Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2012, Page 38
VONAR AÐ HÚSIÐ
VERÐI PAKKAÐ
38 7.–9. september 2012 Helgarblað
m e n n i n g @ d v . i s | d v . i s / m e n n i n g
Hvað er að
gerast?
Laugardagur8
SEP
Sjóheitt Zumba-partí
með Páli Óskari
Á laugardaginn verður haldinn einstakur
viðburður þegar risa Zumba-partí verður
haldið í Vodafonehöllinni. Þar munu
zumbakennararnir Jóhann Örn, Theodóra
og Hrafnhildur leiða
tímann og stjórna dansi
í 100 mínútur. Páll
Óskar mætir og syngur
sín þekktustu danslög
en þetta verður
einstök og ný leið til að
upplifa Pál Óskar. Zumba
er dans-fitness sem allir geta tekið þátt
í og engrar sérstakrar danskunnáttu er
krafist.
Vodafonehöllin Dansinn hefst
klukkan 13:30
Öll dýrin í skóginum eiga
að vera vinir
Hið sívinsæta leikrit Dýrin í Hálsaskógi
veður frumsýnt þann 8. september í
bráðskemmtilegri nýrri uppfærslu.
Leikrit norska barnavinarins Thorbjörns
Egner hafa notið ómældra vinsælda
hjá íslensku þjóðinni allt frá því að
Kardemommubærinn var sviðsettur í
Þjóðleikhúsinu í fyrsta sinn árið 1960. Nú
eru það þeir Jóhannes Haukur Jóhann-
esson og Ævar Þór Benediktsson sem
bregða sér í hlutverk félaganna Mikka
refs og Lilla klifurmúsar, en auk þeirra
stígur á svið fjöldi leikara, barna og
tónlistarmanna.
Þjóðleikhúsið
Rokkjötnar í Kaplakrika
Risatónleikarnir Rokkjötnar, þar sem
áherslan er á rokk í þyngri kantinum, fara
fram í íþróttahúsinu í Kaplakrika. Þar
koma fram átta af stærstu rokksveit-
um landsins en þær eiga rætur sínar
að rekja allt til níunda áratugarins á
meðan aðrar eru nýrri af nálinni, en allar
eiga þær það þó sameiginlegt að spila
ósvikna rokktónlist af sveittari gerðinni.
Hljómsveitirnar eru HAM, Skálmöld, Sól-
stafir, Brain Police, The Vintage
Caravan, Bootlegs, Endless
Dark og Momentum.
Kaplakriki Hafnarfirði 16:00
Hausttónleikar Harðar
Nú er komið að leiðarlok-
um því þetta verður
í síðasta sinn sem
Hörður Torfa heldur
þessa árlegu haust-
tónleika sína sem
hann hefur haldið frá
1976. Með fyrstu plötu sinni
sem tók upp sumarið 1970, Hörður Torfa-
son syngur eigin lög, hafði hann gríðarleg
áhrif á íslenska tónlist og urðu margir til
að taka hann sér til fyrirmyndar.
Borgarleikhúsið 20:00
„Undirtónninn er að
nei þýði í raun ekki nei“ „Þrælsniðug“
Fantasíur
Hildur Sverrisdóttir
Múffur í öll mál
Nanna Rögnvaldardóttir
Þ
að hafa komið margar ósk-
ir um að ég færi í gegnum
þessa mynd og segði mönn-
um frá henni því þetta er
nú svona „legend“ á með-
al íslenskra kvikmynda,“ segir kvik-
myndagerðarmaðurinn Hrafn
Gunnlaugsson, en viðhafnarsýning
verður á kvikmynd hans Hrafninn
flýgur á Riff-kvikmyndahátíðinni
sem fer fram dagana 27. septem-
ber til 7. október. Hrafninn flýgur
verður sýnd á heimili Hrafns þann
30. september og innifalið í miða-
verðinu er skoðunarferð um hús-
ið á Laugarnestanga undir leiðsögn
hans sjálfs.
Þetta er í fyrsta skipti sem Hrafn
býður uppá sýningu á sinni eigin
kvik mynd á heimili sínu en hann
hefur þó til þess góða aðstöðu, að
eigin sögn. Stórt kvikmyndatjald og
góðan skjávarpa.
Hlakkar til að fá fólk heim
„Ég ætla að fara rólega í gegnum
myndina og stoppa hér og þar. Sýna
hvernig þessi heimur er búinn til.
Hvernig Skógarströnd og Kleifar-
vatn er látið ríma og hvernig Írland
er búið til og allur skollinn. Það er
varla sena þarna sem þarf ekki að
skoða sérstaklega með það í huga
að það er verið að taka upp víkinga-
mynd. Svo líka bara fara í söguna og
hugsunina í sögunni og svo fram-
vegis.“
Hrafn hefur einu sinni boð-
ið uppá svipað kvöld í Svíþjóð sem
hann segir hafa tekist mjög vel.
Hann hlakkar því mikið til að gera
tilraun með þetta á sínu eigin heim-
ili. „Ég vona bara að það komi sem
flestir og húsið á Laugarnestanga
verði pakkað.“ Takmarkað magn
miða verður þó í boði. „Svo munum
við rölta um húsið og spjalla um lífið
og tilveruna.“
Daglega bankað uppá
Hús Hrafns á Laugarnestanga er
sérstakt að því leyti að það er
allt byggt úr endurunnu efni, er
„recycled house“ eins og hann
orðar það. „Þetta er eina hús-
ið í Reykjavík þar sem gerð er til-
raun til að byggja allt húsið úr
endurunnum efnum.“ Hrafn ætlar
að bjóða gestum að skoða hvern-
ig til hefur tekist með það verk-
efni og hvað það þýðir í raun að
byggja úr endurunnum efnum.
„Svo hugsa ég að við munum ræða
um borgarpólitíkina og hvað er
hægt að gera til að gera Reykjavík
skemmtilega.“
Hús Hrafns hefur ekki bara
vakið athygli hér á landi heldur
einnig erlendis, en hægt er að
finna myndir af Laugarnestang-
anum á fjölmörgum erlend-
um vefsíðum. Nær daglega er
bankað uppá hjá Hrafni og vilja
forvitnir fá að berja húsið aug-
um að innan. „Þetta eru oft um-
hverfissinnar, rithöfundar og
blaðamenn. Það er búið að skrifa
mikið um þetta hús í erlend blöð
þannig að það bara gleður mig,“
segir Hrafn. Þegar vel stendur á
hjá honum býður hann fólki inn
til að svala forvitninni. n
solrun@dv.is
n Hrafn Gunnlaugsson sýnir Hrafninn flýgur á heimili sínu
Býður í bíó Þetta verður í fyrsta skipti sem Hrafn sýnir sína eigin kvikmynd á heimili sínu.
Endurunnið Hús Hrafns Gunnlaugssonar er
byggt úr endurunnum efnum og ætlar han
n
að leyfa gestum að sjá hvernig til hefur tek
ist
og kynna fyrir þeim hvað það þýðir í raun.