Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2012, Page 30

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2012, Page 30
30 Viðtal 7.–9. september 2012 Helgarblað árið 2002. Síðan liðu fjögur ár þar til heyrðist frá honum. Þá var Svanfríður Briana að fara í aðgerð í Bandaríkjun- um og móðir hennar lét hann vita ef hann vildi sjá hana. Hann kom þá og aftur árið 2008. Það var í síðasta sinn sem hann sá hana. Andvökunætur Á spítalanum í Washington lá Svan- fríður Briana í ellefu vikur. Þar gekkst hún undir miklar rannsóknir, fór í nokkrar aðgerðir og fékk meðal annars gastróstómíu, hnapp sem gerði það að verkum að hún gat fengið næringu án þess að borða mat. Hanna Sigurrós gat ekki hugsað sér að vera einstæð móðir með veikt barn í Bandaríkjunum og vildi kom- ast heim. Herinn vildi ekki hleypa þeim aftur til Íslands af ótta við að íslenska heilbrigðiskerfið væri ekki í stakk búið til að takast á við veikindi Svanfríðar Briönu. En Hanna Sigur- rós gafst ekki upp og fékk að lokum yfirlýsingu frá íslenska ríkinu um að það gæti tekið á móti Svanfríði Briönu og sinnt henni. Hún kom því heim og bjó hjá frænku sinni í heilt ár á meðan hún beið eftir félagslegu húsnæði. „Ég hafði engan tíma til að velta því mikið fyrir mér. Ég varð bara að takast á við þetta verkefni. Á meðan Svanfríður Briana lifði svaf ég aldrei mikið og þegar ég svaf hafði ég andvara á mér. Ef hún hóstaði var ég vöknuð og ef hún sneri sér við í rúminu var ég vöknuð. Í fimm ár hafði ég rúmið hennar við hliðina á rúminu mínu og eftir að hún fór inn í sitt herbergi var ég alltaf með barnapíu inni hjá henni og við rúmið mitt. Það voru óteljandi nætur þar sem ég þurfti að vakna allt að sex sinnum því tækin pípuðu og ég þurfti að soga úr barkatúpunni, velta henni eða leysa úr snúruflækjum. Svo opn- aðist fyrir næringuna og hún sullað- ist út um allt þannig að ég þurfti að skipta á öllu. Ég hafði engan tíma til að setjast niður og velta því fyrir mér hvern- ig ég ætti að fara að þessu eða hvað ég ætti að gera. Ég varð bara að gera þetta og það var ekkert annað í boði.“ Fékk hjálp Yfirlýsing ríkisstjórnarinnar breytti því ekki að Hanna Sigurrós þurfti að berjast fyrir öllu sem sneri að Svan- fríði Briönu og lífsgæðum hennar. Dag og nótt lá hún á netinu og hafði upp á foreldrum annarra barna með sama sjúkdóm í von um að finna leiðir sem gætu virkað fyrir Svanfríði Briönu. „Þegar hún var fimm ára var mér sagt að hætta þessu veseni og fara að sætta mig við það að hún ætti nokkur góð ár eftir. Fyrir vikið varð ég enn ákveðnari í að fá eitthvað gert fyrir hana. Það tókst loks árið 2006 þegar ég fékk það í gegn að við fengum að fara til Bandaríkjanna að hitta lækni sem sérhæfir sig í þessum sjúkdómi. Hér var ekki hægt að gera neitt fyrir hana því þekkingin var ekki til staðar. Það getur blætt mikið úr þessum æxlum og svo mikið að einstaklingum get- ur blætt út. Læknarnir hér vildu því aldrei snerta á þeim en þegar við komum út var hægt að gera aðgerð á hálsi hennar sem bætti líf hennar til muna.“ Tveimur árum síðar hafði Svan- fríði Briönu hrakað til muna og mæðgurnar fóru aftur út. Þá komust þær í samband við lækni í Alabama sem hreinsaði á henni kokið og enduruppbyggði á henni hálsinn. „Það breytti mjög miklu fyrir hana en entist ekki lengi. Við hefðum þurft að fara aftur út árið 2009 en það var svo mikil aðgerð fyrir okkur að læknirinn ákvað að koma til Íslands. Hann fékk fyrirtækið sem framleiddi leiserinn sem hann notaði til þess að flytja hann til landsins og framkvæmdi að- gerðina hér. Ári síðar kom hann aft- ur og þá frá fríi í Þýskalandi til þess að gera aðgerð á Svanfríði Briönu. Þá var farið að sullast svo mikið ofan í lungun á henni að hún var stöðugt með sýkingar svo hann lokaði alveg fyrir barkann á henni.“ Sú aðgerð hafði það í för með sér að loft komst ekki lengur upp í radd- böndin, munninn og nefið. Fyrir vik- ið missti Svanfríður Briana, sem hafði alltaf talað bjagað, málið. En þar sem hún var heyrnarskert fyrir kunni hún táknmál og gat notað það. En það var fleira sem breyttist við þessa aðgerð. Nú mátti hún til dæmis borða mat, og þótt hún fyndi ekki lykt og hefði ekki bragðskyn naut hún þess mjög. Í janúar 2011 komu hins vegar upp erfiðleikar varðandi það að kyngja. „Það tók mig allt árið að berjast fyr- ir því að það væri lagað. Í desember tókst það loksins og þann 30. var hún skorin upp. Ég varð að berjast fyrir öllu, gjörsamlega öllu,“ segir Hanna Sigurrós og leggur áherslu á orð sín. „Það er ekki íslenska heilbrigðiskerf- inu að þakka að hún náði tólf ára aldri.“ Dreymir um stuðningsmiðstöð Vegna þess að hún hefur reynsluna og veit hvaða áhrif þessi barátta hef- ur á fjölskyldur langveikra barna læt- ur Hanna Sigurrós sig dreyma um stuðningsmiðstöð fyrir fjölskyldurn- ar. Nú stendur yfir átakið Á allra vör- um og þar er verið að safna fyrir stofn- un slíkrar miðstöðvar. Þótt Hanna Sigurrós geti ekki nýtt sér þá þjónustu úr því sem komið er fagnar hún þessu framtaki engu að síður. Það er mikil þörf á, segir hún. „Það er ekkert haldið utan um þessi langveiku börn og það er ekk- ert eftirlit með þeim. Heimilislækn- irinn okkar var bráðamóttaka barna því ég fór með hana þangað ef eitt- hvað var að. Ef hún var með lungna- bólgu þá sinnti ég henni heima því ég valdi að vera eins lítið á spítala og mögulegt var og gerði það með að- stoð heimahjúkrunar barna.“ Hún segir að sjúkrahús séu ekki alltaf hentug fyrir börn sem eru svona veik. Dóttir hennar var lögð inn í febr- úar og lá inni á spítala þar til hún lést þann 21. maí. „Meðan á þessari inn- lögn stóð nældi hún sér í inflúensu A og RS-vírus á göngunum. Þau eru svo viðkvæm fyrir og það er svo margt sem þau geta smitast af sem hefur ekki góð áhrif á þau. En í þetta skiptið komumst við ekki upp með að vera heima því hún var svo kvalin af taugaverkjum sem ekki var hægt að lina. Það var reynt að verkjastilla hana en án árangurs. Læknarnir á barnaspítalanum vissu ekki hvað þeir ættu að gera og voru búnir að fá svæfingarlækna frá Hring- brautinni sér til aðstoðar. Verkjalyf- in voru mjög sterk og hún var á fíla- skömmtum. Á tímabili þurftum við að endurheimta hana nánast daglega því hún var á svo sterkum lyfjum að hún lagðist bara út af og hætti að nenna að draga andann.“ Vissi að hún myndi ekki lifa Æxli höfðu dreift sér um líkamann og lágu við mænurót, á taugum í lærum, í annarri rasskinninni og öndunarfær- unum. „Hún var orðin undirlögð. Það gerist oft á unglingsárunum þegar hormónarnir fara af stað. Á þessum árum eru börn í áhættuhóp hvað það varðar og æxlin geta stökkbreytt sér í krabbamein og eins eykst hættan á ill- kynja mænuæxlum. Ég vissi alltaf að hún myndi ekki lifa unglingsárin af.“ Hanna Sigurrós fær sér sopa af kaffinu og segir einlægt að hún hafi alltaf vitað að dóttir hennar myndi aldrei fermast. „Við vorum svo nán- ar. Í tólf ár eyddi ég hverri stund með henni sjö daga vikunnar. Ég lá með henni, ég vakti með henni og ég svaf með henni. Ég var ofboðslega næm á hana og þekkti hana eins vel og hægt er að þekkja aðra manneskju. En ég barðist fyrir því að það yrði hlustað á mig. Mér var sagt að þetta væri ekki svo slæmt, hún gæti lifað svona til þrí- tugs. Það stingur að það er ekki hlust- að á foreldrana. Með tilkomu stuðn- ingsmiðstöðvar bind ég vonir við að foreldrarnir fái aðstoð í þessum sam- skiptum við heilbrigðiskerfið þannig að það verði tekið mark á því sem þeir segja.“ Hún vill að fjölskyldur í þessari stöðu fái alla mögulega þjónustu inn á heimilið til að auðvelda foreldrum að sinna hjúkrunarþörfinni. „Fjöl- skyldan getur kannski átt fleiri gæða- stundir saman ef allt einskorðast ekki við basl og barning og rifrildi. Ég upp- lifði það stundum að ég væri að missa vitið. Mér fannst ég vera orðin brjáluð af því að mér fannst ekki vera hlust- að á mig og mér fannst ekki hlust- að á hana. Hún var hætt að geta tjáð sig nema með táknmáli og ég þurfti að túlka fyrir hana. Það var enginn á barnaspítalanum sem talaði táknmál og það var aðeins einu sinni, núna í hennar síðustu innlögn, sem það var fenginn fyrir hana túlkur.“ Einangraðist heima Svanfríði Briönu hrakaði hægt og ró- lega til að byrja með. Í ágúst í fyrra var hún orðin svo slæm að hún hafði ekki orku eða úthald til þess að stunda skóla lengur. Hún var stöð- ugt með verki og leið illa. Á svipuðum tíma hætti hún að geta farið í Rjóðr- ið, hvíldar- og hjúkrunarheimili fyrir langveik börn. „Samt var ekki hægt að ætlast til þess að hún myndi hafa ofan af fyrir sjálfri sér – ein með athyglis- brest, ofvirkni og ódæmigerða ein- hverfu ofan á allt saman. Það þurfti að sinna henni og hafa ofan af fyrir henni. Þetta var alveg ofboðslega skýr stelpa og hún var alltaf að gera eitt- hvað.“ Hanna Sigurrós var því bund- in með barninu. „Ég á tvær systur hér á landi sem studdu mig eins og þær gátu. En það er eins með þær og alla aðra, þær eru að sinna sínu lífi og sínum verkefnum og vandamál- um. Fjölskyldan mín treysti sér Um 160 fjölskyldur eru í félagi einstakra barna, sem er stuðn- ingsfélag barna og ungmenna með sjaldgæfa, jafnvel ógreinda sjúkdóma eða skerðingar. Þeir sjúk- dómar og skerðingar sem börn og ungmenni félagsins lifa með eru allir langvinnir og hafa varanleg áhrif á líf þeirra og fjölskyldur. Þar sem um sjaldgæfa sjúkdóma er að ræða hafa margir þeirra lítið verið rannsakaðir og í fæstum tilfellum er til eiginleg meðferð við þeim. Allir sjúkdómarnir eru alvarlegir og hafa sumir áhrif á lífslíkur og lífsgæði. Sumir sjúkdóm- arnir eru það sjaldgæfir að aðeins örfá tilfelli eru til í heiminum. Nokkur börn í félaginu eru með enn sjald- gæfari sjúkdóma og hafa ekki fengið neina staðfesta sjúkdómsgreiningu þrátt fyrir ítarlega leit. Að meðaltali látast um fimm börn á ári í þessari baráttu. Hetjur á himnum Leví Didriksen F. 21.06.1995 D. 11.05.1996 Sjúkdómur: SULA2 deficiency sem flokkast undir efnaskiptasjúkdóma. Það var aldrei vitað hvað væri að Leví fyrr en tvíburasystir hans Beinta greindist sex ára gömul með þennan sjúkdóm. Hún glímir við sjúkdóminn í dag. Huginn Heiðar Guðmundsson F. 18.11.2004 D. 24.05.2008 Sjúkdómur: Risafrumulifrarbólga. Í maí 2005 gekkst Huginn Heiðar undir lifrarígræðslu á sjúkrahúsinu í Pittsburgh en um haustið greindist hann með lungnasjúkdóm sem síðar varð dánarorsök hans. Fanney Edda Frímannsdóttir F. 09.06.2007 D. 13.04.2010 Sjúkdómur: Óskilgreindur taugasjúkdómur. Valdimar Einarsson F. 5.08.1991 D. 14.09.2009 Sjúkdómur: Chronic Granulomatous Disease – CGD. Yngri bróðir Valdimars, Jón Þór sem er fæddur árið 1993, glímdi við sama sjúkdóm og fóru þeir báðir í beinmergs­ skipti. Valdimar fór fyrst en líkamlegt ástand hans var það slæmt að hann lést vegna veikinda sinna. Sex mánuð­ um síðar fór bróðir hans út í beinmergs­ skipti og lifir hann góðu lífi í dag. „Valdimar var mikill Liverpool­aðdá­ andi og einkunnarorð félagsins voru alltaf í miklu uppáhaldi, „You‘ll never walk alone“,“ segja foreldrar hans. „Núna er ég ekki lengur mamma hennar Svönu eða um- mönnunaraðili hennar. Ég þarf að finna út úr því hver ég er og hvað ég vil. Kveðjustund Þessi mynd var tekin þegar systkini Svanfríðar komu til þess að kveðja. Það var á föstudegi, hún dó mánudaginn á eftir. Fjölskyldan Hér er faðir Svanfríðar Briönu með fjölskyldunni. Hann lét sig hverfa skömmu síðar þar sem hann óttaðist að veikindi Svanfríðar Briönu hefðu slæm áhrif á starfsferil hans.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.