Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2011, Blaðsíða 42
Hvað er að
gerast?
Laugardagur
Föstudagur
Sunnudagur
19
NÓV
18
NÓV
20
NÓV
Lay Low með
útgáfutónleika
Ein fallegasta
og innilegasta
plata ársins
er Brostinn
strengur Lay
Low. Á henni
syngur hún
ljóð eftir aðrar
íslenskar konur, fyrir utan eitt sem
er eftir Lovísu sjálfa. Tónleikarnir
verða haldnir í Fríkirkjunni.
Úrslit í Fyndnasta
manni Íslands
Á skemmtistaðnum Spot verður
keppt í fyndni. Á úrslitakvöldinu
keppa fimm einstaklingar um titil-
inn fyndnasti maður Íslands 2011.
Hver keppandi fær 8–10 mínútur til
að spreyta sig og mun núverandi
titilhafi, Þórhallur Þórhallsson,
halda uppi stemningunni þess á
milli.
Húsið er opnað klukkan 18 og mun
Spot bjóða upp á hamborgara-
tilboð frá klukkan 18:30–20:00.
Hamborgari, franskar og einn
íííískaldur af krana á 1.500 kr.
Miði í forsölu kostar 2.000 kr.
Óseldir miðar verða seldir við
dyrnar á 2.500 kr.
Útgáfutónleikar
Árstíða í Salnum
Hljómsveitin Árstíðir fagnar útgáfu
annarrar hljóðversplötu sinnar,
Svefns og vöku skil, með tónleikum
í Salnum, Kópavogi, laugardag kl.
21. Nýja platan var tekin upp í sam-
starfi við Ólaf Arnalds og Styrmi
Hauksson og er hljóðmyndin öllu
stærri þar sem ekkert var til sparað.
Á þessum tónleikum njóta Árstíðir
liðsinnis tveggja strengjaleikara og
verða tónleikarnir öllu glæsilegri
fyrir vikið.
Styrktartónleikar Mæðra-
styrksnefndar
Styrktartónleikar Caritas í þágu
Mæðrastyrksnefndar með Jóhanni
Friðgeiri Valdimarssyni stórtenór
og Helgu Rós
Indriðadóttur
sópran ásamt
mörgum af
helstu lista-
mönnum þjóð-
arinnar verða
sunnudaginn
20. nóvember kl. 16 í Kristskirkju
við Landakot.
Tónleikar Caritas marka upphaf
aðventunnar fyrir marga og
fjölmargir gestir koma ár eftir ár
á þessa eftirsóttu tónleika, njóta
fagurra lista og leggja góðu mál-
efni lið.
Efnisskrá tónleikanna verður
glæsileg og fluttar verða skærustu
perlur tónbókmenntanna ásamt
einsöngvurum, strengjasveit og
kórum.
Judy Garland í Þjóðleik-
húskjallaranum
Judy Garland var ein frægasta
söng- og leikkona síðustu aldar.
Hún hóf feril sinn aðeins tveggja
og hálfs árs gömul og lifði
fyrir skemmtanabransann og
aðdáendur sína. Hún lék í fjölda
kvikmynda, kom fram í sjónvarps-
þáttum og á tónleikum og sendi
frá sér hljómplötur. „All my songs
tell my life story,“ sagði Judy í við-
tali og hér er saga þessarar vinsælu
listakonu sögð í gegnum tónlistina
sem hún flutti.
Lára Sveinsdóttir, leik- og söng-
kona, mun ásamt Djasshljómsveit
Úlfs Eldjárn flytja ýmis vinsæl lög
Judy Garland og leiða áhorfendur
inn í stormasamt líf hennar.
42 18.–20. nóvember 2011 Helgarblað
„Ekkert dregið undan og
höfundur fer inn að eigin kviku“Menning
m e n n i n g @ d v . i s | d v . i s / m e n n i n g
Fallið
Þráinn Bertelsson
„Hljóðfæraleikurinn
er upp á tíu“
Svefns og vöku skil
Árstíðir
F
jórða breiðskífa hljóm-
sveitarinnar Diktu kem-
ur í verslanir í dag, föstu-
dag. Heiti plötunnar er
Trust Me og með henni
fylgir Dikta eftir platínuplötu
sinni, Get It Together, sem gefin
var út síðla árs 2009 og naut
mikilla vinsælda. Sérstakra
vinsælda nutu lögin From Now
On og Just Getting Started auk
þess sem Thank You var á hvers
manns vörum.
Haukur Heiðar Hauksson,
söngvari Diktu, segir í viðtali
við DV að markmið sveitar-
innar hafi aldrei verið að semja
smelli á borð við Thank You.
„Reyndar hefur ávallt ríkt
hjá okkur ákveðið stefnuleysi
hvað lagasmíðar varðar. Við
höfum hist og samið lög, eða
samið heima, svo hafa hug-
myndirnar þróast og við höfum
útfært þær á ýmsan hátt. Við
höfum aldrei, í það minnsta
ekki meðvitað, verið að semja
fyrir einhverja markhópa,“ segir
Haukur Heiðar.
Hvað vinsældir lagsins
Thank You áhrærir komu þær
Hauki Heiðari í opna skjöldu.
„Ég hélt að lagið Thank You
yrði ekki einu sinni smáskífa.
Mér fannst ólíklegt að það næði
vinsældum í útvarpi.“
Að sögn Hauks Heiðars var
efni nýju plötunnar nánast
samið eingöngu í sumar sem
leið: „Við vorum allir án dag-
vinnu og fengum úthlutað
einni kennslustofu í Sjálands-
skóla í Garðabæ. Við vorum
bara tónlistarmenn, hittumst
klukkan níu á morgnana og
leiddum saman hesta okkar.
Með því móti gátum við unn-
ið betur í lögunum og kafað
dýpra ofan í þau. Að mínu mati
hafði það annars konar áhrif á
endanlega útgáfu en hefðu þau
verið samin hér og þar. Núna
gátum við hellt okkur meira út í
lagasmíðarnar.“
Meiri atvinnumennska en fyrr
Í stuttu spjalli við DV segir Máni
Pétursson, umboðsmaður
Diktu og útgáfustjóri hjá útgáfu-
fyrirtækinu Kölska, að hann
hafi merkt breytingu á Diktu frá
plötunni Get It Together.
„Þeir voru fagmannlegri
núna, strákarnir, ekki lengur
eingöngu tónlistaráhugamenn
heldur faglegir tónlistarmenn
og diskurinn ber þess merki –
er mun heilsteyptari en Get It
Together.“
Máni telur ekki ólíklegt að
einhver lög á Trust Me muni
slá við vinsældum laga af Get
It Together, með einni undan-
tekningu – Thank You. „Það
mun ekkert lag slá við laginu
Thank You hvað vinsældir
varðar. Það lag sem mun gera
það verður að vera mjög sér-
stakt, enda hitti Thank You á
mjög sérstakan stað hjá þjóð-
inni,“ segir Máni og bætir við
að það hafi ekki verið ætlun
strákanna að semja „nýtt“
Thank You.
„Enda slíkt ekki tilgangur
plötunnar, þeir voru ekki að
eltast við Get It Together. Það
eru frábærir smellir á nýju plöt-
unni, Diktu-smellir, en hún er
miklu betri en Get It Together
og að mínu mati er um að ræða
mun heilsteyptari tónsmíð,“
segir Máni, en bætir hreinskil-
inn við að hann sé kannski ekki
besti maðurinn til að tjá sig
um þetta þar sem hann sé, auk
þess að vera umboðsmaður
Diktu og útgáfustjóri sveitar-
innar, góður vinur strákanna.
Máni segir að sú ákvörðun
Hauks Heiðars og félaga hans,
Jóns Bjarna Péturssonar, Jóns
Þórs Sigurðssonar og Skúla
Z. Gestssonar, að leggja allt
annað til hliðar og einbeita sér
eingöngu að tónlistinni hafi
borið góðan ávöxt: „Þeir gáfu
sér betri tíma í plötuna en ella
og höfðu þar af leiðandi meira
svigrúm til að prófa ýmislegt og
melta útkomuna.“
Lítil spádómsgáfa
Sem fyrr segir komu vinsæld-
ir Thank You Hauki Heiðari
í opna skjöldu og aðspurður
hvaða lag hann telji líklegri en
önnur á nýju plötunni til að slá
í gegn kemur á hann andar-
taks hik.
„Í ljósi spádómsgáfu minnar
hvað varðaði Thank You er
frekar hæpið að biðja mig að
spá fyrir um þetta. En uppá-
haldslagið mitt á plötunni er
Home, lokalagið. Ég tel samt
ólíklegt að það verði vinsælt,
það er mjög rólegt lag, óvenju-
legt í uppbyggingu en er í sér-
stöku uppáhaldi hjá mér.
Aftur á móti fékk ég á til-
finninguna að upphafslag plöt-
unnar, What Are You Waiting
For, sem nú er í spilun í útvarp-
inu, yrði hugsanlega vinsælt,
þegar við spiluðum það í fyrsta
skipti á Akureyri um verslunar-
mannahelgina. Þá varð mér lit-
ið út í sal í Sjallanum og áheyr-
endur voru vel með á nótunum
og tóku undir í viðlaginu án
þess að hafa heyrt lagið nokk-
urn tímann áður. Það snertir
greinilega einhverja taug,“ segir
Haukur.
Ólíku saman að jafna
Haukur segir að ekki sé hægt
að bera saman þær tilfinningar
sem fylgi því að spila annars
vegar fyrir ölvaða áheyrendur
sem syngi með sem óðir væru
og hins vegar áheyrendur sem
njóti tónlistarinnar á rólegri
hátt.
„Hvort tveggja veitir manni
ánægju, en á tvo ólíka vegu. Á
þriðjudag spiluðum við tvisvar
Trey tu mér
Trust Me, fjórða plata Diktu, kemur í
verslanir í dag, föstudag. Dikta hefur
verið ein vinsælasta hljómsveit landsins um
langt skeið og án efa hafa margir beðið nýrrar
plötu frá henni með eftirvæntingu. DV sló á
þráðinn til Hauks Heiðars Haukssonar og
Mána Péturssonar, umboðsmanns Diktu,
og forvitnaðist um nýja afurð sveitarinnar.
Kolbeinn
Þorsteinssson
kolbeinn@dv.is
Viðtal
Haukur
Heiðar
Hauksson
Segist
ekki réttur
maður til að
spá fyrir um
smelli á nýrri
plötu Diktu.
M
y
n
d
B
a
Ld
u
r
K
r
is
tj
á
n
s