Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2011, Síða 64
Gerum hús að heimili
Opið
Mánudaga–föstudaga kl. 10 –18
Laugardaga kl. 10–17
Sunnudaga kl. 13–17
Tekk-Company
Kauptúni
Sími 564 4400
www.tekk.is
F
A
B
R
I
K
A
N
20%
20%
NÝ HÚSGAGNALÍNA
ÚR TEKKI FRÁ
KERTI, SERVÍETTUR
OG ELDSPÝTUR
FRÁ HEKLU
afsláttur af
öllum húsgögnum
frá ethnicraft
afsláttur
Gerum hús að heimili
Opið
Mánudaga–föstudaga kl. 10 –18
Laugardaga kl. 10–17
Sunnudaga kl. 13–17
Tekk-Company
Kauptúni
Sími 564 4400
www.tekk.is
F
A
B
R
I
K
A
N
NÝ HÚSGAGNALÍNA
ÚR TEKKI FRÁ
KERTI, SERVÍETTUR
OG ELDSPÝTUR
FRÁ HEKLU
afsláttur af
öllum húsgögnum
frá ethnicraft
afsláttur
Guðmundur
ráðagóði?
Stýrir fjármögnun
Vaðlaheiðarganga
n Guðmundur Ólason, fyrrverandi for-
stjóri eignarhaldsfélagsins Mile-
stone, er einn aðalráðgjafi íslenska
ríkisins varðandi byggingu Vaðla-
heiðarganga. Forstjórinn fyrrver-
andi er starfsmaður fyrirtækjaráð-
gjafar MP Banka sem vinnur fyrir
ríkið að skipulagningu byggingar
ganganna. Eitt af því sem Guð-
mundur gerir er að veita ríkinu
ráðleggingar um fjármögnunina
á verkinu. Forsendur ríkisins fyrir
arðsemi Vaðlaheiðarganga eru því
að hluta forsendur Guðmundar.
Guðmundur hefur verið til rann-
sóknar hjá embætti sérstaks sak-
sóknara út af viðskiptum Mile-
stone með bótasjóð
tryggingafélagsins
Sjóvár. Steingrímur
Wernersson bar því
við í yfirheyrslum
hjá saksóknara að
Guðmundur hefði
stýrt fjárfestingum
með bótasjóð
Sjóvár.
Hugtak vikunnar
n Hugtak vikunnar í umræðunni
er sálfræðihugtakið „falskar minn-
ingar“. Þetta er ekki nýtt hugtak en
það var stimplað eftirminnilega inn
í umræðuna í vikunni í Kastljósþætti
af bróður Guðrúnar Ebbu Ólafsdótt-
ur og hafa ýmsir gárungar leikið sér
með það í kjölfarið. Hugtakið getur
verið öflugt vopn í baráttunni við
drauga fortíðarinnar á ýmsum víg-
stöðvum. Þannig geta hagsmunaðilar
í einstökum málum notað hugtakið
til afneita óþægilegum vitnisburði
annarra án þess þó að væna þá um
beinar lygar. Ósannindi sem einhver
heldur fram eru þannig ekki meðvit-
uð heldur geta þau byggt á „fölskum
minningum“. Viðkomandi heldur því
ekki aðeins fram ósann-
indum á grundvelli
„falskra minninga“
heldur eru vopnin
líka slegin úr höndum
hans með því að hann
sé ómarktæk heim-
ild þar sem andlegt
jafnvægi skorti.
PR-menn Íslands
takið eftir!
Frjálslyndi
Framsóknar
n Gunnar Bragi Sveinsson, þingmað-
ur Framsóknarflokksins, birti grein
í Fréttablaðinu á fimmtudaginn
þar sem hann gagnrýndi Eirík Berg-
mann Einarsson stjórnmálafræðing
harðlega fyrir að kenna flokk hans
við þjóðernisöfgahyggju. Þing-
manninum var mikið niðri fyrir í
greininni og sagði hann málflutn-
ing Eiríks Bergmann meðal annars
vera „ósmekklega“ og „ógeðslega“
„móðgun“. Gunnar Bragi reynir svo
að færa rök fyrir því að Framsókn-
arflokkurinn sé í eðli sínu frjáls-
lyndur. Hann lýkur greininni á stað-
hæfingunni; „Ég er frjálslyndur.
Þess vegna er ég framsóknarmað-
ur.“ Samkvæmt þessu
ættu allir framsóknar-
menn að vera frjáls-
lyndir og allir frjáls-
lyndir menn ættu
að geta fundið sig í
flokknum. Þetta
eru ný tíð-
indi.
V
ið erum á sjö manna bíl,“
segir Kastljóss- og Útsvars-
stjarnan Þóra Arnórsdóttir
aðspurð hvort fjölskyldan
lendi nokkuð í vandræð-
um þegar þau ferðast öll saman, en
hún telur sjö og von er á áttunda fjöl-
skyldumeðlimnum með vorinu. Að
sögn Þóru eru hún og maður henn-
ar, Svavar Halldórsson fréttamaður
á Ríkissjónvarpinu, þó ekki farin að
íhuga kaup á stærri bíl, enda á hún
ekki von á sér fyrr en 8. maí og því
nægur tími til stefnu. Þóra og Svavar
eiga miklu barnaláni að fagna en þau
eiga saman tvö börn; Halldór Narfa
sex ára og Nínu Sólveigu þriggja
ára. Þá á Svavar þrjár dætur frá fyrra
hjónabandi. Þóra viðurkennir að oft
sé mikið fjör á heimilinu þegar allir
fjölskyldumeðlimir eru þar saman-
komnir. Fjörið mun því að öllum lík-
indum aukast enn frekar þegar enn
eitt barnið bætist í hópinn. Parið mun
hafa fært samstarfsfélögum sínum á
Ríkisútvarpinu gleðitíðindin í síðustu
viku.
Það er óhætt að segja að Svavar
hafi staðið í stórræðum síðustu vik-
ur og mánuði en hann hefur þurft að
berjast við útrásarvíkinga fyrir dóm-
stólum vegna fréttaflutnings af mál-
um þeirra. Hann var í vor sýknaður í
meiðyrðamáli sem Pálmi Haraldsson
í Fons höfðaði gegn honum. En Pálmi
höfðaði skömmu síðar annað mál
gegn honum sem ekki hefur enn ver-
ið dæmt í. Þá var Svavar nýlega sýkn-
aður í meiðyrðamáli sem Jón Ásgeir
höfðaði gegn honum.
Svavar lætur útrásarvíkingana
þó greinilega ekki slá sig út af laginu
og heldur sínu striki, bæði í frétta-
mennsku og barneignum.
solrun@dv.is
Fjör á heimili Þóru og Svavars
n RÚV-par á von á barni í vor
Fréttaskot 512 70 70Áskrift 512 70 80HELGARBLAÐ 11.–13. nÓVEmBER 2011 130. tbl. 101. árg. leiðb. verð 659 kr.
Barnalán Svavar og Þóra eiga von á sínu
þriðja barni saman í vor.