þá munaði sannarlega um upp­ þvottaburstann sem við fund­ um í fjörunni og brúsann sem endaði sem blómavasi. Þetta voru dásamlegir tímar enda er æskan böðuðu ljóma.“ Lærði til prests Lena Rós gekk í Grunnskóla Ólafsfjarðar: „Ég er svo lánsöm að eiga foreldra sem þreytt­ ust ekki á því að segja mér að ég væri mikils virði, að ég væri hæfileikarík, gáfuð og sterk og gæti gert hvað sem ég vildi. Þau hvöttu mig til náms og fyr­ ir það verð ég þeim ávallt þakk­ lát.“ Eftir grunnskóla tók Lena fyrsta árið á uppeldisbraut í framhaldsdeildinni í Ólafs­ firði, annað árið á málabraut í Menntaskólanum á Akureyri og þriðja árið á íþróttabraut í Verkmenntaskólanum á Akur­ eyri. Hún ætlaði svo að útskrif­ ast af félagsfræðibraut, en fékk ekki að skipta einu sinni enn og varð því stúdent frá íþrótta­ braut VMA. „Ætli ég sé ekki eini presturinn í Þjóðkirkjunni sem er búinn að taka dómarapróf í fótbolta og með þjálfararéttindi í hinum ýmsu íþróttagreinum,“ segir þessi skemmtilega kona. Þvælingurinn á Lenu milli brauta og skóla á sér einfalda skýringu: Ég vissi að ég vildi verða prestur en fannst það ekki ,,sexí“ eða ,,smart“ (sem var býsna mikilvægt á þessum árum) svo ég barðist í raun­ inni gegn þeirri hugsun. En að lokum lét ég undan kölluninni og árið 1995 hóf ég nám í guð­ fræði við Háskóla Íslands,“ seg­ ir Lena. Lena útskrifaðist sem Cand. Theol. og síðan þá hefur hún einnig lokið diplómu í sál­ gæslufræðum frá H.Í./E.H.Í: „Eftir útskrift þurfti ég að bíða í tvö ár eftir lausu ,,brauði“, en nýliðun í prestastétt er frekar hæg. Ég var mjög heppin og fékk fyrsta auglýsta brauð eft­ ir útskrift og var vígð af herra Karli Sigurbjörnssyni til þjón­ ustu við Grafarvogssöfnuð. Á hlaupársdegi, þann 29. febrú­ ar árið 2004, var ég sett í em­ bættið og má því segja að ég verði alltaf ung í þjónustunni. Ég er langt komin með heilan tug í embættinu en samt bara búin að eiga tvo ,,afmælisdaga“. Mér finnst það góð tilhugs­ un og líka áminning um að vera dugleg að sækja mér sí­ menntun og halda mér ferskri. Það er alltof auðvelt að verða samdauna einhverju kerfi sem maður kemur sér upp og daga uppi í litla þægindahringnum. Það á við um okkur öll, sama í hvaða starfi við finnum okkur.“ Þakklát fyrir fjölskylduna Lena er þakklát fyrir margt. Auðvitað fyrir börnin sín og segir að það að eignast barn sé afrek sem maður fái aldrei fullþakkað. Lena vill samt við þessi tímamót þakka manni sínum Hannesi Páli Víglunds­ syni, fyrir að standa við hlið sér öll þessi ár. „Við byrjuðum að stinga saman nefjum á ferm­ ingarári mínu þegar ég var ný­ skriðin yfir fjórtán ára afmæl­ isdaginn og hann fimmtán. Síðan þá hefur hann staðið með mér í gegnum súrt og sætt, eins og það er orðað. Við eigum svo mikla sögu saman, minn­ ingar sem koma upp á færi­ bandi ef ég læt hugann reika. Til dæmis þegar hann braut ís­ inn í fyrstu tjaldútilegunni okk­ ar og bauð mér kleinu þegar ég var að vonast eftir kossi eða fyrsta bringuhárið hans sem ég fann á undan honum eða þegar hann var á háskólaár­ um mínum að vinna á fjórum stöðum til að koma mér náms­ lánalaust í gegnum námið. Við erum búin að skoða heiminn saman og bökkum hvort ann­ að upp á ótal vegu. En þrátt fyr­ ir að árin séu orðin mörg tekst honum alltaf að koma mér á óvart. Eins og í hjónavígslunni okkar þann 17. ágúst 2002 í Ólafsfjarðarkirkju, þegar ég kom honum á óvart með því að láta spila sálminn ,,You never walk alone“. Án þess að hika eitt andartak, reis hann á fæt­ ur, sneri sér til mín og bauð mér upp í dans. Síðan þá tökum við dansinn, hvar sem við erum stödd, ef við heyrum sálminn hljóma.“ Í sumar fór Lena með alla fjölskylduna til Spánar og frumburðurinn kom með þótt hann sé floginn úr hreiðrinu. Einnig fóru svo dömurnar í fjöl­ skyldunni í pílagrímareisu að Hólum í Hjaltadal til að vera við sögulega biskupsvígslu Á tíma­ mótum þegar við höldum upp á 900 ára þjónustu karla við Hóladómstól, fengum við að fagna því þegar kona í embætti biskups Íslands vígði aðra konu til embættis vígslubiskups að Hólum. Þar með fengu dætur mínar að upplifa þau tímamót þegar Þjóðkirkjan opnaði dyr sínar upp á gátt, svo að öll sæti eru nú jafnt ætluð konum sem körlum. Þannig varð sumarið 2012 mikilvægt sumar og mun seint gleymast“ segir Lena. „Ég hlakka reglulega til af­ mælisdagsins þar sem ég hef ekki haldið upp á afmælið mitt á fullorðinsaldri. Núna ætlar Hannes Páll að mæla fyrir skál klukkan sjö mínútur í sjö að kveldi hins sjönda dags sept­ embermánaðar og skilst mér að ræðan verði flutt í sjö orðum. Ég er mjög spennt að heyra hvaða orð verða fyrir valinu. Ég ætla að bjóða upp á smá­ rétti og pinnamat og æðislega vegan­köku með kaff inu. Allar líkur eru á því að við systurnar tökum okkur saman og dustum rykið af gömlum dansrútínum sem við æfðum í bílskúrnum í gamla daga. Það var sko út­ pæld kóreógrafía undir áhrif­ um frá Madonnu og Michael Jackson. Svo verður að sjálf­ sögðu tjúttað inn í nóttina.“ seg­ ir Lena að lokum. H aukur Þór er fædd­ ur á heilsugæslustöð Patreks fjarðar og alinn upp á Barðaströnd „Það var mjög gott að alast upp á Barðaströndinni og það var alltaf nóg að gera hjá okkur krökkunum og ég á ótal góð­ ar minningar frá æskuárunum þar,“ segir Haukur Þór. Þegar Haukur Þór hóf grunn skólagöngu sína fór hann í Grunnskólann í Birkimel í 1. ­ 8. bekk en 9. bekkinn, sem í dag er 10. bekkur, tók hann í Reyk­ holtsskóla í Borgarfirði. „Sumarið fyrir 9. bekkinn byrjaði ég svo til sjós og eft­ ir það var ekki aftur snúið því ég er þar enn og hef aldrei gert neitt annað en það. Ég er í dag kokkur á frystitogar­ anum Helgu Maríu sem HB­ Grandi gerir út, ásamt því að gera út smábáta sem ég á í fél­ agi við annan mann. Það er mjög skemmtilegt og góð til­ breyting frá löngum útiverum á togaranum,“ segir Haukur Þór sem greinilega er sjómað­ ur út í gegn. Aðspurður um uppáhalds­ minningar sínar frá fullorð­ ins árunum segir Haukur Þór: „Ég á 3 fallega og góða drengi og eru fæðingar þeirra mín­ ar bestu minningar frá því að ég varð fullorðinn. Við gerð­ um margt skemmtilegt í sum­ arfríinu, til dæmis fórum við nokkrar ferðir vestur í sveitina þar sem er hvergi betra að vera. Auk þess fór fjölskyld­ an á Unglingalandsmót á Sel­ fossi þar sem drengirnir tóku þátt í flestu sem í boði var og stóðu sig með stakri prýði og þetta var mjög fjölskylduvæn skemmtun og eftirminnileg.“ Haukur Þór skellti sér svo á Danska daga í Hólminum með góðum vinum í sumar og segir hann það hafi verið ofsa­ lega gaman. Hann mun fagna þessu stórafmæli sínu úti á sjó eins og svo oft áður. Fagnar afmæli sínu úti á sjó Haukur Þór „Ég á 3 fallega og góða drengi og eru fæðingar þeirra mínar bestu minningar frá fullorðinsárunum.“ Séra Lena Rós Dustar rykið af dansrútínum með systrum sínum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.