Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2012, Blaðsíða 26
26 Viðtal 13.–15. janúar 2012 Helgarblað
Þ
að er dásamleg tilfinning að
geta miðlað því sem mér þyk-
ir skemmtilegt. Harðar frétt-
ir ganga yfirleitt út á að segja
frá því sem miður fer, en mitt
mottó er að reyna að skemmta fólki,“
segir Marta María Jónasdóttir, frétta-
stjóri dægurmála og ritstýra Smart-
lands á mbl.is.
Fylgir hjartanu
Marta María hefur starfað við fjöl-
miðla í meira en áratug. Fyrst á Séð og
Heyrt, þá á Fréttablaðinu, hún ritstýrði
tímaritinu sáluga Veggfóðri um tíma
og tók þátt í uppbyggingu Pressunnar
áður en hún réð sig til starfa í Hádeg-
ismóum. Hún er ánægð í vinnunni og
segist ætla að halda áfram svo lengi
sem það er gaman.
„Það skiptir mig miklu máli að það
sé skemmtilegt í vinnunni. Um leið
og ég verð leið verð ég að breyta til. Ef
við fylgjum alltaf hjartanu stöðnum
við ekki því hjartað hreyfist til,“ segir
Marta María sem hefur ástríðu fyrir
starfinu. „Aðalatriðið held ég samt að
sé að taka lífið svolítið á húmornum.
Um daginn skrifaði til að mynda frétt
um að Kim Kardashian hefði fengið
sér nýtt iPhone-hulstur því mér þótti
það einfaldlega svo ógurlega fyndið.
Ég fékk nokkrar athugasemdir þar
sem ég varð spurð að því hvort þetta
væri frétt. Í mínum huga var þetta frá-
bær frétt, enda fékk hún afbragðslest-
ur. Góður lestur er merki þess að les-
endur eru sammála mér,“ segir hún
brosandi.
Ætlaði í hönnunarnám
„Ég reyni alltaf að halda vel á spöðun-
um og eitt af áramótaheitunum mín-
um er tilkomið af hreinni nauðsyn;
að reyna að slaka meira á – að horfa
meira á sjónvarp og vera minna í tölv-
unni. Maður brennur fljótt út ef mað-
ur er allan sólarhringinn í vinnunni.“
Aðspurð segist hún ekki hafa ætlað
sér að verða blaðamaður. „Ég komst
snemma að því að ég væri skapandi
og sköpunin er ennþá mjög stór part-
ur af mér. Ég ætlaði alltaf í hönnunar-
nám en kynntist blaðamennskunni og
hef ekki getað slitið mig frá henni. Ég
næ samt að samtvinna þetta tvennt
því ég fæ útrás fyrir sköpunarkraft-
inn í vinnunni. Ég lærði til dæmis að
fótósjoppa um daginn og stunda það
grimmt þótt það megi reyndar deila
um hæfileika mína á því sviðinu.“
Lífið er ferðalag
Marta María verður 35 ára á árinu.
Hún er gift Jóhannesi Ingimundar-
syni sjónfræðingi og eiga hjónin tvö
börn en fyrir átti Jóhannes dótturina
Fanneyju, sem er 19 ára. Frumburð-
ur Mörtu er Helgi sem er fimm ára og
Kolbeinn Ari er tveggja ára. Hún seg-
ir móðurhlutverkið hafa breytt sér til
hins betra. „Það breytti öllu að verða
mamma. Lífið snérist á hvolf. Ég verð
þó sigldari með árunum. Þetta er samt
mikið púsluspil. Ég á eina vinkonu
sem segist fá köfnunartilfinningu þeg-
ar hún sér dagskrána mína. Maður-
inn minn er einnig í krefjandi starfi og
það tekur stundum á. Lífið er stund-
um eins og hjá Línu Langsokk, en við
fáum mikla hjálp frá fjölskyldunni og
ég held að það sé ánægja fólgin í kaó-
tíkinni. Lífið er ferðalag og ef það er
gaman á leiðinni er þá ekki tilgangin-
um náð?“ spyr hún og neitar að þjást
af samviskubiti, líkt og svo margar
mæður tala um. „Ef ég væri með sam-
viskubit, þá væri ég í annarri vinnu. Ég
vel þetta sjálf. Ég blómstra ekki nema
það sé nóg að gera og svo er ágætt að
muna að ef mamman er glöð, þá eru
allir glaðir.“
Andlega á staðnum
Viðurnefnið „smarta“ hefur í gegnum
tíðina loðað við Mörtu Maríu og ekki
að ástæðulausu. Líklega myndu flest-
ir telja hana fyrirmyndarhúsmóður en
hún þvertekur fyrir að heimili henn-
ar sé ávallt spikk og span. „Mér finnst
miklu mikilvægara að safna minn-
ingum en að taka til. Auðvitað neyð-
ist ég til þess en það er yfirleitt ekki í
forgangi. Vinkona mín kenndi mér að
taka til í borðstofunni því hún sagði að
heimilið liti betur út ef það væri fínt
þar, segir hún og bætir við að hún vilji
frekar eyða tímanum með strákunum
sínum en við þrif. „Við förum frekar í
sund eftir leikskóla en að taka til. Mér
finnst mikilvægt að vera með börn-
unum þegar við erum saman. Og þá
meina ég að gera eitthvað saman, ekki
vera andlega fjarverandi í sínum verk-
efnum. Ef fólk nær því, þá þarf enginn
að hafa samviskubit. Ég reyni að fara
ekkert í tölvuna á meðan þeir eru vak-
andi nema í algjörri neyð – hef sett á
húsverka- og tölvubann.“
Sökuð um að hvetja
til átröskunar
Upp á síðkastið hefur Marta María
unnið efni fyrir nýja þætti sem fara í
loftið á mbl Sjónvarpi á sunnudags-
kvöld. Þættirnir heita Leiðin til betra
lífs og þar ræðir Marta María við fólk
sem hefur glímt við offitu og hefur náð
að koma sér á réttan kjöl.
Athygli vakti þegar Diljá Ámunda-
dóttir, varaborgarfulltrúi Besta flokks-
ins, birti opið bréf til Mörtu Maríu á
Facebook eftir að Marta María hafði
beðið hana um að svara spurning-
um varðandi útlitið. Umfjöllun Mörtu
Maríu um lífsstílsbreytingu nokkurra
kvenna fór líka fyrir brjóstið á ákveðn-
um hópi. Hún segist hlusta á gagn-
rýni en að það sé ómögulegt að ætla
að gera öllum til geðs. „Sjálf þarf ég að
hafa fyrir því að vera ekki of þung og
ég hef oft verið með mun mýkri línur.
Fyrir mér felast meiri lífsgæði í því að
vera hraust og í formi. Ég þarf á því að
halda fyrir börnin mín og fjölskyld-
una. Mér fannst alltaf leiðinlegt í leik-
fimi, en ekki lengur og þess vegna vil
ég sýna konum að það geti verið stuð
í ræktinni. Ég var sökuð um að hvetja
til átröskunar en ég trúi ekki öðru en
að ég og Sigrún Daníels sálfræðing-
ur, sem safnaði liði gegn Smartlandi,
viljum það sama. Auðvitað hlusta ég
á svona gagnrýni og læt ekki eins og
ekkert hafi gerst. Í kjölfarið skoðaði ég
málið ofan í kjölinn og komst að því að
þetta er spurning um framsetningu og
orðalag.“
Femínistar á villigötum
Líklega hafa raddir femínista sjald-
an verið jafn háværar. Marta María
fagnar umræðunni en segir hana
oft á villigötum. „Það er allt í lagi að
hafa ákveðnar skoðanir en það er
heppilegra að kynna sér málin áður
en einhverju er varpað fram. Mér hef-
ur fundist þessi umræða oft stýrast af
vanþekkingu, sem er kannski ekkert
skrýtið því mikið af þessum konum
er svo ungir femínistar. Þær vita ekki
betur. Femínistar ættu miklu frekar að
vera að pönkast í körlum en kynsystr-
um sínum og hætta að gera lítið úr
áhugamálum vinkvenna sinna. Karl-
menn ráðast ekki á áhugamál kyn-
bræðra sinna og kannski er það þess
vegna sem þeir eru í sterkari stöðu
á ýmsum sviðum. Þeir standa allt-
af saman – á sumum sviðum þurfum
við að læra þá samstöðu,“ segir Marta
María en kvartar þó ekki.
„Að ráðast á aðra með öfgum er
leið minnihlutahóps til að fá athygli.
Ég yrði ekki fyrir barðinu á þessum
hópi ef enginn læsi vefinn. Með allan
þennan lestur væri eitthvað skrítið ef
enginn myndi gagnrýna.“
Samstarfið með Binga
Marta María kom að uppbyggingu
vefmiðilsins Pressunnar en yfirgaf vef-
inn síðasta vor. „Það er alltaf gaman að
taka þátt í nýsköpun. Við fórum af stað
í heimahúsi þegar efnahagskerfið var
nýhrunið. Þetta var gaman og ævin-
týralegt hvernig síðan varð vinsæl á
skömmum tíma. Á ákveðnum tíma-
punkti breyttust áherslur eigendanna
og hlutirnir fóru að færast í aðrar átt-
ir. Ég reyndi að koma mínum sjónar-
miðum á framfæri en þegar það gekk
ekki var bara tvennt í stöðunni, að
sætta sig við það eða hætta. Ég valdi
seinni kostinn. Þegar mér bauðst starf
á stærsta vefmiðli landsins gat ég ekki
sagt nei.“ Aðspurð segir hún Björn
Inga Hrafnsson, útgefanda og stjórn-
arformann Vefpressunnar, hafa marga
góða kosti. „Hann virkar ofsalega vel í
hóp og það er mikil stemming í kring-
um hann þegar hann er í stuði. En
þegar hann steig úr ritstjórnarstóli
Pressunnar eftir útkomu rannsóknar-
skýrslunnar breyttist margt.“
Alin upp af pabba
Foreldrar Mörtu Maríu skildu þegar
hún var fimm ára. Hún varð eftir hjá
pabba sínum, Jónasi Garðarssyni, en
mamma hennar, Edda Lyberth, flutti
til Grænlands nokkru síðar og hefur
búið þar síðan Marta María var átta
ára. Hún segir að það fari í taugarnar
á sér þegar fólk geri athugasemd við
að hún hafi orðið eftir hjá föður sínum
við skilnað. „Ef við ætlum okkur að
koma okkur áfram í jafnréttisbarátt-
unni verðum við að hætta að dæma.
Ef við viljum jafnrétti milli karla og
kvenna og að konur hafi nákvæmlega
sama rétt, þá ætti að þykja jafn eðli-
legt að börn dvelji hjá föður sínum eft-
ir skilnað. Okkur mömmunum finnst
við oft eiga einkarétt á börnunum en
það hjálpar ekki í jafnréttisbarátt-
unni,“ segir hún.
„Pabbi hætti á sjónum til að vera
með okkur. Þetta voru mikil viðbrigði
fyrir hann. Allt í einu var hann farinn
að vinna í landi og sjá um tvö börn
sem þurftu að vakna í skólann. Það
gerðist margt spaugilegt á þessum
tíma. Mér fannst ég alltaf vera heppin
og upplifði það ekkert neikvætt þótt
þau væru skilin.“
Þolir ekkert vesen
Hún segir vinkonur sínar halda því
fram að hún beri þess merki að hafa
verið alin upp hjá karlmanni. „Þær
kalla mig stundum JR,“ segir hún
hlæjandi og bætir við að hún þoli
ekki óþarfa vesen. „En það er samt
ekki hægt að segja að ég sé alin ein-
göngu upp hjá karlmanni því pabbi
kynntist stjúpmóður minni, Hörpu
Helgadóttur, stuttu eftir skilnaðinn
og sá hún um að allt væri í föstum
Laus við samviskubitið
Fjölmiðlakonan Marta María Jónasdóttir hefur
verið harkalega gagnrýnd af femínistum sem hafa
meðal annars sakað hana um að hvetja til átrösk-
unar með skrifum sínum. Marta María, sem var alin
upp af föður sínum, stóð við hlið hans þegar hann
var dæmdur í fangelsi eftir skelfilegt sjóslys sem
olli dauða tveggja einstaklinga. Marta María hefur
ástríðu fyrir starfinu en segir móðurhlutverkið hafa
breytt sér til hins betra.
Indíana Ása Hreinsdóttir
indiana@dv.is
Viðtal
„Ef ég væri með
samviskubit, þá
væri ég í annarri vinnu. Ég
vel þetta sjálf.
Fylgir hjartanu Marta María
hefur það fyrir reglu að fylgja
hjartanu. Þess vegna ákvað hún að
hætta þegar Pressan tók stefnu
sem hún var ósátt við. MYND GoLLi