Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2012, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2012, Blaðsíða 26
26 Viðtal 7.–9. september 2012 Helgarblað T ryggvi Guðmundsson hef- ur verið fyrirmynd ungra og upprennandi fótboltamanna- og kvenna um langt skeið. Hann missti fótanna í sumar. Gerði mistök. Áfengi er böl og því fékk hann að kynnast. Tryggvi sættist á að hitta blaða- mann, rifja upp ferilinn og rekja at- burði sumarsins. Hann hefur ekkert að fela. Hann vill fyrst og fremst skilja sjálfan sig og bæta sig. „Mannorð mitt finnst manni ekki upp á marga fiska í dag,“ segir Tryggvi. „Maður var með bullandi respekt á vellinum. Það er ekki endilega þannig í dag.“ Hækkaður um bekk Tryggvi er Vestmannaeyingur í húð og hár. Hann fæddist hins vegar í Reykja- vík ári eftir gos. „Mamma og pabbi voru bara unglingar þegar þau áttu mig, ég var slys,“ segir hann glettinn. „Þau bjuggu aldrei saman. Ég á stóra fjölskyldu, á tvö systkini mömmu megin og fjögur pabba megin og er í góðum sam- skiptum við þetta fólk. Ég bjó hjá mömmu úti í Eyjum meira og minna alla æskuna. Ég fór reglu- lega til pabba sem flutti hingað í bæ- inn rétt eftir gosið.“ Tryggvi var bráðger drengur og fljótt komu í ljós ótvíræðir hæfileikar hans. Bæði til íþrótta og til náms. „Ég var í öllu sem hægt var að vera í úti í Eyjum. Ég var í handbolta og fót- bolta, ég byrjaði fimm, sex ára eins og flestir. Svo var ég eitthvað að fikta í golfi líka. Ég átti góða æsku hjá móður minni í Eyjum. Ég var auðvitað alltaf á æf- ingum en var líka mikill skólastrák- ur á yngri árum. Mér gekk reyndar mjög vel í skóla. Ég var til að mynda hækkaður um bekk og var með góð- ar einkunnir. Ég blandaði því geði við tvo ár- ganga og var vinmargur. Ég var með ‚74 árganginum í íþróttunum og ‚73 árgangi í náminu. Mér var alltaf boðið í flest afmælin,“ segir hann og hlær. Alltaf verið skapstór Tryggvi er skapstór. Hann segist ætíð hafa glímt við skapgerðina. Stund- um hafi hún verið honum til trafala en öðrum stundum var hún honum frekar til framdráttar. „Það var mikið keppnisskap í mér. Keppnisskapið var vandræðalegt fyr- ir mömmu og pabba þegar þau komu að horfa á mig. Maður var að fara úr treyjunni og henda henni í grasið og hlaupa út af, svo var maður skamm- andi samherjana og dómarana í æðiskasti. Mér er minnisstætt að ég fékk einu sinni gult spjald og sló það úr hendi dómarans. Þá var ég 11 eða 12 ára. Ég er enn með þetta skap en er kannski búinn að læra að fela tilf- inningar mínar betur enda væri það hálfskrýtið af gömlum karli að láta „Mér finnst ég hafa bru ðist“ Tryggvi Guðmundsson hefur átt afleitt en lærdómsríkt ár. Hann greindist með blóðtappa í fæti og fór á blóðþynningarlyf. Skömmu fyrir Íslandsmótið var hann stöðvaður drukkinn undir stýri í Vestmannaeyjum. Í kjölfarið fór hann beint á Vog. Um verslunarmannahelgina var hann svo settur í agabann vegna drykkju. Kristjana Guðbrandsdóttir settist niður með Tryggva og ræddi um ferilinn, eftirsjána og viljann til að vinna aftur traust. Kristjana Guðbrandsdóttir kristjana@dv.is Viðtal „Núna var ég farinn að sprauta mig í magann
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.