Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2012, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2012, Blaðsíða 24
Stefnir alltaf á hámarkSárangur 24 Umræða 7.–9. september 2012 Helgarblað Vinsæl ummæli við fréttir DV.is í vikunni „Ég er karlmaður og verð líklega steiktur á teini, en ... getur allavega hluti af þessum launamun kynjanna verið vegna þess að konur eru oft og tíðum ragari við að krefjast launahækkana, bónusa etc? Ég get ekki ímyndað mér að þorri stjórnenda fyrirtækja gefa konum lægri laun bara vegna þess að þær eru konur.“ Snæbjörn Ólafsson í athugasemd við pistil sem Stef- anía Jónasdóttir birti í Morgun- blaðinu. DV fjallaði um efni pistilsins en í honum sagðist Stefanía vera komin með leið á jafnréttistali íslenskra kvenna. „Það jafnrétti sem þarf að nást er sömu laun fyrir sömu vinnu. Konur eiga að berjast fyrir því. Þegar þeim árangri er náð kemur allt annað af sjálfu sér. Þessi kynjabarátta um störf er ótrúlega leiðinleg. Af hverju berjast konur ekki um kynja- jafnrétti í leikskólastörfum, sjómennsku, bifvélaverk- stæðum og fleira?“ Herdís Ragna einnig í athugasemd við pistilinn sem Stefanía Jónasdóttir birti í Morgunblaðinu og DV fjallaði um. „Vá, þvílík spilling. Á sama tíma lokar velferðarráðherra göngudeild fyrir hjartasjúk- linga vegna sparnaðar […] á sama tíma er öðru starfsfólki sagt upp til að spara, á sama tíma fá sjúklingar sífellt minni og minni þjónustu vegna sparnaðar […] held að það sé gott fyrir fólk að hafa þessa forgangsröðun hæstvirts vel- ferðarráðherra í huga þegar gengið er til kosninga.“ Ragnheiður Rafnsdóttir í athugasemd við frétt þess efnis að Guðbjartur Hannesson vel- ferðarráðherra hafi hækkað laun Björns Zöega, forstjóra Landspítalans, um 450 þúsund krónur á mánuði. „Það er erfitt að gera upp við sig hvort er fyrirlitlegra, veruleikafirringin eða sjálfs- vorkunnin og heimtufrekjan.“ Magnús Helgason í athugasemd við nærmynd af Magnúsi Kristinssyni, útgerðar- manni í Vestmannaeyjum. Magnús, sem á margar viðskiptafléttur að baki, sagðist á dögunum líta á sig sem fórnarlamb en það gerði hann eftir að tilkynnt var um sölu útgerðarfyrirtækisins hans, Berg- Hugin. „Þetta heitir líklega að eiga við foreldra- vandamál að stríða. Held hann ætti að segja sig frá samstarfi við föður sinn.“ Haukur Már Haraldsson við frétt þess efnis að Kristbjörg ÍS-177, sem er í eigu útgerðarfyr- irtækisins Lotnu ehf. hafi verið gripið við framhjálöndun. Knattspyrnukappinn Gylfi Þór Sigurðsson er stjórnarformaður Lotnu en hefur sagt að hann komi ekki nálægt rekstrinum. 15 23 31 37 Sigurður Magnússon: Sæll vinur og til hamingju með starfið. Nú eru þessir strákar sem eru búnir að vera sem lengst í liðinu allir á besta aldri. Sérðu ekki fyrir þér að við getum náð enn betri árangri í komandi keppnum?  Aron Kristjánsson: Sæll. Takk fyrir það. Við eigum að sjálfsögðu möguleika á því að halda áfram góðu gengi landsliðsins. Það má þó hafa í huga þá miklu samkeppni sem er í alþjóðlegum handbolta. T.d. voru Svíar að ná silfri á ÓL eftir nokkur mögur ár og Ungverjar 4. sæti. Markmið HSÍ er að halda liðinu stöðugt í topp 10. Þorsteinn Guðmundsson: Ég veit að HSÍ hefur ákveðið markmið, sem er topp 10. Er ekki raunhæft að stefna hærra miðað við gengi síðustu ára?  Aron Kristjánsson: Það veltur allt á því hver staðan á liðinu er á hverju móti fyrir sig. Erum við með alla okkar sterkustu menn og þeir í góðu formi? Við erum eitt af þeim liðum sem eiga möguleika á að vinna til verðlauna en það eru líka 10–12 aðrar þjóðir. Við munum að sjálfsögðu stefna á hámarksár- angur hverju sinni. Aðalsteinn Kjartansson: Vinnum við gull undir þinni stjórn?  Aron Kristjánsson: Það væri óskandi. Við þurfum þó að halda okkur á jörðinni og reyna að vera meðal þeirra fremstu í hvert skipti. Innan fárra ára kemur líka að vissum kynslóðaskiptum sem við þurfum að undirbúa vel. Aðalsteinn Kjartansson: Þú talar um kynslóðaskipti á næstu árum, eigum við nóg af ungum og efnilegum handbolta- mönnum?  Aron Kristjánsson: Þessi kjarni sem er núna í liðinu ætti að geta verið saman í 2–4 ár í viðbót ef þeir hafa löngun og getu til. Það þarf hins vegar að undirbúa þessa efnilegu stráka sem við eigum. Bilið hefur breikkað og því er mikilvægt að skapa þeim verkefni og tryggja að þeir verði klárir í slaginn. Heiðar Hrafn Halldórsson: Myndirðu segja að íslenska deildin sé að skila af sér jafnmikilli framleiðslu af góðum handboltamönnum eins og hún gerði þegar þín kynslóð var að stíga upp ?  Aron Kristjánsson: Það eru alltaf fleiri og fleiri sem halda á vit draumanna erlendis sem gerir það að verkum að leikmennirnir í deildinni verða alltaf óreyndari og yngri. Bilið milli þeirra sem hafa myndað landsliðið síðustu ár og t.d. strákanna hérna heima hefur breikkað töluvert síðustu ár. Þetta er atriði sem við viljum vinna í og því stytta þetta bil. Það eru margir efnilegir strákar að koma upp sem þarf að hlúa vel að og jafnframt þurfa þeir að vinna hart að því að bæta sig. Hér áður fyrr voru fleiri eldri og reyndari menn í deildinni. Fundarstjóri: Kom það þér á óvart að HSÍ skyldi leita til þín um að verða næsti landsliðsþjálfari?  Aron Kristjánsson: Ég get ekki sagt það. Ég er hins vegar mjög stoltur og ánægður með að þeir hafi trú á mér í þetta verkefni. Sigurður Þórðarson: Til hamingju með nýja starfið, Aron, og gangi þér sem allra best. Sérðu fram á miklar breytingar í leikkerfum eða ætlarðu að vinna áfram með það sem Guðmundur hefur notað?  Aron Kristjánsson: Takk fyrir. Liðið hefur verið vel skipulagt og mun ég byggja áfram á þeim grunni. En með hverjum þjálfara eru alltaf áherslubreytingar. Ég mun því koma með nýjungar inn í liðið eftir því sem líður á. Ingi Vilhjálmsson: Hver mun taka við leiðtogahlutverkinu í landsliðinu nú þegar Ólafur Stefánsson er horfinn á braut?  Aron Kristjánsson: Ólafur Stefánsson er einn besti hand- knattleiksmaður sögunnar og mikill leiðtogi. Að sjálfsögðu verður sjónarsviptir að honum og stórt skarð sem þarf að fylla. Það verður væntanlega ekki fyllt með einum manni. Það þurfa nokkrir þættir að sameinast um það. Margir leik- mannanna eru miklir karakterar og eigum við t.d. mjög sterkan leiðtoga í Guðjóni Val. Hallgrímur Frostason: Nú er nokkuð ljóst að Ólafur Stefánsson er hættur að spila. Mér skilst að Rúnar Kárason sé meiddur í einhvern tíma. Hefurðu áhyggjur af stöðu örvhentrar skyttu hjá liðinu?  Aron Kristjánsson: Það má ekki mikið út af bregða. Alexander og Ásgeir hafa verið að spila töluvert í þessari stöðu og ættu t.d. að geta fyllt þetta hlutverk. Gunnhildur Steinarsdóttir: Er raunhæft að Ísland nái verðlaunasæti á HM á Spáni í janúar? Hvaða sæti telurðu raunhæft?  Aron Kristjánsson: Það er mikil samkeppni í þessum mótum og lítið sem má út af bregða með meiðsli og fleira. Við stefnum að sjálfsögðu á góðan árangur. Fyrsta skref á HM verður að ná hagstæðu sæti í riðlinum. Jón Helgason: Er góður varnarleikur mikilvægari en góður sóknarleikur? Þ.e. eru bestu liðin best vegna góðs varnarleiks eða sóknarleiks?  Aron Kristjánsson: Ég hef þá skoðun að ef hámarksárangur á að nást sé það með góðum varnarleik, markvörslu og hraðaupphlaup- um. Eins og sagt er: „Þú vinnur titla með varnarleik en leiki með sóknarleik.“ Birgir Olgeirsson: Hver eru átrúnaðargoð þín í boltanum?  Aron Kristjánsson: Þegar ég var yngri þá var Alfreð Gíslason í miklu uppáhaldi í íslenska landsliðinu. Síðan voru leikmenn á við Magnus Wislander og Talant Dushebajev í miklu uppáhaldi. Ágúst Borgþór Sverrisson: Muntu viðhalda núverandi vinnubrögðum varðandi ítarlega skoðun og kortlagningu á andstæðingum?  Aron Kristjánsson: Já. Ég hef alltaf unnið þannig sjálfur og mun halda því áfram. Gísli Halldórsson: Sérðu fram á að keyra á sömu markmönnum og Gummi hefur gert eða getum við átt von á breytingum þar? Hverjir eru t.d. möguleikar Danna í FH og Arons í Haukum á að koma sér í hópinn?  Aron Kristjánsson: Þeir mark- menn sem standa sig best og eru líklegastir til þess á alþjóðlegum vettvangi munu spila. Bæði Daníel og Aron eru inni í myndinni eins og aðrir markmenn sem standa sig vel. Höskuldur Þorvarðarson: Hver myndir þú telja að sé/ hafi verið helsti styrkleiki og helsti veikleiki íslenska landsliðsins?  Aron Kristjánsson: Við höfum oft átt í vandræðum með varnarleik og markvörslu. Eftir að við fórum að laga okkur meira að mótherjunum og spila óhefðbundna 6:0 vörn þá höfum við náð betri tökum á þessu. En dettum því miður niður á milli. Einnig hefur breiddin stundum verið vandamál og fáir leikmenn verið notaðir á stórmótum. Helstu styrkleikar eru hinn íslenski bar- áttuvilji og vinnusemi. Einnig hafa hraðaupphlaupin verið góð og við oft skorað mikið af mörkum. Atli Fanndal: Er ekki formsatriði að komast upp úr riðlinum í forkeppni EM? Andstæðingar okkar eru Hvíta-Rúss- land, Rúmenía og Slóvenía ...?  Aron Kristjánsson: Markmiðið er að komast upp úr riðlinum og tryggja okkur til Danmerkur 2014. Þetta eru hins vegar andstæðingar sem ber að bera virðingu fyrir. Slóvenar unnu okkur nokkuð auð- veldlega á EM 2012. Hvít-Rússar eru að koma upp með gott lið, t.d. er hinn sterki leikmaður Barcelona Sergej Rutenka byrjaður að spila með þeim aftur. Rúmenar eru síðan mjög erfiðir heim að sækja. Baldur Guðmundsson: Aron Pálmarsson hefur verið langyngsti leikmaðurinn á undanförnum stórmótum, og virðist í sérflokki sinnar „kynslóðar“. Hefurðu áhyggjur af því hve fáir menn í landsliðsklassa hafa verið að koma upp?  Aron Kristjánsson: Ég tel að margir efnilegir strákar standi handan við hornið. Biilið milli þeirra og landsliðsins hefur að vísu breikkað síðastliðin ár þar sem fáir ungir leikmenn hafa fengið tækifæri með landsliðinu. Það þarf að finna verkefni svo við getum undirbúið þessa stráka betur. Baldur Guðmundsson: Geturðu nefnt nokkra sem eru handan við hornið?  Aron Kristjánsson: T.d. Ólafur Guðmundsson, Sigurbergur Sveinsson, Ólafur Gústafsson, Arnór Gunnarsson, Aron Rafn Eðvarðsson, Bjarki Már Elísson, Stefán Rafn Sigurmannsson og fleiri strákar. Dóra Gunnarsdóttir: Af hverju er Óla Stefáns ekki boðin staða aðstoðarþjálfara hjá landsliðinu?  Aron Kristjánsson: Ólafur er í fríi hvað varðar handbolta núna. Svo er spurning hvort Ólafur stefni að því að verða þjálfari. HSÍ mun að sjálfsögðu leita í smiðju Ólafs í framtíðinni. Ásgeir Jónsson: Hvernig sérðu fyrir þér að deildin hér heima þróist í vetur?  Aron Kristjánsson: Það hafa orðið töluverðar breytingar á liðunum fyrir veturinn. Mörg spurn- ingamerki. Mér finnst Valur, FH, Haukar og Afturelding hafa litið ágætlega út í undirbúningnum. Hef ekki séð Akureyri ennþá. Bjarni Árnason: Var það rétt ákvörðun að láta Snorra Stein taka þetta mikilvæga víti, kaldur af bekknum, á Ólympíuleikun- um?  Aron Kristjánsson: Ég hef ákveðið að setja mig ekki í spor dómara í þessu máli þó ég hefði viljað sjá Ólaf taka þetta víti. Snorri er mjög góð vítaskytta og hefur verið með góða nýtingu undanfarin ár. Birgir Olgeirsson: Hverju ertu stoltastur af á ferli þínum sem leikmaður og þjálfari?  Aron Kristjánsson: Leiktímabilið 2009–2010 þegar við unnum alla 4 titlana, veturinn með Haukunum. Einnig var tíminn í Skjern, þegar við urðum danskir meistarar 1999 sem nýliðar í deildinni og bikarmeistar- ar 2000, mjög skemmtilegur. Gísli Ásgeirsson: Ertu fylgjandi reyklausu og munntóbakslausu landsliði?  Aron Kristjánsson: Ég reyki ekki og tek ekki munntóbak og hvet því menn til þess að sleppa því. Baldur Guðmundsson: Sérðu fyrir þér að halda í þessa óhefðbundnu 6:0 vörn, sem þó hefur skilað okkur þeim verðlaunapeningum sem liðið hefur unnið? Þetta er vörn sem Gummi fann eiginlega upp, er ekki svo?  Aron Kristjánsson: Ég mun halda í hana og er mikilvægt að laga hana að styrkleikum og veikleikum andstæðinganna. Með tíð og tíma mun ég síðan leggja inn annað varnarafbrigði þannig að við getum nýtt fleiri en eina vörn. Jón Helgason: Það virðist oft gerast að mörkunum í leikjunum á stórmótum fækkar eftir því sem nær dregur úrslitaleik. Getur verið að það sé vegna þreytu eða betri varnarleiks?  Aron Kristjánsson: Það er sam- spil þessara þátta. Þreyta spilar mikið inn í en liðin læra líka betur inn á hvert annað í stórmótum. Oft hafa það verið liðin sem eiga einhvern ás í erminni þegar komið er í átta liða úrslit eða undanúrslit sem ná bestum árangri. Það getur t.d. verið óþreyttur leikmaður sem hitt liðið er ekki eins vel undirbúið fyrir. Kristensa Valdís Gunnarsdóttir: Sæll og til lukku með nýja starfið. Hvert er uppáhaldsliðið þitt í enska?  Aron Kristjánsson: Takk fyrir. Liverpool er uppáhaldsliðið. Stefán Bergsson: Hefurðu kynnt þér hugmyndir Siguróla Magna Sigurðssonar um fjölgun liða á Íslandsmótinu? T.d. að sterk lið „fóstri“ önnur minni lið o.s.frv. Ertu bjartsýnn á fjölgun liða?  Aron Kristjánsson: Ég var einn af þeim sem komu með svipaða hugmynd á ársfundi HSÍ 2007 eða 2008 og er því þeirrar skoðunar að það þurfi að gera eitthvað í þessum málum. Það þarf t.d. að endurskoða 2. flokks keppnina og hvernig leikmenn verða best undirbúnir fyrir mfl. og t.d. U-21 árs landsliðið og A-landsliðið. Við virðumst sitja aðeins á eftir öðrum þjóðum frá 18 ára aldri hvað varðar framfarir. Sérstaklega hjá þeim leikmönnum sem eiga ekki greiða leið inn í meistaraflokkslið síns félags. Við þurfum að bæta keppnisfyrirkomulagið þarna. Haukur Jóhannsson: Hæð íslenska landsliðsins hefur oft borið á góma. Telurðu að það þurfi ekki að vinna markvissara að því að fá hávaxna, unga leikmenn í handboltann í stað körfunnar sem dæmi?  Aron Kristjánsson: Við þurfum klárlega að vera vakandi fyrir þjálfun á stærri krökkum. Þeir eru oft svifaseinni á unglingsárunum og virðast þjálfarar þá oft leiðast til að vinna meira með minni leikmenn sem ráða betur við stærðina. Það er mikilvægt að við höfum fókus á þessu og reynum að fá hávaxna krakka í handboltann. Það eru viss forréttindi í handbolta að vera stór og sterkur. Máni Atlason: Heldur þú að Lebron James gæti orðið heimsklassa handboltamað- ur ef hann myndi hætta í körfunni og einbeita sér 100% að handbolta frá og með deginum í dag?  Aron Kristjánsson: Er hann ekki ca. 28 ára gamall? Ég er ekki viss um það, væntanlega aðeins of seint. Hefði hann valið handbolt- ann fyrr þá hefði hann væntanlega orðið mjög góður . Jón Helgason: Hver er besti handboltaþjálfari sögunnar?  Aron Kristjánsson: T.d. hafa þjálfarar á borð Valero Rivera, Claud Oniesta og Alfreð Gíslason náð frábærum árangri. Lárus Gunnarsson: Hverjir verða Íslandsmeistarar í karla- og kvennaflokki?  Aron Kristjánsson: Valur virðist ennþá vera með sterkasta liðið í kvennaflokki og tel ég þær vinna. Þar sem ég er að þjálfa Hauka í vetur í karlaflokki þá spái ég að sjálfsögðu okkur sigri. Nafn: Aron Kristjánsson Aldur: 40 ára Menntun: Grunnskólakennari og meistaragráða frá evrópska handknattleikssambandinu Starf: Landsliðsþjálfari í handbolta 11 Aron Kristjánsson, nýráðinn landsliðsþjálfari karla í handbolta, var á Beinni línu DV.is á miðvikudag. M y N D IR e y Þ Ó R Á R N A S O N
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.