Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2011, Qupperneq 36
36 Ættfræði Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson kjartan@dv.is 18.–20. nóvember 2011 Helgarblað
R
agnheiður fæddist á Akra-
nesi en ólst upp í Mosfellsbæ
og á Hvanneyri í Borgarfirði.
Hún var í Varmárskóla í Mos-
fellsbæ og í Barnaskóla á Kleppjárns-
reykjum í einn vetur. Á grunnskólaár-
unum var hún auk þess einn vetur á
Hólum í Hjaltadal og annan vetur í
Danmörku. Hún stundaði nám við
Menntaskólann í Reykjavík og lauk
þaðan stúdentsprófum 2001, stund-
aði síðan nám í ferðamálafræði á
Hólum í Hjaltadal og síðar við Kenn-
araháskóla Íslands og lauk þaðan
prófum sem grunnskólakennari árið
2009.
Ragnheiður starfaði á Nautastöð
Bændasamtakanna á Hvanneyri á
sumrin með námi. Hún er nú kennari
við Hólabrekkuskóla í Breiðholti en er
í fæðingarorlofi sem stendur.
Ragnheiður hefur starfað í ung-
mennafélaginu Íslendingi og tekið
þar m.a. þátt í uppsetningu á leikriti.
Þá tók hún þátt í æskulýðsstarfi hesta-
mannafélaganna Harðar og Faxa.
Fjöskylda
Eiginmaður Ragnheiðar er Þorkell
Guðjónsson, f. 6.4. 1973, tölvu- og
veiðimaður.
Dætur Ragnheiðar og Þorkels
eru Inga Vildís Þorkelsdóttir, f. 25.9.
2003; Hulda Þorkelsdóttir, f. 21.5.
2006; Iðunn Þorkelsdóttir, f. 26.12.
2010.
Systur Ragnheiðar eru Sigrún
Sveinbjörnsdóttir, f. 6.4. 1987, nemi
við Háskóla Íslands og prjónakona;
Kristrún Sveinbjörnsdóttir, f. 29.9.
1992, nemi og fitness-prinsessa;
Klara Sveinbjörnsdóttir, f. 29.3. 1994,
nemi og hestakona.
Foreldrar Ragnheiðar eru Svein-
björn Eyjólfsson, f. 27.11. 1959, for-
stöðumaður Nautastöðvarinnar á
Hesti í Borgarfirði, og Inga Vildís
Bjarnadóttir, f. 17.1. 1964, félagsráð-
gjafi.
R
agnar fæddist í Reykjavík
en ólst upp í Mosfellsbæ
og síðan í Gautaborg í Sví-
þjóð. Hann var í Varmárs-
kóla og barnaskóla í Gautaborg,
lauk grunnskólaprófi í Gautaborg
og stundaði nám við Borgarholts-
skóla í þrjú ár.
Ragnar hóf störf hjá Öryggis-
miðstöðinnni árið 2003 og starf-
aði þar til 2007. Hann hefur starfað
hjá Happdrætti Háskóla Íslands frá
2007.
Fjölskylda
Sonur Ragnars og Rósalindar Krist-
jánsdóttur er Daníel Darri Ragnars-
son, f. 6.12. 2005.
Bræður Ragnars eru Emil Helgi
Valsson, f. 16.12. 1978, rafeindavirki
hjá Nortek, búsettur í Reykjanesbæ;
Arnar Ingi Valsson, f. 22.7. 1986, raf-
virki hjá Olíudreifingu, búsettur í
Mosfellsbæ.
Foreldrar Ragnars eru Valur
Helgason, f. 2.8. 1956, bifreiðasmið-
ur, búsettur í Mosfellsbæ, og Hall-
dóra Kristín Emilsdóttir, f. 14.8.
1960, sjúkraliði á Eir.
R
akel fæddist í Reykjavík en
ólst upp á Kiðafelli í Kjós. Hún
var í Ásgarðsskóla í Kjós og í
Klébergsskóla á Kjalarnesi,
stundaði nám við Verkmenntaskól-
ann á Akureyri og lauk þaðan stúd-
entsprófi 2003, stundaði síðan nám í
stjórnmálafræði við Háskóla Íslands
og lauk BA-prófi í stjórnmálafræði
2008 og er nú að ljúka MA-prófi í fjöl-
skyldumeðferð.
Rakel starfaði á dagdeild átrask-
ana við Landspítalann sl. nokkur ár
en starfrækir nú eigin stofu sem fjöl-
skylduráðgjafi.
Rakel hefur starfað með samtök-
um um líkamsvirðingu sem hingað
til hafa verið óformleg en stendur nú
til að stofna sem formleg samtök.
Fjölskylda
Eiginkona Rakelar er Bjarney Gunn-
arsdóttir, f. 29.4. 1983, íþróttafræð-
ingur.
Dóttir Rakelar og Jóhanns Bjarna-
sonar er Heiðdís Anna Jóhannsdótt-
ir, f. 30.3. 1999.
Dóttir Rakelar og Bjarneyjar er
Þórey Edda Bjarneyjardóttir, f. 16.2.
2011.
Systkini Rakelar eru Hrafnhild-
ur Björk Sigurbjörnsdóttir, f. 27.8.
1979, ljósmyndari, búsett í Reykja-
vík; Hjalti Andrés Sigurbjörnsson,
f. 10.11. 1987, vélvirki, búsettur í
Reykjavík.
Foreldrar Rakelar eru Sigurbjörn
Hjaltason, f. 10.6. 1958, bóndi að
Kiðafelli í Kjós, og Bergþóra Andrés-
dóttir, f. 21.9. 1959, ferðaþjónustu-
bóndi að Kiðafelli.
J
óhannes fæddist í Syðra-Lang-
holti og ólst þar upp. Hann
lauk stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum á Laugarvatni 1954
og stundaði nám við Kenn-
araháskóla Íslands 1982–83. Þá sótti
hann ýmis kennaranámskeið og fékk
réttindi sem svæðisleiðsögumaður
1993.
Jóhannes var bóndi í Syðra-Lang-
holti 1954–80. Hann var kennari við
Flúðaskóla 1961–94, hótelstjóri við
Hótel Flúðir 1985–87 og hefur, ásamt
konu sinni og fleirum úr fjölskyld-
unni, rekið ferðaþjónustu í Syðra-
Langholti í vaxandi mæli frá 1986.
Jóhannes var fyrsti formaður
Mímis, félags menntaskólanema á
Laugarvatni 1952–53, var formað-
ur Héraðssambandsins Skarphéð-
ins 1966–76, sat í stjórn Ungmenna-
félags Hrunamanna í nokkur ár og í
varastjórn Ungmennafélags Íslands
1963–69. Hann var fulltrúi UMFÍ í
stjórn Nordisk Samorganisation for
Ungdomsarbejde 1976–80 og for-
maður landsmótsnefndar vegna 16.
landsmóts UMFÍ 1978 á Selfossi.
Jóhannes var formaður Kennara-
félags Suðurlands 1980–82, formað-
ur Ferðamálasamtaka Suðurlands
1987–95, sat í Ferðamálaráði Íslands
1987–99 og í stjórn Upplýsingamið-
stöðvar ferðamála 1989-93.
Jóhannes sat í fyrstu stjórn Land-
verndar frá stofnun 1969–75, var for-
maður skólanefndar Héraðsskólans
á Laugarvatni 1969–80, formaður
sjálfstæðisfélagsins Hugins í upp-
sveitum Árnessýslu 1992–2001, fyrsti
forseti Kiwanisklúbbsins Gullfoss
1985–86, svæðisstjóri Sögusvæð-
is 1989–90 og sat í stjórn Hafnar hf.
1985–91.
Jóhannes hefur stundað íþróttir
frá unglingsaldri og keppt á héraðs-
mótum Skarphéðins í ýmsum grein-
um árlega frá 1949, nú síðustu árin
aðallega í golfi.
Jóhannes var sæmdur gullmerki
ÍSÍ 1970, heiðurskrossi ÍSÍ 1976 og
kjörinn heiðursfélagi ÍSÍ 1990. Hann
hlaut gullmerki FRÍ 1975, gullmerki
UMFÍ 1981, heiðursfána HSK, Hér-
ðassambandsins Skarphéðins, 1990
og er heiðursformaður þess frá 2011.
Jóhannes hefur skrifað greinar í
blöð og tímarit og var ritsjóri Skarp-
héðinssíðunnar í blaðinu Suður-
landi í nokkur ár.
Fjölskylda
Jóhannes kvæntist 5.11. 1954 Hrafn-
hildi Svövu Jónsdóttur, f. 5. 11.
1934, ferðaþjónustubónda. Foreldr-
ar hennar eru Sigurbjörg Th. Jóns-
dóttir og Jón Sigfússon sem lengst af
bjuggu á Sauðárkróki.
Börn þeirra Jóhannesar og Hrafn-
hildar eru Hilmar Jóhannesson, f.
18.4. 1955, búfræðingur og bóndi í
Syðra-Langholti, kvæntur Fanneyju
Þórmundsdóttur en þau eiga fjög-
ur börn; Sigmundur Jóhannesson, f.
25.9. 1957, bóndi í Syðra-Langholti,
var kvæntur Önnu Mary Snorra-
dóttur, f. 12.11.1960, d. 30.5.1992 og
eignuðust þau tvær dætur en nú býr
Sigmundur með Kristínu Evertsdótt-
ur; Sigurbjörg Jóna Jóhannesdóttir,
f. 5.1.1959, verslunarmaður í Hafn-
arfirði, gift Ólafi Ó. Stephensen og
eiga þau þrjú börn; Snorri Freyr Jó-
hannesson, f. 11. 3. 1965, rafvirki í
Syðra-Langholti en sambýliskona
hans er Vigdís Furuseth og eiga þau
tvö börn; Gunnar Þór Jóhannesson,
f. 30.10. 1967, búsettur á Flúðum, BA
í íslenskum fræðum, nú fangavörður
við Bitru, kvæntur Arndísi Eiðsdóttur
og eiga þau fjögur börn; Anna Lára
Jóhannesdóttir, f. 17.12.1969, flug-
freyja og hjúkrunarfræðingur, búsett
í Mosfellsbæ og á hún tvö börn; Ás-
dís Erla Jóhannesdóttir, f. 2. 6. 1972,
ferðafræðingur og hótelstjóri við
Hótel Mývatn á Skútustöðum, gift
Yngva Ragnari Kristjánssyni og eiga
þau tvö börn.
Systkini Jóhannesar: Alda Sig-
mundsdóttir, f. 10. 4. 1930, d. 18.
11. 1931; Alda Kristjana Sigmunds-
dóttir, f. 17.6.1933, húsfreyja í Dalbæ
II í Hrunamannahreppi; Sigurgeir
Óskar Sigmundsson, f. 16.3. 1938,
d. 9.2.1997, kaupmaður á Grund á
Flúðum; Sigurður Sigmundsson,
f. 16.3.1938, blaðamaður, búsett-
ur í Dalbæ I í Hrunamannahreppi;
Sverrir Sigmundsson, f. 13. 9. 1944,
bifreiðastjóri, búsettur að Vogum á
Vatnsleysuströnd.
Foreldrar Jóhannesar voru Sig-
mundur Sigurðsson, f. 8. 3. 1903 á
Litla-Kálfalæk í Mýrasýslu, d. 12. 3.
1981, bóndi, oddviti og búnaðar-
þingsfulltrúi í Syðra-Langholti, og
Þuríður Anna Jóhannesdóttir, f. 24. 3.
1902 að Fremri-Fitjum í Miðfirði, d.
18. 2.1997, húsfreyja.
Ætt
Sigmundur var sonur Sigurðar, b. í
Miklholti í Hraunhreppi Sigmunds-
sonar, b. á Litla-Kálfalæk Ólafssonar,
b. í Knarrarnesi Jónssonar, langafa
Sigurðar, skálds frá Arnarholti. Móðir
Sigmundar Ólafssonar var Guðbjörg
Sigmundsdóttir. Móðir Sigurðar í
Miklaholti var Steinunn Bjarnadótt-
ir, b. á Litla-Kálfalæk Bjarnasonar, og
Bjargar Hallmundardóttur.
Móðir Sigmundar í Syðra-Lang-
holti var Kristjana Bjarnadóttir, b. í
Arnarstapa í Álftaneshreppi Sigurðs-
sonar, b. á Háhóli Jónssonar. Móðir
Bjarna í Arnarstapa var Helga, syst-
ir Sigurðar, b. í Miklaholti í Hraun-
hreppi, langafa Ingibjargar Þorbergs,
söngkonu og tónskálds. Sigurður var
einnig afi Helga Hjörvar, rithöfundar
og útvarpsmanns, Lárusar Salóm-
onssonar, lögreglumanns, glímu-
kappa og hagyrðings, Gunnars Úrs-
usar aflraunamanns og Haralds
pípulagningamanns, föður Auðar
rithöfundar. Helga var dóttir Horna-
Salómons, b. í Hólakoti í Álftanes-
hreppi Bjarnasonar.
Þuríður Anna var systir Finns
Lúðvíks, föður Steinars J. Lúðvíks-
sonar rithöfundar. Þuríður Anna var
dóttir Jóhannesar, b. á Fremri-Fitjum
í Vestur-Húnavatnssýslu Kristófers-
sonar, b. í Tjarnarkoti í Húnavatns-
sýslu, bróður Gunnars, b. í Valdarási,
langafa Friðriks Sophussonar, fyrrv.
ráðherra og fyrrv. forstjóra Lands-
virkjunar, og Guðmundar Gunn-
arssonar, formanns Rafiðnarð-
arsambandsins, föður Bjarkar
Guðmundsdóttur söngkonu. Krist-
ófer var sonur Gísla, b. í Tjarnarkoti
Þórðarsonar, og Kristínar Jónsdótt-
ur. Móðir Jóhannesar var Þuríður
Gunnarsdóttir, b. á Mýrum í Vestur-
Húnavatnssýslu Marteinssonar, og
Önnu Sveinsdóttur.
Móðir Þuríðar Önnu var Þuríður
Jóhannesdóttir, b. á Mjóahóli í Döl-
um Hálfdánarsonar, b. á Vatnshorni
og á Rifi á Snæfellsnesi Hálfdánar-
sonar. Móðir Jóhannesar var Sigríð-
ur Sigmundsdóttir. Móðir Þuríðar
Jóhannesdóttur var Guðríður Guð-
mundsdóttir, vinnumanns í Sælings-
dalstungu Jónssonar. Móðir Guðríð-
ar var Þuríður Jónsdóttir.
J
ósef Aron fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp í Múlakampinum.
Hann stundaði nám í Höfðaskóla
og Réttarholtsskóla.
Jósef fór ungur að vinna fyrir sér,
starfaði hjá Sambandi íslenskra sam-
vinnufélaga um skeið, var síðan í fisk-
vinnslu hjá Bæjarútgerð Reykjavíkur
og starfaði síðan á hverfisstöðvum hjá
Reykjavíkurborg um tveggja ára skeið.
Hann starfaði síðan hjá ÁTVR á Bæjar-
hálsi í fjögur ár og starfaði hjá flutn-
ingafyrirtækinu JP um skeið.
Jósef hefur verið aðdáandi Elvis
Presley frá átta ára aldri. Hann stofnaði
Íslenska aðdáendaklúbb Elvis Presley
árið 2000, ásamt eiginkonu sinni og
tengdamóður, og hefur verið formað-
ur klúbbsins síðan en klúbburinn hélt
upp á tíu ára afmæli sitt í fyrra.
Jósef hóf að syngja Elvislög og
koma fram í Elvisgervi skömmu fyrir
aldamót. Hann hefur notið sífellt meiri
vinsælda sem Elvis-söngvari, kemur
fram nokkrum sinnum í mánuði og er
bókaður langt fram á næsta ár. Hann
hefur skemmt fólki á öllum aldri og
af ýmsu tilefni en kemur auk þess oft
fram til að skemmta þeim sem minnst
mega sín.
Fjölskylda
Jósef Aron kvæntist 1.2. 1999 Ragn-
heiði Öddu Þorsteinsdóttur, f.
12.1.1957, húsmóður. Foreldrar
hennar eru Þorsteinn Pálsson bíla-
málari og Guðrún Jónsdóttir, hús-
móðir í Reykjavík.
Dóttir Jósefs Arons og Ragnheiðar
Öddu er Lísa María Jósefsdóttir, f. 5. 2.
2001.
Dætur Jósefs Arons frá fyrri sam-
búð eru Helga Dögg Jósefsdóttir, f.
2.8. 1989; Anna María Jósefsdóttir, f.
18.11.1994.
Hálfsystkini Jósefs Arons, samfeðra,
eru Erna Óladóttir, f. 7. 4. 1963, bóndi
í Mjóafirði; Ragnar Ólason, f. 17. 7.
1964, starfsmaður hjá Eflingu, búsettur
í Reykjavík; Kolbrún Óladóttir, f. 19.8.
1965, verkakona í Vestmannaeyjum.
Hálfsystkini Jósefs, sammæðra,
eru Ólína Ragnheiður Gunnarsdóttir,
f. 28.12. 1965, húsmóðir í Vestmanna-
eyjum; Sigurður Pétur Jónsson, f.
2.8.1982, strætisvagnastjóri, búsettur í
Hafnarfirði.
Foreldrar Jósefs Arons eru Óli
Adolfsson, f. 7.3.1941, bílstjóri á Eyr-
arbakka og á Spáni, og Þorgerður Pét-
ursdóttir, f. 20.6. 1944, d. 6.11. 2005, var
húsmóðir í Reykjavík.
Fósturforeldrar Jósefs Arons frá ell-
efu ára aldri voru Helga Veturliðadóttir
og Þórður Andrésson.
Jóhannes Sigmundsson
Ferðaþjónustubóndi og fyrrv. kennari við Flúðaskóla
Jósef Aron Ólason
Skemmtikraftur og formaður Íslenska aðdáendaklúbbs Elvis Presley
Ragnheiður
Sveinbjörnsdóttir
Grunnskólakennari í fæðingarorlofi
Ragnar E. Valsson
Þjónustufulltrúi hjá Happdrætti Háskóla Íslands
Rakel Rán
Sigurbjörnsdóttir
Fjölskyldumeðferðarfræðingur
30 ára á föstudag
30 ára á föstudag
30 ára á föstudag
80 ára á föstudag
50 ára á föstudag