Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2011, Síða 27
Umræða 27Helgarblað 18.–20. nóvember 2011
Dómstóll götunnar
Hann er lítill maður,
ekki skrímsli
Að gera grín
hjálpar mér
Eirin Kristin Kjær er ekki reið Anders Behring Breivik og mundi vilja tala við hann. – FréttablaðiðElva Dögg Gunnarsdóttir um uppistand og húmor. – DV
Heilbrigð heimska
„Já, ég er búin að kaupa
nokkrar gjafir.“
Soffía Gunnarsdóttir
16 ára nemi
„Já, ég er aðeins farin að
versla jólagjafir.“
Guðný Sigurðardóttir
44 ára leikskólakennari
„Já, ég er búin að panta jólahlað-
borð fyrir mig og fjölskylduna.“
Ólöf Björnsdóttir
68 ára eldri borgari
„Já, ég er kominn í jólaskap.“
Ægir Þorsteinsson
15 ára forritari
„Nei, ekki neitt.“
Haukur Böðvarsson
32 ára forritari
Er kominn
jólahugur í þig?
S
umt fólk hefur þannig orðspor
og virðist vera svo óheppið
með gáfur að það er eigin-
lega ekki hægt að gera ráð fyrir
aðild þess að því sem kallast
heilbrigð skynsemi. Það voru svör
frá slíkum gáfnaljósum sem bárust
alþýðu landsins um daginn, þegar
Eiríkur Bergmann ritaði ágætlega um
þjófafélag Framsóknar. En að vísu
hefði Eiríkur, mín vegna, mátt kveða
fastar að orði. Mér hefði svosem verið
sama þótt framsóknarþjófum hefði
verið líkt víð mafíósa eða nýnasista;
menn sem koma sér í embætti til þess
eins að maka krókinn og skreyta sig og
sína með þjóðrembu.
Auðvitað sótti búningagredda ung-
mennahreyfingarinnar fyrirmyndir
til ungliða nasista. Og í ungmenna-
félagsanda eiga Sambandið, SS-puls-
urnar og S-hópurinn sínar rætur. Þetta
vita allir sem eitthvað vita og líka þeir
sem vita ekki neitt. En það er samt
á færi fárra örvita að reyna að þræta
fyrir þau afglöp sem þjófafélagið náði
að vinna í áranna rás. Og núna er eft-
irsjáin slík að fyrrverandi og núver-
andi framsóknarmenn eru komnir í
lið með einum alræmdasta krimma
Sjálfstæðisflokksins og eru að reyna
að fegra ímynd sína fyrir augliti Guðs
á himnum, með því að reisa bænahús
í óþökk okkar hinna.
Elskurnar mínar, sjáið þið til: Fyrst
rænir framsóknarklíkan þjóðarbúið í
samráði við Sjálftökuflokkinn. Leið-
irnar sem farnar voru eru þekktar frá
ýmsum tímum, m.a. frá draumóra-
mönnum 1000 ára ríkisins. Menn kyrj-
uðu öllum stundum: –Við erum besta
þjóð í heimi! Við kunnum að reka
banka betur en annað fólk! Og svo var
þetta allt gert til þess eins að hinir ríku
yrðu ríkari og hinir fátæku fátækari.
Búin var til þensla, allir fengu lánað,
bankarnir tóku veð í eigum fólks-
ins, svo var svikamyllan afhjúpuð
(að nafninu til – enginn hefur verið
dreginn til ábyrgðar), því næst misstu
margir vinnuna, verðlagið fór úr
böndunum, kreppan varð ljóslifandi
og bankarnir eignuðust þá skjaldborg
sem heimilin í landinu höfðu áður átt.
Kreppan er glæpaklíkunum að
kenna; fávísum, þjóðrembum sem
æða fram með græðgina eina að leið-
arljósi. Og í dag sitjum við uppi með
þá skömm að vera með helling himpi-
gimpa á himinháum launum við að
bora í nefið, en samtímis þurfum við
að rukka fátækan kennara um 300.000
kall vegna krabbameinsmeðferðar.
Á sama hátt og þýsk alþýða
skammast sín fyrir nasistana, skamm-
ast ég mín fyrir heimsk og gráðug
þjóðrembusvín sem vilja helst eyða
allri gagnrýninni hugsun með því að
hóta fólki öllu illu. Ég verð kannski
rekinn úr Háskóla Íslands fyrir að
segja sannleikann. En ég segi hann
samt.
Arðrán varð þeim ærið brölt
um Íslands fögru grundir
enda flá þeir feitan gölt
í Framsókn nú um stundir.
Klappliðið Vel var tekið á móti formanninum Bjarna Benediktssyni þegar hann steig á svið á landsfundi Sjálfstæðisflokksins í Laugardalshöll. Landsfundarfulltrúar risu úr
sætum og hylltu foringjann en alls er óvíst hvort hann leiði flokkinn inn í framtíðina eða hvort kona verði í fyrsta sinn formaður Sjálfstæðisflokksins. Mynd xxxMyndin
„Mér finnst það alveg sjálfsagt mál, þetta fólk er ekkert síður þátt-
takendur í lýðræðinu en þingmenn…“ Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar,
lagði nýlega til að mótmælendur fengju aðgang að salernisaðstöðu Alþingis.
Salerni fyrir mótmælendur?
Mest lesið á DV.is
1 Jón stóri er háður sterum: Lenti í öndunarstoppi
Lögregla segir sterum haldið að ungu fólki.
2 Íslenskar mæðgur hneyksla í undirfataauglýsingu
Auglýsingaherferð sem íslenskar mæðgur
tóku þátt í fyrir undirfataframleiðandann
Lake and Stars hefur vakið mikla athygli
vestra.
3 Ber brjóst, kynlíf og blótsyrði hjá The Charlies
The Charlies, sem áður hét Nylon, sýnir
á sér nýja hlið í nýjasta myndbandinu
sínu, þar sem ber brjóst, kynlíf, blóð og
blótsyrði birtast á víxl.
4 Fjölni Þorgeirs stefntFjölnir segist hafa verið svikinn og tapað á
viðskiptunum.
5 Geðveik í áratugi: Unga móðirin var send í raflost
Styrmir Gunnarsson segir sjúkrasögu
eiginkonu sinnar.
6 Töpuðu 400 þúsund krónum vegna tafa Iceland Express
Hjón sitja nú eftir um 400 þúsund krónum
fátækari eftir að hafa reitt sig á þjónustu
Iceland Express.
7 Dauðsfall á Hlemmi: Ítrekað komið við sögu lögreglunnar
Ekkert bendir til þess að eitthvað
saknæmt hafi átt sér stað og er atvikið
ekki rannsakað sem slíkt.
Skáldið skrifar
Kristján Hreinsson
Það sem þingmenn vilja ekki
S
tjórnlagaráð skilaði af sér full-
mótuðu stjórnarskrárfrumvarpi
til Alþingis í sumar. Tíminn sem
ráðið fékk til verksins var naumt
skammtaður og því gafst enginn
tími til þess að kynna afurðina fyrir þjóð-
inni þótt bæði vilji og fjármagn hefði
verið til þess. Því var það undir Alþingi
komið að kynna þetta fyrir kjósendum
sínum. Forsætisnefnd fundaði um hvað
gert skyldi við frumvarpið og lagði Þór
Saari til að því yrði dreift inn á öll heimili
til kynningar. Því var alfarið hafnað. Þess
í stað var málið sett í sérskipaða nefnd
sem líklega mun vinna úr því nýtt frum-
varp. Óvíst er hvort það fumvarp muni
eiga nokkuð skylt við frumvarp stjórn-
lagaráðs.
Skilafrestur að renna út
Umrædd nefnd hefur núna, án þess að
mikið beri á því, kallað eftir umsögnum
um frumvarpið og er skilafrestur aðeins
til loka nóvember.
Fyrirsjáanlegt er að fáar umsagnir
munu berast frá almenningi, enda hefur
frumvarpið lítið sem ekkert verið kynnt
og flestir hafa nóg annað við tíma sinn
að gera. Jafn fyrirsjáanlegt er að LÍÚ og
önnur sérhagsmunasamtök munu ráða
tugi sérfræðinga til þess að skrifa um-
sagnir gegn þeim greinum frumvarps-
ins sem er ætlað að tryggja almannahag
gagnvart þeirra sérhagsmunum.
Kynntu þér frumvarpið
Til að vega upp á móti dýrum umsögn-
um sérhagsmunasamtaka þarf almenn-
ingur, (líka þú lesandi góður) að taka sig
til, kynna sér frumvarp stjórnlagaráðs og
senda inn umsagnir. Annars er hætt við
því að Alþingi dragi úr því allar tennur,
fari að ráðum sérhagsmunasamtakanna
og láti jafnframt óþægilegar greinar
hverfa sem er ætlað að taka á spill-
ingu eða auka ábyrgð og valddreifingu
í stjórnkerfinu, enda munu fáir sakna
þess sem þeir vissu ekki af.
Aðhald almennings
Nú finnst sjálfsagt einhverjum þing-
mönnum vegið að sér og þeir séu
dæmdir áður en ætlaður gjörningur á
sér stað. Ég viðurkenni fúslega að í það
minnsta einhverjir þingmenn vilja raun-
verulega hlusta á vilja þjóðarinnar við
gerð nýrrar stjórnarskrár, jafnvel þótt
það skerði þeirra eigin völd eða völd eig-
in flokka. En án aðhalds almennings eru
líkur á að sjónarmið þeirra þingmanna
verði undir.
Hægt er að kynna sér frumvarpið á
vef stjórnlagaráðs, stjornlagarad.is, en
einnig er hægt að fá það í flottri útgáfu
hjá Kaffifélaginu Skólavörðustíg, betri
bókabúðum og á eymundsson.is.
Auglýsing Alþingis eftir umsögnum
má finna á slóðinni tinyurl.com/um-
sogn og hægt er að senda umsagnir á
netfangið stjornskipun@althingi.is fyrir
30. nóvember.
Láttu þína rödd heyrast – þú ert
þjóðin.
Aðsent
Ingólfur Harri
Hermannsson
„Fyrirsjáanlegt er að
fáar umsagnir munu
berast frá almenningi.