Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2012, Qupperneq 37

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2012, Qupperneq 37
 Fórnarlamb rasista 37Helgarblað 7.–9. september 2012 Myrti dóttur og barnabarn Allir héldu að Lille Stanton dýrkaði dóttur sína og dótturdóttur, en einn sunnudaginn gerðist eitthvað og hún myrti þær báðar. Stanton stakk þær til bana og reyndi svo að stytta sjálfri sér aldur. Það tókst þó ekki og fyrrverandi eiginmaður hennar kom að henni og fann líkin. Hún játaði glæpinn strax en lögreglan hefur ekki gefið upp skýringar hennar á verknaðinum. Hún er nú vistuð á viðeigandi stofnun en hefur verið ákærð fyrir morðin. Einkatímar 40 mín. tímar 1x í viku |12 vikur Fyrir byrjendur jafnt sem lengra komna á öllum aldri. Skráning er hafin Skráning í síma 581 1281 gitarskoli@gitarskoli.is www.gitarskoli.is K riss Donald fæddist 2. júlí 1988. Hann var skoskur, bjó í Glasgow og 15. mars 2004, er hann var fimmtán ára, var honum rænt, misþyrmt og var hann síðar myrtur af asísku strákagengi. Meðlimir gengisins voru af pakistönsku bergi brotnir og flúðu einhverjir ódæðismannanna til Pakistan í kjölfarið, en armur laga og réttlætis náði í skottið á þeim öllum, fimm að tölu, að lokum. Málið vakti töluverða athygli á sín- um tíma þar sem um var að ræða fyrstu sakfellingu í morði sem rekja mátti til kynþáttahaturs í sögu lands- ins og er talið dæmi um þann skort á athygli sem ríkt hafði af hálfu fjölmiðla og samfélagsins á þeirri staðreynd að hvít fórnarlömb kynþáttahyggju fengu minni umfjöllun en fórnarlömb sem töldust til minnihlutahópa. En allt um það. Mannrán og morð Sem fyrr segir var Kriss rænt, við Ken- mure-stræti í Glasgow, af pakistönsku gengi þann 15. mars. Fyrir genginu fór Imran nokkur Shahid og ástæðan var sú að Shahid hafði orðið fyrir árás hvíts gengis á næturklúbbi kvöldið áður. Kriss Donald var valinn sem fórnar- lamb sem dæmigerður „hvítur dreng- ur af McCulloch-strætissvæðinu“ þrátt fyrir að hafa hvergi komið nálægt árásinni kvöldið áður eða vera tengdur gengjum yfirhöfuð. Fimmmenningarnir óku með Kriss yfir 300 kílómetra leið, til Dundee og til baka, í leit að hentugu húsnæði til að ganga til verka. Á endanum gáfust þeir upp á leitinni og fóru með Kriss til Clyde Walkway, skammt frá æfinga- svæði Celtic-knattspyrnuliðsins. Þar héldu þeir Kriss föstum og stungu hann þrettán sinnum og hlaut hann, eðlilega, fjölda innvort- is meiðsla, æðar skárust í sundur, ein stungan lenti í lungum hans og ein í nýra. Síðan var hellt yfir Kriss bensíni og borinn eldur að og hann skilinn eft- ir til að mæta örlögum sínum. Og þá voru eftir þrír Upphaflega voru tveir handteknir í tengslum við morðið. Annar þeirra, Daanish Zahid, var 18. nóvember 2004 sakfelldur fyrir morðið á Kriss Dona- ld og varð þess vafasama heiðurs að- njótandi að verða fyrstur til að fá dóm fyrir morð sem rekja mátti til kyn- þáttahyggju í Skotlandi. Hinn, Za- hid Mohammed, viðurkenndi aðild að brottnámi Kriss og að hafa logið að lögreglu í rannsókn málsins. Hann hlaut fimm ára dóm, en var sleppt eftir að hafa afplánað helming þess tíma og bar síðar vitni gegn þeim þremur sem flúið höfðu til Pakistan. Þá voru sem sagt eftir þrír. Í júlí 2005 voru þremenningarnir, Imran Shahid, Zeeshan Shahid og Mohammed Fai- sal Mushtaq, allir á þrítugsaldri, hand- teknir í Pakistan og síðan framseldir til Bretlands í október sama ár fyrir milli- göngu Mohammeds Sarwar, þing- manns í Glasgow. Framsal mannanna var afar flókið því enginn framsals- samningur er á milli landanna og því margir ásteytingarsteinar í því ferli. Svo mörg voru þau orð Þremenningarnir voru ákærðir fyr- ir morð í október 2005 og réttarhöldin hófust 2. október ári síðar. Rúmum mánuði síðar, 8. nóvember, voru þeir allir sakfelldir fyrir morð af toga kyn- þáttahyggju, en fyrir höfðu þeir allir neitað sök. Uist lávarður, Roderick Francis Macdonald, dómari í málinu dró það saman með eftirfarandi orðum: „Þið hafið allir verið fundnir sekir af kvið- dómendum um brottnám og morð, af rasískum toga, á Kriss Donald, fullkomlega saklausum fimmtán ára smávöxnum dreng. Þið völduð hann af þeirri einu ástæðu að hann var hvítur og var á ferð á ákveðnu svæði við Pollokshields í Glasgow þegar þið leituðuð fórnarlambs. Morðið einkennist af ásetningi; miskunnar- laus aftaka framkvæmd með því að stinga fórnarlambið þrettán sinnum og kveikja síðan í því meðan það var enn á lífi. Þetta var sannarlega fyrir- litlegt. [...] Fórnarlamb ykkar hlýtur að hafa verið viti sínu fjær af skelf- ingu meðan á fjögurra klukkustunda ökuferð ykkar yfir Mið-Skotland og til baka stóð og vart er hægt að ímynda sér óttann sem hann hefur upplifað þann tíma sem leið á milli þess sem hann var stunginn og þar til kveikt var í honum.“ Svo mörg voru þau orð. Hver þre- menninganna fékk lífstíðardóm; Imr- an Shahid var dæmdur til að afplána 25 ár hið stysta, Zeeshan Shahid 23 ár að minnsta kosti og Mohammed Fai- sal Mushtaq 22 ár að minnsta kosti. n Kriss Donald Var numinn, saklaus, á brott af asísku gengi og síðan myrtur. Í haldi pakistönsku lögreglunnar Þremenningarnir sem flúðu til Pakistan voru framseldir til Bretlands. n Kriss Donald var myrtur á hryllilegan hátt n 15 ára, blásaklaus drengur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.