Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2011, Blaðsíða 8
8 Fréttir 18.–20. nóvember 2011 Helgarblað
Þóttu skara fram úr
n Verðlaunaðir á degi íslenskrar tungu
Á
annað hundrað grunnskóla-
nemar í Reykjavík tóku við ís-
lenskuverðlaunum skóla- og
frístundaráðs við hátíðlega at-
höfn í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur.
Verðlaunin voru afhent á degi íslenskr-
ar tungu, 16. nóvember síðastliðinn.
Það var verndari verðlaunanna,
frú Vigdís Finnbogadóttir fyrrverandi
forseti, sem afhenti verðlaunin ásamt
þeim Oddnýju Sturludóttur, formanni
skóla- og frístundaráðs, og Mörtu
Guðjónsdóttur, formanni nefndar um
íslenskuverðlaun.
Grunnskólanemarnir sem tóku
við verðlaunum hafa skarað fram úr
á ýmsa vegu í íslenskunámi, skapandi
skrifum og framsögn. Nokkrir þeirra
eiga annað móðurmál en íslensku, en
hafa sýnt miklar framfarir í íslensku-
námi og tjáningu. Meðal verðlauna-
hafa eru ljóðskáld, leikskáld og lestr-
arhestar á aldrinum 8 til 15 ára. Allir
verðlaunahafar fá til eignar vegleg-
an verðlaunagrip sem hannaður er af
Ingibjörgu Hönnu Bjarnadóttur.
„Markmið verðlaunanna er að
hvetja nemendur til framfara í tján-
ingu talaðs máls og ritaðs og vekja
þau til vitundar um auðinn í íslenskri
tungu,“ segir Marta Guðjónsdóttir, for-
maður nefndar um verðlaunin.
Glæsilegir handunnir
skartgripir,
einstakir í hönnun
Skartgripir Hansínu Jens
fást eingöngu
hjá eftirtöldum a›ilum:
/Listhús Ófeigs, Skólavör›ustíg 5
/ KRAUM, A›alstræti 10
/ Icelandair Hotel Reykjavík Natura
/Hilton Reykjavík Nordica
/ Nordicstore, lækjargötu 2
/ Karl R. Gu›mundsson, Selfossi
/Gullsmi›ja Hansínu Jens, Dugguvogi 10
Sími: 551 8448
K
jarrás ehf, Félag Ólafs Laufdal
Jónassonar og eiginkonu hans
Kristínar Ketilsdóttur, hef-
ur verið tekið til gjaldþrota-
skipta. Kröfur í félagið nema
tæplega 200 milljónum króna en fé-
lagið fjárfesti í hlutabréfum í ýmsum
fyrirtækjum fyrir hrun. Ársreikningar
félagsins fyrir árin 2008 og 2009 sýna
mikið tap á rekstri félagsins en 256
milljóna króna hagnaður var af rekstri
þess árið 2007 og var arður greiddur til
eigendanna, Ólafs og eiginkonu hans,
það ár. Heildarskuldir félagsins, þegar
mest var, námu 800 milljónum króna
en helstu eignir þess voru í bönkum og
öðrum félögum sem komu illa undan
efnahagshruninu haustið 2008.
Ólafur Laufdal er ekki þekktur fyr-
ir hlutabréfaviðskipti en hann er einn
þekktasti veitingamaður landsins.
Hann hefur verið áberandi í skemmt-
analífi landsmanna um margra ára-
tuga skeið en hann rak meðal annars
skemmtistaðinn Broadway í Mjódd,
þar sem nú er rekið kvikmyndahús,
auk þess að reka Hótel Ísland, sem
síðar varð að Broadway, í Ármúla.
Meira en 800 milljóna skuldir
Árið 2007 skuldaði félagið Lands-
banka Íslands rúmar 795 milljónir
króna en stór hluti þeirrar skuld-
ar virðist hafa verið greiddur. Sam-
kvæmt ársreikningi félagsins lækk-
uðu skuldir félagsins um 537
milljónir króna á milli áranna 2008
og 2009. Svo virðist einnig vera sem
Ólafur og eiginkona hans hafi lán-
að félaginu 70 milljónir árið 2008 til
að standa straum af öðrum skuldum
eða kostnaði. Skuldin lækkar svo árið
2009 um tæpar 20 milljónir króna. Af
þessu að dæma virðist sem Ólafur og
eiginkona hans hafi tapað á félaginu.
Þau voru þó ekki meðal kröfuhafa en
það var aðeins Arion banki sem gerði
kröfu í búið.
Langtímaskuldir félagsins á
rekstrar árinu 2009 eru allar í erlend-
um myntum. Skuldirnar eru sam-
kvæmt ársreikningnum í japönskum
jenum og svissneskum frönkum. Alls
nema langtímaskuldir félagsins 156
milljónum króna en gengisbreytingar
frá hruni hafa líklega haft mikil áhrif á
skuldastöðu félagsins.
Borgaði höfuðstólinn
Ólafur segist sjálfur sjá eftir því að
hafa farið út í hlutabréfaviðskipti.
„Já, auðvitað gerir maður það. Þetta
er nett sjokk,“ segir hann og tek-
ur skýrt fram að félagið hafi ekki
skuldað laun eða opinber gjöld. Það
var búið að greiða bankanum höf-
uðstólinn en bankinn vildi vextina
umfram það og verðbæturnar,“ seg-
ir Ólafur um skuldir félagsins. Hann
segir Arion banka ekki hafa verið til í
samningaviðræður við sig þrátt fyrir
að hann hafi greitt höfuðstól lánsins.
Skuldir og hlutabréfaeign félagsins
voru tengd föllnu íslensku bönkun-
um að sögn Ólafs. „Það var ekkert
hægt að ná samningum við bank-
ann.“
Félagið tæknilega
gjaldþrota 2008
Félagið á enn eignarhlut í nokkrum
fyrirtækjum, þar á meðal Marel, Fö-
röja Banka, Decode Genetics og Arg-
nor Wireless Ventures. Þá á félagið
einnig hlut í Kaupþingi hf. og Exista hf.
en bókfært verð þeirra bréfa er ekkert.
Ljóst er að félagið hefur tapað mik-
ið á fjárfestingum sínum frá hruni en
nafnverð bréfanna er rúmlega tveim-
ur og hálfri milljón króna meira en
bókfært virði þeirra.
Í ársreikningi félagsins vegna
rekstrarársins 2008 segir endurskoð-
andi reikninganna að vafi leiki á
rekstrarhæfi félagsins. Sá vafi er langt
frá því að vera úr lausu lofti gripinn
en eftir efnahagshrunið 2008 fór fé-
lagið að tapa mörg hundruð milljón-
um króna. Eigið fé félagsins var strax
eftir það rekstrarár orðið neikvætt um
270 milljónir króna. Staða félagsins
versnaði svo um 15 milljónir króna á
rekstrarárinu 2009. Tap félagsins þessi
tvö ár nam samtals um 550 milljónum
króna.
n 200 milljóna gjaldþrot fjárfestingarfélags Ólafs Laufdal n Tapaði hátt í 600
milljónum eftir bankahrunið n Er líklega sjálfur á meðal kröfuhafa félagsins
Veitingamaður
í skuldavanda
„Hann hefur
verið áberandi í
skemmtanalífi lands-
manna um margra
áratuga skeið en
hann rak meðal ann-
ars skemmtistaðinn
Broadway í Mjódd.
Aðalsteinn Kjartansson
blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is
Ólafur og Kristín Kjarrás ehf, Félag
Ólafs Laufdal og eiginkonu hans
Kristínar Ketilsdóttur, hefur verið tekið
til gjaldþrotaskipta. Mynd Björn BLöndaL
Verðlaunahafarnir Hér sjást nokkrir
þeirra sem fengu verðlaun ásamt frú Vigdísi,
Oddnýju og Mörtu.
Nýbýlavegur 12
& Grensásvegur 8
Sími 517 2040
Opið
mánud-föstud. 11-18
laugard. 11-16
GANGTU Á
MUSTANG!
Herraskór í stórum stærðum
st. 41-46 Verð 17.995
St. 42-50 Verð 14.995
st. 41-46 Verð 17.995
Sjálfstæðis-
menn sektaðir
Stöðumælaverðir og lögreglan hjálp-
uðust að við að sekta bílaeigendur
sem höfðu lagt ólöglega fyrir framan
Laugardalshöll-
ina á fimmtudag,
þar sem lands-
fundur Sjálf-
stæðisflokks-
ins fer fram nú
um helgina. Á
annað þúsund
manns voru
samankomin
við setningu landsfundarins. Margir
gætu því hafa lent í vandræðum með
að finna sér bílastæði í nálægð við
Laugardalshöllina. DV hefur ekki
upplýsingar um hversu margir fengu
sekt en ef landsfundur verður áfram
svo fjölmennur um helgina, verður
nóg að gera hjá stöðumælavörðum.