Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2011, Síða 6
6 | Fréttir 11.–13. nóvember Helgarblað
Louisa Matthíasdóttir
„Hin tæra sýn“
1963-1990
Sölusýning í Studio Stafni
Ingólfstræti 6
Opið alla daga frá 14.00-17.00
Ný heimasíða
studiostafn.is
Sýningin stendur til 20. nóvember
É
g geri mér engar vonir um að
fá skaðann bættan, en það sem
mér blöskrar mest er fram-
koman hjá starfsfólki Iceland
Express,“ segir Helgi Harðar-
son en hann segir að hann og eigin-
kona hans sitji nú eftir um 400 þús-
und krónum fátækari eftir að hafa
reitt sig á þjónustu Iceland Express.
Ekkert hægt að gera
fyrir konuna
Helgi segir að kona hans hafi flogið
með Iceland Express til Kaupmanna-
hafnar síðastliðinn mánudag og það-
an hafi hún ætlað að fljúga til Bang-
kok í Taílandi og síðan til Malasíu þar
sem hún á ættingja. Flugi Iceland Ex-
press til Kaupmannahafnar seinkaði
og missti konan því af fluginu í báð-
um tilfellum, að sögn Helga. „Hún
hringdi í mig alveg miður sín frá
Kastrup. Þar var henni tjáð af starfs-
manni Iceland Express að þeir gætu
ekkert gert fyrir hana og hún þyrfti
bara að kaupa sér nýja flugmiða. Það
er ekki hægt að fá ódýrt flug til Bang-
kok og Malasíu með svona litlum fyr-
irvara og þetta kostaði okkur tæpar
400 þúsund krónur.“
Eiginkona Helga er taílensk og
talar mjög takmarkaða ensku. „Hún
var þarna á flugvellinum hálfmállaus
og þeir hefðu í það minnsta getað
aðstoðað hana um hvernig hún ætti
að bera sig að við að kaupa flugmið-
ana, en þeir sýndu henni bara hroka
og dónaskap.“
Hafði safnað fyrir ferðinni í ár
Helgi segir að hún hafi verið búin að
safna sér fyrir ferðinni út í rúmlega
ár og leggja samviskusamlega fyrir
í hverjum mánuði. „Konan mín er
með um 150 þúsund krónur í laun
á mánuði svo þetta er mjög mik-
ill peningur fyrir hana,“ segir hann.
Helgi segist hafa sett sig í samband
við skrifstofu Iceland Express og
kveðst ekki vera ánægður með við-
mótið sem hann fékk frá starfmanni
fyrirtækisins. „Þegar ég hringdi og
talaði við konu sem starfar þarna
fékk ég þau svör að þau tækju að sér
að flytja farþega frá A til B og að þeim
kæmi þetta ekkert við. Við sitjum
uppi með skuldir vegna seinkunar
hjá þeim og mér var svarað með
hroka,“ segir Helgi ósáttur.
Hann ítrekar að hann og eigin-
kona hans geri sér engar vonir um
að fá fjárhagslegt tjón sitt bætt, en
vill benda fólki á að oft er betra að
kaupa dýrara far en að eiga það á
hættu að þurfa að borga margfalt
meira en upphaflega stóð til vegna
mistaka fyrirtækis sem býður upp
á aðeins ódýrari fargjöld. „Ef ég get
varað eina manneskju við því að
stunda viðskipti við þetta flugfélag
og forða henni frá því að lenda í því
sama og við lentum í er ég ánægður.“
Engin ábyrgð
Samkvæmt Heimi Skarphéðinssyni,
lögfræðinema hjá Neytendasam-
tökunum, ber konan sjálf ábyrgðina
þegar hún kaupir tengiflug hjá öðru
flugfélagi. „Þá er hún með tvo miða.
Iceland Express ber þá í rauninni
ekki ábyrgð á því að koma henni
alla leið til Taílands. Hún er bara
með samning við Iceland Express
um að þeir komi henni til Kaup-
mannahafnar. Síðan er því samn-
ingssambandi lokið og við tekur
nýr samningur við annað flugfélag
um að koma henni til Taílands.“
Heimir bendir þó á að það sé regla
í Montreal-samningnum svokallaða
að flytjandi beri ábyrgð á tjóni sem
verður vegna tafa í flutningi, en segir
að aldrei hafi reynt á það fyrir dómi
hér á landi, þar sem það svari sjaldn-
ast kostnaði.
Heimir Már Pétursson, upplýs-
ingafulltrúi Iceland Express, tekur í
sama streng og segir flugfélagið ein-
ungis bera ábyrgð á að koma farþega
á milli A og B. „Þetta er eitthvað sem
fólk verður að hafa í huga, ef það er
að fara í lengri ferðir, að gæta þess að
það sé gott bil á milli. Það getur alltaf
eitthvað óvænt komið upp.“
n Hjón 400.000 krónum fátækari vegna seinkunar Iceland Express
n Missti af tveimur flugferðum til Asíu n Hafði safnað fyrir ferð í ár
Hanna Ólafsdóttir
blaðamaður skrifar hanna@dv.is
Ósáttur Helgi Harðarson og eiginkona hans
sitja uppi með 400.000 króna skuld eftir að
hafa stundað viðskipti við Iceland Express.
Meirihluti vill Vaðlaheiðargöng
n Tæplega 1.300 bílar daglega um Víkurskarð
K
önnun sem félagsvísindadeild
Háskólans á Akureyri gerði
dagana 9. til 16. október síð-
astliðinn leiddi í ljós mikill
meirihluti Akureyringa er hlynntur
gerð Vaðlaheiðarganga, eða 86 pró-
sent. Tæp 5 prósent svarenda voru
andvíg. Þá sögðust 73 prósent Akur-
eyringa telja að ferðum þeirra austur
fyrir Vaðlaheiði myndi fjölga með til-
komu ganganna. Greint var frá nið-
urstöðum könnunarinnar á forsíðu
Akureyrar vikublaðs á fimmtudag.
Ef Vaðlaheiðargöng verða að veru-
leika þarf ekki lengur að fara um Vík-
urskarð til að komast á milli Akur-
eyrar og Húsavíkur. Í frétt Akureyrar
vikublaðs kemur fram að á síðasta
ári hafi 1.256 bílum verið ekið dag-
lega um Víkurskarð en til saman-
burðar hafi 988 bílum verið ekið um
Öxnadalsheiði á hverjum degi. „All-
ar rannsóknir benda til að göngin
muni styrkja landshlutann sem eitt
atvinnu- og þjónustusvæði,“ segir í
fréttinni.
Endurútreikningi á arðsemi
ganganna er lokið og telja forsvars-
menn Vaðlaheiðarganga ehf. að veg-
gjöld komi til með að standa undir
öllum kostnaði við þau. Ekki hefur
verið tekin endanleg ákvörðun um
það á Alþingi hvort farið verði í fram-
kvæmd ganganna, en þar er hart tek-
ist á um úthlutun fjármagns til vega-
mála.
506 Akureyrarbúar svöruðu
könnuninni sem gerð var í gegnum
síma. Spurt var: „Hversu hlynnt/ur
eða andvíg/ur ertu gerð jarðganga
undir Vaðlaheiði.“
solrun@dv.is
Akureyri Meirihluti Akureyringa er
hlynntur gerð Vaðlaheiðarganga.
Töpuðu hundruðum
þúsunda á seinkun
Maðurinn enn
ófundinn
Leit að sænskum ferðamanni, sem
hefur verið týndur frá því á mið-
vikudag, fór fram á fimmtudags-
kvöld á Sólheimajökli. Áður hafði
verið leitað á Fimmvörðuhálsi. Þá
þurfti að fækka í leitarhópnum þar
sem Sólheimajökull er sprunginn,
myrkur hafði lagst yfir og veður var
enn með versta móti til leitar. Aðeins
þrautþjálfaðir fjallaleitarmenn áttu
þá að halda leitinni áfram. Mað-
urinn skildi ekki eftir ferðaáætlun
en það má til dæmis gera á upplýs-
ingasíðu Slysavarnafélagsins Lands-
bjargar, safetravel.is. Búist var við
því að leitað yrði fram eftir nóttu að-
faranótt föstudags, þegar blaðið fór
í prentun.
Þorgerður Katrín:
Vill ekki svara
DV leitaði eftir viðbrögðum Þor-
gerðar Katrínar Gunnarsdóttur við
spurningum varðandi tilfærslu á
hlutabréfum Kristjáns Arasonar,
eiginmanns hennar í eignarhalds-
félagið 7. hægri ehf. Þorgerður
neitaði að ræða við blaðamann DV
og því fengust engin svör. Kristján,
sem er fyrrverandi framkvæmda-
stjóri viðskiptabankasviðs Kaup-
þings, mun að öllum líkindum ekki
verða dæmdur til að greiða þrotabúi
Kaupþings skuld sem hann stofnaði
til vegna hlutabréfakaupa í bankan-
um á árunum fyrir hrunið. 7 hægri
ehf. var úrskurðað gjaldþrota í fyrra
og skilur félagið eftir sig rúmlega 2
milljarða króna skuldir, þar af eru
rúmlega 1.900 milljóna skuldir við
Kaupþing.
Meðal þess sem blaðamaður leit-
aði eftir var hvort Þorgerði Katrínu
hafi, sem varaformanni Sjálfstæðis-
flokksins, ekki verið ljós hættan sem
íslenskt efnahagslíf stóð frammi fyrir
og ef hún hafði vitneskju þess efnis,
hvort hún hafi borið upplýsingarnar
áfram til eiginmanns síns, þar sem
hann losaði sig undan ábyrgðinni
á kúluláninu í sama mánuði og for-
ysta flokksins fékk upplýsingar sem
bentu til þess að persónuleg fjármál
þeirra hjóna væru í stórhættu. Þor-
gerður kaus að tjá sig ekki, en þess
má geta að henni var einnig boðið
að svara spurningum í tölvupósti en
hún sagði það vera vinnureglu sína
að svara ekki spurningum blaða-
manna í tölvupósti.