Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2011, Blaðsíða 50
50 Lífsstíll 18.–20. nóvember 2011 Helgarblað
Tónlist fyrir sálina
Önnur plata rauðhærðu gyðjunnar
í Florence and the Machine,
Ceremonials, er komin út. Á
plötunni eru 12 lög og 2 þeirra
hafa verið vinsæl í haust; What
the Water gave me og Shake it
out. Fallega rómantísk og drungaleg í
senn og hæfir skammdeginu fullkomlega.
Villtur ilmur
Nýr ilmur frá Calvin Klein er með þeim
vinsælari ytra um þessar mundir.
Ilmurinn heitir Shock og er innblásinn af
æsku, partíum og villtri hvatvísi.
Upprunalega ilmvatnsflaskan er lökkuð
hvít fyrir hana og svört fyrir hann og
með neonlitu letri í veggjakrotsstíl.
Herferð Benetton vekur athygli
UNHATE-stofnunin, stofnuð af fataframleiðandanum
Benetton, hefur að markmiði að berjast gegn hatri. Nú hefur
stofnunin sett af stað víðtæka alheimsherferð gegn hatri og
fordómum. Efnt verður til haturslauss dags, þar sem uppákomur
verða haldnar í 50 borgum víðs vegar um heim og er verkefni
fataframleiðandans afar metnaðarfullt. Auglýsingaherferð
þeirra hefur einnig vakið verðskuldaða athygli en í henni kyssast
leiðtogar landa sem eiga í deilum ljúfum kossi.
Magdalena
til Sjanghæ
Magdalena Sara sem bar
sigur úr býtum í Elite-keppn-
inni hér á landi í vor, mun
þann 24. nóvember taka
þátt í alþjóðlegu keppninni
í Sjanghæ. Magdalena hefur
verið áberandi á undanförn-
um mánuðum í fyrirsætu-
störfum. Fylgjast má með
henni á heimasíðu keppn-
innar og greiða henni at-
kvæði á elitemodels.com.
L
jósmyndarinn Saga
Sigurðardóttir og
hönnuðurinn og tísku-
teiknarinn Hildur
Yeoman opnuðu sam-
an sýningu í Hafnarborg sem
byggir á hugmyndum þeirra
úr tískuheiminum. Þær hafa
báðar verið áberandi í hönn-
un og tísku hér á landi sem og
erlendis og hafa unnið fjölda-
mörg verkefni saman.
Hildur og Saga settu upp
vinsæla sýningu í Kling &
Bang í fyrra, Álagafjötra. Öll
verk þeirrar sýningar seld-
ust upp og handbragð þeirra
vakti verðskuldaða athygli.
Einkennandi fyrir hand-
bragð þeirra eru skærir litir,
rómantík, íslensk náttúra og
nostalgía. Þær blanda í verk
sín íslenskri handverkshefð
og tíðaranda í tísku. Áhrifa
gætir úr umhverfi þeirra,
kvikmyndum, tónlist og
ævin týrum. „Við byrjuðum á
því að hugsa um undirdjúpin
og ýmsar tengingar við djúp-
in í sögnum og þróuðum svo
hugmyndir okkar áfram. Út-
koman varð sú að grunn-
stef sýningarinnar tilheyr-
ir heiminum undir yfirborði
sjávar. Sá heimur er dimmur
og kaldur en jafnframt eru
formin mjúk og líðandi,“ segir
Hildur.
Sjö ára kvenfyrirmynd
Þær fjalla einnig um kraft-
miklar kvenpersónur á sýn-
ingu sinni. Taka samstarfið
lengra og gera þeim skil í lif-
andi innsetningu. „Við feng-
um vinkonur okkar til að sitja
fyrir sem gefa okkur innblást-
ur. Ein af þeim er lítil frænka
mín, aðeins sjö ára gömul.
Þrátt fyrir ungan aldur er hún
góð fyrirmynd því að hún
stendur alltaf fullkomlega
með sjálfri sér. Svo er Margrét
vinkona hennar Sögu. Hún er
barnshafandi en það er ekki
aðalatriði myndarinnar. Stolt
hennar og tignarleiki er aðal-
atriðið.“
Ekkert kvennaföndur
Samstarf þeirra tveggja hefur
verið blómlegt. „Saga hafði
samband við mig eftir að hafa
séð efni eftir mig á netinu og
í framhaldinu bað ég hana
um að taka myndir af fyrstu
fylgihlutalínunni minni. Ég
hafði einnig verið að fylgjast
með henni og ljósmyndirnar
sem hún var að taka fannst
mér áhugaverðar og fallegar.
Þannig byrjaði okkar sam-
starf og við höfum unnið mik-
ið saman síðan þá.“
Margir spyrja hvar mörk-
in liggi milli tísku og listar,
hver er hugmynd Hildar um
þetta málefni? „Ég lít á það
sem við erum að gera sem
tísku og það er gaman að
henni sé hleypt inn á söfn.
Þetta er ekkert kvennafönd-
ur, þetta er stór skapandi iðn-
aður sem við erum öll að nota
og erum í á hverjum degi.
Við erum að reyna að skapa
heim með sýningunni okkar
sem við viljum að áhorfand-
inn stígi inn í. Það vill oft loða
við tískuna að hún sé mikið
yfirborð. Við Saga erum með
Hamskiptum að kafa lengra
ofan í djúpið og sýna aðra
hlið tískunnar.“
Hildur er þekkt fyrir fylgi-
hlutalínur sína sem hún selur
í Kronkron. Hún hefur fengið
umfjöllun í mörgum tísku-
tímaritum heims, nýlega var
fjallað um Cherry Bomb í W-
Magazine og Eurowoman.
„Við búum á lítilli einangraðri
eyju og því gleðst ég alltaf yfir
því að fá umfjöllun í erlend-
um tískutímaritum.“
kristjana@dv.is
Á sýningunni Ham-
skipti er varpað ljósi
á samvinnu þeirra
Hildar Yeoman
fatahönnuðar og
tískuteiknara og
Sögu Sigurðar-
dóttur ljósmyndara
sem eiga að baki
ólíkan feril úr tísku-
heiminum. Hildur
segir frá samvinn-
unni og sterkum
kvenfyrirmyndum.
Skærir litir
og rómantík
Hildur Yeoman
Hildur Yeoman (f. 1983)
útskrifaðist með BA-gráðu í
fatahönnun frá Listaháskóla
Íslands árið 2006 ásamt því
að hafa verið í starfsnámi hjá
Jona than Saunders í London
og Yazbukey í París 2004.
Hildur hannaði fylgihlutalínu
þar sem hún setur hefðbundið
handverk í nýtt samhengi. Lín-
an samanstendur af litríkum
hálsmenum, höfuðskrauti og
töskum sem taka á sig form
púðluhunda og annarra dýra.
Hún frumsýndi aðra fatalínu
sína, Cherry Bomb, á Reykjavík
Fashion Festival (RFF) 2011 og
hlaut mikið lof fyrir.
Saga Sigurðardóttir
Saga Sigurðardóttir (f. 1986)
býr og starfar í London þar sem
hún lauk nýverið BA-prófi í tísku-
ljósmyndun í London College
of Fashion. Samhliða náminu
hefur hún hefur unnið fjölbreytt
verkefni og skapað sér sérstöðu
í faginu. Hún hefur unnið með
fjölda ólíkra hönnuða á stuttum
ferli og ljósmyndir eftir hana
hafa birst í stórum tísku-
tímaritum á borð við Dazed
and Confused, Dazed Digital og
Topshop 214. Ljósmyndir Sögu
einkennast af persónulegum
stíl með mikilli frásagnargleði
þar sem birtist forvitnilegt fólk
umvafið litríkri hönnun.
Bílaverkstæði
Varahlutaverslun
Smurstöð
Dekkjaverkstæði
Bremsur,
spindilkúlur,
stýrisendar,
o.fl., o.fl.
Allar gerðir
bætiefna fyrir
vél, drif
og gírkassa
www.bilaattan.is
Allt á einum stað
Hálsmen úr silki og flaueli
Fæst í Kronkron á 28.900 krónur.
Vinsælt Hekluðu töskurnar eftir
Hildi hafa slegið í gegn og eru oft
uppseldar. Þær má fá í KronKron á
33.000 krónur.
Ævintýra-
legur heimur
Hildur og Saga
leitast við að
skapa sérheim og
í þetta skipti er
það heimur gyðja
og goðsagna.
Heitt og litríkt í vetur:
Feldkragar af
öllum gerðum
Frida Giann-
ini, yfirhönn-
uður Gucci,
sló tóninn
í níutíu ára
afmælislínu
tískuhúss-
ins. Feld-
kragar hafa
slegið í gegn.
Bæði áfastir
á kápum
og jökkum en
líka lausir sem
má binda á
yfirhafnir til að
gefa þeim nýjan
svip. Helst í
litum ef marka
má áherslur Gi-
annini.
Kate Moss er iðulega í falleg-
um loðflíkum og leikkonan
Kate Bosworth sást með fal-
lega loðtösku á dögunum.