Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2012, Blaðsíða 27
Viðtal 27Helgarblað 7.–9. september 2012
„Mér finnst ég
hafa brugðist“
alltaf upp. Ég hef alltaf verið spenntur
fyrir sálfræði og félagsfræði. Örugg-
lega af því að ég er svo mikið keis sjálf-
ur,“ segir hann og brosir.
Ég vil hjálpa. Þótt ég komi því ekki
alltaf nægilega vel frá mér, þá er ég all-
ur af vilja gerður,“ bætir hann við.
„Skólinn sat á hakanum en á hinn
bóginn skilaði það mér samt í at-
vinnumennsku seinna meir. Maður
sér eftir þessu en samt ekki.“
Gott að vera í Noregi
Tryggvi fór ungur inn í meistaraflokk,
aðeins 18 ára gamall. Hann var 23
ára þegar hann gekk í raðir Tromso í
Norður-Noregi. Hann spilaði í sex ár
í Noregi og líkaði tíminn þar ákaflega
vel.
„Það er ekki þetta stress, það er svo
gott að búa í Noregi. Veðrið var líka
gott, þótt ég hafi verið í Norður-Noregi
í þrjú ár. Þar er ekki þetta rok, og það
gerir gæfumuninn. Kannski það séu
trén sem veita svona gott skjól. Það er
allt miklu þægilegra og fólk gott í við-
móti. Það er ekki þessi asi. Fólk vinn-
ur minna. Mér finnst alltaf merkilegt
að bera Ísland og Noreg saman. Í Nor-
egi lenti maður í því að fara í búð sem
var lokað klukkan fimm og kom fimm
mínútur í, þá fékk maður ekki að klára
að versla. Virðingin fyrir vinnutíman-
um er slík. Á Íslandi er hægt að dóla
sér löngu eftir lokunartíma.“
Fjögurra barna faðir
Tryggvi á fjögur börn. „Elsti sonur
minn verður 13 ára í nóvember. Elsta
stúlkan mín er 8 ára og svo á ég tví-
bura sem eru 6 ára núna í september.
Sonur minn er afar efnilegur í boltan-
um.
Hann er rólegri en ég en hann er
samt tapsár. Hann hefur góða eig-
inleika móður sinnar. Hún var í fót-
bolta sjálf og kannski svolítið tapsár
líka,“ segir hann hlýlega. „Við erum
öll í boltanum í fjölskyldunni. Börn-
in í KR.“
Hræddur eftir
blóðtappa
Tryggvi greindist með blóð-
tappa í byrjun mars og fékk
ekki leyfi til að spila fótbolta.
Hann varð í fyrsta skipti á æv-
inni hræddur um líf sitt og
heilsu.
„Ég hef fengið mörg högg í
leikjum og oft verið slasaður og
meiddur. Ég fékk slæman verk í
kálfann í vetur. Ég hélt ég hefði
bara fengið spark en svo varð
verkurinn verri og verri og það
kom að því að ég var farinn að
missa svefn yfir verkjunum. Mér
var farið að finnast þetta skrýtið.
Sjúkraþjálfaranum fannst þetta
líka skrýtið, ég var búinn að
vera í nuddi hjá honum og hann
fylgdist vel með mér. Hann vildi
endilega senda mig í ómskoðun
sem ég fór svo í. Þá kom í ljós að
ég var með blóðtappa.
Um leið og ég heyrði að ég
væri með blóðtappa hætti ég að
hlusta. Þetta var mér mikið áfall
og ég varð skelkaður.
Ég var búinn að vera í hörku-
formi og það styttist í tímabil-
ið. Með mitt skap og kominn á
þennan aldur og að berjast við
að bæta markametið, þá var ég
mjög ósáttur.“
Þurfti að sprauta
sig í magann
Tryggvi var settur á blóðþynn-
ingarlyf og mátti sig lítið hræra.
Læknirinn óttaðist samstuð á
vellinum sem gæti orsakað blæð-
ingar.
„Maður var orðinn sjúkling-
ur. Núna var ég farinn að sprauta
mig í magann eins og sykursýki-
sjúklingar einu sinni á dag. Ég
þurfti að taka blóðþynningarlyfin
og fara í blóðprufur í hverri viku.
Á meðan ég var í meðferðinni
mátti ég lítið reyna á mig og það
hefur sjaldan komið fyrir. Þetta tók
þrjá mánuði, mér finnst það ekki neitt
þegar ég lít til baka. Ég hef hitt fullt af
fólki sem hefur fengið blóðtappa og
það hefur alltaf verið sagt að með-
ferðin taki um hálft ár. Ég hreinlega
ákvað að ganga í gegnum þetta á sem
stystum mögulegum tíma. Ég ætlaði
mér bara að vera frá í þrjá mánuði og
það varð raunin.“
Er enn hræddur
Hann tók sér litla hvíld og um leið
og hann gat fór hann beint út á völl.
Hann gerir sér grein fyrir hættunni
sem fylgir því að fá blóðtappa og ótt-
ast að fá hann aftur.
„Ég byrjaði að hlaupa og ná upp
þreki. Svo fór ég bara beint út á völl.
Að sjálfsögðu var ég hræddur og ég er
enn hræddur. Ég er hræddur við að fá
aftur blóðtappa. Ef það gerist þá verð
ég að vera á blóðþynningarlyfjum það
sem eftir er ævi minnar og það er ekki
líf átaka. En ég er svo sem að fara að
hætta að spila sjálfur bráðum þannig
að ég get farið að þjálfa. Ég tel mig
samt geta hjálpað liðinu þó kominn
sé á aldur.“
Vill taka að sér þjálfun
Er hann þá að hætta að spila fótbolta?
„Þetta fer bara allt eftir því hversu
gaman maður hefur af þessu og ég hef
gaman af þessu. En auðvitað þurfa
einhver lið að vilja mig. Þannig að ég
á vonandi nokkur ár eftir. Ég hef öðlast
reynslu og menntun til að verða þjálf-
ari og ég held að það sé nokkuð ljóst
að ég tek að mér þjálfun í framtíðinni,“
svarar Tryggvi.
Var mjög drukkinn
Athygli vakti skömmu áður en Ís-
landsmótið hófst þegar Tryggvi var
stöðvaður drukkinn undir stýri í
Vestmannaeyjum. Hann segir ölv-
unaraksturinn vera verstu ákvörðun
sem hann hefur tekið um ævina.
„Það má segja að ég sé kominn
með breitt bak eftir þetta sumar. Ég
gerði stór mistök með því að keyra
ölvaður. Ég var vel drukkinn. Segj-
um bara: Eins gott að þeir stoppuðu
mig. Og að keyra í Vestmannaeyjum!
Þetta er lítil eyja og engin þörf á því
að ferðast um á bíl. Ég labba um allt
þegar ég er í Vestmannaeyjum og ég er
alltaf að hrista hausinn yfir því að fólk
keyri á milli staða þegar vegalengdirn-
ar eru svona stuttar. En þarna ákvað
ég þetta kvöld að keyra ölvaður. Þetta
var versta ákvörðun ævi minnar,“ seg-
ir hann.
Athygli vakti skömmu áður en Ís-
landsmótið hófst þegar Tryggvi var
stöðvaður drukkinn undir stýri í
Vestmannaeyjum. Hann segir ölv-
unaraksturinn vera verstu ákvörðun
sem hann hefur tekið um ævina.
Tíu dagar á Vogi
„Það má segja að ég sé kominn með
breitt bak eftir þetta sumar. Ég gerði
stór mistök með því að keyra ölvað-
ur. Ég var vel drukkinn. Segjum bara:
Eins gott að þeir stoppuðu mig. Og
að keyra í Vestmannaeyjum! Þetta er
lítil eyja og engin þörf á því að ferð-
ast um á bíl. Ég labba um allt þegar
ég er í Vestmannaeyjum og ég er
alltaf að hrista hausinn yfir því
að fólk keyri á milli staða þegar
vegalengdirnar eru svona stutt-
ar. En þarna ákvað ég þetta kvöld
að keyra ölvaður. Þetta var versta
ákvörðun ævi minnar.“
Hann fór á Vog í 10 daga
meðferð. „Ég var þarna inni fyrir
sjálfan mig. Ég var ekki þar fyr-
ir neinn annan. Ég þraukaði sem
betur fer þrátt fyrir að hafa frétt
það eftir tvo daga þar inni að öll
þjóðin vissi að ég væri þar inni.
Ég varð brjálaður þegar ég frétti
það og fannst ég vera svikinn og
langaði að hlaupa út. Þar lærði
ég til dæmis hvað það er stutt í
stjórnleysið. Hvað þetta er fín
lína. Ég heyrði sögur annarra
þarna inni og ég var eins og
lítill krakki í skóla og tengdist
fólki náið. Ég spurði og spurði.
Ég myndaði vinatengsl við fólk
sem mig hefði aldrei grunað að
ég gæti tengst í lífinu. Það var
pínu svona söknuður þegar ég
fór. Kannski er það kjánalegt.
En þetta var frábært. Svo tók as-
inn við um leið og ég kom út.
Ég fór beint á æfingar, beint í
boltann. Kannski hefði ég mátt
taka lengri tíma í að átta mig.
En þrátt fyrir allt fann ég nýjan
styrk innra með mér sem mér
fannst ómetanlegur.“
Horfir fram á veginn
Tryggvi reynir að horfa fram
á veginn. „Auðvitað reyni ég
bara að halda áfram. Það skipt-
ir öllu máli að horfa fram á veg-
inn. Maður setur aldrei sjálfan
sig fyrir hópinn. Vestmanna-
eyjar verða alltaf yndislega
eyjan mín og ÍBV verður alltaf
liðið mitt þótt ég sé ósáttur við
ýmislegt. Ég á fullt af fólki þar
sem mér þykir vænt um. En
mér er ekki hlýtt til allra,“ seg-
ir hann. n
svona. En skapið kom mér í koll þá og
gerir stundum enn. En að sama skapi
áttuðu foreldrar mínir sig á því að ég
færi langt á skapinu. Þau leyfðu mér
að vera ég sjálfur en auðvitað fékk ég
að heyra það þegar ég átti það skilið
og sýndi af mér ódrengilega hegðun.“
Spenntur fyrir sálfræði
Þrátt fyrir að hafa verið talinn af-
reksnámsmaður í æsku fór lítið fyr-
ir því á unglingsárunum. Fótboltinn
átti hug hans allan. „Þegar maður var
orðinn unglingur setti ég námið nærri
því alveg til hliðar. Því miður. Ég var
orðinn svo upptekinn í íþróttum að
allt í einu hafði ég engan tíma fyrir
skólann.
Maður á að geta blandað þessu
saman, en ég gat það ekki. Ég er svo-
lítið fúll út í mig í dag, ég var svo góður
námsmaður.
Ég hefði viljað læra meira og í
dag þegar ég spyr sjálfan mig hvað
ég hefði viljað læra kemur sálfræðin
Fæddur markaskorari
Tryggvi Guðmundsson er marka-
hæsti leikmaður Íslandsmótsins í
knattspyrnu frá upphafi. Metið sló
Tryggvi í leik gegn Stjörnunni þann 29.
maí síðastliðinn þegar hann skoraði sitt
127. mark í efstu deild. Met Tryggva er
athyglisvert í ljósi þess að hann hefur
stóran hluta ferils síns spilað sem
atvinnumaður utan Íslands. Hann hóf
ferilinn í meistaraflokki með ÍBV árið
1992, þá 18 ára, og lék með liðinu allt
til ársins 1997. Tryggvi skoraði fjölda
marka fyrir Eyjaliðið, 56 í 88 leikjum,
og vöktu hæfileikar hans athygli liða
utan landsteinanna. Hann gekk í raðir
Tromsø í Norður-Noregi eftir tímabilið
1997 þar sem hann hélt áfram að skora
mörk, 36 í 76 leikjum. Árið 2000 færði
Tryggvi sig suður á bóginn og samdi við
Stabæk þar sem hann skoraði 24 mörk í
66 leikjum. Eftir þrjú ár í herbúðum Sta-
bæk færði Tryggvi sig yfir til Svíþjóðar
og samdi við Örgryte þar sem hann lék
árið 2004. Þó að Tryggvi skoraði aðeins
3 mörk í 22 leikjum reyndist hann
félaginu býsna dýrmætur því hann
skoraði mark í lokaleik tímabilsins sem
tryggði liðinu áframhaldandi sæti í
sænsku úrvalsdeildinni.
Tryggvi snéri til Íslands árið 2005,
þá þrítugur, og samdi við FH í janúar
það ár. Hann var hins vegar strax lán-
aður til Stoke á Englandi, sem þá var í
eigu Íslendinga, fram á vor. Tryggvi var ekki í náðinni hjá knattspyrnustjóranum Tony Pulis
– frekar en aðrir Íslendingar sem léku hjá félaginu undir hans stjórn – og spilaði Tryggvi ekki
einn einasta leik með félaginu. Hann snéri hins vegar aftur til Íslands um vorið og lék með
FH. Hann varð markakóngur deildarinnar það tímabil og skoraði 16 mörk í 17 leikjum og vann
FH deildina með yfirburðum. Tryggvi lék áfram með FH til ársins 2009 þegar hann hélt á
fornar slóðir, Vestmannaeyjar, og samdi við ÍBV þar sem hann leikur enn þann dag í dag.
Leikir og mörk fyrir íslenska landsliðið: 42 (12)
„Þetta var
versta
ákvörðun ævi
minnar
Stóð ekki á sama „Að sjálfsögðu var ég hræddur og ég er enn hræddur,“ segir Tryggvi um blóð
tapp-
ann sem hann fékk í vetur.
myNd EyÞór árNaSoN
ár Lið Leikir (mörk)
1992–1993 ÍBV 23 (12)
1994 KR 13(3)
1997-1997 ÍBV 52(41)
1998–2000 Tromsø IL 76 (36)
2001–2003 Stabæk 66 (24)
2004 Örgryte IS 22 (3)
2005–2009 FH 92 (51)
2005 Stoke (lán) 0 (0)
2010– ÍBV 49 (20)
m
y
N
d
E
y
Þ
ó
r
á
r
N
a
S
o
N
„Keppnisskapið var
vandræðalegt fyrir
mömmu og pabba