Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.2011, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.2011, Side 2
2 | Fréttir 4.–6. nóvember 2011 Helgarblað iess járnsmíði Dalvegi 24 • 544 4884 • iess@iess.is Ósátt við skólastjórann Í síðasta helgarblaði DV var greint frá því að níu ára nemandi hefði beðið móður sína um lyf til þess að sofna og vakna aldrei aftur, hann vildi „sofna að ei- lífu“. Móðir drengsins, Elsa Margrét Víðisdóttir, sagði sögu hans en Gabríel Víðir glímir við margvísleg vandamál, meðal annars ódæmigerða einhverfu og ADHD. Í DV á mánudag lýsti Elsa Margrét yfir óánægju sinni með skóla- stjóra Árbæjarskóla, þar sem Gabríel stundar nám, og sagði skólastjórann skorta skilning á fötlun Gabríels. „Ég efast um að skólastjórinn hafi getu eða vilja til að taka á vandamálinu,“ sagði hún meðal annars. Bauð Skúla Iceland Express til kaups Starfsmað- ur ótil- greinds fjármála- fyrirtækis bauð fjárfestingar- félaginu Títan, sem er í eigu Skúla Mogen- sen, að kaupa Iceland Ex- press af Pálma Haraldssyni fyrir um tveimur vikum. Tilboðið kom eftir að fréttist af stofnun lággjalda- flugfélagsins WOW Air sem Skúli stendur að. Þetta staðfesti fram- kvæmdastjóri Títan, Baldur Oddur Baldursson, í DV á miðvikudag. Til- boðinu var hafnað, að sögn Bald- urs. Hann sagðist ekki vilja greina frá því hvaða banki það var sem hefði haft milligöngu um viðræð- urnar og bar fyrir sig trúnaði. Lifir hátt eftir 58 milljarða gjaldþrot Gunnar Þorláks- son byggingar- meistari, annar eigenda eignar- haldsfélagsins CDG sem áður hét Bygg Invest, býr í stórglæsi- legu húsi að Hólmaþingi 9 í Kópavogi, þrátt fyrir 58 milljarða gjaldþrot tveggja fyrir- tækja sem honum tengdust. Sam- kvæmt heimildum DV var bygg- ingarkostnaður hússins um 250 til 300 milljónir króna. Samkvæmt fast- eignamati er brunabótamat hússins 136.050.000 krónur. Fyrirtækin tvö sem skilja eftir sig samtals 58 milljarða króna skuldir, eru áðurnefnt CDG ehf. og Saxbygg Invest. Fréttir vikunnar í DV 1 2 3 Þ etta er alveg rosalega spennandi og ég er bara opin fyrir því að læra allt,“ segir félagsfræðingurinn og sex barna móðirin Amal Ta- mimi, sem tók á fimmtudaginn sæti á Alþingi fyrir Samfylkinguna. Amal mun sitja á Alþingi næsta mán- uðinn sem varaþingmaður Lúðvíks Geirssonar sem er fjarri af persónu- legum ástæðum. Það er víst óhætt að segja að leið Amal inn á Alþingi sé talsvert frábrugðin leið annarra. Amal fluttist hingað til lands árið 1995, einstæð móðir frá Palestínu með börnin sín, sem þá voru fimm. Amal segist í samtali við DV vera mjög spennt og glöð yfir því að taka sæti á Alþingi en viðurkennir vel að það sé einnig nokkuð yfirþyrm- andi. „Já, auðvitað, þetta er ekki eitthvað sem gerist á hverjum degi. Þetta er rosalega mikill heiður og ég er mjög spennt. Það taka hins vegar allir rosalega vel á móti mér og ég er byrjuð að slaka aðeins á,“ segir Amal, sem hafði aðeins verið þingmaður í um þrjár klukkustund- ir þegar DV ræddi við hana. Vann í fiski og við ræstingar Fyrstu árin sem hún bjó á Íslandi þurfti hún að vinna hörðum hönd- um til að brauðfæða stóra fjöl- skyldu sína. Hún vann meðal ann- ars í fiski og við ræstingastörf. Árið 2000 varð hún hins vegar öryrki. Þá innritaðist hún í nám í félags- fræði við Háskóla Íslands og lauk þaðan prófum 2004. Árið 2002, eftir að hafa búið í sjö ár á Íslandi, varð hún íslenskur ríkisborgari, en hún hefur sjálf sagt að það hafi verið í fyrsta skipti sem hún varð ríkis- borgari. Palestínumenn hafa ekki ríkisborgararétt og því hafi hún þurft að koma á gestavegabréfi frá Ísrael. Hún hefur áður sagt í viðtali við DV að hún gleymi aldrei degin- um sem hún fékk íslenskt vegabréf og það sé erfitt fyrir Íslendinga að gera sér grein fyrir forréttindunum sem fylgja því að hafa ríkisborgara- rétt. Hún hefur sinnt ýmsum trún- aðarstörfum og verið meðal ann- ars framkvæmdastýra jafnréttis- húss Hafnarfjarðar. Nú, 16 árum eftir að hún kom fyrst til landsins, er hún orðin íslenskur þingmaður fyrir Samfylkinguna. Hún er annar innflytjandinn sem tekur sæti á Al- þingi, en áður hafði Paul F. Nikolov setið á Alþingi fyrir Vinstri græna. Lætur síðar til sín taka Hún játar því aðspurð að hún hafi ekki séð það fyrir þegar hún flutti hingað til lands að dag einn yrði hún þingmaður. „Já, eins og ég segi, þetta er ekki eitthvað sem kemur fyrir á hverjum degi og ekki fyrir alla.“ Fyrsti vinnudagur Amal á Alþingi var annasamur en hátt í 20 mál voru á dagskrá þingsins á fimmtudaginn. Amal segir ótímabært að svara því hvaða málum hún hyggist berjast fyrir á meðan hún situr á Alþingi. „Ég er bara núna á því stigi að sitja, læra, skoða og komast inn í hlutina. Við sjáum til hvað verður eftir viku eða tvær. Það er rosalega mikið af öðru- vísi aðferðum hér sem mér finnst að ég þurfi að læra.“ Háttvirtur þingmaður Amal Tamimi frá Palestínu er nýjasti þingmaðurinn. Hún mun sitja á Alþingi næsta mánuðinn í fjar- veru Lúðvíks Geirssonar. Hún þurfti að strita til að brauðfæða fjölskyldu sína. Mynd:Eyþór Árnason n amal Tamimi tekur sæti á alþingi n stritaði til að brauðfæða fjölskylduna n Fyrsta erlenda konan n „þetta er rosalega mikill heiður“ 6 barna móðir frá Palestínu á þing „Þetta er ekki eitt- hvað sem kemur fyrir á hverjum degi og ekki fyrir alla. Valgeir Örn Ragnarsson blaðamaður skrifar valgeir@dv.is Ákærður fyrir manndráp: Trúði ekki að hann væri látinn Redouane Naoui sem ákærður er fyrir að stinga mann til bana á veitingastaðnum Monte Carlo í júlí síðastliðnum ber við minn- isleysi. Aðalmeðferð málsins fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur á fimmtudag og var þar sýnd mynd- bandsupptaka úr öryggismyndavél staðarins. Þar sást þegar Redouane lenti í orðaskaki við fórnarlambið, Hilmar Þóri Ólafsson. Svo virðist sem Redouane hafi falast eftir að kaupa kannabisefni af Hilmari, en Hilmar virðist ekki hafa viljað eða getað selt honum slíkt. Við það virðist Redouane hafa reiðst með þeim afleiðingum að hann stakk Hilmar í hálsinn. Redouane gaf skýrslu með að- stoð túlks. Hann var rólegur og yfir- vegaður í dómsalnum. Hann lýsti því að hann hefði fyrr um kvöldið verið í grillveislu á Monte Carlo og drukkið ótæpilega. Hann hefði ekkert munað frá því hann var í veislunni þar til hann var kominn á lögreglustöðina, seinna um dag- inn. Fyrir dómi sagðist hann gruna að einhver hefði byrlað honum ólyfjan í veislunni. Hann neitaði því að neyta eiturlyfja að staðaldri, en í blóði hans við handtöku mældist amfetamín, kannabis og kódín. Þegar saksóknari spurði Redo- uane hvernig honum hefði liðið eftir að hann heyrði að Hilmar Þórir væri látinn sagðist hann ekki hafa trúað því. Hann væri ekki „svona manneskja sem dræpi“. Þegar saksóknari spurði hver afstaða hans væri til atviksins nú svaraði Redouane því að hann væri búinn að missa allt; börnin, fjöl- skylduna og lífið. Hann bað Hilmar Þóri um að fyrirgefa sér. Vitni sem var á staðnum þegar atvikið átti sér stað bar fyrir dómi að til deilna hefði komið á milli Redouane og Hilmars Þóris. Starfs- fólk staðarins hefði stöðvað deil- urnar og vísað Redouane út. Hann hefði sagt á ensku: „No, this isn’t over yet.“ Hann hefði komið til baka og veist að Hilmari með fyrr- greindum afleiðingum. Hilmar lést tæpum tveimur vikum eftir árásina á sjúkrahúsi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.