Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2011, Page 25
Erlent 25Helgarblað 18.–20. nóvember 2011
n Hald lagt á 17 tonn af marijúana í vel útbúnum göngum
Þ
etta er skelfileg tilfinning.
Það að meðlimir hreyfingar-
innar hafi verið handteknir
eða teknir úr umferð þýð-
ir ekki að málinu sé lokið.“
Þetta segir Jerzy Montag, þingmað-
ur Græningja á þýska þinginu. Nafn
Montags var á svokölluðum dauða-
lista þýsku nýnasista- og hryðju-
verkasamtakanna NSU (þ. Natio-
nalsozialistischer Untergrund). Á
listanum voru nöfn 88 einstaklinga;
stjórnmálamanna, þingmanna og
fulltrúa tyrkneskra og múslímskra
samtaka í Þýskalandi.
Ótrúleg atburðarás
DV fjallaði um málið á miðviku-
dag en samtökin sem um ræðir eru
grunuð um að hafa staðið að banka-
ránum og morðum á að minnsta
kosti tíu einstaklingum árin 2002 til
2007; átta tyrkneskum innflytjend-
um, grískum ríkisborgara og þýskri
lögreglukonu. Morðin á Tyrkjun-
um voru nefnd Döner-morðin,
vegna þess að tvö fórnarlömb seldu
Döner-kebab.
Lögregla komst á snoðir um málið
eftir að öflug sprenging varð í íbúðar-
húsi í borginni Zwickau í austurhluta
Þýskalands 4. nóvember síðastlið-
inn. Nokkrum klukkustundum áður
höfðu tveir menn, Uwe Mundlos og
Uwe Böhnhardt, framið bankarán
í borginni Eisenach. Lögregla fann
bifreið mannanna skömmu síðar í
ljósum logum. Þeir höfðu kveikt í bif-
reiðinni og framið sjálfsvíg. Menn-
irnir bjuggu í umræddu húsi í Zwick-
au ásamt konunni sem grunuð er um
að hafa sprengt það í loft upp, Beate
Zschäpe.
Talið er að ætlun Beate þegar hún
sprengdi húsið hafi verið að eyði-
leggja sönnunargögn. Lögregla fann
hins vegar skotvopn og DVD-diska í
húsinu. Skotvopnin höfðu verið not-
uð við morðin á einstaklingunum
tíu og á DVD-diskunum var lýst yfir
ábyrgð á morðunum.
„Mjög brugðið“
Rannsókn lögreglu undanfarna daga
hefur leitt ýmislegt í ljós, meðal ann-
ars umræddan dauðalista eins og
þýskir fjölmiðlar kalla listann. Þýska
blaðið Der Spiegel segir að lögregla
rannsaki nú hvers vegna listinn var
búinn til og hvort markmiðið hafi ver-
ið að taka hvern og einn á listanum
úr umferð. Miðað við þau ódæði sem
hreyfingin hefur á samviskunni þyk-
ir það að minnsta kosti ekki ólíklegt.
Fjöldi nafna á listanum, 88, þykir þó
ekki vera nein tilviljun. Talan er vinsæl
meðal nýnasista en hún er eins konar
stytting á orðtakinu „Heil Hitler“, en H
er áttundi stafurinn í stafrófinu.
Þýska blaðið Berlin’s Tagesspiegel
greindi fyrst frá listanum á miðviku-
dag og kom fram í umfjöllun blaðsins
að hann hafi líklega verið settur sam-
an árið 2005 – að minnsta kosti hluti
hans. Auk þingmannsins Montags
er nafn Hans-Peters Uhl, þingmanns
kristilegra demókrata í Bæjaralandi, á
listanum.
Montag, sem hefur barist opinber-
lega gegn hægri öfgamönnum, segist
óttast um öryggi sitt í samtali við Der
Spiegel. „Mér var mjög brugðið þegar
ég sá að nafnið mitt var á listanum. Ég
velti því fyrir mér hvað ég hafi gert til
að verðskulda að vera á honum,“ segir
Montag.
Lykilvitnið
Aðeins ein manneskja getur svar-
að því hvers vegna listinn var settur
saman. Það er Beate Zschäpe sem
gaf sig fram við lögreglu þremur dög-
um eftir að hafa sprengt húsið í Zwic-
kau. Enn sem komið er hefur hún
ekki viljað svara neinum spurning-
um við yfirheyrslur hjá lögreglu. Lög-
regla lítur á hana sem lykilvitni í mál-
inu enda er hún líklega sú eina sem
getur gefið upplýsingar um morðin
sem framin voru árin 2002 til 2007.
Hvað fyrrnefndan lista varðar er ekki
hægt að útiloka neitt, að sögn lög-
reglu. Lögregla óttast þó – og telur sig
hafa rökstuddan grun um – að þeir
sem voru á lista hópsins hafi verið í
raunverulegri hættu.
„Mér var mjög
brugðið þegar ég
sá að nafnið mitt var á
listanum. Ég velti því fyrir
mér hvað ég hafi gert til
að verðskulda að vera á
honum.
Dauðalisti
nýnasista
n Samtökin NSU settu saman lista sem innihélt nöfn 88
manna n Þingmaður á listanum óttast um öryggi sitt
Húsið í Zwickau Hér sést húsið sem
Beate sprengdi í Zwickau. Hún gaf sig
fram þremur dögum síðar.
MyNd ReUteRS
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
Ódæðismenn Hér sést Beate ásamt þeim Uwe Mundlos og Uwe Böhnhardt. Mundlos og
Böhnhardt frömdu sjálfsvíg 4. nóvember.