Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2011, Page 32
32 Viðtal 18.–20. nóvember 2011 Helgarblað
G
uðrún Eva og eigin-
maður hennar Mar-
teinn Þórsson eignuð-
ust sitt fyrsta barn 16.
nóvember. Guðrún
Eva var sett þann 22. nóvem-
ber en var sett af stað nokkr-
um dögum fyrr. Þau eignuð-
ust tí marka stúlku og heilsast
þeim báðum vel. Það var mikil
tilhlökkun á heimilinu aðeins
fáeinum dögum áður þegar
blaðamaður hitti Guðrúnu Evu
á heimili hjónanna við sjávar-
síðuna í Reykjavík. „Það er fínt
að vera samtaka í því að eignast
fyrsta barn. Ég er fyrst og fremst
forvitin. Hef ekki hugmynd um
hvernig heim ég er að stíga inn
í, hef heyrt bæði hryllingssög-
ur og rómantískar sögur,“ segir
hún þar sem hún stendur í eld-
húsinu í íbúð þeirra Marteins.
„Ég hef ákveðið að best sé að
leyfa þessu öllu saman að ger-
ast náttúrulega svo ég ætla að
bíða átekta og ég leyfi mér ekki
að gera mér miklar hugmyndir
um hvernig lífið muni breytast.
Ég veit bara að það gerir það.“
Langamma hennar, Mín-
erva Jósteinsdóttir, er fædd
27. nóvember og Guðrún Eva
hugsaði um að halda í sér
þangað til.
„Mig er búið að dreyma um
að halda í mér þangað til,“ seg-
ir hún og brosir. „Ég missti af
því að hitta hana, hún dó fjór-
um árum áður en ég fæddist, ég
hefði gjarnan viljað hitta hana.
Það er falleg tilviljun þegar það
gerist að börn fæðast svona
næstum því eins og öðrum til
heiðurs.“
Áhættuatriði á háum
hælum
Guðrún Eva býr yfir náttúru-
legri fegurð. Það má líkja henni
við konu málaða af Botticelli.
Engum þætti það tilgerðarleg
líking því þannig er það bara.
Hún er á háum hælum. Gyllt-
um leðurskóm með háum hæl.
Og hún er ansi léttstíg á þeim.
Tók á móti blaðamanni og
skokkaði svo á hælunum upp
þröngan háan stigann upp í
stofuna. Snarast á þeim í hringi
í eldhúsinu að laga kaffi. Svo-
lítið eins og hún sé með ósýni-
legan dansfélaga í eldhúsinu.
Aðdáunarverð áhættuatriði.
Hún segist alvön að vera
á háum hælum. Getur ekki
hugsað sér annað.
„Ég fór niður á lágbotna
skó þegar ég var komin með
smábumbu af því mér fannst
samfélagið ætlast til þess af
mér,“ segir hún glettin. „En
mér leiddist það. Ég er vön að
stika á hælum en ekki að trítla
klofstutt um,“ segir hún og
hlær.
Vann 10 tíma á dag í 10
mánuði
Guðrún Eva og Marteinn eru
nú í óðaönn að undirbúa
komu dótturinnar í heiminn.
Enginn tími vannst til þess fyrr
á árinu og því má segja að allt
sé á síðasta snúningi. Það get-
ur enginn sagt að rithöfundar
séu værukært draumórafólk að
minnsta kosti ekki sá sem hef-
ur kynnst hamhleypunni Guð-
rúnu Evu.
„Við vorum svona að taka
við okkur því annirnar í ár
hafa slegið öll met. Lokatörn-
in var rosaleg löng og ég var að
niður lotum komin. Ég er ekk-
ert mikið að ýkja þegar ég segi
að ég hafi tekið 10 tíma törn á
dag í 10 mánuði. Skaparinn
kom líka út í Þýskalandi í ágúst
og tók sitt pláss því auðvitað
þurfti að fylgja honum eftir
með kynningu. Tveimur dög-
um eftir að ég skilaði inn hand-
ritinu að Allt með kossi vekur,
með grátstafinn í kverkunum
af þreytu, var ég svo komin upp
í flugvél á leið á bókamessuna
í Frankfurt. Þar fór ég svo upp
á svið nokkrum sinnum á dag.“
Andsetin af látnum
ættingja í Frankfurt
Guðrúnu Evu gekk vel á bóka-
messunni í Frankfurt og góður
rómur var gerður að kynningu
hennar þar. Ættingjar hennar
sem fylgdust með sögðu hana
hafa borið óvenjumikinn svip af
Mínervu langömmu sinni. Eins
og þar væri hún komin lifandi.
„Kannski var ég andsetin af látn-
um ættingja, það er að minnsta
kosti ráðgáta hvernig ég komst
í gegnum þetta,“ segir hún. „En
síðasta kvöldið þá var komið
nóg. Þá horfði ég brostnum aug-
um út í sal meðan tveir höfund-
ar fengu að láta ljós sitt skína
alveg óáreittir af mér. Ég hugs-
aði með mér. Eitt gigg í vaskinn
á móti 30 sem lukkuðust vel, ég
verð bara að sætta mig við þann
ágæta árangur.“
Guðrún Eva fór þó ekki að
gráta eins og barnshafandi kon-
um er tamt. Hún fer að skelli-
hlæja þegar hún er spurð hvort
hún sé ein af þeim sem grætur
af viðkvæmni. Kannski yfir sæt-
um gömlum konum eða litlum
börnum að syngja í kór? „Mér
er laust tárið, sést það svona
vel á mér? En ég græt sjaldan
af harmi. Ég græt talsvert af því
að verða snortin og af gleðilegu
uppnámi.“
Fullorðnum er ekki
klappað á kollinn
Guðrún Eva er alin upp í
Vesturbænum, Mosfellssveit, á
Kirkjubæjarklaustri og í Garði
í Gerðahreppi. Hún átti ljúfa
æsku að eigin sögn og á góð-
ar minningar úr uppvextin-
um. „Á yfirborðinu var æskan
flókin,“ útskýrir hún og segir
frá því að það sé vegna þess að
hún hafi oft flutt og fjölskyldan
sé nútímalega samsett. Hún
á bæði stjúpsystkini og hálf-
systkini. „En ég hafði allt til
alls. Naut ástar og það var tal-
að við mig og allt sem skipti
máli var þar. Ég var alveg rosa-
lega þægt barn. Það er örugg-
lega ekki hægt að skrifa um
mig skemmtilega barnabók.
Ég er ekki endilega stolt af því
en ég var þægðin og tillitssem-
in uppmáluð. Ég er ein af þeim
sem þreifst ágætlega í skóla-
kerfinu. Umbunarkerfið átti
ágætlega við mig, læra heima,
gera sitt og fá svo klapp á koll-
inn.
Svo reyndar þegar maður
er vaxinn úr grasi þá er þetta
ekki jafnþægilegt. Þá gagnast
engum að vera þægur. Full-
orðnum er ekki umbunað fyrir
að vera þægir og þeim er ekki
klappað á kollinn. Ég þurfti að
læra að standa með sjálfri mér,
stappa niður fæti og máta mig í
hlutverk frekjunnar. En mér er
það samt ekki mjög tamt. Það
er lærð hegðun. En allir þurfa
að læra sínar lexíur. Náttúru-
legu frekjurnar þurfa til dæmis
að læra að dempa sig og sýna
temmilega siðfágun.“
Hætt komin sem barn
Það vita fáir aðrir en innvígðir
að Guðrún Eva var hætt kom-
in þegar hún var tveggja ára.
Blaðamaður fékk fregnir af því
að hún hefði verið milli heims
og helju. Hvað gerðist? „Ég
fékk heilahimnubólgu þegar
ég var tveggja ára. Amma var
hjúkrunarkona og kom víst
oft grátandi heim af vöktum
vegna þess að það var faraldur
og börn dóu í fanginu á henni.
Móðir mín hafði því varann á
þegar ég veiktist. Hún var vak-
andi yfir einkennum og ugg-
andi. Henni fannst ég hafa
skipt um persónuleika. Glaða
og væra barnið var eins og allt
annað barn. Læknir kom heim
og sagði móður minni að slaka
á, gaf mér hitalækkandi og
ætlaði að láta þar við sitja. En
móðir mín, ljónynjan, lét sér
ekki segjast.
Hún fór með mig upp á
spítala þar sem læknarnir
vildu reka hana heim. Það
tókst þeim alls ekki. Það hefði
aldrei átt að finna upp orðið
móðursýki því það hefur alltaf
verið notað gegn konum til ills
og oftast að ósekju.
Hún var svo ákveðin að hún
hreinlega tróð mér í fangið á
lækni sem sá þá loks að ég var
orðin hnakkastíf. Það munaði
víst aðeins nokkrum klukku-
stundum að ég hefði týnt líf-
inu.
Ég hef síðan hitt þennan
mann og tekið í höndina á
honum. Hann var kynntur fyrir
mér sem maðurinn sem bjarg-
aði lífi mínu,“ segir Guðrún
Eva og hlær. „Þetta er nefnilega
svolítið kómískt því í fjölskyld-
unni hefur lífsháskasaga mín
verið sögð nokkuð oft. Foreldr-
ar mínir og ættingjar hafa þurft
að létta á hjarta sínu.
Sem betur fer var ég ekki of-
vernduð í kjölfar þessa. Enda
á ekki að ofvernda börn, þau
hafa ekki gott af því. Smáveg-
is leyndardómur og frjálsræði
er svo nauðsynlegt í uppvext-
inum.
Jújú, svo hef ég auðvitað
komist oftar í hann krappan
eftir þetta, eins og flestir, auð-
vitað,“ segir hún leyndardóms-
full. „Lífið er hættulegt. Allir
hafa frá sínum ævintýrum að
segja, ef gengið er á þá. En það
er óþarfi að leggja allar raun-
ir lífsins á nákomna. Sér í lagi
þegar allt fer vel að lokum.“
Flutti að heiman 16 ára
Guðrún Eva trúir því reyndar
ætíð að allt fari vel að lokum.
„Sem betur fer,“ segir hún. „Því
ég er kvíðin. Með svona kvíða-
sjúkdóm eins og svo margir.
Kvíðinn háir mér stundum en
ég á auðveldara með að glíma
við hann vegna þess að ég trúi
því alltaf innst inni að allt fari
vel. Þetta er svona trú, eins og
að vera með kórsöng í hjart-
anu.“
Hún hefur enda alltaf gert
það sem hún vill. Hún flutti
snemma að heiman. Aðeins
sextán ára flutti hún úr Garði til
Reykjavíkur. „Unglingurinn var
búinn að fá nóg af smábænum
og vildi í borgina. Mér fannst
ég tilbúin að flytja að heiman
og hugsa um mig sjálf. Ég milli-
lenti nú samt í stofusófanum
hjá pabba. Byrjaði í Kvenna-
skólanum og tók fyrsta árið þar.
Svo varð ég þreytt á sófanum
og þetta var því þjófstart. Ég
flutti aftur í Garð og tók eitt ár
í framhaldsskóla í Keflavík. Ég
fann mig alls ekki þar og flutti
aftur í bæinn. Þá var það á rétt-
um tíma, ég komin á þann ald-
ur að ég gat snapað mér vinnu.
Ég náði mér í vinnu á Kaffi List
og kláraði menntaskólann og
leigði í kommúnum hér og þar.“
Lærði spænsku á kaffihúsi
Þetta var á miðjum tíunda ára-
tugnum. Enn örfá kaffihús í
Reykjavík sem seldu gott kaffi.
„Skrýtið að muna þann tíma,“
segir hún. „Allt í einu hefur
maður lifað tímana tvenna,“
segir hún og hlær. „Ég gekk
inn í Spanjólamenninguna og
bambóleíó-stemninguna sem
var þar á kvöldin. Ég var þar í
fjögur ár meira og minna. Þetta
er eini alvöruvinnustaðurinn
sem ég hef unnið eitthvað á,
þar sem ég hef svona komist
inn á vinnustaðinn eins og
stofnun ef svo má taka til orða.
Orðið ein af þeim! Ég lærði
hrafl í spænsku og allt, gerði
það ósjálfrátt því hún var allt í
kringum mig. Það er kannski
svolítið skrýtið að segja frá því
en þannig var það. Ég lærði
spænsku á kaffihúsi.“
Heppin að fá að upplifa
fátækt í friði
Þegar Guðrún Eva hafði ákveð-
ið að leggja fyrir sig ritstörf
gerði hún það með rómantík-
ina í botni.
„Ég las Paul Auster, Hand
to Mouth, þar sem hann segir
frá harki sínu sem ungur höf-
undur, og lifði á loftinu í nokk-
ur ár, eða þannig,“ segir hún
og brosir. „Ég bjó smátt og lifði
afar spart. Keypti núðlusúpur
og baunir og annað stúdenta-
fæði. Ég fékk algjört rómantískt
kikk út úr því að telja stundum
krónurnar og eiga bara fyrir
brauðhleif og núðlum. Auð-
vitað á ég fjölskyldu sem hefði
ekki tekið í mál að ég sylti. En
það var sem betur fer enginn
sem var svo ofurumhyggju-
samur að vera alltaf snuðrandi
í skápunum mínum.“
Erfitt að vera hafnað
Forleggjarinn í bókaútgáfunni
Bjarti hafnaði Guðrúnu Evu
þegar hún heimsótti hann um
tvítugt með sitt fyrsta hand-
rit. „Ég skrifaði mína fyrstu
skáldsögu þegar ég var 18 ára.
Hún var ekki um neitt, en svo
sem ágætlega skrifuð og stíl-
uð. Undir miklum áhrifum
Betty Blue og Tvöföldu lífi
Veróniku,“ segir hún og hlær.
„Jú, auð vitað var erfitt að vera
hafnað. Það er erfitt fyrir alla.
Forleggjarinn hugsaði sig nú
alveg um en sagði mér svo að
ég væri ekki tilbúin. En ég gafst
nú ekki upp. Ætlaði að sanna
mig og skrifaði tvær smásögur.
Í stað þess að halda bara áfram
að skrifa þá fór ég strax með
þessar sögur og heilsaði aft-
ur upp á forleggjarann,“ segir
hún og brosir. Ég var kannski
líka bara í leit að mentor. Það
er alltaf verið að segja við ungt
fólk að það eigi að vera það
sjálft. En það veit ekkert um
sjálft sig þannig að það er ekki
sanngjörn krafa.
Forleggjarinn sagðist
myndu skoða sögurnar og
hafa svo samband við mig. En
ég sagði þá við hann: Þær eru
rosalega stuttar, má ég ekki
bara bíða á meðan þú lest þær?
Ótrúlega ósvífið. En ég held
hann hafi áttað sig á því að ég
var aðallega bara vankunnandi
um það hvernig hlutirnir ganga
almennt fyrir sig í bransanum.
Svo hann samþykkti það og las
þær og ég beið á meðan með
öndina í hálsinum. Svo sagði
hann loks: „Frábært. Tuttugu
svona og ég gef út bók.“ Við
áttum síðan frábært samstarf í
mörg ár eftir það. Fimm fyrstu
bækurnar mínar komu út hjá
Bjarti.“
Kristjana
Guðbrandsdóttir
kristjana@dv.is
Viðtal
Grátgjarnar og hugrakkar konur sem fara um allt á háum hælum
sigra heiminn. Guðrún Eva Mínervudóttir rithöfundur er ein þess
ara kvenna. Hún átti von á sínu fyrsta barni eftir fáeina daga og var
enn á háum hælum þegar blaðamaður DV hitti hana. Hún gefur sig
þó ekki alfarið kvenlegri mýkt því hún skrifar í alfahrútsstellingu.
Með fætur uppi á borði. Við fórum í heimsókn til Guðrúnar Evu og
ræddum við hana um lífsháska, örlagabletti og eldheita ást.
Upplifði ást í
einu hvelli
„Þessi stelling
örvar víst tes
tósterónframleiðslu.
„Það munaði
aðeins nokkr
um klukkustundum
að ég hefði týnt lífinu.