Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2012, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2012, Blaðsíða 25
Dómstóll götunnar Glókollur í fjötrum „Mjög vel.“ Guðmundur Auðunsson 56 ára viðhaldsstjóri á Hótel Hilton „Það er óljóst. Mjög óljóst.“ Andri Steinn Snæbjörnsson 34 ára forritari „Bara vel.“ Sveinn Orri Vignisson 47 ára vinnur í tölvugeiranum „Bara mjög vel.“ Vigdís Sigurðardóttir 27 ára lögfræðingur „Bara betur en það síðasta.“ Jón Orri Briem 20 ára þjónn á Tapasbarnum Hvernig leggst nýja árið í þig? Jón og séra Jón U m daginn skoðaði ég bíómynd um Jón Ísleifsson. Að vísu sýndi myndin mér það, einna helst, að prestar eru fullkomlega ónauðsynlegir. En grimmd hræsninn- ar er slík þegar kristni sveitardurganna er annars vegar, að sómakær maður er dæmdur fyrir það eitt að vera ekki nákvæmlega jafnferkantaður og þær liðleskjur sem kalla sig bændur og þykjast öðru fólki fremri, vegna þess eins að þeir sjálfir tilheyra landbún- aðarkerfi sem tryggir ójöfnuð. Séra Jón er óþarfur, þar eð guðhræðslan og biblíubullið sem uppúr honum vellur er ekki þess virði að á það sé hlustað. Ekki nær boðskapur guðsorðsins eyr- um þeirra gráðugu bænda sem vilja hljóta búdrýgindi af dúntekju. En Jón er nauðsynlegur; án hans hefði þessi ágæta mynd aldrei orðið til. Við höfum í landinu afætur og svo höfum við vinnandi millistétt sem heldur samfélaginu gangandi. Við höfum bændur og presta. Við höfum heimavinnandi sendiherra og við höf- um fólk sem gætir þess að alræmdir glæpamenn beri ekki skarðan hlut þegar til skipta kemur. En svo höfum við einnig heiðarlegt fólk sem er dæmt norður og niður ef það vogar sér að fordæma græðgina sem grasserar. Hvernig ætli standi á því að prestar fái greitt meira fyrir vinnu sína en t.d. kennarar? Ég spyr vegna þess að ég hef áttað mig á því að annar hópurinn er nauðsynlegur en hinn fullkomlega óþarfur. Hvernig ætli standi á því að við erum hér með ofverndaða bænda- stétt sem getur ráðskast með hagi meðaljónsins? Hljótum við ekki að gera þá kröfu að jafnræði og jafnrétti sé virt – þrátt fyrir margbreytileika samfélagsflórunnar? Og fyrst við erum að tala um Jón og séra Jón, er eðlilegt að maður spyrji: Hvernig er hægt að velja mann einsog Jón Bjarnason í embætti ráðherra landbúnaðar- og sjávarútvegsmála? Jón setti kvótabraskara í nefndina sem á að finna bestu lausnina varðandi kvótann. Er þetta bara grín? Og svo grenjar hann einsog hvítvoðungur þegar hann fær ekki lengur að stunda sitt hagsmunapot. Ætlum við okkur að reka hér sam- félag sem hefur það eitt að leiðarljósi að vernda hagsmuni yfirstéttar smá- borgara og framsóknarmanna í öllum flokkum? Elítuhugsunin er á undanhaldi. Millistéttin, menntamennirnir, hug- sjónafólkið, allir sem minna mega sín og þeir sem virkilega trúa á upp- risu mannsandans, þurfa nú að taka höndum saman og eyða þeirri guð- dómlegu hræsni sem tryggir afætum og auðmönnum arð á meðan heiðar- lega fólkið herðir sultarólina og greiðir allar sínar álögur samviskusamlega. Er ekki kominn tími til að leita já- kvæðra lausna, sem eru heildinni í hag? Er flestir vilja varast tjón af völdum frekra manna þá sitja Jón og séra Jón í súpu örlaganna. Ó lafur Ragnar Grímsson, rakara- sonur frá Ísafirði, er hinn eini sanni bjargvættur þjóðar sinnar. Hann er í öllum skilningi frum- herji á hinum pólitíska vettvangi og í sömu andrá samnefnari margs þess besta og versta hjá þjóðinni. Hann er blanda af hugsjónamanni og lýðskrum- ara þannig að úr verður kokkteill sem flestir kunna að meta. Ólafur Ragnar komst til áhrifa með því að rífa kjaft við valdsmenn lands- ins og benda á alla veikleikana og spill- inguna sem var í ormétnu lýðveldinu. Hann kom sem stormsveipur inn á sviðið og hristi svo sannarlega upp í samfélaginu. Allir veittu eftirtekt þess- um grimma glókolli sem nýtti sér nýjan fjölmiðil sem sýndi fólk í bæði mynd og hljóði. Sjónvarpið kom til sögunnar og glókollur varð stór. Þessi ungi maður sem þjóðin dáðist að átti sér rætur á Vestfjörðum. Hann ólst upp á Ísafirði en vakti fyrst athygli á Þingeyri þar sem hann var í fóstri um tíma. Barnunginn var svo hamslaus að ekki var annað til ráða en að tjóðra hann í garðinum. Þetta voru fyrstu ein- kenni þess sem átti eftir að verða þegar hann fór hamförum um allt land og þaðan út í heim. Þótt böndin á Þingeyri hafi um tíma haldið drengnum í garð- inum áttu þau eftir að bresta. Ólafur Ragnar náði fljótlega þeim áfanga að verða fjármálaráðherra undir merkjum sósíalista. Þar uppgötvaði hann dásemdir einkavæðingar og æfði sig með því að færa útgerðarfélag úr ríkiseigu og til einkaaðila. Sporgöngu- menn hans notuðu uppskriftina seinna þegar þeir færðu ríkisbankana yfir til valinna einkaaðila úr vinahópum sín- um. Þá var Ólafur orðinn forseti og nýju bankaeigendurnir, björgólfar bank- anna, urðu fastagestir á forsetasetrinu á Bessastöðum. Og forsetinn þeyttist um heimsbyggðina á einkaþotum vina sinna í útrásinni. Útrásarvíkingarnir voru mættir og að sjálfsögðu var for- seti vor í stafni þeirrar skútu. Þá var kátt í höllinni. Engin bönd héldu glókolli lengur. En flest sem skýst upp kemur nið- ur aftur. Bankarnir fóru á hausinn og þjóðin horfði með fyrirlitningu á forseta sinn. Hann var krafinn svara um dekrið við þá sem komu landi íss og elda á kaldan klaka. Glókollur stóð fastur á rauðu ljósi. Það sýnir aðlögunarhæfni forset- ans að smám saman hvarf sú ímynd að hann væri forsöngvari útrásarinnar. Hann ferðaðist um landið og hlustaði á skammir fólksins. Og fyrr en varði var hann orðinn talsmaður fátækra í land- inu og því til viðbótar einn helsti stuðn- ingsmaður mótmælenda. Hann tók sér stöðu með fólkinu gegn ríkisstjórninni sem var til mikillar óþurftar í hvívetna. Þetta nýja hlutverk náði hæstu hæðum þegar eiginkona forsetans vildi ekki lengur ganga með silkihúfum lýðveldis- ins til þingsetningar en vippaði sér yfir í hóp mótmælenda. En nú virðist Ólafur vera á förum. Litli drengurinn sem sprengdi af sér böndin á Þingeyri er búinn að fara um allt samfélagið. Hann hefur farið um dýpstu dali og hæstu tinda. Nú hefur hann sagt að hugsanlega sé hann á förum. Hann muni nýtast þjóð sinni betur óbundinn af skyld- um og kvöðum forsetaembættisins. Jafnframt hefur hann gefið til kynna að hann sé tilbúinn að vera áfram ef meirihlutinn lofar fyrirfram að kjósa hann. Svarthöfði leggur til að forset- inn verði óbundinn. Það yrði mann- réttindabrot að halda áfram að fjötra hann. Helgarhlákan Þegar hefur tekið að hlána og ef spár standast þá er von á heldur meiri rigningu en liðna helgi víðast hvar á landinu. Það er því eins víst að svellin geri vart við sig og gott að fara varlega í umferðinni. Mynd Sigtryggur AriMyndin Mest lesið á DV.is 1 Edda kærir Hjört fyrir líkamsárás Uppnám á RÚV – „Þetta er búið að vera ömurlegt“ 2 Á von á sjötta barninuFyrirsætan Ósk Norðfjörð er komin fjóra mánuði á leið með sitt sjötta barn. 3 Ragna á ekki fyrir leigunni í London Flutt þangað með Ellu Dís – Fær ekki 20 milljónir frá Sjúkratryggingum Íslands. 4 Hjörtur rekinn í skyndi af RÚVÍþróttafréttamanninum Hirti Júlíusi Hjartarsyni hefur verið sagt upp á RÚV. 5 „Má búast við holskeflu lítilla typpa“ Lýður Árnason – á bloggsíðu sinni þar sem hann tjáir sig um mál málanna þessa dagana. Brjóstastækkanir og aðrar fegrunaraðgerðir. 6 Vill deyja áður en mynd er gerðGuðlaugur Friðþórsson segir það af og frá að hann sé sáttur við gerð myndarinnar Djúpsins 7 „Jón Gnarr má skammast sín“Úlfar Bjarki Hjaltason, starfsmaður Bjarkaráss, um þá ákvörðun borgarinnar að þroskahemlaðir starfsmenn ættu að greiða 610 krónur fyrir hverja máltíð. Umræða 25Helgarblað 13.–15. janúar 2012 Skáldið skrifar Kristján Hreinsson Svarthöfði Er ekkert svakalegur prinsippmaður Hann er góður maður Hugleikur Dagsson skrifar ekki fyrir Moggann né Libero. – DVSvanhildur Jakobsdóttir, móðir Önnu Mjallar, um Cal Worthington. – DV … stærra verkefni en við ætluðum Landsliðsmarkvörðurinn Björgvin Páll Gústavsson um Sportelítuna. – DV
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.