Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2011, Side 46
46 | Menning 11.–13. nóvember Helgarblað
Þ
að er sannkallað slag-
viðri. Flestir vilja vænt-
anlega vera innandyra
en enginn svarar þeg-
ar hringt er á bjöllu
merktri Hannesi Hólmsteini
Gissurarsyni. Ekki svarar hann
í vinnusímann og ekki heima-
símann.
Prófessorinn kemur þó
fljótlega gangandi; hálfhokinn
til að skýla sér fyrir náttúruöfl-
unum. Í ljósri úlpu, svörtum
buxum og strigaskóm.
Heimili hans er hlýlegt. Við
setjumst í stofuna og hann
sýnir mér nýjustu bókina sína,
Íslenskir kommúnistar. Eld-
rauður litur skreytir bókarkáp-
una. Hann segist vera harð-
ur andkommúnisti. En hvers
vegna þá að skrifa bók um
kommúnisma?
„Mér fannst að þessari
voldugu hreyfingu hefði ekki
verið gefinn nægilegur gaum-
ur í íslenskri sagnaritun og
margt sem hefði þó verið sagt
um þessa hreyfingu væri ekki
nægilega vel úr garði gert. Það
eru til dæmis ekki margir sem
átta sig á því að um 100 millj-
ónir manna féllu af völdum
kommúnismans.
Svo var spurningin sú hvort
íslenskir kommúnistar væru
ábyrgir fyrir því sem skoðana-
systkini þeirra gerðu annars
staðar; auðvitað er ekki hægt
að halda því fram en ég kemst
að þeirri niðurstöðu í bókinni
að þeir hafi verið jafnmiklir
kommúnistar – hvorki betri né
verri eða minni eða meiri – en
kommúnistar í öðrum lönd-
um. Þeir fylgdu bara þessari
stjórnmálastefnu.
Þetta er löng og mikil saga
og þetta er öflug hreyfing og
það var á meðal þess sem fékk
mig til að skrifa þessa bók.
Maður verður hugfanginn af
viðfangsefninu. Það eru svo
margir sérkennilegir persónu-
leikar sem koma þarna við
sögu; bæði fórnarlömbin og
böðlarnir en það eru nokkuð
mörg fórnarlömb sem tengd-
ust Íslandi.“
Hannes Hólmsteinn segir
að bókin byrji á því þegar tveir
ungir, íslenskir námsmenn í
Kaupmannahöfn urðu komm-
únistar í nóvember árið 1918.
Bókinni lýkur svo í nóvember
1998 þegar forystusveit Al-
þýðubandalagsins fór í boðs-
ferð til kúbverska kommún-
istaflokksins.
Hófsemi í veisluhöldum
Hannes Hólmsteinn hefur
skrifað um 20 bækur og fór
hátt þegar fyrsta bindi ævisögu
Halldórs Laxness eftir hann
kom út á sínum tíma. „Ég fékk
mikla gagnrýni fyrir Laxness-
bókina og tel mér ljúft og skylt
að læra af þeirri gagnrýni. Ég
tók mikið mark á henni enda
segi ég að batnandi rithöfundi
væri best að lifa.“
Hann segist hafa verið að
vinna í nýju bókinni í fimm
ár með öðru; hún sé afrakstur
fimm ára rannsóknarvinnu.
„Það var í mörg horn að líta.
Ég hef reynt að læra af mis-
tökum mínum í bókaútgáfu og
vann eins og ég gat tilvísanir og
texta notkun.“
Eldrauður dúkur er á borð-
stofuborðinu. Annars er rauða
litnum ekki mikið fyrir að fara á
heimilinu. Hannes Hólmsteinn
er vinamargur og gestrisinn og
gerir ráð fyrir að bjóða um 100
manns í útgáfuboð.
Hann talar um hófsemi í
veisluhöldum. „Aðalatriðið
er að fólk komi saman og
skemmti sér en að það sé ekki
verið að sýna eitthvað með
einhverju prjáli.“
Þegar hann heldur fámenn-
ari matarboð segist hann yfir-
leitt hafa forrétt, svínasteik eða
lambasteik í aðalrétt og osta-
köku í eftirrétt. „Þetta er ekki
tilgerðarlegt heldur íslenskur,
venjulegur og góður matur.“
Bækurnar
Prófessorinn vissi hvað hann
vildi þegar hann hóf háskóla-
nám. Hann er með BA-próf
í heimspeki og sagnfræði,
meistarapróf í sagnfræði og
svo stundaði hann doktors-
nám í stjórnmálafræði við Ox-
ford-háskóla. Það olli deilum
þegar hann var skipaður í pró-
fessorsembætti við Háskóla Ís-
lands. Þar hefur hann unað sér
vel í áratugi og þótt ferðalög
til framandi landa og gistipró-
fessorastöður úti í heimi hafi
heillað á árum árum þá er ann-
að að segja í dag; hann hefur
gaman af að grúska í gömlum
skræðum í Þjóðarbókhlöðunni
og dvelur þar löngum stund-
um við rannsóknir. „Mér finnst
gaman að gömlum tíma og það
eru áhugaverðar persónur sem
spretta upp af spjöldum sög-
unnar.“
Þær eru ekki svo gamlar
bækurnar í bókahillunum á
heimilinu. Prófessorinn hefur
mikinn áhuga á bókum. Hann
les mikið.
„Bækurnar tengja mann
við kynslóðirnar; við drauma,
vonir, þrár og þjáningar horf-
inna kynslóða. Ég les tals-
vert af skáldsögum og eru
eftirlætishöfundarnir mínir
Þórarinn Eldjárn og Einar Már
Guðmundsson. Mér finnst
Guðbergur stundum geta verið
skemmtilegur; einn kostur við
hann er að hann er algjörlega
óútreiknanlegur. Maður veit
aldrei hvað hann segir næst.“
Það eru ljóðabækur í hvít-
máluðum bókaskápunum.
Gömul ljóð. Ný ljóð. „Ég les
talsvert af ljóðum. Ég hef gam-
an af því að lesa ljóð; sérstak-
lega íslensk ljóð. Ég er með
frekar gamaldags smekk á ljóð-
um eins og flestu öðru.“
Eins og blómi í eggi
Gamaldags smekk segir
hann. Hannes Hólmsteinn
býr í gömlu húsi og hefur lagt
áherslu á að stíllinn sé svolítið
gamaldags. Kannski er sígildur
betra orð.
„Ef ég innrétta eitthvað þá vil
ég hafa einn stíl á því. Ég held
að það sé svipað að innrétta
hjá sér og að skrifa bók sem er
í rökrænu samhengi: Maður
verður að hugsa um samheng-
ið. Stílinn. Hvernig þetta kem-
ur allt út. Hérna tekst að halda
ákveðnum klassískum stíl. Eld-
húsið er til dæmis frekar gamal-
dags eins og það á að vera mið-
að við að húsið er frá 1930.“
Hannes Hólmsteinn hefur
ekki gert mikið við íbúðina frá
því hann flutti inn. Hann lét þó
brjóta niður veggi þannig að í
dag er opið á milli borðstof-
unnar, stofunnar og bókaher-
bergisins.
Hann viðurkennir að hann
hafi áhuga á innanhússhönn-
un. „Ég hef þá skoðun að
þetta þurfi að vera virðulegt
og íburðarlaust. Ég er alveg
andvígur því sem er ofhlaðið
að minnsta kosti hvað sjálfan
mig snertir. Ég tel að menn eigi
ekki að flagga með öllu því sem
þeir hafa heldur vera dálítið
hæglátir og ég er á móti sýnd-
areyðslu og -neyslu og öllu því
sem gljáir of mikið ef svo má að
orði komast.
Ég bý ljómandi vel, hér er
rúmt og ég er ánægður hérna.
Það er gaman að hafa sérstakt
bókaherbergi og mér líður
hérna eins og blóma í eggi.“
Það er hlýlegt heima hjá
Hannesi Hólmsteini. Góður
andi. Rólegt. Úti bætir í veðrið.
Svava Jónsdóttir
Hannes Hólmsteinn Gissurarson býr í rúmlega 80 ára gömlu húsi þar sem glæsileg málverk skreyta veggi og
bækur fullar af fræðum, ljóðum, ævintýrum, ævisögum og örlögum fylla hillur. Hann líkir því við bók að innrétta
heimili. Nýjasta bók Hannesar Hólmsteins, Saga íslenskra kommúnista, á eftir að fara upp í hillu.
„Ég fékk mikla gagnrýni
fyrir Laxness-bókina og
tel mér ljúft og skylt að læra
af þeirri gagnrýni
Íslenskir kommúnistar Hannes Hólmsteinn með nýútkomna
bók sína, Íslenskir kommúnistar. „Þetta er löng og mikil saga og
þetta er öflug hreyfing og það var á meðal þess sem fékk mig til að
skrifa þessa bók.“ myndir sigtryggur ari jóHannsson
Sem blómi í eggi
Blómi í eggi „Það er gaman að hafa sérstakt bókaherbergi og mér líður hérna eins og blóma í eggi.“ Bókahillurnar
voru smíðaðar í Birninum.
Rýmingarsala
Nú rýmum við til fyrir nýum
málverkum og hægt að gera frábær
kaup fyrir Jólin
Allt orginal málverk
Erum í Kauptúni 3
Á móti Ikea
S.5800800
Fjarlægð Nálægð
Fyrsta breiðskífa Elda en hljóm-
sveitin er skipuð þeim Björgvini
Ívari Baldurssyni og Valdimar
guðmunds-
syni, söngvara
Valdimars.
Platan inniheldur
10 lög og þar á
meðal er hið frá-
bæra lag Bráðum
burt. Meðal
þeirra sem koma fram á plötunni
eru stefán Örn gunnlaugsson,
Fríða dís guðmundsdóttir,
sigtryggur Baldursson, Védís
Hervör Árnadóttir, Örn Eldjárn
og ragnhildur gunnarsdóttir.
Aðeins meira pollapönk
Þriðja plata Pollapönks en eins og
nafnið gefur til kynna þá er hér um
að ræða Aðeins meira Pollapönk
og fylgir platan Meira Pollapönki
eftir.
Sígildar dægurperlur
sigríður thorlacius úr Hjaltalín
og sigurður guðmundsson, oft
kenndur við Hjálma og Memfis-
mafíuna, komu
saman með
Sinfóníuhljóm-
sveit Íslands
á tónleikum í
Hörpu, sumarið
2011. Á efnis-
skránni voru
sígildar dægurperlur, innlendar og
erlendar, í útsetningu Hrafnkels
orra Egilssonar en baggalútur-
inn Bragi Valdimar skúlason
tók að sér að snara nokkrum
textum yfir á íslensku. Tónleikarnir
voru teknir upp og festir á plötu.
Hljómsveit Ingimars Eydal
Hér er komin út glæsileg 60 laga
safnútgáfa með einum ástsælasta
tónlistarmanni þjóðarinnar,
ingimar Eydal. Útgáfan er helguð
minningu Ingimars sem hefði orðið
75 ára 20. október 2011.
Áfram Ísland
Áfram Ísland inniheldur nokkur
ný lög í bland við eldri smelli
Baggalúts, svokallaða munaðar-
leysingja, sem ekki hafa komið
út áður, þar á
meðal sjálft
titillagið,
stuðningslag
íslenska lands-
liðsins frá árinu
2003, tvö heil
lög um frú Vig-
dísi Finnbogadóttur, lag tileinkað
degi rauða nefsins, fáein reiðileg
hrunlög, misskilda sumar-
smelli, lög eftir bæði megas og
magnús Eiríksson, lesbíska
ninjasöngva og afar vafasamt
lag sem var sérstaklega samið
fyrir Landsbankann þegar útrásin
var sem svæsnust.
Sveinn Dúa og Hjörtur Ingvi
Værð er fyrsta einsöngsplata
sveins dúu Hjörleifssonar.
Hún inniheldur þjóðþekkt lög
úr bókinni Íslenskt söngvasafn
eða Fjárlögum, auk laga
eftir sigvalda Kaldalóns, Pál
Ísólfsson og Björgvin guð-
mundsson. Lögin eru útsett
af Hirti Ingva Jóhannssyni, sem
einnig leikur á píanó.
Spennandi
plötur