Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.2011, Síða 42
É
g hefði aldrei náð svona
góðum árangri án þess
að fara út í einhverjar
öfgar,“ segir Svanhild-
ur Þorgeirsdóttir, 24 ára
Hafnarfjarðarmær. Svanhildur
hefur barist við aukakílóin alla
sína ævi en hefur nú tekist að
léttast um 24 kíló og þar af 15 á
síðustu þremur mánuðum. „Ég
tók bara heilhring í mataræð-
inu og fór að mæta samvisku-
samlega í ræktina. Ég og vigt-
in höfum alltaf verið óvinir en
mér hefur aldrei gengið svona
vel áður,“ segir Svanhildur sem
hafði prófað flest alla kúra. „Í
dag spara ég mig ef mig langar
í eitthvað gott og passa mig á
öfgum. Þær skemma bara fyrir.
Það er þessi gullni meðalvegur
sem er bestur.“
Datt ofan í nammipokann
Þrátt fyrir velgengni viður-
kennir Svanhildur að eiga sínar
erfiðu stundir. „Auðvitað koma
dagar sem manni líður eins og
maður sé sigraður og finnst
þyngdin ekki fara nógu hratt
niður. Aðalatriðið er að komast
yfir þá hjalla. Ég lenti til dæm-
is í því einn laugardaginn að
missa mig alveg. Ég hreinlega
datt ofan í nammipokann og
sukkaði út í eitt. Vigtin fór upp
á við og ég í fýlu en þá minnti
þjálfarann minn, Thelma
Matthíasdóttir, mig á að það
er ekki spurning hvort maður
fellur heldur hvenær. Aðalat-
riðið er svo hvað maður ætlar
að gera á eftir. Það misstíga sig
allir en þá er bara um að gera
að kunna þennan gullna með-
alveg og rífa sig strax upp og
halda áfram á réttum vegi.“
Hreyfingarleysi ekki í boði
Hreyfing er orðin hluti af dag-
legu lífi Svanhildar sem átti það
til að vera algjör sófakartafla
hér áður fyrr. „Ég geng alltaf úr
og í vinnu, sem eru tæpir fjórir
kílómetrar, og fer sex sinnum
í viku í ræktina. Aðalatriðið er
að finna hreyfingu sem hent-
ar manni og hafa hana fjöl-
breytta,“ segir hún og bætir við
að tímaskortur sé engin afsök-
un. „Það er sko alveg nóg að
gera en þetta er spurning um
að hagræða. Ég er í 90% vinnu
og í 70% háskólanámi og með
lítið barn. Ef ég veit að það
verður of mikið að gera hjá mér
um kvöldið vakna ég klukk-
an sex og fer í ræktina. Eða fer
út að ganga. Hreyfingarleysi
kemur ekki til greina.“
Gráðug á vigtina
Svanhildur segist vera hætt að
leggja ofuráherslu á þyngdina.
„Það er plús þegar vigtin fer
niður en það er andlega vel-
líðanin og orkan sem er mik-
ilvægust. Og það að geta litið
í spegil og verið ánægð með
sjálfa mig. Ég hafði prófað allt
en hef nú loksins náð þessu,“
segir hún og bætir við að það
sé nauðsynlegt að hafa gott
bakland í svona baráttu. „Þetta
er ekki hægt nema með stuðn-
ingi góðra vina og fjölskyldu.
Við maðurinn minn förum
alltaf saman í ræktina á sunnu-
dögum en hann hefur hjálpað
mér mikið. Hann hefur allt-
af verið duglegur, það er bara
konan hans sem dregst aftur
úr reglulega.“
Svanhildur viðurkennir
að hún óttist að missa tökin
aftur. „Ég held að maður kom-
ist aldrei yfir þá hræðslu. Svo
er að halda sér við þegar kjör-
þyngd er náð. Þá byrjar aðal-
vinnan. Þetta hefur gengið svo
vel hingað til. Ég hef verið að
missa allt upp í 1,8 kíló á viku
en nú er farið að hægja á og þá
getur maður orðið fúll. Það er
svo auðvelt að verða frekur og
gráðugur í þessum málum.“
42 | Lífsstíll 4.–6. nóvember 2011 Helgarblað
Hugsunarlaust át veldur
þyngdaraukningu:
Kveiktu á
perunni!
Ertu úti að aka?
Það er ekki jafn hættulegt að
borða annars hugar og keyra
annars hugar en gæti komið
niður á vaxtarlaginu. Legðu
frá þér dagblaðið og borðtölv-
una á meðan þú nærist. Ef þú
hugsar ekki um það sem þú
setur ofan í þig geturðu endað
á því að borða mun meira en
þú ætlaðir þér.
Er salatið í baði?
Hollustan í grænmetinu er
fljót að hverfa ef það er baðað
upp úr fitandi sósu. Tvær
skeiðar af dressingu geta inni-
haldið allt upp í 200 kaloríur.
Leitaðu að fituminni sósu eða
búðu til þína eigin úr sítrónu-
safa, balsamikediki og grískri
jógurt.
Villtar helgar
Jafnvel þótt þú hegðir þér eins
og engill frá mánudögum til
fimmtudags skemmirðu fyrir
þér ef þú missir þig gjörsam-
lega föstudag, laugardag og
sunnudag.
Slæmur kaffikostur
Bolli af svörtu kaffi inniheld-
ur aðeins tvær kaloríur. Ef þú
bætir rjóma út í fer fjöldinn
upp í 80–130 kaloríur. Teskeið
af sykri bætir við 50 kaloríum.
Veldu rétt.
Eftirmatur alla daga
Kjörbúðirnar eru fullar af
girnilegum freistingum sem
lofa litlu kaloríuinnihaldi.
En þótt 100 kaloríur geri ekki
mikinn skaða er annað uppi
á teningnum ef freistingarnar
verða hversdagslegar.
Ferðalög án nestis
Ef þú ert á ferðinni fram hjá
uppáhaldsskyndibitastaðnum
þínum og garnirnar gaula eru
allar líkur á stoppi. Útbúðu
hollt nesti eða farðu af stað
eftir mat.
Bannað að leifa?
Ekki finnast þú verða að klára
allt á disknum. Hættu að
borða ef þú ert saddur/södd
í stað þess að troða þig út af
kaloríum. Borðaðu afganginn
seinna.
Sjö bestu megrunarkúrarnir
n U.S. News fekk næringarsérfræðinga til að velja 20 bestu kúrana
1. sæti Dash
Dash-kúrinn
(Dietary
Approaches
to Stop Hyper-
tension) var
hannaður af
læknum gegn of háum
blóðþrýstingi. Samkvæmt
heilsusérfræðingum U.S. News
er kúrinn góður kostur sem
býður upp á fjölbreytt
fæði og öryggi auk þess
sem kúrinn hjálpar til í
baráttunni við sykursýki
og hjartasjúkdóma.
Dash-matarplanið snýst
um mikið af grænmeti og
ávöxtum, léttum eða fitulaus-
um mjólkurvörum og
heilkorni.
2.–4. sæti
Miðjarðarhafs-
fæði Þessi kúr
leggur áherslu á
ávexti, græn-
meti, ólívuolíu,
fisk, rauðvín og
annað góðgæti sem íbúar við
Miðjarðarhafið leggja sér til
munns.
2.–4. sæti
TLC-kúrinn TLC
stendur fyrir
Therapeutic
Lifestyle Changes en
kúrinn var þróaður af
bandarísku heilsustofn-
uninni. Sérfræðingar blaðsins
segja TLC hafa fáa ókosti
nema þá helst að hann, líkt og
kúrarnir í tveimur efstu sætun-
um, þarfnast ákveðins
sjálfsaga og frumkvæðis ólíkt
mörgum öðrum kúrum þar
sem þátttakendur eru leiddir
áfram skref fyrir skref. Í
kúrnum eru fiturík matvæli
sniðgengin.
2.–4. sæti
Weight Watchers
Kúrinn þykir
einfaldur og
áhrifamikill.
Áhersla er lögð á
hópstuðning, ávexti
og grænmeti auk þess sem
svindl er leyfilegt af og til.
5.–6. sæti Mayo Clinic-kúr-
inn Kúrinn sem snýst um að
breyta lífsstíln-
um til
framtíðar
býður upp á
fjölbreytt fæði
og þykir
hættulaus kostur.
Enginn matur er á bannlista í
Mayo-kúrnum.
5.–6. sæti
Volumetrics-
kúrinn
Kenningin
snýst um að
borða sama
magn af mat en
velja tegundir sem innihalda
færri hitaeiningar. Grænmeti
og ávextir er því tilvalið.
7. sæti Jenny Craig-kúrinn
Sérfærðingum U.S. News þótti
kúrinn ágætur fyrir þær sakir
að hann er einfaldur í
framkvæmd auk þess sem
áhersla er lögð á andlegan
stuðning. Ókosturinn við
kúrinn er hversu dýr hann er.
Frægir einstaklingar sem hafa
náð árangri með
kúrnum eru Queen
Latifah, Valerie
Bertinelli, Jason
Alexander og
Kirstie
Alley.
Andleg líðan mikil-
vægari en þyngdin
n Svanhildur tók mataræðið í gegn og mætti í ræktina og hefur lést um 24 kíló
Indíana Ása
Hreinsdóttir
indiana@dv.is
Viðtal
Barátta Svanhildur er 24 ára og hefur alla ævi barist við aukakílóin. Nú hefur henni loksins tekist að ná árangri án
þess að fara út í einhverjar öfgar.
Var sófakartafla Svanhildur
segist hafa verið algjör sófakartafla
hér áður fyrr. Nú hreyfir hún sig á
hverjum einasta degi.