Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2012, Page 12
12 Fréttir 13.–15. janúar 2012 Helgarblað
S
íðustu þrjú ár eru bestu ár
ævi minnar. Ég hef aldrei átt
minni pening og aldrei þurft
að hafa eins miklar áhyggj-
ur af fjármálum. Þrátt fyr-
ir það er ég samt hamingjusöm því
ég er frjáls frá sadistum og vondum
mönnum. Ég á mig sjálf ,“ segir Guð-
rún Elísabet Bentsdóttir, einstæð
móðir í Breiðholti. Tugir þúsunda
lásu lýsingar af raunum hennar fyrir
jól. Guðrún Elísabet brotnaði saman
á fatamarkaði Fjölskylduhjálpar. Fyrr
um daginn hafði hún sótt dóttur sína
kalda og blauta í skólann þar sem
hún hafði ekki haft efni á að kaupa
vetrargalla.
Ótrúleg tilfinning
Guðrún segir samtal sjálfboðaliða
Fjölskylduhjálpar við dóttur sína
hafa haft mikil áhrif á hana. „Við vor-
um úti í röð við matarúthlutun og
það var svo kalt að við fengum að
fara inn þar sem fatamarkaðurinn er.
Dóttur minni var mjög kalt og sjálf-
boðaliði fer að tala við hana og spyr
hvers vegna hún sé ekki betur klædd.
„Við eigum ekki peninga fyrir kulda-
galla,“ svarar dóttir mín. Þarna féll
ég alveg saman,“ segir Guðrún. Hún
tárast þegar hún lýsir atvikinu. Hún
segir sjálfboðaliða Fjölskylduhjálpar
hafa fundið bláar snjóbuxur og gefið
dóttur sinni. „Það var ótrúleg tilfinn-
ing að sjá dóttur mína taka við bux-
unum. Konan bað okkur svo um að
koma eftir viku því hún hefði eitt-
hvað af fötum heima hjá sér sem
hún gæti gefið okkur,“ segir Guðrún
og útskýrir að takmörk séu fyrir því
hvað megi koma oft til Fjölskyldu-
hjálpar til þess að sem flestir fái ein-
hverja hjálp. Guðrún virðist ekki reið
út í kerfið eða vilja kenna öllum öðr-
um um. Fyrri sambönd og æska hafa
augljóslega haft áhrif á hana en við
hverja sögu ítrekar hún að sjálfur
beri maður ábyrgð á sínu lífi.
Ótrúleg hlýja
Guðrún segir hlýlegt viðmótið og
væntumþykjuna sem henni var sýnd
hjá Fjölskylduhjálp hafa skipt miklu
máli. Hún segist geta rekið fátækt
sína tæplega þrjú ár aftur í tíman
en þá hafi hún sagt skilið við annan
barnsföður sinn. Þau hafi þó verið
ógift og allar eignir á hans nafni og
hún því staðið uppi eignalaus með
enga sjóði. Hún segist finna fyrir því
að hún standi mikið ein enda séu
samskipti hennar við fjölskyldu sína
engin. „Það er kannski sjálfsvorkunn
að segja þetta svona, en líf mitt hef-
ur verið stöðug þrautaganga,“ segir
Guðrún sem segist hafa tilhneigingu
til þess að leita í erfið sambönd.
Fékk rollu að gjöf
frá kvalara sínum
„Fimm ára er ég misnotuð af göml-
um karli í sveitinni. Það mótaði pers-
ónu mína. Þetta hljómar eins og svo
mikil klisja að segja þetta en ég man
hvað ég var alltaf ofsalega reið út í
foreldra mína út af þessu. Ég var svo
reið að þau skildu ekki sjá að eitthvað
væri að í samskiptum hans við mig.
Við vorum fjögur börnin á bænum,
öll á svipuðum aldri en hann kom
alltaf með gjafir handa mér einni.
Eitt sinn kom hann og gaf mér heila
rollu. Það var risastór gjöf fyrir fjöru-
tíu árum síðan,“ segir Guðrún og ger-
ir stutt hlé á frásögn sinni.
„Ég man hvað ég hataði roll-
una og kallinn. Ég var svo reið út
í mömmu og pabba að sjá ekki að
eitthvað væri í gangi.“ Guðrún lýsir
því hvernig blanda af meðvirkni og
heimilisaðstæðum hafi raunar kom-
ið í veg fyrir að unnið væri úr mis-
notkuninni. Veikindi móðurinnar
og harðneskjulegt uppeldi hafi orðið
til þess að ekki var tekist á við mál-
ið. „Enginn áttaði sig á meðferðinni
á mér af hendi gamla mannsins. Ég
rek mín mál til misnotkunarinnar og
held að þarna sé upphafið að mínum
vandamálum. Það var auðvitað ekk-
ert gert, ég var bara óþekki krakkinn,“
segir Guðrún.
Sautján ára í sambúð
„Í minni vanlíðan og, að því mér
fannst, erfileikum var ég samt allt-
af forsprakki á unglingsárum. Ég átti
alltaf vini og flaut í gegnum skóla-
gönguna. Bróðir minn sem var í
skólanum á sama tíma varð hins
vegar fyrir gríðarlegu einelti. Ég hef
ekki hugmynd um hvað olli því. Ég
var lítil, feit og rauðhærð og fékk að
vera í friði. Hann var myndardreng-
ur, grannur og lærdómsfús en ég hef
aldrei séð annað eins einelti. Ég man
hvað ég lamdi frá honum – á hverjum
degi nánast,“ segir Guðrún og bæt-
ir við að hún hafi alltaf verið frekar
frökk í grunnskóla. „Kannski er það í
beinu framhaldi af minni innréttingu
að ég byrjaði að búa með manni þeg-
ar ég var sextán ára.“
Sambýlismaður Guðrúnar var
fimmtán árum eldri en hún. „Það
sagði enginn neitt við þessu,“ segir
hún til að leggja áherslu á meðvirkni
hennar og annarra í kringum hana.
„Fyrst gekk allt vel en svo eignaðist ég
mitt fyrsta barn. Þá sautján ára göm-
ul. Hann varð hreinlega að öðrum
manni. Mér fannst lífið bara búið á
þessum tíma. Sautján ára með barn í
erfiðu sambandi og þjáðist af fæðing-
arþunglyndi,“ segir Guðrún en gerir
hlé á frásögninni þegar dóttir hennar
kemur inn í eldhús. Stúlkan, sem er
heima þennan morgun vegna veik-
inda, virðist forvitin. Guðrún biður
hana um að hafa ofan af fyrir sjálfri
sér á meðan viðtalið stendur yfir.
Sautján ára og nýbökuð móðir
leigði hún ásamt eiginmanni sínum
jörð, stutt frá bæ foreldra hans. Að-
spurð hvernig þau hafi kynnst í ljósi
mikils aldursmunar þeirra segir hún
að leiðir þeirra hafi legið saman, en
hann hafi vanið komur sína á bæinn
og hafi þannig fylgst með uppvexti
hennar.
Stöðug hræðsla
„Ég var alltaf svo logandi hrædd þeg-
ar við vorum saman,“ heldur hún
áfram. Guðrún gerir hlé á frásögn
sinni. „Mér fannst ég alltaf þurfa
að ganga úr skugga um að það sæ-
ist að ég hafi verið á ferð yfir daginn
og verið að gagni. Ég var vön að færa
til hluti og jafnvel drasla til í eldhús-
inu svo það liti út eins og ég hafi ver-
ið upptekin allan daginn.“ Oft þeg-
ar hún var við það að bugast segist
Guðrún hafa leitað til ömmu sinnar.
„Hún átti sjálf ekkert auðvelt líf og ég
fann það stundum á samtölum okkar
að henni fannst eins og ég ætti bara
að geta þolað þetta. Ég skrönglaðist
því alltaf til baka.“ Þrátt fyrir þessa
lýsingu Guðrúnar á samtölum við
ömmu sína er augljóst að hún tal-
ar af hlýju til hennar. „Seinna kaup-
um við hjónin jörð, vel rekið og stórt
kúabú, en leigðum áfram jörðina sem
við höfðum áður. Þrátt fyrir það held
ég áfram að vinna við skúringar og að
keyra skólarútu. Þarna er ég eitthvað
í kringum 25 ára. Þetta var allt of mik-
ið. Seinna fórum við að taka við börn-
um frá félagsmálastofnun.“
1. september 1994
„Ég fór frá honum sama dag og síð-
asta barnið frá félagsmálastofnun fór.
Það var fyrsta september 1994. Þá
pakkaði ég niður í tösku, settist upp
í bíl og keyrði til Reykjavíkur.“ Guð-
rún fór þá til vinkonu sinnar í nokkra
daga til að hugsa sig um. Erfiðast seg-
ir hún hafa verið að skilja barnið sitt
eftir. Hún hafi ekki verið í ástandi til
að taka hann með sér. „Vinkona mín
hefur stöðugt fengið að finna fyrir
tortryggni vegna þess að hún hjálp-
aði mér,“ segir Guðrún og bætir við
að fjölskylda hennar hafi raunar litið
á vinkonu hennar sem vandamálið.
„Hún var búin að segja mér í mörg ár
að ég ætti ekki að lifa þessu lífi.“
Endaði á geðdeild
„Ég varð að skilja strákinn minn
tímabundið eftir í sveitinni. Það var
rosalega erfitt. Ég gat ekki tekið hann
með enda átti ég hvergi heima. Mér
fannst fjölskyldan mín ekki vilja mig,
ég bjó raunar í bílnum mínum og til
skiptis hjá hinum og þessum vinum.“
Guðrún segir að þarna hafi hún end-
að á geðdeild og fyrst verið skráð sem
öryrki.
„Það gerðist í kjölfar taugaáfalls
að læknar mínir aðstoðuðu mig við
að komast á örorkubætur. Ég kunni
illa að tala um það sem hafði gerst og
stóð frammi fyrir öllu sem ég hafði
upplifað,“ segir Guðrún sem kynntist
seinni maka sínum stuttu eftir skiln-
aðinn eða í miðri hringiðunni eins og
hún orðar það.
„Hann var svo blíður og góður við
mig. Allt í einu mátti ég versla án þess
að vera logandi hrædd yfir því að vera
of lengi, versla vitlaust eða of mikið.
Fátæk
en frjáls
n Brotnaði saman hjá Fjölskylduhjálp og las um það í fjölmiðlum
n Var misnotuð fimm ára n 16 ára í sambúð með helmingi eldri manni
Atli Þór Fanndal
blaðamaður skrifar atli@dv.is
„Kannski
sjálfs-
vorkunn að
segja þetta
svona, en líf
mitt hefur
verið stöðug
þrautaganga
Einstæðingar hafa það verst
Öryrkjar og einstæðir foreldrar eru þeir samfélags-
hópar sem mest eiga á hættu að búa við fátækt.
Öryrkjar sem lifa á óskertum bótum frá Trygginga-
stofnun eiga erfitt með að ná endum saman.
Bæturnar duga þeim ekki til framfærslu auk þess sem
lyf eru dýr og oft ekki mikið niðurgreidd. Öryrkjar hafa
oftar en ekki litla möguleika á að bæta kjör sín með
hlutastarfi. Um leið og tekjur þeirra aukast skerðast
bæturnar. Að því leyti sker hópurinn sig úr frá öðrum
hópum. Segja má að fátækt hópsins sé stöðug og
án undankomu. Þetta kemur fram í skýslu Rauða
krossins um þá hópa sem mest standa höllum fæti
hér á landi.
Niðurstaða skýrslunnar er að fimm hópar standi
verst í íslensku samfélagi. Það eru: atvinnuleitendur,
barnafjölskyldur og einstæðir foreldrar, innflytjendur,
öryrkjar og börn og ungt fólk sem skortir tækifæri.
Tekið er fram að ekki séu allir sem tilheyra þessum
hópum í vanda en hættan sé meiri.
Helmingur einstæðra
í leiguhúsnæði
Séu húsnæðismál einstæðra
foreldra skoðuð kemur í ljós
að helmingur þeirra býr í
leiguhúsnæði. Það er töluvert
yfir meðaltali hér á landi en
samkvæmt upplýsingum frá
Hagstofunni búa um tuttugu
prósent Íslendinga í leigu-
húsnæði. Hagstofan segir
tæplega ellefu þúsund einstæða foreldra hér á landi.
Á heimilum þeirra eru skráð rúmlega fjórtán þúsund
börn undir átján ára aldri.
Félagsleg einangrun algeng
„Öryrkjar með börn á framfæri eiga sérstaklega
erfitt með að ná endum saman. Félagsleg einangrun
er algeng meðal öryrkja. Margir í þessum hópi búa
við margskonar erfiðleika eins
og fötlun og geðraskanir,“ segir í
skýrslunni. „Að mati viðmælenda
eru einstæðar mæður hópur sem
þarf að styðja við en mikilvægt
er að vanmeta ekki aðstæður
einstæðra feðra sem ekki eru með
börnin sín og búa við bág kjör. Þeir
eru oft í lélegu og/eða litlu hús-
næði og eiga því erfitt með að hafa
börnin hjá sér. Aðstæðurnar leiða
til þess að þeim líður illa, eru einmana og félagslega
einangraðir,“ segir í skýrslunni.
„Afleiðingar fjárhagslegrar fátæktar eru margþættar.
Margir viðmælendur benda á að fátækir lifi við félags-
lega einangrun og að fólk sem lifir við fátækt taki oft
lítinn þátt í menningar- og félagslífi. „Fólk dettur út
úr samfélaginu,“ segir barnaverndarstarfsmaður sem
vitnað er í í skýrslu Rauða krossins.
Fátækt á Íslandi Öryrkjar og ein-
stæðir foreldrar standa illa og eiga mest
á hættu að búa við fátækt.