Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2011, Blaðsíða 40
40 | Minning Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson kjartan@dv.is 11.–13. nóvember Helgarblað
Ó
li fæddist í Reykja-
vík og ólst þar
upp í Stóra-Skip-
holti á Bráðræð-
isholtinu, vestast
í Vesturbænum. Foreldr-
ar hans voru Jón Jónsson
afgreiðslumaður, og k.h.,
Þórunn H. Eyjólfsdóttir
húsmóðir.
Jón var eldheitur KR-ing-
ur eins og allir synir hans fjór-
ir. Hann starfaði lengi við Essó
bensín- og smurstöðina í Hafnarstræti
og þar vann hann hetjudáð er hann
bjargaði manni úr eldsvoða. Sjálfur
slasaðist hann þó svo illa á fæti við
björgunina að hann gekk haltur síðan.
Hann lét það samt ekki aftra sér frá því
að fara á Melavöllinn og fylgjast með
sínum mönnum í viðureignum þeirra
við Fram, Val og Víking.
Tveir þekktir Vesturbæingar, þeir
Pétur Pétursson útvarpsþulur og Jón-
as stýrimaður, áttu síðar eftir að rifja
það upp, að þegar Jón kom af vell-
inum hefði mátt sjá á göngulagi hans
hvernig KR hefði gengið. Hann haltr-
aði aldrei meir en þegar KR tapaði, en
sveif eins og engill heim á leið þegar
KR-ingar höfðu borið sigur úr býtum.
Synir Jóns í Stóra-Skipholti, þeir
Sigurjón járnsmíðameistari, Há-
kon, málarameistari og efnilegur list-
málari, Óli B. knattspyrnuþjálfari
og Guðbjörn, klæðskerameistari og
knattspyrnuþjálfari hjá KR og loks hús-
vörður þar, léku allir með meistara-
flokki KR og urðu margfaldir Íslands-
og Reykjavíkurmeistarar en þeir eru í
hópi þekktari liðsmanna KR. Óli B. átti
auk þess eftir að verða þekktasti og sig-
ursælasti knattspyrnuþjálfari landsins
á sínum þjálfaraferli.
Þeir Stóra-Skipholts-bræður eru
nú látnir en þeir náðu allir háum aldri.
Sú saga varð fleyg í Vesturbænum fyrir
fáeinum árum að þeir hefðu brugðið
sér bæjarleið austur fyrir fjall og hefðu
þeir farið í fólksbíl sem einn þeirra ók.
Ekki vildi betur til en ökumaðurinn
ók út af og var lögreglan kölluð á stað-
inn. Enginn slasaðist, en þegar lögregl-
an fór að spyrjast fyrir um aldur þeirra
kom í ljós að þeir voru samanlagt
meira en þrjú hundruð og áttatíu ára.
Óli vann við uppskipun úr togurum
á sínum yngri árum en stundaði síðan
verslunarstörf hjá Jes Zimsen og veið-
arfæradeild Geysis. Þá starfaði hann
um skeið hjá Essó en var starfsmað-
ur Vegagerðar ríkisins í allmörg ár og
til sjötíu og fimm ára aldurs er
hann lét af störfum.
Óli stundaði nám við
Samvinnuskólann í Reykja-
vík og lauk þaðan prófum,
stundaði nám í íþrótta-
kennslu við Íþróttakenn-
araskólann á Laugar-
vatni og útskrifaðist sem
íþróttakennari 1946 og
stundaði framhaldsnám í
knattspyrnuþjálfun í Þýska-
landi og Bretlandi, fyrstur
Íslendinga. Hann hóf knatt-
spyrnuþjálfun 1944 og var knatt-
spyrnuþjálfari í þrjátíu ár. Lengst af
þjálfaði hann meistaraflokk KR en auk
þess meistaraflokk Keflvíkinga og Vals.
Þá var hann landsliðsþjálfari öðru
hverju. Óhætt er að fullyrða að Óli var
sigursælasti knattspyrnuþjálfari hér á
landi á sínum tíma. Hann gerði meist-
araflokk KR að Íslandsmeisturum sjö
sinnum, Valsmenn tvisvar og Keflvík-
inga einu sinni, en það var í fyrsta sinn
sem ÍBK hreppti titilinn.
Sjálfur lék Óli knattspyrnu með KR
í tuttugu ár og varð þrisvar sinnum Ís-
landsmeistari með meistaraflokki KR.
Öll félagsstörf Óla snérust um
KR, KSÍ og knattspyrnuna. Hann sat í
tæknideild KSÍ í fjölda ára og var for-
maður hennar um árabil. Hann var
sæmdur gullmerki ÍSÍ og æðsta heið-
ursmerki KSÍ, heiðurs krossi, sem veit-
ist aðeins undir sérstökum kringum-
stæðum þeim mönnum sem unnið
hafa knattspyrnuíþróttinni ómetan-
legt gagn.
Börn Óla og Guðnýjar Guðbergs-
dóttur, eru Hólmfríður María hár-
greiðslumeistari, kona Guðmundar
Hallvarðssonar, fyrrv. formanns Sjó-
mannafélags Reykjavíkur og fyrrv.
alþm., Jón Már rafeindavirki, og Jens
Valur, starfsmaður hjá Símanum.
Jón, faðir Óla var sonur Jóns, b.
í Hólakoti á Álftanesi, bróður Guð-
rúnar í Hlíðarhúsum, langömmu
Jóns Gunnars Zoëga, fyrrv. for-
manns Vals. Jón í Hólakoti var sonur
Jóns, smiðs og b. í Starkaðarhúsum
í Flóa og í Hólakoti Ingimundarson-
ar, b. í Norðurkoti í Grímsnesi Jóns-
sonar. Móðir Ingimundar var Guð-
rún Snorradóttir. Móðir Guðrúnar
var Þóra, systir Ingimundar á Hól-
um, langafa Magnúsar á Hrauni í
Ölfusi, langafa Aldísar, móður Ell-
erts B. Schram, KR-ings og fyrrv. for-
seta ÍSÍ. Annar bróðir Þóru var Ari
í Götu, langafi Sigurðar í Ásmúla,
langafa Felixsona, Gunnars, Harðar
og Bjarna.
Ó
lafur Oddsson fæddist í
Reykjavík og ólst þar upp.
Hann lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykja-
vík 1963 og cand. mag.-prófi
í íslenskum fræðum frá Háskóla Ís-
lands 1970. Magistersritgerð hans
fjallaði um Norðurreið Skagfirðinga
vorið 1849 og birtist í Sögu XI ,1973.
Á námsárunum var Ólafur virkur í
félagsstörfum og var m.a. ritari skóla-
félags MR og sat í stjórn Framtíðar-
innar. Á háskólaárunum var hann
formaður Mímis, félags stúdenta í ís-
lenskum fræðum og sat í stúdenta-
ráði Háskóla Íslands, m.a. sem vara-
formaður. Síðar sat Ólafur í stjórn
Stúdentafélags Reykjavíkur um hríð
og var formaður þess 1982–83.
Ólafur var íslenskukennari við
Menntaskólann í Reykjavík á ár-
unum 1970–2008. Á þeim tíma var
hann m.a. í nokkur ár deildarstjóri í
íslensku og sat í skólastjórn og próf-
stjórn skólans. Hann sat í stjórn Fé-
lags kennara við skólann og var
formaður þess um skeið og sat í
fulltrúaráði Hins íslenska kennara-
félags um tíma. Eftir að Ólafur hætti
kennslu sinnti hann ýmsum verkefn-
um í þágu skólans til dauðadags.
Ólafur samdi ýmis rit til kennslu
í MR, m.a. Gott mál – Ábendingar
um algengar ritvillur og hnökra á
máli og stíl, 2004, og kennslubókina
Ormurinn langi – Leiftur úr íslensk-
um bókmenntum 900–1900, 2005,
(með Braga Halldórssyni og Knúti
Hafsteinssyni). Þá var Ólafur nán-
asti samstarfsmaður Sigurðar Nor-
dal við útgáfu Þjóðsagnabókarinn-
ar 1971–73. Ólafur vann ýmis störf á
vegum Íslenskrar málnefndar, m.a.
fyrir Orðanefnd rafmagnsverkfræð-
inga. Hann hafði umsjón með þætt-
inum Daglegt mál í Ríkisútvarpinu á
árunum 1982, 1989 og 1993. Þá liggja
eftir Ólaf fjölmargar blaða- og tíma-
ritsgreinar um margvísleg málefni.
Ólafur átti sæti í ýmsum nefndum
og stjórnum á vegum Alþingis, ráðu-
neyta og fleiri aðila, m.a. var hann
formaður í stjórn Bókmenntakynn-
ingarsjóðs, formaður í stjórn Ör-
nefnastofnunar Íslands 1998–2006
og formaður verðlaunanefndar Gjaf-
ar Jóns Sigurðssonar 1998–2003.
Hann sat um skeið í framkvæmda-
stjórn Dags íslenskrar tungu og var
formaður dómnefndar Íslensku
bókmenntaverðlaunanna. Hann var
einnig formaður í stjórn Rithöfunda-
sjóðs Ríkisútvarpsins um tíma og
formaður í stjórn Minningarsjóðs dr.
phil. Jóns Jóhannessonar prófessors.
Fjölskylda
Ólafur kvæntist 16.7. 1977 Dóru
Ingvadóttur, f. 26.9. 1945, fyrrv. fram-
kvæmdastjóra Útvarpsins. Hún er
dóttir Ingva Samúelssonar, f. í Sauð-
eyjum á Breiðafirði 17.7. 1914, d.
31.10. 1997, vélvirkja, og Önnu Krist-
ínar Friðbjarnardóttur, f. í Laxárdal í
Bæjarhreppi 26.8. 1906, d. 15.3. 1998,
húsmóður.
Dætur Ólafs og Dóru eru Guð-
rún Pálína Ólafsdóttir, f. 15.3.1977,
viðskiptafræðingur, gift Per Matts
Henje, f. 8.8.1971, viðskiptafræðingi
en dætur þeirra eru Júlía Guðrún
Lovisa og Katla Kristín Elisabet.
Helga Guðrún Ólafsdóttir, f. 19.4.
1979, viðskiptafræðingur en sam-
býlismaður hennar er Jón Freyr
Magnússon, f. 10.5. 1978, löggiltur
endurskoðandi og er dóttir þeirra
Ólöf.
Dóttir Dóru og fósturdóttir Ólafs
er Anna Kristín Pétursdóttir, f. 18.4.
1969, gift Hirti Þór Grjetarssyni, f.
2.10.1968, en börn þeirra eru Hall-
dóra Kristín, Ingibjörg Anna og
Hjörtur Andri.
Bræður Ólafs, sammæðra, eru
Helgi Jónsson, f. 16.8. 1952, prófess-
or og læknir, búsettur í Reykjavík; Jón
Jóhannes Jónsson, f. 21.7. 1957, dós-
ent og yfirlæknir í Reykjavík.
Systkini Ólafs, samfeðra, eru
Davíð Oddsson, f. 17.1. 1948, rit-
stjóri Morgunblaðsins, búsettur í
Reykjavík; Haraldur Oddsson, f. 15.4.
1951, d. 24.1. 1972; Lillý Valgerður
Oddsdóttir, f. 27.6. 1952, fyrrv. rit-
ari í Ráðhúsi Reykjavíkur, búsett í
Reykjavík; Runólfur Oddsson, f. 29.6.
1956 , framkvæmdastjóri, búsettur í
Reykjavík; Vala Agnes Oddsdóttir, f.
24.4. 1965, flugfreyja og tækniteikn-
ari, búsett í Reykjavík.
Foreldrar Ólafs voru Oddur Ólafs-
son, f. í Reykjavík 11.5. 1914, d. 4.1.
1977, barnalæknir, og Guðrún P.
Helgadóttir, f. 19.4. 1922, d. 5.7. 2006,
dr. phil., skólastjóri Kvennaskólans í
Reykjavík.
Ætt
Oddur var sonur Ólafs, ljósmyndara
í Reykjavík, bróður Guðrúnar, lang-
ömmu Unnar Guðjónsdóttur ballet-
meistara. Ólafur var sonur Odds,
hreppstjóra á Vestri-Sámsstöðum í
Fljótshlíð, bróður Magnúsar gjörtl-
ara, silfursmiðs á Stóru-Vatnsleysu,
afa Ólafs Túbal listmálara. Oddur
var sonur Eyjólfs, b. á Torfastöðum
í Fljótshlíð Oddssonar, b. á Fossi á
Rangárvöllum Guðmundssonar.
Móðir Eyjólfs var Margrét Ólafsdótt-
ir, b. á Fossi á Rangárvöllum Bjarna-
sonar, ættföður Víkingslækjarættar
Halldórssonar. Móðir Margrétar var
Ingunn Jónsdóttir, ættföður Bol-
holtsættar Þórarinssonar.
Móðir Odds læknis var Valgerður
Haraldsdóttir Briem, b. í Búlands-
nesi, bróður Valdimars, vígslubisk-
ups og skálds, og Sigríðar, móður
Ólafs Davíðssonar, náttúrufræðings
og þjóðsagnasafnara, og Ragnheiðar,
móður Davíðs Stefánssonar, skálds
frá Fagraskógi. Haraldur var sonur
Ólafs Briem, timburmeistara á
Grund í Eyjafirði, bróður Jóhönnu,
móður Tryggva Gunnarssonar
bankastjóra og Kristjönu, móður
Hannesar Hafstein, skálds og ráð-
herra. Kristjana var auk þess móðir
Láru, ömmu Jóhanns Hafstein for-
sætisráðherra, föður Péturs Hafstein,
sagnfræðings og fyrrv. hæstaréttar-
dómara. Bróðir Ólafs timburmeist-
ara var Eggert Briem, sýslumaður á
Reynistað í Skagafirði, faðir Eiríks
prestaskólakennara, afa Eiríks Briem
rafmagnsveitustjóra, en systir Eiríks
prestaskólakennara var Kristín,
amma Gunnars Thoroddsen forsæt-
isráðherra. Bróðir Eiríks prestaskóla-
kennara var Páll Briem amtmaður,
afi Sigurðar Líndal lagaprófessors.
Ólafur var sonur Gunnlaugs Briem,
ættföður Briemættar.
Guðrún skólastjóri var systir Ing-
vars Júlíusar, stórkaupmanns og for-
stjóra, föður Júlíusar Vífils borgar-
fulltrúa. Guðrún var dóttir Helga,
yfirlæknis á Vífilsstöðum, bróður
Soffíu, ömmu Sveinbjarnar I. Bald-
vinssonar rithöfundar. Helgi var
sonur Ingvars, pr. á Skeggjastöð-
um Nikulássonar. Móðir Ingvars var
Oddný, systir Páls, langafa Megasar.
Bróðir Oddnýjar var Jón, langafi Jón-
atans, föður Halldórs, fyrrv. forstjóra
Landsvirkjunar. Oddný var dóttir
Jóns, dýrðarsöngs í Haukatungu
Pálssonar. Móðir Helga var Júlía,
systir Páls, langafa Sigríðar, móður
Jóhanns Sigurjónssonar, forstjóra
HAFRÓ. Annar bróðir Júlíu var Jón,
afi Jóns Helgasonar, skálds og pró-
fessors í Kaupmannahöfn. Systir Júl-
íu var Ingiríður, langamma Sigurð-
ar, afa Þórðar heitins Friðjónssonar,
forstjóra Kauphallar Íslands. Júlía
var dóttir Guðmundar, b. á Keldum
og ættföður Keldnaættar, bróður
Stefáns á Vestri-Kirkjubæ, langafa
Magneu, ömmu Ólafs Ísleifssonar
hag fræðiprófessors. Guðmundur var
sonur Brynjólfs, b. í Vestur-Kirkjubæ
Stefánssonar, b. í Árbæ, bróður Ólafs,
b. á Fossi, langafa Odds á Sámsstöð-
um, afa Odds læknis. Stefán var son-
ur Bjarna, ættföður Víkingslækjar-
ættar Halldórssonar.
Móðir Guðrúnar skólastjóra var
Guðrún, systir Páls, föður Lárusar
leikara. Guðrún var dóttir Lárusar,
smáskammtalæknis í Reykjavík Páls-
sonar, b. í Arnardranga í Landbroti
Jónssonar. Móðir Páls var Guðný
Jónsdóttir eldprests Steingrímsson-
ar.
Útför Ólafs var gerð frá Dóm-
kirkjunni í Reykjavík, fimmtudaginn
10.11. sl.
Ólafur Oddsson
Menntaskólakennari f. 13.5. 1943 - d. 3.11. 2011
Óli B. Jónsson
Knattspyrnuþjálfari f. 15.11. 1918 – d. 8.2. 2005
Merkir Íslendingar Andlát
Inger Steinsson Inger Rós Ólafsdóttir Ólafur Örn Pétursson
Útfararþjónusta
Vönduð og
persónuleg
þjónusta
sími: 551 7080 · 691 0919 · athofn@athofn.is · www.athofn.is