Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2012, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2012, Blaðsíða 23
Þetta verður svona bland í poka Ég er ekkert smeykur Það hafa nokkrir sótt um en hætt við Siggi stormur spáir fyrir um veðrið á komandi vetri. – DV Aðalmeðferði í meiðyrðamáli gegn Teiti Atlasyni hófst á miðvikudag. – DVÁsdís Jenna Ástráðsdóttir hefur auglýst eftir aðstoðarfólki. – DV F öðuramma mín var komin und- ir fertugt, þegar hún fékk kosn- ingarrétt. Það var 1915, en það ár fengu danskar og íslenskar kon- ur almennan kosningarrétt í áföngum, tveimur árum síðar en norskar konur og sex árum á undan sænskum konum. Sænskar konur fengu að vísu kosningar- rétt 1718, ef þær greiddu skatta, en þær misstu hann aftur 1771. Breskar kon- ur fengu ekki kosningarrétt í þingkosn- ingum fyrr en 1928, í sveitarstjórnar- kosningum 1869. Bandarískar konur fengu almennan kosningarrétt 1920 skv. breytingu á stjórnarskrá, en ýmis fylki Bandaríkjanna höfðu veitt konum kosn- ingarrétt fyrir þann tíma. Franskar konur fengu ekki almennan kosningarrétt fyrr en 1945. Nýfengin réttindi Hvers vegna rek ég þessa sögu hér? Ég geri það til að minna á, að óskorað lýð- ræði og fullt jafnrétti kynjanna eru ný- fengin réttindi, sem við þurfum að um- gangast af alúð og virðingu og getum ekki alltaf gengið út frá sem gefnum hlut, ef við gætum ekki að okkur. Við þurfum að sýna viljann í verki. Lýðræðið á illskeytta óvini. Það sann- ast á tilburðum andstæðinga frum- varps stjórnlagaráðs, sem sæta færis að gera lítið úr þjóðaratkvæðagreiðslunni um frumvarpið 20. október næstkom- andi og sýna lýðræðinu með því móti makalausa lítilsvirðingu. Fyrst hrintu þeir hagkerfinu fram af bjargbrúninni 2008 með glórulausri óstjórn efnahags- mála og bankamála. Þeir harðneita enn að biðjast afsökunar og axla ábyrgð, þótt níu binda skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis ræki ábyrgðina til þeirra, með- al annars til þriggja nafngreindra ráð- herra og fjögurra embættismanna; þar af voru fjórir sjálfstæðismenn. Þá tóku þeir upp baráttu gegn þeirri ákvörðun Alþingis að verða við kröfum búsáhalda- byltingarinnar 2009 um nýja stjórnar- skrá, kröfum, sem RNA tók undir í skýr- slu sinni 2010 og einnig þjóðfundurinn sama ár. Þessu næst beittu þeir málþófi á Alþingi til að koma í veg fyrir að vilji þingmeirihlutans til að halda þjóðarat- kvæðagreiðslu samhliða forsetakjöri 30. júní næði fram að ganga. Loks reyndu þeir aftur að beita málþófi á þingi til að koma í veg fyrir þjóðaratkvæðagreiðsl- una 20. október, en það tókst ekki. Nú reyna þeir að telja kjósendur af því að neyta atkvæðisréttar síns fram á kjör- dag, en kosningin er þegar hafin. And- stæðingar nýrrar stjórnarskrár með helstu forustumenn Sjálfstæðisflokksins í broddi fylkingar reyna að traðka á lýð- ræðinu við hvert fótmál. Varla verður því trúað að óreyndu, að óbreyttir flokks- menn taki þátt í þessari aðför að lýð- ræðinu með því að sitja heima. Hvers vegna mæla andstæðing arnir ekki gegn frumvarpinu með rökum og hvetja kjósendur til að greiða atkvæði gegn frumvarpinu og einstökum ákvæð- um þess? Hvers vegna ráða þeir kjós- endum ekki að greiða atkvæði gegn því, að auðlindir landsins komist í þjóðar- eigu? Hvers vegna ráða þeir kjósendum ekki að greiða atkvæði gegn jöfnu vægi atkvæða og persónukjöri við hlið lista- kjörs í alþingiskosningum? Hvers vegna ráða þeir kjósendum ekki að greiða at- kvæði gegn beinu lýðræði og greiðum aðgangi almennings að upplýsingum í fórum stjórnvalda? Spurningarnar svara sér sjálfar. Andstæðingar frumvarpsins reyna heldur að koma því til leiðar, að kjörsókn verði lítil, að því er virðist til að geta reynt að varpa rýrð á niðurstöðu at- kvæðagreiðslunnar eftir á með skírskot- un til lítillar kjörsóknar. Þó hefur það aldrei gerst, að úrslit atkvæðagreiðslu séu talin ógild vegna ónógrar kjörsóknar, enda er engin heimild í lögum til slíkrar túlkunar. Það er grundvallarregla í okk- ar stjórnskipun, að meirihlutinn ræður óháð kjörsókn. Reginsvik í Færeyjum Færeyingum var boðið til þjóðarat- kvæðagreiðslu 1946 um fullt sjálfstæði eyjanna, tveim árum eftir lýðveldis- stofnunina á Þingvöllum 1944. Sam- bandsflokkurinn, stærsti flokkur Fær- eyja, lagðist gegn sjálfstæði eins og hann gerir enn, en hann treysti því ekki, að kjósendur fylgdu leiðsögn hans, og fór því að eins og Sjálfstæðisflokkurinn nú: hann gerði lítið úr atkvæðagreiðslunni fyrirfram og hvatti fólk til að sitja heima eða skila auðum eða ógildum atkvæða- seðlum. Aðför Sambandsflokksins að lýðræðinu mistókst, kjörsókn var 67%. Sjálfstæðissinnar sigruðu með 51% at- kvæða gegn 49%. (Nánar tiltekið fengu sjálfstæðissinnar 49%, sambandssinn- ar 47%, og 4% atkvæðaseðla voru auð eða ógild.) Færeyska þingið lýsti fáein- um dögum síðar yfir stofnun lýðveld- is að íslenskri fyrirmynd. Eigi að síður ákvað kóngurinn, Kristján tíundi, fyrir hönd dönsku stjórnarinnar að hafa úr- slitin og ákvörðun lögþingsins að engu, sendi herlið til Færeyja, leysti þing- ið upp á þeirri forsendu, að lýðveldis- stofnun í Færeyjum bryti gegn stjórn- arskránni, og boðaði til nýrra kosninga. Þarna voru framin reginsvik við fær- eysku þjóðina, en Færeyingar fengu að vísu heimastjórn 1948, og þar við situr enn. Öruggasta leiðin til að tryggja, að sams konar svik verði ekki framin á Íslandi, er að fara á kjörstað og kjósa um frum- varp stjórnlagaráðs 20. október eða fyrr. Kjósendur hafa aldrei áður fengið slíkt tækifæri til að kjósa um jafnt vægi at- kvæða, auðlindir í þjóðareigu, greiðan aðgang að upplýsingum og aðrar slík- ar réttarbætur. Nú er lag. Látum ekki einstakt tækifæri okkur úr greipum ganga. Sýnum viljann í verki. Kjósum. Þegar amma fékk að kjósa Spurningin „Nei. Þetta er hefð og mér finnst að við ættum að halda í hefðina. Mér finnst hún ekki gróf til dæmis í MR miðað við aðra skóla.“ Eydís Ylfa Erlendsdóttir 21 árs nemi „Nei, mér finnst það ekki en það fer náttúrulega eftir skólum.“ Kristín Halla Helgadóttir 18 ára verðandi stúdent „Alls ekki, mér finnst það bara geðveikt. Það á alls ekki að hætta busunum.“ Sólrún Ragna Ragnarsdóttir 16 ára nýnemi „Mér finnst busanir til dæmis í MR ekki of grófar, sjálf á ég ótrú- lega ánægjulegar minningar af minni busun. En þegar skólar eru farnir að láta þá borða ógeðslega hluti og synda í slori þá finnst mér það of gróft.“ Eygló Hilmarsdóttir 20 ára verðandi stúdent „Alls ekki. Mér fannst þetta bara mjög skemmtilegt.“ Kristín Sól Ólafsdóttir 15 ára nýnemi Finnst þér busa- vígslur of grófar? 1 Ofurölvi á busaballi MH Unglingur var vistaður í fangageymslu lögreglu aðfaranótt föstudags. 2 Er orðin þreytt á jafnréttistali kvenna Stefanía Jónasdóttir segir konur vera orðnar óskaplega þreytandi vegna jafnréttistals. 3 Jón Helgi og fjölskylda selja Húsgagnahöllina Kaupendur eru bræðurnir Guðmundur Gauti og Egill Reynisson sem eiga Betra bak og Dorma. 4 Veiðisvæði Samherja við Máritaníu lokast Ríkisstjórnin í landinu færði fiskveiðilögsöguna út í 20 sjómílur og þarf Samherji að leita á önnur mið. 5 Sálgreinir: Himinn og haf á milli fantasíu og vilja vera nauðgað Sæunn Kjartansdóttir sálgreinir furðar sig á umræðu um smásagnabókina Fantasíur. 6 Vafasamt njósnaforrit Forrit fyrir snjallsíma sem getur tekið upp símtöl og lesið SMS-skilaboð. Mest lesið á DV.is Stund milli stríða Það hefur verið í nógu að snúast hjá vallarstjórum Laugardalsvallar í aðdraganda leiks Íslands og Noregs, sem fram fer í dag, föstudag. Á stundum hefur rignt eins og hellt væri úr fötu og því ekki nema von að Kristinn V. Jóhannsson hallaði sér stundarkorn að gafflinum. Mynd Eyþór ÁrnasonMyndin Kjallari Þorvaldur Gylfason Umræða 23Helgarblað 7.–9. september 2012
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.