Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2011, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2011, Blaðsíða 26
26 | Viðtal 11.–13. nóvember Helgarblað G uðrún Ebba Ólafsdóttir býr í litlu fjölbýlishúsi í gamla Vesturbænum, mitt á milli sjávar og kirkju. Á sama andar- taki og ég dingla opnast dyrn- ar. Í gættinni stendur maður, klæddur í svartan frakka. Hann er á útleið en staldrar við eitt andartak, heldur dyrunum opnum á meðan ég bíð eftir svari. Lætur sig svo hverfa um leið og hún býður mér inn. Hún tekur á móti mér á stigapall- inum, ljóshærð og brosandi, klædd í grænröndóttan kjól. Ljósin eru slökkt í eldhús- inu á annarri hæðinni þar sem Guðrún Ebba er að hita sér te en við setjumst í rauðu sófana frá afa og ömmu inni í stofu. Þar er þægilegra að vera, segir hún, búin að dekka borð, ostar, vínber og brauð bíða okkar. Hrædd við að segja söguna Hún er umtöluð þessa dag- ana, þessi dama. Hefur held- ur betur hrist upp í kerfinu og komið við kaunin á mörgum. Saga hennar var sögð í bókinni Ekki líta undan, sem Elín Hirst skráði, og er mest lesna ævi- sagan um þessar mundir. Þetta er saga barns sem lifir af sifja- spell og glímir við afleiðingarn- ar. Hreinskiptin og ósérhlífin saga þar sem fjallað er um erf- ið mál án þess að leita hefnda. Efni bókarinnar er auðvitað eldfimt, ekki síst þar sem ger- andinn í máli Guðrúnar Ebbu er faðir hennar og hann var eitt sinn biskup Íslands, séra Ólaf- ur Skúlason. „Ég hef verið rosa- leg hrædd við að segja frá þessu opinberlega.“ Fjölskyldan ver Ólaf Guðrún Ebba er búin að vita það lengi að hún yrði einhvern tímann að segja frá reynslu sinni opinberlega en óttinn við afleiðingarnar hefur hingað til haldið henni frá því. Það var svo í fyrra sem DV greindi frá því að bréf hennar til biskups lægi ósvarað á Biskupsstofu en þar óskaði hún eftir fundi með kirkjuráði þar sem hún vildi greina frá kynferðisofbeldinu sem faðir hennar, biskupinn, beitti hana. Í kjölfarið upp- hófst mikil umfjöllun um Bisk- upsmálið, ásakanir kvenna á hendur biskupi árið 1996, og viðbrögð kirkjunnar við því. Málið var sett í nefnd, út kom skýrsla og konurnar fengu bæt- ur. Og Guðrún Ebba fékk sinn fund. En aldrei vildi hún segja sögu sína í fjölmiðlum. Nú þeg- ar fjölskylda hennar hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hún segist standa með Ólafi og sak- ar Guðrúnu Ebbu um falskar minningar er kannski auðveld- ara að skilja af hverju. Ákvað að skrifa bók „Í ágúst í fyrra hafði Jóhann Páll Valdimarsson hjá Forlaginu svo samband við mig og spurði hvort ég væri ekki til í að skrifa bók um þetta. Ég var að deyja úr meðvirkni gagnvart þessu indæla fjölmiðlafólki sem ég hafði lofað viðtali en með bók hefði ég allavega rúmt ár til stefnu. Svo ég fékk að hugsa málið. Skömmu síðar hringdi Elín Hirst í mig. Það var á föstudags- kvöldi og hún gaf sig ekki fyrr en ég samþykkti að hitta hana á sunnudeginum. Hún kom á hárréttum tíma inn í líf mitt svo við fórum til Jóhanns sem leist bara vel á þetta.“ Þetta ferli hefur þó síður en svo verið auðvelt. Í gegnum tíð- ina hefur það auðvitað komið fyrir að Guðrún Ebba hafi þurft að taka sér frí úr vinnu einn og einn dag, kannski tvisvar á ári eða svo, eins og þegar pabbi hennar dó og þegar Sigrún Pá- lína fékk langþráða áheyrn kirkjuráðs. En síðasta vetur varð hún að taka sér veikinda- leyfi. „Ég hef alltaf verið rosalega dugleg og frá því að ég kom úr áfengismeðferð árið 2003 hef ég alltaf verið í meira en hundrað prósent starfi. Mín sjálfsvirðing hefur legið þar. Ég hef alltaf ver- ið að sýna það og sanna að það væri ekki rétt sem pabbi segði um mig, að ég væri niðurbrotin manneskja.“ Gat ekki unnið „En ég brotnaði í fyrra þegar ég gat hvergi falið mig. Fram að því gat ég alltaf gleymt mér í erli dagsins, það var enginn að pæla í því að ég væri biskups- dóttir eða þolandi kynferðis- brota. Allt í einu fannst mér ég ekki lengur geta farið neitt og verið örugg um að enginn vissi hvað ég væri að glíma við. En heimilislækninum fannst ekkert eðlilegra en að ég færi í frí á meðan ég væri undir svona miklu álagi og þurfti að vinna betur úr afleiðingunum. Ég gat ekki lengur keyrt áfram til að þurfa ekki að staldra við og hlúa að mér. Þannig að þótt við Elín ættum frábært samstarf og öðluðumst dýrmæta vináttu í gegnum þetta ferli þá myndi ég ekki vilja fara í gegnum þetta aftur. Líka af því að hún gerði sér ekki alltaf grein fyrir því hvað hún spurði hvassra spurn- inga, ég fékk stundum fyrir hjartað. Og þegar hún var búin tók aðalritstjórinn, Guðrún Sig- fúsdóttir, við og síðan Nanna Rögnvaldardóttir.“ Mundi eftir fullnægingu Minningarnar og óttinn frá því að hún var lítil kom aftur upp líkt og árið 1996. Guðrún Ebba fylltist skelfingu gagnvart því sem gæti gerst þegar þetta yrði gert opinbert. „Ég sá bara svart. Og ég var með ofboðslega sekt- arkennd, mér fannst ég vera að svíkja pabba. Mér fannst það reyndar líka þegar ég sá Skúla í Kastljósinu og var heltekin af sektarkennd gagnvart fjölskyldunni. Enda var það notað á mig þegar ég fór í meðferð að fjölskyldan væri búin að ganga í gegnum nóg.“ Eins og fram hefur kom- ið voru minningarnar bældar. Engu að síður var alltaf eitthvað sem hún vissi en ýtti frá sér. „Ég vissi til dæmis alltaf að það væri eitthvað kynferðislegt á milli mín og pabba. Ég talaði bara aldrei um það. Ég mundi líka eftir því þegar ég var að leiða hann í London og var eins og kærastan hans, tólf ára gömul. Eins man ég eft- ir því sem ég held að hafi verið fullnæging. En það sem rugl- ar börn svo í ríminu er að kyn- ferðisofbeldi er ekki eins og annað ofbeldi, hann var ekki endilega að meiða mig. Það var ekki fyrr en seinna sem ég átt- aði mig á því að þetta væri líka ofbeldi. Pabbi sýndi mér einnig mikla athygli og gat verið mjög umhyggjusamur. Það flækir auðvitað málin að það sé ekki hægt að draga fólk í dilka og segja að það sé annað- hvort gott eða vont.“ Breytir ekki sannleikanum Guðrún Ebba hefur þó gott bakland og sálfræðingurinn hennar endurtók í sífellu að þetta væri hennar saga og hún gæti ekki breytt henni til að þóknast öðrum. „Sem þýðir að það eru mótsagnir í sögunni. Ég hef ekki fegrað minn hlut eða hlíft sjálfri mér. Auð- vitað væri þægilegra að segja að ég myndi eftir öllu en hefði kosið að líta fram hjá því. Eða sleppa því að tala um atvikið í Kanada. En ég geri það ekki af því að ég er að segja sann- leikann. Ég þarf ekki að breyta honum svo öðrum þyki þægi- legra að trúa mér,“ segir hún einlæg. Henni finnst betra að við- urkenna það að hún lét pabba sinn passa stelpurnar sínar, en þakkar fyrir að hann hafi ekki beitt þær ofbeldi. „Og það að ég barðist ekki um úti í Kan- ada og lét eins og ekkert væri daginn eftir. Samt verður mér óglatt núna þegar ég segi að ég hafi látið eins og ekkert væri,“ segir hún alvarleg. Auðvitað var ekkert eins og það átti að vera. Þarna fann ég minn botn. Ég vissi að ég yrði að gera eitt- hvað í mínum málum og ákvað að skilja við manninn minn. Seinna áttaði ég mig á því að ég þyrfti að fara í áfengismeðferð.“ Þetta með skilnaðinn er reyndar eitt sem dóttir hennar segir að hún hafi fegrað í bók- inni, því Guðrún Ebba gekk bókstaflega út á meðan mað- urinn hennar var að tala í sím- ann og tók aðra stelpuna með sér. Hin var ekki heima og fékk sjokk þegar hún kom heim og mamma var farin. Afleiðingar ofbeldis eru svona. Guðrún Ebba gerði allt til að gleyma, lokaði á tilfinn- ingar, hélt fram hjá, drakk og kastaði upp. Sárt að sjá Kastljósið Bróðir Guðrúnar Ebbu, Skúli, kom fram í Kastljósi á mánu- dag, sama dag og fjölskyldan sendi frá sér yfirlýsinguna. Þar rengdi hann hana varðandi atvikið í Kanada og sagði að móðir hans segðist hafa verið andvaka alla nóttina með Ólaf hrjótandi við hlið sér. Guðrúnu Ebbu vöknar um augu þegar hún ræðir þetta. „Mamma hefur aldrei sagt þetta við mig. Þetta er í fyrsta sinn sem ég heyri þetta.“ Auðvitað er sárt að fara í gegnum svona reynslu án stuðnings fjölskyldunnar. Og það sem verra er, Guðrún Ebba upplifir sig stundum sem vonda. „Mér fannst ég ofboðs- lega vond á mánudagskvöldið. Sumir spyrja hvort ég hefði ekki mátt búast við þessu, en það undirbýr mann enginn fyr- ir svona. Þetta kom á óvart og var ótrúlega sárt, ég grét. Þetta er litli bróðir minn. En Skúli mátti auðvitað segja sína sögu.“ Kannski var það nýlegur ritdómur um bókina í Frétta- blaðinu sem ýtti við fjölskyld- unni. Þar segir meðal annars að vandlega komi fram að fjöl- skyldan hafi aldrei trúað henni og staðið þétt saman við hlið níðingsins. Sögð vera á geðdeild Höfnunin er búin að vera til staðar í átta ár. „Dætur mín- ar fóru í fjölskylduboð fram til ársins 2006 en þeim fannst það óþægilegt því allt frá árinu 2003 var ég ósýnileg. Það var ekki tal- að um mig eða spurt um mig. Árið 2008 fékk ég að heyra það að ef ég væri tilbúin til að tala aldrei aftur um það sem er liðið gæti ég komið aftur. Ég Guðrún Ebba Ólafsdóttir segir mikilvægt að fólk viti að með því að segja frá sifjaspellum geti það kallað yfir sig útskúfun. Henni hefur verið sagt að ef hún er tilbúin til að hætta að tala um kyn- ferðisofbeldið geti hún orðið hluti af fjölskyldunni á ný en til þess þyrfti hún að kyngja of miklum sársauka. Hún þekkir það, gerði það í mörg ár, drakk, kastaði upp og hélt fram hjá til að deyfa sig. Og segir að lífið sé alltaf betra í sannleikanum, þrátt fyrir höfnun fjöl- skyldunnar. Jafnvel þótt hún þrái samþykki hennar og langi bara til að eiga mömmu sem hún getur leitað til. Sem hún gerir enn eftir átta ára baráttu og mun sennilega alltaf gera. Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir ingibjorg@dv.is Viðtal Grét vegna mömmu „Sumir spyrja hvort ég hefði ekki mátt búast við þessu, en það undir- býr mann enginn fyr- ir svona. Þetta kom á óvart og var ótrú- lega sárt. Þetta er litli bróðir minn. Óttaðist að hann biði hennar Þessi mynd er notuð á kápuna á bókinni Ekki líta undan, en þetta er myndin sem kom alltaf upp í huga Guðrúnar Ebbu þegar faðir hennar sagðist ætla að bíða eftir henni í dauðanum, þau yrðu alltaf saman.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.