Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2012, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2012, Blaðsíða 10
10 Fréttir 7.–9. desember 2012 Helgarblað 14 þúsundum fleiri ferðamenn Alls fóru 36.950 erlendir ferða- menn frá landinu í nóvember síð- astliðnum, eða um 14 þúsundum fleiri en í sama mánuði árið 2011. Fjölgunin nemur tæplega 61 pró- senti á milli ára. Þetta kemur fram í tölum frá Ferðamálastofu sem heldur utan um ferðamannafjölda til landsins. Þegar litið er til fjölda ferða- manna í nóvembermánuði á ell- efu ára tímabili, frá 2002 til 2012, má sjá 13,2 prósenta aukningu milli ára að jafnaði frá árinu 2002. Ferðamönnum hefur fjölgað úr 12.400 í tæplega 37 þúsundir, sem er nærri þreföldun. Í tilkynningu sem Ferðamála- stofa sendi frá sér kemur fram að af einstaka þjóðernum hafi flestir ferðamenn í nóvember verið frá Bretlandi, eða 27,7 prósent, og Bandaríkjunum, eða 17,4 prósent. Ferðamenn frá Noregi (8,3%), Sví- þjóð (5,8%), Þýskalandi (5,2%), Danmörku (4,9%) og Frakklandi (4,1%) fylgdu þar á eftir. Samtals voru þessar sjö þjóðir þrír fjórðu ferðamanna í nóvember. Það sem af er ári hefur 618.901 erlendur ferðamaður farið frá landinu eða 99 þúsundum fleiri en á sama tímabili í fyrra. Um er að ræða 19,1 prósents aukningu milli ára. Ferðamönnum hefur fjölgað verulega milli ára frá öll- um mörkuðum. Þannig hefur Bretum fjölgað um 39,5 prósent, Bandaríkjamönnum um 18 pró- sent, Mið- og Suður-Evrópubúum um 13,5 prósent og ferðamönnum sem eru flokkaðir undið „Annað“ um 24,8 prósent. Norðurlandabú- um hefur hins vegar fjölgað minna eða um 10,9 prósent. Um 26 þúsundir Íslendinga fóru utan í nóvember síðast liðnum eða svipaður fjöldi og í nóvember árið 2011. Frá ára- mótum hafa 336.938 Íslendingar farið utan, 5,8 prósentum fleiri en árið áður þegar brottfarir mældust um 318 þúsund. Talning Ferðamálastofu nær yfir allar brottfarir frá landinu um Leifsstöð. STJÓRNARANDSTAÐAN TALAÐI NÆR EINGÖNGU n Sjálfstæðismenn töluðu í rúmar þrjátíu klukkustundir Þingmenn Ræður Aths. Samtals Ásbjörn Óttarsson 172 71 243 Þorgerður K. Gunnarsdóttir 132 33 165 Pétur H. Blöndal 119 40 159 Birgir Ármannsson 127 26 153 Gunnar Bragi Sveinsson 80 66 146 Einar K. Guðfinnsson 132 12 144 Illugi Gunnarsson 121 11 132 Unnur Brá Konráðsdóttir 110 16 126 Kristján Þór Júlíusson 90 33 123 Ragnheiður E. Árnadóttir 94 29 123 Ragnheiður Ríkharðsdóttir 108 9 117 Tryggvi Þór Herbertsson 91 19 110 Vigdís Hauksdóttir 78 29 107 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson 68 34 102 Ásmundur Einar Daðason 60 25 85 Þau töluðu mest Hér er yfirlit yfir þá þingmenn sem töluðu mest í annarri umræðu um fjárlög næsta árs. Listinn nær yfir þá fimmtán þingmenn sem töluðu mest. Aðeins þingmenn stjórnar- andstöðunnar komast á listann. Litlu munaði þó að Björn Valur Gíslason, formaður fjárlaganefndar, kæmist á listann og munaði aðeins tveimur mínútum á honum og Ásmundi Einari Daðasyni, þingmanni Framsóknar. Ræðutíminn er mældur í mínútum. Á sbjörn Óttarsson, þing- maður Sjálfstæðisflokksins, talaði bæði mest og lengst af öllum þingmönnum í annarri umræðu um fjárlög næsta árs. Hann hefur flutt sam- tals fjórtán ræður sem staðið hafa í 172 mínútur. Ásbjörn hefur líka átt flestar athugasemdirnar í um- ræðunni, samtals 41. Flutningur þeirra athugasemda hefur tekið samtals 71 mínútu. Stjórnaranda- staðan hefur talað áberandi meira í umræðunni en þingmenn stjórnar- flokkanna tveggja. Aðeins er tekið mið af ræðum og athugasemdum í umræðunni sjálfri en ekki atkvæða- greiðslunni sem fram fór á fimmtu- dag. Sjálfstæðismenn tala mest Allir þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa lagt orð í belg í umræðunni. Þingmenn flokksins hafa varið rúmlega þrjátíu og einni klukku- stund í að ræða fjárlögin. Það er tæplega 66 prósent af öllum þeim tíma sem varið hefur verið í aðra umræðu fjárlaganna, sem samtals hefur staðið í um það bil 48 klukku- stundir. Aðeins einn þingmanna Sjálfstæðisflokksins sem tekið hafa til máls hefur talað í skemmri tíma en klukkustund þegar allt er talið. Það Jón Gunnarsson sem flutti eina fjörtíu mínútna ræðu á síðasta degi umræðunnar. Flestir þingmennirn- ir hafa talað í meira en hundrað mínútur en aðeins Ásbjörn hefur rofið 200 mínútna múrinn. Framsóknarmenn eiga líka nokkuð stóran hluta þess tíma sem talað hefur verið í um málið á þinginu. Aðeins Siv Friðleifsdóttir hefur ekki tekið til máls af þing- mönnum flokksins í umræðunni. Gunnar Bragi Sveinsson er sá þing- maður flokksins sem talað hef- ur lengst. Hann hefur flutt fjórar ræður sem stóðu samtals í 80 mín- útur. Þar að auki hefur hann gert 34 athugasemdir sem tóku samtals 66 mínútur. Hann hefur því talað í 146 mínútur samtals. Stjórnarþingmenn tala lítið Aðeins níu þingmenn stjórnarflokk- anna tveggja hafa stigið í ræðustól í umræðunni. Björn Valur Gíslason, þingmaður Vinstri-grænna og for- maður fjárlaganefndar, hefur talað lengst stjórnarþingmanna, sam- tals í 83 mínútur. Sigmundur Ernir Rúnarsson er sá þingmaður Sam- fylkingarinnar sem talað hefur mest. Hann hefur talað í samtals 66 mínútur. Enginn ráðherra hefur tekið til máls í annarri umræðu um frumvarpið. Í raun hafa stjórnar- flokkarnir aðeins átt tíu prósent af öllum þeim tíma sem talað hefur verið í úr ræðustóli á þinginu í um- ræðunni. Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn hafa talað í 88 prósent af tímanum. Stjórnarandstöðuþingmennirn- ir Lilja Mósesdóttir og Þór Saari hafa líka lagt orð í belg í um- ræðunni. Þau töluðu hvort um sig í samtals um 25 mínútur. Þau héldu hvort sína ræðuna og gerðu hvort um sig sautján athugasemdir í um- ræðunni. n Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.