Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2011, Blaðsíða 6
6 Fréttir 18.–20. nóvember 2011 Helgarblað
Starfsmenn stálu úr Bónus
n Eftirlitsmyndavélar komu upp um þá
R
annsókn lögreglunnar á Akur
eyri á þjófnaði verslunarstjóra
í Bónus virðist hafa komið upp
um tvo aðra starfsmenn versl
unarinnar. Vikublaðið Akureyri grein
ir frá þessu. Starfsmennirnir þrír hafa
allir verið reknir og kærðir fyrir þjófn
að en mál þeirra tengjast ekki. Eftir
litsmyndavélar komu upp um verkn
aðinn en þjófnaður verslunarstjórans
er talinn vera stórfelldur. Hann hefur
játað brotin að sögn blaðsins en hann
komst í fréttirnar fyrir nokkrum árum
fyrir að stela úr skápum gesta í líkams
ræktarstöð í Reykjavík.
Í samtali við DV segir Guðmundur
Marteinsson, framkvæmdastjóri fyrir
tækisins, að þjófnaðurinn hafi verið
mikið áfall. Þegar blaðamaður spurði
hvort verslunin fylgdist ekki með saka
vottorðum starfsmanna sagði hann:
„Við höfum haft það þannig að fólk
hefur fengið tækifæri hjá okkur. Við
trúum á það góða, en því miður í þessu
tilfelli var sú trú ekki á rökum reist.
Þess vegna er þetta mikið áfall.“
Í Akureyri vikublaði segir að orð
rómur um að steikum hafi verið stolið
úr Bónus og þær seldar á veitingahúsi
í bænum eigi ekki við rök að styðjast.
DV leitaði eftir viðbrögðum hjá
Bónus þegar málið kom fyrst upp. Þá
fengust engin svör hjá Bónus og þver
tekið var fyrir að þjófnaðurinn hefði átt
sér stað. Guðmundur segir það vera
vegna stefnu fyrirtækisins um starfs
menn. „Við tjáum okkur helst ekki
um svona einstök mál. Þetta er starfs
mannamál og partur af öryggismálum
og við erum almennt ekki að bera það
mikið á torg,“ segir Guðmundur.
astasigrun@dv.is
Opið alla daga frá 14.00-17.00
Louisa Matthíasdóttir
„Hin tæra sýn“
1963-1990
Sölusýning í Studio Stafni
Ingólfstræti 6
studiostafn.is
SÍÐASTA SÝNINGARHELGI
F
asteignafélag Ólafs H. John
son, skólastjóra og eiganda
Menntaskólans Hraðbraut
ar, hefur verið tekið til gjald
þrotaskipta vegna skulda
við Arion banka. Félagið, sem heitir
Faxafen ehf., er eigandi skólahús
næðis Hraðbrautar að Faxafeni 10 í
Reykjavík. Héraðsdómur Reykjavík
ur er skiptabeiðandi í málinu – sá
aðili sem fór fram á að félagið yrði
sett í gjaldþrot. Skiptastjóri er Skúli
Bjarnason hrl.
Félagið er annað af tveimur eign
arhaldsfélögum í eigu Ólafs H. John
son sem komst í umræðuna um mið
bik síðasta árs eftir að DV greindi
frá tugmilljóna króna arðgreiðslum
sem Ólafur hafði tekið sér út úr fé
lögum sem tengdust skólanum.
Annars vegar var um að ræða nærri
60 milljóna króna arðgreiðslur út úr
rekstrarfélagi menntaskólans, Hrað
braut ehf., á árunum 2005 til 2008 og
hins vegar 105 milljóna króna arð
greiðslur út úr Faxafeni ehf. á sama
tímabili. Menntaskólinn Hraðbraut
er fjármagnaður að 80 prósents leyti
með opinberu fé og að 20 prósentum
með skólagjöldum. Jafnframt greindi
DV frá því að Ólafur hefði lánað fjár
muni út úr þessum félögum sem not
aðir hefðu verið til fjárfestingarverk
efna, meðal annars í Skotlandi.
Svört skýrsla Ríkisendurskoðunar
Eftir að þessar upplýsingar lágu fyrir
skrifaði Ríkisendurskoðun svarta
skýrslu um starfsemi Hraðbrautar
þar sem Ólafur var gagnrýndur fyrir
að taka tugi milljóna króna í arð út úr
skólanum og fyrir að lána þaðan álíka
upphæðir til fjárfestingarverkefna.
Niðurstaðan í skýrslunni er sú að
Hraðbraut hafi ekki haft fjárhagslegt
bolmagn til að greiða út arð. Skýrsl
an var unnin að beiðni menntamála
ráðuneytisins. Jafnframt var sagt frá
því að Hraðbraut hefði fengið of háar
fjárveitingar frá ríkinu og að kenn
arar skólans hefðu fengið laun sem
voru undir lögbundnum kjarasamn
ingum. Eitt af deiluefnum Ólafs og
kennara skólans snerist meðal ann
ars um það hvort heimila ætti kenn
urum skólans að ganga í Kennara
samband Íslands.
Menntamálaráðuneytið gerði
tímabundinn samstarfssamning við
Hraðbraut út skólaárið 2011–2012 en
þetta var gert til að fyrsta árs nem
endur í skólanum gætu lokið námi
– Hraðbraut býður upp á tveggja ára
nám til stúdentsprófs. Menntamála
ráðuneytið hefur útilokað áfram
haldandi skólastarf í Hraðbraut eftir
þetta skólaár á grundvelli skýrslu
Ríkisendurskoðunar. Heimildir DV
herma að Ólafur sé hins vegar ennþá
að reyna að fá nýjan samstarfssamn
ing við menntamálaráðuneytið og
tók hann inn nýnema á yfirstandandi
skólaári.
630 milljóna króna skuldir
Samkvæmt ársreikningi Faxafens
ehf. fyrir árið 2010 skuldaði félagið
Arion banka nærri 630 milljónir
króna í lok síðasta árs. Félagið tap
aði 54 milljónum króna í fyrra og var
eigið fé félagsins neikvætt um nærri
270 milljónir króna. Í síðasta mánuði
stefndi Arion banki eignarhaldsfélagi
Ólafs fyrir dóm, líkt og DV greindi
frá, en ætla má að skólastjórinn hafi
mótmælt því að setja ætti Faxafen
ehf. í þrot. Héraðs dómur Reykjavík
ur virðist ekki hafa tekið undir sjón
armið hans.
Þessi þróun þýðir að skólahús
næði Menntaskólans Hraðbraut
ar í Faxafeni er nú í eigu þrotabús
Faxafens ehf. og þar af leiðandi eign
kröfuhafa félagsins, meðal annars
Arion banka.
n Fasteignafélag Hraðbrautar gjaldþrota n Skólabyggingin í eigu
kröfuhafa n 105 milljóna arður greiddur út úr félaginu„Heimildir DV
herma að Ólafur
sé hins vegar ennþá
að reyna að fá nýjan
samstarfssamning við
menntamálaráðuneytið.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
2003 0
2004 0
2005 10 milljónir
2006 30 milljónir
2007 40 milljónir
2008 25 milljónir
Samtals 105 milljónir
Arðgreiðslur út
úr Faxafeni ehf.
Félag Ólafs í
Hraðbraut í þrot
Fasteignafélagið í þrot
Fasteignafélag Ólafs H. Jo-
hnson, skólastjóra og eiganda
Menntaskólans Hraðbrautar,
hefur nú verið sett í þrot.
Ekkert bruðl „Við trúum í það góða,“ segir
framkvæmdastjóri Bónuss.
Landsfundur hafinn:
Bjarni boðar
afskriftir
Fertugasti landsfundur Sjálfstæð
isflokksins hófst á fimmtudag og
flutti Bjarni Benediktsson, for
maður flokksins, ræðu á fundin
um þar sem hann sagði flokkinn
þurfa að halda áfram að styrkja
stöðu sína. Landsfundur helgar
innar ætti að verða ansi viðburða
ríkur þar sem Hanna Birna Krist
jánsdóttir hefur boðið sig fram
gegn Bjarna í formannsembættið.
Í ræðu sinni sagði Bjarni að
flokksmenn mættu til fundar
ins fullir eldmóðs og gleði. Sagði
hann einnig að á fundinum
myndu flokksmenn skerpa stefn
una, móta sýnina og leggja drög
að þeim verkum sem flokksmenn
vissu að yrðu Íslandi til heilla. Þá
sagðist hann vilja draga umsókn
um Evrópusambandsaðild til baka
og fylgja þar með stefnu lands
fundar í fyrra. Bjarni sagði ráða
leysi vinstri stjórnarinnar vera
orsök atvinnuleysis og slæmrar
stöðu íslenskra heimila og gerði
hann lítið úr þeirri skjaldborg sem
ríkisstjórnin hefði lofað og sagði
norræna velferðarstefnu kalla
fram árlegt hrun yfir heimilin.
Lausnin á vanda heimilanna væri
meiri afskriftir, lægri skattar, gjöld
og álögur og fjölbreyttari lána
möguleikar.
Logandi feiti
Slökkvilið höfuðborgarsvæð
isins var kallað að íbúðar
húsi í Laufbrekku í Kópavogi
á fimmtudagskvöld. Kvikn
að hafði í feiti í potti og var
búið að slökkva eldinn þegar
slökkviliðið mætti á staðinn.
Nokkur reykur var í húsinu og
aðstoðaði slökkviliðið íbúa við
reykræstingu. Vert er að hvetja
fólk til að yfirfara öryggisbúnað
eins og slökkvitæki og reyk
skynjara nú þegar hátíð ljóss og
friðar fer senn í hönd.