Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2012, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2012, Page 14
14 Fréttir 7.–9. desember 2012 Helgarblað *Mánaðarleg afborgun greidd með kreditkorti + 320 kr./mán. greiðslugjald. 10 GB á mánuði í heilt ár fylgir með GSM símum í áskrift eða frelsi hjá Tali. Birt með fyrirvara um verðbreytingar og prentvillur. TALJÓL 2012 VerSlanir | KrinGlan | SMáralind | GlerárTorG | www.Tal.iS SVonA á SAmbAnd Að VerA ÞAð er goTT Að ViTA Af ÞVí Að með hVerJum SnJALLSímA Sem keypTur er hJá TALi fyLgir 10 gb noTkun á mánuði í heiLT ár.* kíkTu í næSTu VerSLun TALS og nýTTu Þér hugheiLT JÓLAVerð GleðileGa hátíð oG farsælt komandi tal * m.v. kortalán Valitors iPhone 4 8 Gb 4.690 kr. á mán. Vaxtalaust í 18 mán.* 10 gb á mánuði fyLgJA ÞeSSum SímA, 120 gb á ári STAðgreiðSLuVerð 74.900 kr. * m.v. kortalán Valitors iPhone 5 16 Gb 9.790 kr. á mán. Vaxtalaust í 18 mán.* 10 gb á mánuði fyLgJA ÞeSSum SímA, 120 gb á ári STAðgreiðSLuVerð 159.990 kr. * m.v. kortalán Valitors iPhone 4s 16 Gb 6.890 kr. á mán. Vaxtalaust í 18 mán.* 10 gb á mánuði fyLgJA ÞeSSum SímA, 120 gb á ári STAðgreiðSLuVerð 110.900 kr. ÍS LE N SK A/ SI A. IS /T AL 6 19 12 1 2/ 12 Í fyrra var það þannig að við sáum fram á að hann þyrfti spjaldtölvu, ýmislegt í sund og hitt og þetta sem við höfðum ekki efni á að kaupa handa honum. Þá fórum við að hugsa hvað við gætum gert og hvað Stulli gæti gert. Hann getur teiknað þannig að við ákváðum að prófa þetta og ætluðum nú bara fyrst að pranga þessu inn á vini og ættingja. Síðan gekk þetta svo vel og fólk fór að spyrja um þetta aftur núna þannig að við ákváð- um að endurtaka leikinn,“ segir Ragn- heiður Gróa Hafsteinsdóttir, móð- ir Þorsteins Sturlu Gunnarssonar, eða Stulla eins og hann er jafnan kallaður, um jólakort sem fjölskyldan selur til styrktar tækjakaupum fyrir Stulla. Ekki borgað fyrir öll tæki Stulli er 13 ára og gengur í 8. bekk í Vatnsendaskóla. Hann er með tauga- hrörnunarsjúkdóminn SMA (e. Spinal Muscular Athropy) sem veldur því að hreyfigeta hans er takmörkuð, hann hefur aldrei gengið né staðið og treyst- ir á hjálp ýmissa hjálpartækja sér til aðstoðar í sínu daglega lífi. Trygginga- stofnun borgar fyrir Stulla hjólastól og þau tæki sem mæta hans grunnþörf- um en tæki sem hann þarf að nota í tómstundum sínum, til að mynda í sundi og til þess að hann geti sinn öðrum áhugamálum, þarf fjölskyldan að greiða fyrir sjálf. Þau ákváðu því að stofna Styrktarsjóð Stulla í fyrra og selja jólakort til þess að geta fjármagn- að kaup á þeim tækjum, tólum og öðr- um búnaði sem Stulli þarf til þess að auðvelda honum lífið og gefa honum aukið sjálfstæði. „Þegar hann var um sex mánaða þá fórum við að láta athuga hann því okkur grunaði að ekki væri allt með felldu. Þegar hann var 13 mánaða fékk hann greininguna og var stuttu seinna kominn í spelkur. Hann fékk fyrsta rafmagnshjólastólinn sinn þegar hann var tveggja og hálfs árs. Þetta er bara hans líf og hann þekkir ekkert annað,“ segir Gróa. Hugsa í lausnum Fjölskylda Stulla hefur lagt áherslu á að einbeita sér að því sem Stulli getur í stað þess sem hann getur ekki. „Maður verður að horfa á það sem hann getur en ekki velta sér upp úr því hvað hann getur ekki. Maður verður bara þung- lyndur á að velta sér upp úr því sem er ekki hægt. Við hugsum bara í lausn- um,“ segir Gróa. Og það hafa þau svo sannarlega gert. Jólakortin sem Stulli teiknaði í fyrra og voru svo prentuð slógu algjörlega í gegn. Stulli er lunkinn listamaður eins og sjá má á kortunum. Á þeim er meðal annars að finna jólasvein og snjókarl í hjólastól. Nokkuð sem er ekki algengt á jólakortum. Auka sjálfstæði heima fyrir Núna er fjölskyldan að safna fyrir bún- aði sem kemur til með að auka sjálf- stæði Stulla heima fyrir. „Við erum að safna fyrir svona ljósarofum og hurða- og gluggaopnurum sem eru fjarstýrðir og hann getur notað sjálfur. Draumur- inn er að fá þetta þannig að hann geti notað þetta í snjallsímanum sínum og geti opnað og lokað dyrunum hjá sér, kveikt og slökkt ljósin, opnað gluggana og lokað,“ segir Gunnar Steingrímsson, faðir Stulla. „Tryggingastofnun borgar tvo rofa en við viljum fleiri og það kostar einhverja hundrað þúsund kalla sem er aðeins meira en fjárhag- ur venjulegrar fjölskyldu eins og okkar leyfir,“ segir Gróa en auk Stulla eiga þau hjónin þrjú önnur börn. Þeir sem vilja kaupa jólakortin hans Stulla geta haft samband á Face- book-síðunni Styrktarsjóður Stulla eða með tölvupósti groahaf@simnet.is. Reikningsnúmer er 0701-15- 690359, kt. 031299-2179 n n Þorsteinn Sturla er 13 ára drengur með taugahrörnunarsjúkdóm n Kortin slógu í gegn MYNDSKREYTIR JÓLAKORT OG SAFNAR FYRIR TÆKJUM Lunkinn listamaður Hér er Stulli með eitt af jólakortunum sem hann teiknar. Fjölskyldan selur kortin til þess að fjármagna tækjakaup fyrir Stulla en hann er háður tækjum í öllum sínum daglegu athöfn- um og Tryggingastofnun borgar bara fyrir hluta þeirra. Viktoría Hermannsdóttir blaðamaður skrifar viktoria@dv.is „Við hugsum bara í lausnum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.