Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2012, Blaðsíða 42
42 Lífsstíll 13.–15. janúar 2012 Helgarblað
Skuldbinding Mánaðarverð
Engin binding 3.091 kr.
3 mánuðir 2.944 kr.
6 mánuðir 2.688 kr.
12 mánuðir 2.473 kr.
DV sent heim þrisvar í viku, á mánudögum, miðviku dögum
og föstudögum. Netáskrift fylgir frítt með!
Komdu í áskrift
Það er ódýrara en þig grunar!
Glitrandi vor
Í byrjun nýs árs fara tískuspekúlantar að
leggja línurnar fyrir vorið og tímarit og
tískuvefsíður taka saman það allra heit-
asta í vortískunni. Víð belti, þægilegur og
klæðilegur íþróttafatnaður, leður, kven-
legir og flæðandi kjólar og pils, mínímal-
ískur klæðnaður, villt og litrík sólgleraugu
og glitrandi skart, skór og fylgihlutir eru
meðal helstu tískustrauma sem spáð er
fyrir vorið.
Glitrandi
Marc Jacobs sýndi
fjölbreyttar samsetningar
sem glitruðu og lýstu upp
salinn. Skór voru gjarnan
með gliti í, pils og blússur.
Alexa Chung er gjarnan í
skóm með gliti til að lífga
upp á heildarútlitið.
Víð belti
Víð belti, helst úr
leðri, sáust víða á
tískupöllunum og eru
í flestum tískutímarit-
um talin til heitustu
fylgihluta vorsins.
Jean Paul Gaultier og
Alexander Wang
sýndu breið leðurbelti
með flíkum sínum.
Sportlegt
Philip Lim notaði
pastelliti, gagnsæ efni og
þægileg en klassísk snið
með vísun í sport og
líkamsrækt. Fyrirsæturn-
ar báru allar sólgleraugu
og voru með hárið sleikt
aftur.
Kvenlegt
Hvað er vortískan án léttra efna og blóma-
mynstra? Klassík sem gengur alltaf aftur, í vor eru
mynstrin stærri og efnin meira flæðandi. Mitti og
brjóst fá gjarnan að njóta sín.
Dolce og Gabbana notaði grænmeti og ávexti í
stað blóma í ár, Prada notaði kassalaga form á
móti kvenleikanum og Dries Van Noten kynnti fal-
leg mynstur sem líktust einhvers konar ímynduðu
landslagi. Jason Wu kynnti nýlega sölulínu sína í
verslunum í Bandaríkjunum og þar ríkir hreint æði
fyrir stuttum og stelpulegum vorkjólum hans.
Mínímalískt
Mínímalismi er allt annað en leiðinlegur.
Hlutlausir litir og skörp form eru frískandi
tilbreyting eftir dökkan og dimman vetur í
ólögulegum ullarklæðnaði.
Phillip Lim þótti bera af með sumarlínu
sinni og hjá tískuhúsi Celine slógu í gegn
kassalaga blússur og bolir.
Villt sólgleraugu
Litrík og í alls kyns formum og stílbrigðum.
Allt er leyfilegt þegar kemur að sólgler-
augnatískunni nema þá helst klassíkin og
öryggið. Villt er málið.
Sólgleraugu frá Kenzo og Rochas þóttu sú
allra heitustu og gefa tóninn fyrir vorið.
Leður
Fínlega unnið og
mjúkt leður er í tísku
núna. Þá allra helst
leðurpils. Leikkonan
Michelle Williams
vakti athygli í rauðu
leðurpilsi á dögunum
og leðurpils frá Acne
seljast eins og heitar
lummur á útsölu
þeirra á vefsíðunni
studioacne.com.
1950–1960
Tíðarandi sjötta áratugarins
svífur enn yfir vötnum eins
og síðustu misseri. Jafnvel
enn sterkar en áður.
Phillip Lim
Phillip Lim Marc Jacobs Alexa Chung í glitskóm
Glitrandi
hálsmen
frá Dior
Fyrirsætan Jessica StamStella McCartney
Leðurpils frá Acne Dolce& Gabbana Proenza SchoulerJason WuPrada
Jonathan Saunders Förðun í anda 6. áratugarins KenzoRochas
Leikkonan Michelle Williams
Celine Jean Paul Gaultier