Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2012, Síða 23
Fréttir 23Helgarblað 7.–9. desember 2012
Þau misstu börnin sín
n Stofna landssamtök fyrir foreldra sem hafa misst börn með sviplegum hætti n Kona sem missti son sinn á jólunum hrinti þessu af stað n Sár sem aldrei gróa
Á
srún Harðardóttir og Kon
ráð Halldór Konráðsson
misstu son sinn, Kristófer
Alexander, 5. mars í fyrra.
Hann var á sjötta ári og lést
af slysförum í sveitinni hjá ömmu
sinni. Þeir höfðu farið þangað
saman feðgarnir, til þess að aðstoða
við búskapinn.
„Bóndinn var ekki heima þannig
að mamma var ein með búið. Ég fór
því vestur á föstudeginum og Krist
ófer kom með mér. Á laugardegin
um kom dóttir mín úr fyrra sam
bandi líka en ellefu ára dóttir okkar
Ásrúnar var lasin þannig að þær
mæðgur voru heima. Bræður mín
ir tveir komu líka við hjá mömmu á
laugardeginum og sá elsti var ekki
löngu farinn þegar við fórum í fjós
ið um kvöldið.
Þar fór ég niður í mjaltabásinn
á meðan krakkarnir voru að þvæl
ast um fjósið. Mamma sagði syni
mínum að vara sig á stiganum, því
það vantaði á hann handriðið og
hann svaraði um hæl og sagði að
hann vissi vel hvað væri hættulegt
þarna, enda hálfpartinn alinn upp í
sveitinni og þekkti sig vel í fjósinu.
En ég var nýkominn ofan í mjalta
básinn þegar ég heyrði hátt hljóð
sem ég hef aldrei heyrt, hvorki fyrr
né síðar, og rauk upp úr básnum og
yfir í þann hluta fjóssins þar sem
geldneytin voru. Þá hafði hann far
ið í öxul af flórsköfu og var látinn.
Hann hefur verið að teygja sig eftir
kettinum og farið þarna ofan í.“ seg
ir Konráð.
Dóttir mín bjargaði mér
Tíminn var lengi að líða þar til
presturinn kom, lögreglan, og
læknir úr Borgarnesi sem úrskurð
aði Kristófer látinn á staðnum og
sjúkraflutningamenn sem fluttu
hann suður. „Þetta voru þvílíkar
hetjur og þegar ég var við að brotna
náðu þeir alltaf að grípa mig.
Á meðan ég beið eftir þeim þá
hljóp ég fram og til baka, fram til
dóttur minnar sem var inni í mjólk
urhúsi og inn til sonar míns sem
var látinn. Ég varð að vera á báð
um stöðum en ég veit ekki hvernig
þetta hefði verið ef dóttir mín hefði
ekki verið þarna hjá mér. Hún bjarg
aði mér, hélt mér uppi, því ég þurfti
að vera til staðar fyrir hana. Ég var
spurður hvort ég vildi að prestur
færi heim til þess að tilkynna kon
unni minni og dóttur þetta en mér
fannst það ekki hægt, ég varð að
gera það sjálfur.
Þegar ég hugsa um það, þá hefði
ég ekki viljað vera annars staðar
þegar þetta gerðist. Af tvennu illu
hefði ég frekar viljað vera þarna
heldur en að fá símtalið. En það
er mjög erfiður hluti af þessu og
ég þarf að glíma við þessa mynd í
vöku og svefni. Í hvert sinn sem hún
kemur upp þá fer ég í gegnum alla
hugsunina, slysið allt og enda síðan
á einni minningu sem ég deili ekki
með neinum en er góð og hrein
og falleg. Ég reyni að enda alltaf á
þessu góða, það hjálpar mér.
Það er asnalegt að segja að mað
ur sé þakklátur fyrir eitthvað í þessu
samhengi. En ég er þakklátur fyrir
að hafa komist af í fjósinu og heim.“
„Er hann dáinn?“
Lögreglan ók Konráð heim. Ás
rún segir að hún hafi séð lögreglu
bílinn fyrir utan en það hvarfl
aði ekki að henni eitt augnablik að
lögreglan ætti erindi við hana. „Ég
man bara að dyrabjallan hringdi
og Konni sagðist vera kominn heim
með gesti. Þeir komu upp og stelp
an var háskælandi. Ég man ekki al
veg hvernig þetta var en ég man
að presturinn sagði eitthvað og ég
heyrði sjálfa mig alltaf og endalaust
spyrja: „Ertu að segja mér að hann
sé dáinn? Er hann dáinn?“ Hún
kemur hundrað og milljón sinnum
upp í huga minn, þessi spurning.
Það var eins ég færi út úr líkam
anum og fór að hjálpa stelpunum.
Við þurftum að kalla út lækni fyrir
eldri dóttur hans því hún var alveg
í losti. Seinna sagði yngri stelpan
okkur frá því að hún hefði verið al
veg komin að því að springa en hún
hefði haldið aftur á sér til þess að
auka ekki á erfiðleika okkar.
Ég hringdi í mömmu. Svo man
ég eiginlega ekkert. Við sváfum ekk
ert næstu nætur og á endanum vor
um við orðin stjörf af þreytu og feng
um svefnlyf. Vikuna fram að jarðarför
var ég bara dofin, við vorum lengi að
tengjast okkur sjálfum aftur.“
Enn dofin
Morguninn eftir var bíllinn í stæð
inu fyrir utan og lyklarnir í póst
kassanum, lögreglan kom honum
til skila. „Ástandið var svakalegt
inni á heimilinu. Fyrstu dagarn
ir voru í algjöru blakkáti, við viss
um ekkert hvað við vorum að gera.
Það var svo margt sem við þurftum
að sinna, velja mynd með dánartil
kynningunni, kistu og taka á móti
stöðugum straumi af gestum.
Við borðuðum ekkert. Það eina
sem við gátum komið ofan í okkur
þessar fyrstu vikur var orkudrykkur.
Það síðasta sem ég hugsaði um var
matur,“ segir Konráð og Ásrún tek
ur undir. „Þú finnur ekkert, hvort þú
ert svöng eða þyrst, eða hvort þér sé
heitt eða kalt eða hvort þú sért með
vöðvabólgu eða höfuðverk. Ég fann
ekkert,“ segir hún og Konráð segist
hafa verið algjörlega dofinn. „Það
tók að minnsta kosti mánuð að fjara
út,“ segir hann. „Ég er enn dofin,“
segir Ásrún og Konráð tekur und
ir það.
„Eftir þrjá daga var heimilið okk
ar búið að vera fullt af grátandi full
orðnu fólki,“ segir Ásrún, „og allt í
einu fattaði ég að dóttir mín hafði
verið eina barnið innan um allt
þetta fólk og bað mágkonu mína að
koma með dætur sínar næsta dag.
Þá fóru þær þrjár inn í herbergi að
spjalla saman.“
Róaðist við niðurstöðuna
Konráð segir að sem betur fer kunni
fáir að takast á við svona aðstæður.
„Ættingjarnir leituðu ráða hjá presti
sem hjálpaði þeim. Á tímabili fund
um við að við vorum vöktuð, við
vorum aldrei skilin ein eftir.
Barnsmóðir mín var með okkur
í öllu. Í kistulagningunni var enginn
nema við hjónin, eldri dóttir okkar
og móðir hennar. Við vildum bara
að stelpan fengi þann stuðning sem
hún þurfti á að halda.“
Um hálfum mánuði síðar sneri
Konráð aftur til vinnu. „Ég vildi
mæta strákunum og vinnunni.
Fljótlega eftir að ég fór aftur að
vinna fékk ég mjög sterka tilfinn
ingu fyrir því að ég hefði ekki reynt
endurlífgun. Sem er skrýtið mið
að við hvernig hann var farinn eft
ir slysið.
Þannig að ég rauk niður á bráða
móttöku og talaði við lækni, því það
getur tekið allt að ár að fá niður
stöður úr krufningu, og ég varð að
vita þetta. En þar fékk ég að heyra
að miðað við áverkana þá hefði
ekki verið hægt að hjálpa honum.
En það dugði ekki til að kveða nið
ur þessar tilfinningar. Það tókst ekki
fyrr en ég fékk niðurstöðuna og fékk
að vita að hann dó samstundis.“
Læra á lífið upp á nýtt
„Þetta stóra ef,“ segir Konráð, „það
fór í gegnum allan hópinn hjá okk
ur. Bróðir minn ásakaði sjálfan sig
fyrir að hafa farið vestur í Hólm
inn í staðinn fyrir að hjálpa okkur í
fjósinu. Hann er með bú fyrir vest
an og varð að fara þangað. Dóttir
mín fékk þá hugsun að hún hefði
átt að passa hann. Hann var alinn
upp þarna í fjósinu og hún var ekki
fengin vestur til þess að passa. En
þetta fékk ég að heyra í áfallahjálp
inni.
Eftir svona áfall lærir maður á líf
ið upp á nýtt. Það eru þúsund hlut
ir sem maður þarf að takast á við.
Ein spurningin sem þarf að svara
er hvað eigi að gera við herberg
ið hans, dótið hans. Þessar spurn
ingar eru endalausar. Við ákváð
um að fara í gegnum þetta á okkar
forsendum og á okkar hraða. Við
höfum ekki tekið neinar endanlegar
ákvarðanir og eigum afturkvæmt
með allt. Við tókum herbergið hans
niður og settum fötin ofan í kassa
inni í geymslu þannig að ef okk
ur langar til þess að sjá þetta aftur
þá er þetta allt til. Við erum ekki í
neinu ástandi til þess að taka þessar
ákvarðanir.“
Þerraði tár foreldra sinna
Þau hjónin voru strax staðráð
in í því að þiggja alla þá hjálp sem
þeim bauðst. „Við erum meðal
annars í sorgarhópum,“ segir Ás
rún. „Það var ótrúlega gott að hitta
fólk sem er sama marki brennt.
Þess vegna vonumst við til að geta
hjálpað öðrum. Ég held að það
séu margir sem hafa ekki fengið
viðeigandi aðstoð við að vinna úr
áfallinu. Það eru ekkert svo mörg
ár síðan fólk missti barnið sitt í
slysi og var sent með leigubíl heim
af spítalanum. Sama ár og Krist
ófer dó lést lítil stelpa af slysförum
og ég veit að foreldrum hennar var
ekki boðin áfallahjálp. Mér finnst
það skylda samfélagsins að veita
þessu fólki áfallahjálp því ég finn
hvað það hefur mikið að segja,“
segir Ásrún.
Engu að síður er sorgin enn til
staðar og það koma dagar þar sem
hún tekur völdin. „Á hverjum degi
er maður að vinna með eitthvað,
koma á nýja staði sem minna á.
Hátíðisdagar eru erfiðir og afmæl
isdagar. Ég finn þetta byggjast upp
inni í mér,“ segir Konráð, „og á
endanum brotnar maður.
Við erum farin að þekkja þetta
ferli. Ásrún sér oft hvað er að gerast
hjá mér áður en ég hef áttað mig á
því sjálfur og svo öfugt. Það er eins
með dóttur okkar, við vitum nán
ast upp á hár hvenær hún spring
ur. Þá býr hún til spennu til þess að
geta losað um.
Þetta hefur haft gríðarlega mik
il áhrif á þær systur. Þær eru mikið
þroskaðri en jafnaldrar þeirra því
þær vita að lífið er ekki svona ein
falt, þær vita hvað getur gerst.
En þær hafa staðið sig ótrúlega
vel. Yngri stelpan okkar sat á milli
okkar í jarðarförinni og þurrkaði
tárin sem runnu niður kinnarnar
á okkur. Hún er algjör hetja. Fyrir
hana höldum við áfram.“
Þurftu að læra á lífið upp á nýtt
Kristófer Alexander Konráðsson
f. 06. 07. 2005 – d.05. 03. 2011
varð ljóst að þörfin var mikil. „Þaðan
erum við komin hingað í dag þar sem
við sitjum með fólki sem hefur boð
ist til þess að taka sæti í stjórninni.
Ég verð ekki í stjórn, ég á ekki þessa
reynslu að missa barn skyndilega.
En ég missti reyndar frumburð minn
á miðri meðgöngu. En það er önnur
saga og annars eðlis en þetta.
En okkar tillaga er að fyrsti for
maðurinn verði af landsbyggðinni
sem er yfirlýsing um að þetta sé ekki
eitthvað höfuðborgarpúkk, þetta er
fyrir allt landið. Þar ætlum við líka að
fá til liðs við okkur prest sem hefur
þessa reynslu og getur verið til staðar.
Að auki ætla þessi samtök að leggja
sig fram um að vera með hvíldarhelgi
með fræðslu og endurnærandi hvíld
fyrir foreldra,“ segir hún og hrærir í
tebollanum sem stendur á borðinu
fyrir framan hana. „Það er líka rétt
að taka það fram að það er vilji sam
takanna að starfa náið með Nýrri
dögun, samtökum sem hafa unnið
gríðarlega gott starf og fagna 25 ára
starfsafmæli núna um helgina.“
„Þetta er kjarnorku-
sprengja sem varp-
að er í líf þitt. Og radíusinn
er tugir manna sem verða
fyrir áfalli.
Framhald á næstu opnu
n Ásrún og Konráð misstu fimm ára gamlan son í fyrra„Ég er þakklátur
fyrir að hafa kom-
ist af í fjósinu og heim.
„Yngri stelpan okk-
ar sat á milli okkar
í jarðarförinni og þurrk-
aði tárin sem runnu niður
kinnarnar á okkur.