Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.2011, Side 14
14 | Fréttir 4.–6. nóvember 2011 Helgarblað
Opið virka daga frá 9.00 – 19 og laugardaga frá 10 – 16
Verðskrá gildir frá 1. febrúar 2011
Nudd
Sjúkranudd: Sem eingöngu læknar vísa á „tilvísun“.
Vöðvanudd: Létt nudd sem eykur blóðstreymi og slakar á spenntum
vöðvum.
Slökunarnudd: Slökun, unaður, þægindi.
Svæðanudd: „Bróðir nálastungunnar“ Nudd á viðbragðssvæði fóta
fyrir allan líkamann.
Sogæðanudd: Vinnur á bjúg, streytu og þreytu. Ótrúlega þægileg
meðhöndlun með virkum ilmolíum sem eykur sogæðaflæðið. Losar
stíflur í vefjum og uppsöfnuð eiturefni.
Steinanudd: Heitir steinarnir slaka og mýkja vöðvana, unaður.
Djúpnudd: Stíflu,vatns og bólgulosandi nudd. Styrkir og stinnir mjög
öflugt.
1 skipti 40 mín. ....................................................................... 5.100
m/tilvísun .............................................................. 4.100
1 skipti 1 klst. ......................................................................... 6.500
m/tilvísun .............................................................. 5.200
1 skipti 1½ klst. ...................................................................... 9.600
m/tilvísun .............................................................. 7.700
Stólanudd/Bekkjanudd: ........................................ 15 mín 2.500
20 mín 3.000
30 mín 4.300
Snyrtifræðinganudd: ........................................................... 5.500
Sauna ........................................................................................ 800
Handklæði ............................................................................... 400
Við ráðleggjum um val á snyrtivörum í andlitsböðum í samræmi við
húðgerð. Við höfum glæsilega snyrtivöruverslun.
Við förum á sýningar erlendis og fylgumst vel með öllum nýjungum.
Ef forföll eru vinsamlegast afpantið tíman með fyrirvara.
Stofan er reyklaus.
Nýtt!
Eyrnakerti losar um eyrnamerg, vökva,
léttir á þrýstingi í ennis og kinnholum.
Hugsun verður skýrari.
1 skipti 30 mín 3.950
næsta skipti eftir ca. viku 3.350
www.paradis.is
Spennandi
tilboð
í hverjum
mánuði
Við flytjum líka inn aðhaldsboli og buxur frá
yummietummie.com
54
82
Pr
en
ttæ
kn
i e
hf.
Afmælistilboð í nóvember
31% afsáttur af öllum andlits-
böðum og tatto augabrúnir á
25.000 kr. og tatto augabrúnir
og eyliner á 38.000kr.
Snyrti og nuddstofan Paradís er 31 árs 4. nóv.
Minnum á vinsælu Yummie
Tummie aðhaldsfötin
Laugarnesvegi 82, 105 Reykjavík | Sími: 553-1330 | Netfang: paradis@paradis.is | www.paradis.is
Við erum á...
Opið hús 4.nóv,
léttar veitingar
frá 14 til 19, og
20% afsláttur
af öllum vörum
á stofunni og
Gatinau einnig
með kaupauka.
Tilvalið að kaupa gjafakortin
fyrir jólin á afmælisafslætti!
dv
e
h
f.
2
01
1
Þ
etta mál er alveg uppgert,“
segir Halldór Leví Björns-
son, fyrrverandi formaður
Þroskahjálpar á Suðurnesj-
um, en meint fjárdráttar-
mál hans hefur verið sent til rann-
sóknar hjá lögreglu. Halldór Leví
er grunaður um að hafa dregið sér
umtalsverðar fjárhæðir úr sjóðum
félagsins.
Málið komst nýverið upp þeg-
ar núverandi stjórn Þroskahjálp-
ar tók eftir ósamræmi í bókhaldi
félagsins. Málið var skoðað nánar
og rakið til fyrrverandi formanns
félagsins sem virðist hafa dregið sér
umtalsverðar upphæðir samkvæmt
heimildum DV.
Endurgreiddi félaginu
Eftir að málið komst upp endur-
greiddi formaðurinn fyrrverandi
Þroskahjálp á Suðurnesjum fjár-
hæðina sem stjórnin taldi hann
hafa dregið sér. Þetta staðfestir
Halldór í samtali við DV. Á nýlegum
fundi stjórnarinnar var hins vegar
ákveðið að senda málið áfram til
rannsóknar hjá lögreglunni á Suð-
urnesjum og virðist sem menn hafi
viljað fá botn í það hvort upphæð-
in sem hvarf hafi hugsanlega verið
hærri.
Umræðu um fjármál Þroska-
hjálpar á Suðurnesjum var frestað
á nýafstöðnum aðalfundi félagsins
og er ráðgert að taka þau sérstak-
lega fyrir á framhaldsfundi í þess-
um mánuði.
Rannsóknin á byrjunarstigi
Núverandi formaður Þroskahjálp-
ar á Suðurnesjum, Sigurður Ingi
Kristófersson, vildi sem minnst
segja um málið fyrr en fjármála-
fundurinn hefði farið fram. Hann
staðfesti þó að málið hafi verið sent
lögreglu og nú væri beðið niður-
stöðu rannsóknarinnar. Hjá rann-
sóknardeild lögreglunnar á Suð-
urnesjum fékkst það sömuleiðis
staðfest að nýlega hafi verið lögð
fram kæra vegna fjárdráttar hjá fé-
lagi Þroskahjálpar á svæðinu. Eng-
ar frekari upplýsingar um málið
fengust þó þar sem rannsókn máls-
ins er sögð á byrjunarstigi. Hvorki
lögreglan né forsvarsmenn Þroska-
hjálpar vildu staðfesta að upp-
hæð fjárdráttarins nemi milljónum
króna líkt og heimildir DV herma.
Ljóst er hins vegar að um verulegar
upphæðir er að ræða.
n Stjórn Þroskahjálpar á Suðurnesjum hefur kært meintan fjárdrátt fyrrverandi
formanns félagsins til lögreglu n Endurgreiddi upphæðina þegar málið komst upp
Fé hvarf frá Þroskahjálp
„Eftir að málið
komst upp endur-
greiddi formaðurinn fyrr-
verandi Þroskahjálp á
Suðurnesjum fjárhæðina
sem stjórnin taldi hann
hafa dregið sér.
Sigurður Mikael Jónsson
blaðamaður skrifar mikael@dv.is
Uppgert mál Halldór Leví segir í samtali
við DV að málið sé uppgert.
Suðurnes Stjórn Þroskahjálpar á Suðurnesjum kærði hinn meinta fjárdrátt til lögreglunnar á Suðurnesjum sem staðfestir að málið sé til
rannsóknar.