Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2011, Page 50
50 | Lífsstíll 11.–13. nóvember Helgarblað
n Uppeldisfræðingurinn Debra Gilbert Rosenberg:
6 lífseigar mýtur um börn
U
ndanfarið hefur bor-
ið á umræðu um
magnesíum og gagn-
semi þess við svefn-
leysi, streitu, ger-
sveppaóþoli (candida) og
súrnun líkamsvökvanna. Í
þessu sambandi var mælt með
magnesíum á duftformi fremur
en töfluformi. Í fjölmiðlum var
rætt við heildsala og/eða sölu-
aðila magnesíumdufts og var
varan uppseld, hafði rokið út
í kjölfar umræðunnar og end-
urútkomu bókar sem nú er víst
orðin metsölubók í annað sinn.
Það sem mér fannst skrít-
nast við þessa umræðu, var að
ekkert var minnst á magnesíum
í fæðunni. Það er alltaf betra að
fá næringarefnin úr fæðunni
en úr fæðubótarefnum, og
gildir þá einu hvort fæðubótin
er í duftformi, töfluformi eða
einhverju öðru formi. Það er
alltaf best að borða fjölbreytta
og næringarríka fæðu. Í fæð-
unni eru næringarefnin í rétt-
um hlutföllum innan um önn-
ur efni sem sum hver auðvelda
upptöku eða frásog næringar-
efnanna úr meltingarveginum
í blóðið, auðvelda flutninginn
um blóðrásina eða nýtingu
þeirra í líkamanum. Önnur efni
í fæðunni geta torveldað frá-
sogið, en fjölbreytt fæða tryggir
jafnvægi þarna á milli.
Magnesíum er víða að finna
í fæðu okkar, bæði í dýraríkinu
og í jurtaríkinu. Baunir, dökkt
súkkulaði, heilkornabrauð,
hýðishrísgrjón, bananar, brok-
kolí, ostur, ýsa og tófú eru allt
fæðutegundir sem eru ríkar
af magnesíum. Mjólk, app-
elsínur og kjöt eru líka ágæt-
ar uppsprettur magnesíums.
Magnesíumskortur er því mjög
óalgengur og þekkist varla hjá
fólki sem borðar sæmilega fjöl-
breytta fæðu.
Frásogið minnkar
Ég hef fullan skilning á því að
þeir sem þjást af svefnleysi,
streitu eða annarri óáran vilji
prófa að auka magnesíum-
neyslu sína, ef vera skyldi að
það dygði til að ná betri heilsu
og líðan. Fyrir þá vil ég benda
á að hnetur, möndlur, fræ og
harðfiskur eru sérlega magn-
esíumríkar fæðutegundir.
Meira er ekki alltaf betra
þegar að næringarefnunum
kemur. Rannsóknir hafa sýnt
að þegar lítið magn magnesí-
ums er tekið sem fæðubót með
mat (7–36mg) þá er frásogið
úr meltingarvegi 65–70%, þ.e.
65–70% af skammtinum er tek-
ið upp í blóð. Þegar fæðubót-
in með sömu máltíð var aukin
upp í 960–1.000 mg, þá var frá-
sogið aðeins 11–14% (Fine KD
et al. J Clin Invest 1991;88:369–
402 og Roth P and Werner E. Int
J Appl Radiat Isot 1979;30:523–
6). Mér skilst að á umbúðum
umrædds magnesíumdufts sé
mælt með 1.000 mg á dag.
Það er líka vel þekkt að lík-
ami okkar bregst við mikilli
daglegri eða reglulegri neyslu
næringarefnis með minna frá-
sogi úr meltingarvegi. Þau áhrif
koma ekki fram fyrr en eftir ein-
hverjar vikur eða mánuði. Frá-
sogið og nýtingin gæti því farið
langt undir 10% hjá reglulegum
neytendum magnesíumdufts.
Fyrir fullorðna, heilbrigða
einstaklinga er ráðlagður
dagsskammtur fyrir magnesí-
um 280–350 mg. Það er auð-
velt að ná þessu magni með
fjölbreyttri fæðu. Efri mörk
neyslu fyrir magnesíum hafa
ekki verið sett á Íslandi, en
læknaskóli Harvard-háskóla
í Bandaríkjunum ráðleggur
heilbrigðum einstaklingum
að fá ekki meira en 350 mg af
magnesíum úr fæðubótarefn-
um. Efri mörk neyslu eru sett
til að koma í veg fyrir óæski-
legar aukaverkanir og jafn-
vel eitrunaráhrif. Eins og áður
segir hefur líkaminn ótrúlega
hæfileika til að stilla af það
magn sem hann frásogar úr
meltingarveginum, og einnig
til að stilla af það magn sem
hann losar sig við með þvagi.
Þrátt fyrir það er einhver hætta
á eitrun, sérstaklega ef stórir
skammtar eru teknir daglega í
langan tíma.
Magnesíum er
ekki töfralausn
1 Þið tengist ekki nema þú fáir barnið strax til þín
„Þessi mýta gengur út frá því að við fáum aðeins
eitt tækifæri til að verða góð mamma. Fyrstu
augnablikin eru mikilvæg en sambandið ykkar á
milli lifir út ævina,“ segir Rosenberg.
2 Mæður geta alltaf lesið í grátinn„Þú ert ekki vond mamma þótt þér takist
ekki að laga öll vandamál. Það tekur tíma að
þekkja inn á grát barnsins þíns.“
3 Brjóstagjöf er einföld„Brjóstamjólkin er besta fæða
barnsins en stundum gengur hún
einfaldlega ekki. Sumar mæður og
börn þurfa tíma til að læra inn á
brjóstagjöfina.“
4 Rólur, leik- og göngu-grindur eru jákvæðar
fyrir þroska barnsins
„Þessi tæki hindra frekar að
barnið læri að hreyfa sig um og
skoða heiminn. Börn ættu að fá að
vera á maganum til að þau geti hreyft
sig sem mest.“
5 Ungbörn geta ekki talað„Börn eru alltaf að reyna tjá sig. Við skiljum
ekki þessi hljóð en þessi hljóð eru samt þeirra
tungumál. Hlustaðu á barnið og bíddu eftir svari
þegar þú talar við það. Mundu að barnið stjórnar
því sjálft hvort það svarar eða ekki. Taktu til-
raunum barnsins til að tjá sig fagnandi. Það er
barninu svo mikilvægt að mamma viti að það
geti tjáð sig.“
6 Nám hefst í skóla.„Námið hefst við fæðingu, ef ekki fyrr. Heil-
inn vex hratt frá fæðingu til sex ára aldurs. Því
yngra barnið sem barnið er því hraðar lærir það.“
Anna Ragna
Magnúsdóttir
Doktor í heilbrigðisvísindum
Aðsent „Magnesíum-
skortur er
því mjög óalgeng-
ur og þekkist varla
hjá fólki sem borðar
sæmilega fjölbreytta
fæðu.
Heilræði Anna Ragna er doktor í heilbrigðisvísindum. Á heilraedi.blogspot.com, vefdagbók hennar, er að finna góð ráð fyrir bætta heilsu.