Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2011, Síða 14
41 árs
Meirihluti
Framsóknar-
og Sjálfstæðis-
flokks springur
eftir REI-málið.
20 ára Stúdentspróf
frá Kvennaskólanum
í Reykjavík. (1986)
25 ára BA-gráða
í stjórnmálafræði
frá HÍ. (1991)
28 ára Fær
starf sem
sérfræðingur í
menntamála-
ráðuneytinu.
(1994)
36 ára Kjörin borgarfulltrúi fyrir
Sjálfstæðisflokk árið 2002. Flokkurinn
fékk rúm 40% atkvæða í Reykjavík. (2002)
38 ára Vara-
maður í stjórn
Landsvirk junar
frá 2004 þar til
2006.
42 ára
Oddviti
Sjálfstæðis-
flokks í
Reykjavík
43 ára
64% ánægð
með störf
Hönnu Birnu.
(2009)
45 ára Býður
sig fram til
formanns Sjálf-
stæðisflokksins.
81,8% segjast
treysta Hönnu
Birnu.* (2011)
38 ára Endur-
kjörin borgar-
fulltrúi 2006.
Sjálfstæðis-
flokkur fær
42,9% fylgi.
41 árs Varamaður
í stjórn Orkuveitu
Reykjavíkur og sest
í stjórn Faxaflóa-
hafna. (2007)
33 ára Verður
aðstoðarfram-
kvæmdastjóri
Sjálfstæðis-
flokks árið 1999
og gegnir því
starfi til 2006.
29 ára Fram-
kvæmdastjóri
þingflokks
sjálfstæðis-
manna árið
1995. Gegnir því
starfi til ársins
1999.
Hanna Birna Kristjánsdóttir
fædd 12. október 1966
18 ára Verzlunar-
skólapróf frá Verzlunar-
skóla Íslands (1984)
27 ára Mastersgráða í alþjóðlegum
og evrópskum stjórnmálum frá
Edinborgar-háskóla. (1993)
29 ára Sest í stjórn Sambands ungra
sjálfstæðismanna árið 1995. Situr jafn-
framt í stjórn hverfafélags sjálfstæðis-
manna í Austurbæ og Norðurmýri. (1995)
38 ára Sest
í borgarráð
Reykjavíkur.
(2003)
39 ára
Tekur sæti í
skipulagsráði,
framkvæmda-
ráði og mennta-
málanefnd
borgarinnar.
(2005)
40 ára
Verður for-
seti borgar-
stjórnar árið
2006 og
gegnir því
embætti til
2008.
42 ára Tekur við embætti
borgarstjóra 21. ágúst af
Ólafi F. Magnússyni. (2008)
44 ára Lætur af
embætti borgarstjóra
eftir kosningar. (2010)
14 Fréttir 18.–20. nóvember 2011 Helgarblað
„Alþýðan gegn ættinni“
n Kosið til formanns Sjálfstæðisflokksins á sunnudag n Bjartsýni ríkir í herbúðum stuðningsmanna Bjarna og Hönnu Birnu n Stjórnmálafræðingur segir formannskjörið snúast um ásýnd flokksins
Þ
að kemur í ljós á sunnudag
hvort Bjarni Benediktsson
verði áfram formaður Sjálf-
stæðisflokksins eða hvort
Hanna Birna Kristjánsdótt-
ir verði fyrsta konan í 82 ára sögu
flokksins til að gegna formennsku.
Landsfundur flokksins hófst í Laug-
ardalshöll á fimmtudag en kosið
verður til formanns eftir hádegi á
sunnudag.
Skoðanakannanir sem birtar
hafa verið undanfarna daga sýna að
Hanna Birna nýtur meiri stuðnings
meðal almennra sjálfstæðismanna
en Bjarni. Þannig sýndi könnun sem
Viðskiptablaðið birti á miðvikudag
að 61,4% stuðningsmanna flokksins
styðji Hönnu Birnu en Bjarni njóti
stuðnings 38,6% sjálfstæðismanna.
Aðrar kannanir hafa sýnt það sama.
Það er hins vegar í höndum lands-
fundarfulltrúa flokksins að kjósa
sér formann en vel á annað þúsund
manns eiga seturétt á landsfundin-
um.
Bjartsýni hjá báðum
Heimildir DV herma að mikil bjart-
sýni ríki í herbúðum beggja aðila.
Þannig hafa nánustu stuðnings-
menn Bjarna greint þá fulltrúa sem
eiga seturétt á landsfundinum og
telja þeir að hann njóti stuðnings
allt að sextíu prósenta þeirra, sam-
kvæmt heimildum DV. Að sama
skapi ríkir ekki síður mikil bjart-
sýni í herbúðum Hönnu Birnu. Hún
hefur að undanförnu verið í funda-
ferð í kringum landið þar sem hún
hefur hitt flokksmenn og rætt við
þá um framboðið og framtíð Sjálf-
stæðisflokksins. Fundaferðin þykir
hafa tekist vel og telur Hanna Birna
sig hafa unnið marga flokksmenn á
sitt band. Af þessu að dæma virð-
ast bæði Bjarni og Hanna Birna vera
bjartsýn fyrir sunnudaginn þó þau
séu væntanlega bæði búin undir
sigur og tap.
Samvinnupólitík og
átakapólitík
„Það er mjög erfitt að átta sig á því
hvernig þetta fer. Eftir því sem mað-
ur heyrir virðist þetta vera mjög tví-
sýnt,“ segir Birgir Guðmundsson,
stjórnmálafræðingur við Háskólann
á Akureyri, þegar hann er beðinn
um að spá í spilin um formannskjör-
ið. Birgir segir að kjörið á sunnudag
snúist ekki um breytingar á grund-
vallarstefnu flokksins. Kjörið snúist
um að velja flokknum ásýnd.
„Þetta er spurning um mat lands-
fundarfulltrúa á því hvort þeirra hafi
meiri kjörþokka, Bjarni eða Hanna
Birna,“ segir Birgir og bætir við að í
grunninn snúist baráttan um þrjú
atriði: „Í fyrsta lagi um það hvort
karl eða kona verði formaður, í öðru
lagi er þetta spurning um alþýðuna
gegn ættinni,“ segir hann og útskýr-
ir að Hanna Birna hafi stillt sér upp
með hinu „venjulega“ fólki á meðan
Bjarni sé maður með stóra ætt og
komi af viðskiptajöfrum og stórlöx-
um úr Sjálfstæðisflokknum. Í þriðja
lagi snúist þetta um nálgun þeirra í
pólitískum deilumálum, samvinnu-
pólitík gegn átakapólitík.
„Það getur vel verið að það sé
stærsta atriðið í þessu fyrir sjálf-
stæðismenn. Ég held til dæmis að
hún sé umdeild meðal sjálfstæðis-
manna, sú taktík sem Hanna Birna
hefur beitt, meðal annars í borgar-
stjórn,“ segir Birgir og bætir við að
margir séu hrifnari af því að láta
sverfa til stáls og viðurkenna aldrei
að andstæðingurinn geti haft eitt-
hvað til síns máls. Hanna Birna að-
hyllist samvinnupólitík en Bjarni
átakapólitík. „Ég held að þau standi
dálítið sitt hvorum megin í því.“
Líkir stjórnmálamenn
Eins og sést hér á opnunni eru Bjarni
og Hanna Birna langt í frá gjörólíkir
stjórnmálamenn. Hanna Birna hef-
ur raunar viðurkennt það sjálf, en
það gerði hún eftir að Tryggvi Þór
Herbertsson, þingmaður Sjálfstæð-
isflokks og stuðningsmaður Bjarna,
sagði að hann skildi ekki framboð
Hönnu Birnu til formanns. „Til-
gangur framboðs míns er sá einn
að styrkja Sjálfstæðisflokkinn. Hvað
varðar málefnaáherslur hef ég áður
sagt að ég er í sama flokki og Bjarni
Benediktsson og þingmenn Sjálf-
stæðisflokksins. Ég lít svo á að okk-
ar hugmyndir eigi samleið og okkar
lífsskoðanir séu þær sömu,“ sagði
Hanna Birna við Morgunblaðið.
Birgir tekur undir þetta. „Þau eru á
svipuðum aldri og að mörgu leyti
mjög lík. Þetta eru ekki gjörólíkir
einstaklingar.“
Kostir og gallar
Hanna Birna hefur allan sinn stjórn-
málaferil verið í borgarmálunum og
hefur því allt annan bakgrunn en
Bjarni sem setið hefur á Alþingi frá
árinu 2003. Henni hefur verið lýst
sem miklu borgarbarni sem kjósi
helst að fara ekki út fyrir borgar-
mörkin. Aðspurður hvort þetta
kunni að vinna gegn henni þegar á
hólminn er komið á sunnudag segir
Birgir að það þurfi ekki endilega að
vera.
„Það sem þetta þýðir er að hún
hefur ekki verið í forystu flokks-
ins og er ekki bendluð við fortíðina
með sama hætti og Bjarni. Hann
er með fortíð í viðskiptum og hef-
ur verið inni á þingi og þingið nýt-
ur mjög lítils trausts. Plúsinn fyrir
Hönnu Birnu er sá að kjósendur úti
í bæ bendla hana ekki við það. Það
getur hins vegar unnið gegn henni
inni á fundinum þar sem þú ert með
miklu virkari fótgönguliða sem eru
starfandi í flokknum. Það getur ver-
ið að þeir meti reynsluna af lands-
málunum meira og taki hana fram
yfir skoðanir einhverra úti í bæ sem
vilja frekar einstakling með hreinan
skjöld,“ segir Birgir að lokum. n
Einar Þór Sigurðsson
einar@dv.is
Úttekt
Snýst um ásýnd Birgir segir að ómögu-
legt sé að spá fyrir um hver fari með sigur
af hólmi. Hann segir að formannsbaráttan
snúist um ásýnd flokksins, ekki breytingar á
grundvallarstefnu hans.
„Þetta er spurning
um mat lands-
fundarfulltrúa á því
hvort þeirra hafi meiri
kjörþokka, Bjarni eða
Hanna Birna.
* SKv. Könnun MMR í oKtóBeR 2011
Hörð barátta Það kemur í ljós á
sunnudag hvort Hanna Birna Krist-
jánsdóttir eða Bjarni Benediktsson
verður formaður Sjálfstæðisflokksins.