Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.2011, Qupperneq 10
10 | Fréttir 4.–6. nóvember 2011 Helgarblað
Grensásvegur 8 &
Nýbýlavegur 12
Sími 517 2040
Opið
mánud-föstud. 11-18
laugard. 11-16
St. 40-47 Verð 18.995
St. 41-46 Verð 15.295
St. 40-46 Verð 16.395
St. 40-47 Verð 13.595
O
rgelsjóður Háteigskirkju var
settur í peningamarkaðs-
og hlutabréfasjóð hjá Ís-
landsbanka, síðar Glitni, á
árunum fyrir íslenska efna-
hagshrunið. Þetta kemur fram í árs-
reikningum eignarhaldsfélags sem
stofnað var utan um orgelsjóðinn
og í máli Sigríðar Guðmundsdóttur,
formanns sóknarnefndar kirkjunn-
ar. Orgelsjóðurinn var stofnaður árið
2004 til að halda utan um fjárfram-
lög til kirkjunnar vegna orgelkaupa.
Sóknarbörn í Háteigskirkju gáfu svo
fé í sjóðinn.
Sigríður segir að orgelsjóðurinn
hafi verið 4,8 milljónir króna þeg-
ar hann var stofnaður árið 2004. Á
sóknarfundi árið 2007 var ákveðið
að leggja peningana annars vegar í
peningamarkaðssjóð og hins vegar
í hlutabréfasjóð. „Fólki fannst sjóð-
urinn illa ávaxtaður og þá var tekin
ákvörðun um að setja 65 prósent af
sjóðnum í peningamarkaðssjóð og
35 prósent í innlendan hlutabréfa-
sjóð. Báðir sjóðirnir voru hjá Íslands-
banka [Glitni, innskot blaðamanns].“
Líkt og DV greindi frá á föstudag-
inn hefur fimm starfsmönnum Há-
teigskirkju verið sagt upp störfum
vegna aðhaldsaðgerða. Einn þeirra
er organistinn Douglas Brotchie sem
lætur af störfum 15. desember. Kór
kirkjunnar mun hætta á sama tíma
og organistinn. Að sögn Sigríðar er
eini starfsmaður kirkjunnar sem
heldur starfinu ræstitæknir sem er í
hálfu starfi hjá sóknarnefnd Háteigs-
kirkju.
Skilaði tapi 2008
Orðrómur hefur verið uppi um að
aðhaldsaðgerðir Háteigskirkju megi
að einhverju leyti rekja til fjárfest-
ingar orgelsjóðsins í peningamark-
aðs- og hlutabréfasjóðum Glitnis.
Svo mun þó ekki vera ef marka má
orð Sigríðar Guðmundsdóttir. Hún
segir vissulega að fjárfesting orgel-
sjóðsins hafi skilað tapi upp á eina
milljón króna árið 2008 en að kirkjan
eigi ennþá sjóðinn þó hann hafi ekki
verið ávaxtaður með hagstæðum
hætti. „Árið 2008 er skráð eins millj-
ón króna tap á þessum sjóði. En um
síðustu áramót var hann 6,4 milljón-
ir. Þannig að hann hefur ekki rýrnað
frá 2004 en hann hefur heldur ekki
gildnað mjög mikið enda gengum
við í gegnum efnahagshrun á þess-
um árum. Kirkjan á því 6,4 milljónir
í orgelsjóðnum í dag.“
Sigríður segir því að segja megi
með réttu að sóknarnefndin hafi tap-
að einni milljón í ávöxtun. „Við höf-
um misst einhverja ávöxtun, það má
segja það með réttu: Við töpuðum 1
milljóna í ávöxtun en það voru fleiri
sem gerðu það á þessum árum. Þetta
er alveg á hreinu.“ Heildartekjur Há-
teigskirkju námu nærri 63 milljónum
króna árið 2009. Rúmar 52 milljónir
króna voru opinber greiðslur til kirkj-
unnar, svokölluð sóknargjöld, fimm
milljónir voru vegna styrkja og ann-
arra framlaga og aðrar tekjur sókn-
arinnar námu rúmum fimm millj-
ónum.
Minnkandi sóknargjöld
Á föstudaginn sagði Sigríður að
ástæðan fyrir aðhaldsaðgerðunum
í kirkjunni væri sú að tekjur sókn-
arnefndarinnar hefðu lækkað um-
talsvert á liðnum árum, meðal ann-
ars vegna minnkandi sóknargjalda.
„Sóknargjöldin hafa lækkað um 25
milljónir króna á árinu og við erum
að bregðast við því. Það var ekki hægt
að gera neitt annað en að minnka
starfsemina hjá okkur. Við erum bara
með minna fjármagn en áður og
við höfum ekki efni á að reka kirkj-
una í óbreyttri mynd,“ sagði Sigríð-
ur. Ástæðan fyrir minnkandi sóknar-
gjöldum er sú, að sögn Sigríðar, að
einstaklingum í sókninni sem skráð-
ir eru í þjóðkirkjuna hefur fækkað.
Fækkunin er bæði vegna úrsagna úr
þjóðkirkjunni og eins vegna þess að
nokkuð er um útlendinga í sókninni.
„Við töpuðum einni
milljón í ávöxtun en
það voru fleiri sem gerðu
það á þessum árum.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Orgelsjóður
nOtaður í
hlutabréfa-
viðskipti
n Orgelsjóður Háteigskirkju settur í peningamarkaðs- og hlutabréfasjóði hjá Glitni 2007
n Milljón tapaðist árið 2008 n Aðhaldsaðgerðir hjá kirkjunni vegna lækkandi sóknargjalda
Tap upp á milljón
Formaður sóknarnefnd-
ar Háteigskirkju segir að
tap upp á milljón hafi
verið af orgelssjóðnum
árið 2008.
Organistinn Sóknarnefnd Háteigskirkju setti orgelsjóð kirkjunnar í peningamarkaðs- og
hlutabréfasjóð hjá Íslandsbanka. Douglas Brotchie er organisti í kirkjunni. Nota átti orgel-
sjóðinn til að kaupa nýtt orgel í kirkjuna. Það var hins vegar ekki gert.
R
júpnaveiðitímabilið hófst
þann 28. október síðast-
liðinn og stendur að þessu
sinni aðeins í níu daga.
Benedikt Guðmundsson er
meðlimur í hóp sem hefur gengið til
rjúpna á Holtavörðuheiði fyrsta dag-
inn í opnun tímabilsins. Að þessu
sinni fóru þeir aðeins einn dag og
voru mjög heppnir með veður, enda
viðraði ekki beint til rjúpnaveiða síð-
astliðinn laugardag og sunnudag.
Það er gert til þess að vernda stofn-
inn að láta veiðar hefjast síðar en
áður var. Þær hófust vanalega í kring-
um 15. október, en með seinkuninni
verður veður bæði verra og meiri
snjóþungi er á fjöllum og því erfiðari
færð fyrir skytturnar.
„Við erum búnir að fara í yfir 20 ár
á Holtavörðuheiðina á fyrsta í opnun.
Það var svo gott veður og miklu meira
líf núna en var til dæmis í fyrra,“ seg-
ir Benedikt en veiðar gengu mjög vel.
„Við tókum bara skammtinn eins og
lög gera ráð fyrir,“ segir hann. Þeir
félagarnir gera sér yfirleitt glaðan dag
í kringum veiðarnar, að þessu sinni
var mikil veisla að loknum veiðum í
sumarbústað. „Við leggjum mikið upp
úr félagsskapnum og fæðunni,“ seg-
ir Benedikt og hlær. Veiðin hefur far-
ið nokkuð vel af stað á landsvísu, en
það hefur verið nokkuð umdeilt í ár
hversu mikið veiðitímabilið var stytt.
Í ár er það aðeins níu dagar, en í fyrra
var það átján dagar. Benedikt bendir
þó á að þess í stað sjái dýrin sjálf um
að fækka í stofninum. „Þegar veiði-
manninum er kippt út þá eykst bara
minkurinn, refurinn og fálkinn í stað-
inn,“ segir Benedikt. astasigrun@dv.is
„Meira líf en í fyrra“
n Hópur rjúpnaveiðimanna hefur veitt saman í 20 ár
Hafa veitt saman í 20 ár Félagarnir tóku bara kvótann. Frá vinstri: Guðmundur Baldurs-
son, Sigurður Björnsson, Guðmundur A. Guðmundsson og Benedikt Guðmundsson.
Ný stjórn Bankasýslu ríkisins skipuð:
Jón verður
varaformaður
Steingrímur J. Sigfússon fjármála-
ráðherra hefur skipað nýja stjórn
yfir Bankasýslu ríkisins. Miklar
deilur hafa staðið um störf fráfar-
andi stjórnar vegna ráðningar Páls
Magnússonar í starf forstjóra. Á end-
anum fór það svo að stjórnin sagði
af sér og Páll ákvað að taka ekki við
starfinu sem hann hafði verið ráð-
inn í. Tengsl Páls við Framsóknar-
flokkinn – hann var aðstoðarmaður
Valgerðar Sverrisdóttur viðskipta-
ráðherra þegar ríkisbankarnir voru
einkavæddir – voru helsta ástæðan
fyrir því að hann þótti vanhæfur til
að gegna starfinu.
Nýja stjórnin eru skipuð þeim
Guðrúnu Ragnarsdóttur, sem er
formaður, Jóni Sigurðssyni, sem
er varaformaður, og Huldu Dóru
Styrmisdóttur. Egill Tryggvason er
varamaður í stjórninni.
Guðrún er framkvæmdastjóri
Lánasjóðs íslenskra námsmanna
(LÍN), Jón Sigurðsson er fyrrverandi
ráðherra Alþýðuflokksins, banka-
stjóri Norræna fjárfestingarbank-
ans og fyrrverandi stjórnarformaður
Fjármálaeftirlitsins, og Hulda Dóra
Styrmisdóttir er skrifstofustjóri á
velferðarsviði Reykjavíkurborgar og
fyrrverandi stjórnarformaður Nýja-
Kaupþings. Egill er viðskiptafræð-
ingur í fjármálaráðuneytinu.
ingi@dv.is