Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2012, Blaðsíða 14
14 Fréttir 13.–15. janúar 2012 Helgarblað
V
ið erum ung hjón með tvö
börn, erum reglusöm og
höfum aldrei verið í van-
skilum. Við erum búin
að reyna allt og viljum
segja sögu okkar í von um að hún
sýni fram á að 110% leiðin er eng-
in lausn fyrir fjölda fólks og hálf-
gerður skrípaleikur,“ segir ung kona
en þau hjónin vilja ekki koma fram
undir nafni. Þau keyptu sína fyrstu
íbúð árið 2006 en ákváðu að fara
hægt í sakirnar og völdu ódýra
íbúð í blokk. Leituðu þau til ráð-
gjafa og ættingja og var ráðlagt að
taka öruggt ríkislán í stað erlends
bankaláns.
Bundin í skuldaklafa
„Við tókum lán hjá Íbúðalánasjóði
upp á 12,3 milljónir króna, íbúðin
kostaði 14,9 milljónir króna en við
áttum sparnað upp á 2,6 milljón-
ir króna. Í dag er eignin metin á 14
milljónir og lánið er í 18,3 milljón-
um. Við erum komin með tvö börn,
íbúðin óhentug og við erum bundin
í skuldaklafa sem við komumst ekki
út úr,“ segir hún. Þegar þau fengu 110
prósenta leiðina samþykkta sendi
Íbúðalánasjóður (ÍLS) matsmann til
að gera verðmat. Hjónunum fannst
það verðmat óraunhæft og leituðu
álits hjá annarri fasteignasölu og
kom í ljós töluverður munur á verð-
mati eignarinnar. „Mat ÍLS var tæp-
lega 20 prósentum hærra en virkt
fasteignamat þar sem við búum en
mat fasteignasalans sem við feng-
um var rúmlega 8 prósentum yfir
fasteignamati. Þeir aðilar sem við
höfum ráðfært okkur við voru sam-
mála þeirri skoðun okkar að hér væri
um að ræða óraunhæfan mismun
á fasteignamati og verðmati,“ segir
hún. Eins var bíll þeirra metinn allt
of hátt, sem þau fengu leiðrétt, og
þau eru ósátt við að námslán þeirra
séu ekki tekin með sem skuld. Það
úrræði sem þau hafa fengið er að lán
þeirra var lækkað um 400.000 krónur
en í dag hefur lánið hækkað um það
aftur og gott betur.
Hugsa um að hætta að borga
Þau kærðu ÍLS til úrskurðarnefndar
félags- og húsnæðismála á vegum
velferðarráðuneytisins í tvígang en
kæru þeirra var hafnað í bæði skiptin
og eru þau afar ósátt við að úrskurð-
arnefndin sem á að dæma í slíkum
óútkljáðum málum skuli vinna fyrir
ríkið. „Ríkið þarf að greiða fyrir það
tap sem ÍLS verður fyrir ef fólki í okk-
ar stöðu er dæmt í hag,“ bendir hún
á.
„Við höfðum engin ráð. Það eina
sem við gátum gert í stöðunni var
að leita aðstoðar velferðarráðherra
og athuga hvort þar væri einhver
mannlegur þráður sem gæti tog-
að í spotta og hlustað á okkar rök.
Aðstoðarmaður ráðherra sagði við
okkur að ekkert væri hægt að gera
þar sem ríkisstjórnin þyrfti að borga
tapið sem ÍLS verður fyrir og það
væri ekki þingmeirihluti fyrir því.
ÍLS kemst því upp með að halda
öllu sínu eftir þeim leiðum og klækj-
um sem hann hefur búið til innan
veggja regluverksins vegna þess að
sjóðurinn er í rauninni beggja vegna
borðsins.“
Hún segir þau vera búin að reyna
allt en leiðin sé meingölluð fyrir þá
sem fóru ekki fram úr sér við íbúða-
kaup. „Við vitum ekki hvað við eig-
um að gera núna. Við erum búin að
fylgja þessu eins fast eftir og við get-
um og erum orðin fúl og reið. Við
erum heiðarleg og dugleg og búin
að gera allt sem við getum en erum
núna hreinlega farin að hugsa um að
hætta að borga,“ segir hún að lokum.
Eina vitið að fara í gjaldþrot
„Í fyrsta lagi er 110 prósenta leið-
in galin og algjört rugl. Það var bara
verið að lögfesta einhverja leið til
að sýnast og með henni er verið að
fella niður skuldir sem eru hvort eð
er tapaðar,“ segir Guðmundur Andri
Skúlason, hjá Samtökum lánþega.
Í öðru lagi segir hann það algjör-
lega út í hött að það sé lagt í hend-
urnar á mönnum úti í bæ að meta
hversu mikið á fella niður af skuld-
um en þar vísar hann til þess að
sýnt hafi verið fram á að fasteigna-
salar geti sett fram afar mismunandi
verðmat á eignum fólks. Eðlilegra sé
að styðjast við fasteignamat sem er
opinber tala.
„Í þriðja lagi eru þessi ungu hjón,
eins og fjölmargir aðrir, í þeirri stöðu
að þau losna ekki út úr þessu svo
glatt. Þau geta ekki borgað, ekki selt
og eru yfirveðsett. Eina vitið hjá þeim
er að fara í gjaldþrot. Það tekur 2 ár í
stað þess að hlaupa eins og hamstur
á hjóli í 3 til 5 ár í 110 prósenta leið-
inni og þá jafnvel sitja enn uppi með
yfirveðsetta eign. Þetta er eina úr-
ræðið sem virkar.“
Galin leið
Hann segir að Samtök lánþega hafi
aðstoðað fjölda fólks við að fara í
gegnum gjaldþrot og það fólk sé mun
ánægðara en þeir sem þráast við. Að-
spurður hvað gerist ef allir þeir sem
eru í þessari pattstöðu ákveði að fara
í gjaldþrot segir Guðmundur Andri
að þá sætu bankarnir uppi með gríð-
arlegt magn af eignum. „Það yrði
erfitt að koma þessum eignum út á
markaðinn nema með tilheyrandi
verðhruni sem mundi leiða til þess
að fleiri færu í gjaldþrot. Það mundi
skapa samfélaginu öllu mikið tjón og
hér sést vel hve 110 prósenta leiðin
er gölluð. Hún hjálpar ekki neinum
neitt.“
Löggjafinn er sökudólgurinn
Íbúðalánasjóður verður að fara eft-
ir þeim lögum sem sett voru þeg-
ar 110 prósenta leiðin var ákveð-
in og Guðmundur Andri segir að
ekki sé við sjóðinn að sakast. „Þar
er ekki hægt að taka neinar ákvarð-
anir nema það sé búið að sam-
þykkja þær í stjórnarráðinu. Söku-
dólgurinn er því löggjafinn með
ranga leið sem ekki virkar,“ segir
hann og bendir á þá hugmynd sem
kom fram á hagfræðingaráðstefnu
um að hafa þetta 70 prósenta leið
í staðinn. Þá hefði bankinn eignast
30 prósent í eigninni á móti skuld-
aranum. Hann segir þá leið hefði
virkað mun betur þar sem bankinn
hefði getað eignfært sinn hlut og
einstaklingurinn haft möguleika á
að selja íbúðina.
Með slíku úrræði hefðu ein-
hverjir verið áfram í vandræðum og
þá hefði verið hægt að hjálpa þeim
einstaklingum með sértækum úr-
ræðum í stað þess að sitja uppi með
stóran hóp af fólki sem er í mjög
slæmum málum, eins og staðan er
í dag.
Vilji til leiðréttingar er ekki til
staðar
Guðmundur segir að hægt sé að leið-
rétta þetta með mjög einfaldri laga-
setningu. Það þurfi bara vilja til þess
sem er ekki til staðar. „Fjármagnseig-
endur, fyrst og fremst lífeyrissjóðirn-
ir, eru það sterkir að breyting á þessu
mun aldrei nást í gegn með núver-
andi stjórnvöld við völd. Það eina
jákvæða sem þessi ríkisstjórn hefur
gert var að stytta fyrningarfrest gjald-
þrota í 2 ár. Fólk sem er komið í patt-
stöðu getur komið til okkar og feng-
ið aðstoð og upplýsingar um hvernig
best sé að undirbúa sig fyrir að fara í
gjaldþrot.“
Gunnhildur Steinarsdóttir
blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is
„Engin hjálp í
110% leiðinni“
n Gjaldþrot er eina leiðin, segir Guðmundur Andri hjá Samtökum lánþega
Staða hjónanna
Þegar íbúðin var keypt og í dag
2006
Kaupverð 14,9 milljónir króna
Lán hjá ÍLS 12,3 milljónir króna
Eigið fé 2,6 milljónir króna
2012
Verðmat 14,0 milljónir króna
Lán 18,3 milljónir króna
Eigið fé -4,3 milljónir króna
Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Fax 595 1001 Akureyri sími: 461 1099 • www.heimsferdir.is
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r.
H
ei
m
sf
er
ð
ir
ás
ki
lja
s
ér
r
ét
t
til
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
. a
ð
v
er
ð
g
et
ur
b
re
ys
t
án
fy
rir
va
ra
.
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
49
83
4
frá kr. 75.900
með gistingu í 7 nætur.
Einstakt tækifæri!
31. janúar og
7. febrúarKanarí
Nú bjóðum við síðustu sætin í sólina á Kanaríeyjum þann 31. janúar og 7. febrúar í 7 nætur á frábæru
tilboði. Í boði er m.a. frábær sértilboð á hinu vinsæla íbúðarhóteli Parque Sol. Einnig bjóðum við
Barcelo Margaritas og Beverly Park hótelin með öllu inniföldu ásamt öðrum hótelum. Ekki missa af
þessu einstaka tilboði. Ath. mjög takmarkaður fjöldi sæta í boði. Verð getur hækkað án fyrirvara!
Kr. 75.900 – Parque Sol
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára, í íbúð með 2 svefnherbergjum á
Parque Sol 31. janúar í viku.
Verð m.v. 4 fullorðna í íbúð með 2 svefnherbergjum kr. 82.800 á mann 31. janúar í viku.
Verð m.v. 2 fullorðna í íbúð með 2 svefnherbergjum kr. 99.900 á mann 31. janúar í viku.
Kr. 109.900 – Beverly Park með allt innifalið
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 1 barn, 2-11 ára, í herbergi 7. febrúar í 7 nætur.
Verð m.v. 2 fullorðna í herbergi 134.700.
Kr. 105.500 – Barcelo Margaritas með allt innifalið
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 1 barn, 2-11 ára, í herbergi 31. janúar í 7 nætur.
Verð m.v. 2 fullorðna í herbergi 124.900.
Guðmundur Andri Skúlason Segir að
eina vitið sé að fara í gjaldþrot. Mynd HEiðA