Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2012, Blaðsíða 2
2 Fréttir 7.–9. desember 2012 Helgarblað
É
g hef verið að spá í liti frá því
ég var um 10–12 ára en fór
svo að dunda mér við þetta
fyrir svona um 10 árum,“ seg-
ir Ragnar Hermannsson, 84
ára áhugalistmálari á Selfossi. Hann
hefur lengi haft áhuga á mynd-
list en fór þó ekki að mála sjálfur
myndir fyrr en hann var kominn á
áttræðisaldur og hættur að vinna.
Ragnar starfaði á árum áður við
bílasprautun þar sem hann fékkst
mikið við blöndun lita og fékk þar
útrás fyrir áhuga sinn á litaflór-
unni. Fyrir um 10 árum ákvað hann
að láta verða af því að fara að mála
og skellti sér á myndlistarnámskeið
þar sem hann lærði undirstöðuat-
riðin í málaralistinni. Síðan þá hef-
ur hann setið nokkur námskeið. „Ég
hef farið á nokkur námskeið, bæði
hjá Sjöfn Har og Katrínu Briem,“
segir Ragnar.
Málar það sem fyrir augu ber
Hann hefur verið iðinn með
pensilinn undanfarin ár og
málað margt af því sem fyr-
ir augu hans hefur borið – að-
allega landsslagsmyndir en
líka myndir af fólki, bæði sem
hann þekkir sem og þjóðþekkt-
ar persónur og aðrar honum
minna kunnar.
Á myndunum er að finna
kunn fjöll og fossa úr náttúru
Íslands sem og óþekktara út-
sýni, til að mynda landslag frá
Færeyjum og Spáni sem Ragn-
ar hefur tekið myndir af og
málað eftir að heim var komið.
Einnig málar hann fólk, sumt
þekkt eins og ein búann Gísla
á Uppsölum, Árna Johnsen
og einnig annað minna þekkt
fólk. Hann segist mála það
sem fyrir augu ber. „Stundum
mála ég eftir myndum af fólki
sem ég finn í blöðum,“ segir hann
og bendir á stóran blaðabunka á
borðstofuborðinu hjá sér þar sem
hann hefur safnað sama áhuga-
verðum myndum. Hann hefur
líka verið duglegur að taka mynd-
ir á ferðalögum og mála eftir þeim
þegar heim er komið.
Á annað hundrað mynda
Afraksturinn hefur hann sýnt tvisvar
á sýningum, núna síðast á bókasafn-
inu í Þorlákshöfn í september. Hann
hefur þó ekki viljað selja myndirnar
en hefur gefið barnabörnum og vin-
um einhverjar.
Myndirnar eru orðnar fjölmargar
en margar þeirra prýða veggi
á heimili Ragnars en hann
málar í stofunni heima hjá
sér. „Ætli myndirnar séu ekki
orðnar um tvö hundruð talsins, eitt-
hvað svoleiðis,“ segir Ragnar.
Eden í ljósum logum
Meðal þeirra málverka sem finna má
hjá Ragnari eru myndir af brennandi
Eden en Ragnar er alinn upp í Gerðar-
koti í Ölfusi og því nátengdur Hvera-
gerði. „Ég er búinn að breyta þessari
þrisvar,“ segir Ragnar um mynd sem
er á trönunum hjá honum um þess-
ar mundir af logandi Eden. „Ég næ
henni ekki alveg eins og ég vil hafa
hana,“ segir hann íhugull. Ragnar seg-
ist þó lítið hafa málað undanfarna sex
mánuði en útilokar ekki að það standi
til bóta og hann haldi áfram að sinna
þessu áhugamáli sínu. n
Bolað burt
3 „Ég vil ekkert tjá mig um
þetta mál,“ sagði
Gunnar Þorsteins-
son, sem oftast er
kenndur við Kross-
inn, við DV á mið-
vikudag aðspurður
hvers vegna hann
hafi verið rekinn úr stjórn áfanga-
heimilisins Krossgatna. Það var
Gunnar sem setti Krossgötur á lagg-
irnar fyrir 25 árum og hefur verið,
þar til nú, formaður stjórnar áfanga-
heimilisins frá upphafi. Áfanga-
heimilið er hugsað sem skamm-
tíma búsetuúrræði fyrir einstaklinga
sem hafa lokið áfengis- og/eða
vímuefnameðferð. Ástæðu þess að
Gunnari var vikið úr stjórn má rekja
til aðalfundar Krossins sem haldinn
var í maí síðastliðnum.
Stýrir Iceland-
keðjunni
2 Jón Ásgeir Jó-hannesson,
fjárfestir og fyrr-
verandi aðaleig-
andi Baugs, stýrir
Iceland-keðjunni
á Íslandi á bak við
tjöldin. Þetta kemur fram í tölvu-
pósti frá Jóni Ásgeiri til starfsmanns
Iceland-búðanna, Guðrúnar Þórs-
dóttur, eiginkonu föður hans sem
var annar stjórnarmanna rekstrar-
félags Iceland, og Einars Þórs Sverr-
issonar lögmanns. Í allri umfjöllun
um Iceland-keðjuna er faðir Jóns
Ásgeirs, Jóhannes Jónsson, sagður
vera eigandi Iceland-keðjunnar og
hefur Jón Ásgeir ekki verið bendlað-
ur við verslanirnar opinberlega með
beinum hætti.
Sviðsett ráðn-
ingarferli
1 Tuttugu og sjö ára lögfræði-
nemi, Sara Lind
Guðbergsdóttir, var
ráðinn úr hópi fjöl-
margra umsækjanda
í eina af æðstu stöð-
um stéttarfélagsins VR í apríl síðast-
liðnum. Sara Lind hafði á þessum
tíma ekki lokið lögfræðinámi sínu í
Háskóla Íslands og hafði takmark-
aða starfsreynslu. Samt varð það úr
að hún fékk starfið í kjölfar ráðn-
ingarferlis sem Capacent sá um. Um
400 umsækjendur sóttu um starfið,
sem Sara Lind fékk, og tvö önnur
störf hjá VR. Ráðningin hefur valdið
titringi innan stjórnar VR sökum þess
að Sara er sambýliskona formanns
VR, Stefáns Einars Stefánssonar.
Fréttir vikunnar Þessar fréttir bar hæst í DV í vikunni
Lét drauminn
loksins rætast
n Ragnar byrjaði að mála myndir á áttræðisaldri n Úr bílasprautun í myndlist
Viktoría Hermannsdóttir
blaðamaður skrifar viktoria@dv.is
Árni Johnsen Hér má
sjá mynd Ragnars af
Árna Johnsen þingmanni.
Listamaðurinn Hér má sjá Ragnar í stofunni heima hjá sér á Selfossi þar sem
hann er með vinnuaðstöðu. Eins og sjá má úir og grúir af myndum eftir hann á
heimili hans en listaverkin eru orðin á annað hundrað talsins. Myndir Sigtryggur Ari
Logandi Eden Hér stendur Ragnar hjá nokkrum mál-verka sinna. Á veggnum má meðal annars sjá logandi Eden.
Tvíbentur
fögnuður
„Auðvitað hefðum við frekar
viljað að þörfin fyrir okkur væri
að minnka en það er ekkert sem
bendir til þess að það sé að gerast.
Þá fögnum við því að konur stígi út
úr ofbeldinu og komi þá til okkar.“
Þetta sagði Sigþrúður Guðmunds-
dóttir, framkvæmdastjóri Kvenna-
athvarfsins, á fimmtudag en þá var
því fagnað að þrjátíu ár eru síðan
Kvennaathvarfið var opnað. Hún
sagði tilfinningarnar blendnar á
þessum tímamótum: „Að fagna
því að það hafi í þrjátíu ár verið til
athvarf fyrir konur sem ekki geta
dvalið heima hjá sér vegna ofbeld-
is er auðvitað svolítið tvíbent.“ Hún
ítrekaði þó að það sé fagnaðarefni
að til sé skjól fyrir konur sem beitt-
ar séu ofbeldi og að sífellt fleiri
konur kjósi að sækja í þetta skjól.
Áttu að leita
„allra leiða“
Karl Wernersson, fyrrverandi
aðal eigandi og stjórnarformaður
Milestone, segir að stjórn fé-
lagsins hafi falið stjórnend-
um að leita „allra leiða“ til að
ganga frá endurfjármögnun á
hlutabréfum Þáttar International
í Glitni í febrúar 2008. Karl
segir að jafnvel þó Milestone
hafi ekki verið eigandi Þáttar
International heldur Sjóvá hafi
félagið verið innan samstæðu
Milestone og því hafi verið talið
mikilvægt að fjalla um málið á
„æðsta level“: „Það var fjallað
um þetta mál á stjórnarfundi hjá
Milestone. Þar var stjórnendum
félagsins falið að leita allra leiða
til að leysa þetta mál.“ Karl var
annars stutt í vitnastúkunni –
um tíu mínútur – þar sem hann
sagðist ekki muna nægilega eftir
þeim atburðum sem hann var
spurður út í. Hann sagðist þurfa
að skoða gögn sín til að muna
hluti eins og hversu stóran hlut
í Þætti International félög hon-
um tengd hefðu átt og eins svar
við þeirri spurningu hvort Mile-
stone hefði verið í sjálfskuldar-
ábyrgð fyrir láninu sem Þáttur
International fékk frá Morgan
Stanley. Þá mundi Karl heldur
ekki hver fjármagnaði hlutabréf
í Glitni í eigu félaga sem tengd-
ust Milestone áður en Morgan
Stanley tók við þessari fjármögn-
un árið 2007.