Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2012, Blaðsíða 22
22 Umræða 13.–15. janúar 2012 Helgarblað
Stoltur af að vera enn í starfi
Ragnar Sigurðarson: Ætlar
þú í forsetaframboð?
Jón Gnarr: Nei.
Tryggvi Jónsson: Ertu sáttur í
starfi sem borgarstjóri? Finnst
þér þú hafa þá getu sem þarf
til að taka á daglegum verkefnum
borgarinnar? Hefurðu íhugað að segja
af þér sem borgarstjóri og láta annan
taka við embættinu?
Jón Gnarr: Ég er mjög sáttur og
næ betri og betri stjórn á skyldum
mínum. Segja af mér? Nei, það
hefur aldrei hvarflað að mér. Ég er
of ábyrgur til þess.
Óðinn Ragnarsson: Hvers
vegna lætur þú grunn- og
leikskóla og aðra spara helling
á meðan Orkuveitan sleppur með
skrekkinn?
Jón Gnarr: Orkuveitan hefur
aldeilis ekki sloppið með skrekkinn.
Þar hefur þurft að fara í margar
og sársaukafullar aðgerðir, m.a.
uppsagnir á starfsfólki. Það er
ömurlegt.
Ebenezer Ásgeirsson: Ertu
stoltur af því að hafa orðið
borgarstjóri án þess að það
væri alvara í neinu hjá þér? Finnst þér
þú hafa tekið stjórnmál á hærra eða
lægra plan?
Jón Gnarr: Ég er mjög stoltur af
Besta flokknum og mér fyrir að
hafa haft það hugrekki sem þurfti
til að gera þetta. Hvort stjórnmálin
eru á hærra eða lægra plani, það
mun sagan dæma um.
Jens Kjartansson: Finnst þér
eðlilegt að 6 ára börn þurfi að
borga 350 kr. í strætó ef stakt
gjald er borgað, það kostar 2.800 kr. ef
4 manna fjölskylda ákveður að geyma
bílinn heima og taka strætó niður í bæ
og til baka?
Jón Gnarr: Gjaldskráin fyrir strætó
er hugsuð þannig að hvatt er til
jafnrar og mikillar notkunar. Lang-
tímakort eru miklu hagkvæmari en
stök fargjöld. Þetta er allt útpælt.
Fundarstjóri: Spurning barst í
pósti: Hvernig réttlættir þú að
þroskahamlaðir myndu greiða
hærra gjald í mötuneyti á vinnustaðn-
um Bjarkarási en borgarfulltrúar og
embættismenn borga í Ráðhúsinu og
Höfðatorgi?
Jón Gnarr: Ég réttlæti það ekki. Í
þessu tilfelli var um misskilning að
ræða og þetta hefur nú verið aftur-
kallað. Við ætlum að endurskoða
þetta í samvinnu við hagsmuna-
aðila og notendur þjónustunnar.
Heiða Sigmundsdóttir: Nú
var biðlað til fólks að aka ekki
á vetrardekkjum í borginni, því
borgin myndi sjá um að götur væru
færar. Ertu sáttur við árangurinn?
Jón Gnarr: Nei, við höfum hvatt til
þess að nota vetrardekk. Nagla-
dekk eru hins vegar ekki góð og alls
ekki betri en vetrardekk. Strætó
notar til dæmis ekki nagladekk.
Nagladekk eyða malbikinu og
skapa hættulegt svifryk.
Guðmundur Magnússon: Af
hverju er ekki fylgst með gulu
saltkössunum, að þeir séu
fylltir? Þeir hafa verið tómir nokkuð
lengi. Og hvað hefurðu fyrir þér í að salt
virki best í frosti?
Jón Gnarr: Ég veit ekki betur en að
það sé fylgst með kössunum og
auðvelt að bæta úr því. Takk fyrir
ábendinguna. Varðandi salt og
frostvisku mína þá hef ég hana frá
starfsmönnum borgarinnar.
Heiða Sigmundsdóttir:
Finnst þér ásættanlegt að um
70 manns hafi þurft að leita til
bráðamóttöku vegna þess að hvorki
var sandborið né saltað síðustu helgi?
Þetta gæti skapað skaðabótaskyldu á
borgina.
Jón Gnarr: Slys eru aldrei
ásættanleg en þau eru raunveru-
leiki. Við skulum athuga það að
slysavarðstofan sinnir ekki aðeins
Reykjavík heldur öllu höfuðborgar-
svæðinu. Um 80.000 manns búa
í hinum sveitarfélögunum. Ég vil
líka benda á það að hver fermetri
af borgarlandinu er ekki á ábyrgð
borgarinnar, t.d. einkalóðir og fyrir-
tækjalóðir.
Óskar Steinn: Er ekki kominn
tími til að koma fyrir gulum
kössum með sandi víðar, svo
almenningur geti aðstoðað við að
verjast hálku?
Jón Gnarr: Þetta er góð hugmynd
sem ég skal koma á framfæri.
Rafn Steingrímsson: Ég
keypti mér strætókort í fyrra,
og viku síðar var leiðarkerfinu
breytt þannig að ég gat varla notað
það lengur. Ég er til í að borga meira.
Hvers vegna bætið þið ekki þjónustuna
og tvöfaldið verðið?
Jón Gnarr: Strætó er alltaf að
reyna að bæta þjónustuna.
Notendur Strætós eru almennt
sáttir við þjónustuna. Kostnaðar-
hlutdeild notenda í Reykjavík er
lægri en í nágrannalöndum okkar.
Guðni Gíslason: The Wire
voru frábærir þættir. Takk fyrir
að vekja athygli á þeim. Ertu
með aðrar þáttaraðir í huga sem þú
getur mælt með?
Jón Gnarr: Game of Thrones?
Óðinn Ragnarsson: Af hverju
viltu afnema skólaskyldu?
Jón Gnarr: Ég myndi vilja að fólki
stæði til boða heimaskólun, eins og
í mörgum öðrum löndum. Sjálfur
hafði ég mjög slæma reynslu af
skólakerfinu vegna lesblindu og
athyglisbrests.
Ólafur Bárðarson: Mikið er ég
ánægður með að þið sáuð
sóma ykkar í að sleppa að
rukka fyrir mat á Bjarkarási á 50%
hærra verði en fyrir ykkur í Ráðhúsinu.
Þetta fólk á betra skilið. Þið eruð
aflögufær og getið hækkað þar.
Hilmar Elíasson: Er Jón Gnarr
geimvera eins og hann sagði
ekki alls fyrir löngu?
Jón Gnarr: Já. Við erum öll
geimverur.
Stefán Drengsson: Þú ert nú
fjallmyndarlegur maður og
orkumikill. Hvað færð þú þér í
morgunmat til að vera svona gordjöss?
Jón Gnarr: Ég borða hafragraut,
tek lýsi og fjölvítamín. Svo fer ég út
að labba með hundinn minn.
Unnsteinn Jóhannsson:
Hverju ertu stoltastur af
hingað til?
Jón Gnarr: Að hafa staðist mótlæti
og erfiðleika og vera enn í starfi. Ég
er mjög stoltur af því.
Pétur Jónsson: Hver yrði
kostnaðurinn ef borgin gæfi
öllum borgarbúum frítt árskort
í strætó? Myndi þetta ekki spara á
öðrum sviðum, eins og viðhaldi á
götum, hreinsunum o.fl.? Hefur þetta
verið reiknað út?
Jón Gnarr: Þetta er erfitt reikn-
ingsdæmi. Reykjavíkurborg rekur
Strætó í samvinnu við hin sveitar-
félögin þannig að við erum ekki
einráð um reksturinn.
Óðinn Ragnarsson: Hvers
vegna var ákveðið að
leikskólakennarar fengju ekki
laun í hádegishléi líkt og verið hefur?
Jón Gnarr: Þeir fá laun í hádegis-
hléi. Yfirborganir sem leikskóla-
kennarar höfðu haft í Reykjavík,
einu sveitarfélaga, gengu inn
í kjarasamninga. Það var hin
svokallaða Reykjavíkurleið
sem formaður félags leikskóla-
kennara talaði um. Það var alltaf
skýrt af hálfu samninganefndar
borgarinnar að ef launahækkunin
kæmi til myndi þessi yfirborgun
falla niður.
Birgir Olgeirsson: Er ekki
skynsamlegast og löngu
tímabært að sameina öll
sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu?
Jón Gnarr: Jú, það tel ég.
Ágúst Arnarsson: Hvenær
verður annað uppistand með
Jóni Gnarr ?
Jón Gnarr: Á næstu Gleðigöngu í
ágúst.
Óskar Thor: Hvar er
ísbjörninn?
Jón Gnarr: Hann er einn úti á ísnum
að bíða eftir því að verða skotinn,
því miður.
Sigrún Jónsdóttir: Er ekki
erfitt að verða svona mikið
fyrir neikvæðri umfjöllun í
fjölmiðlum þegar fólk vill bara einblína
á það sem miður fer? Hvernig heldurðu
andlegu jafnvægi í öllu þessu neikvæða
áreiti?
Jón Gnarr: Jú, það er erfitt. Ég sæki
mér andlega næringu í grín og tólf
spora kerfi AA-samtakanna. Svo er
ég taóisti.
Pétur Jónsson: Er fólk
almennt ánægt með sorphirðu
eftir breytingu?
Jón Gnarr: Já, ég held það. Við
erum að þróast í átt til þess sem
viðgengst í nágrannalöndum okkar.
Ég vil sjá meiri ábyrgð hjá fólki í
endurvinnslu sorps.
Örn Arnarson: Hvers vegna
var sundgjaldið hækkað?
Hvenær fáum við frítt
handklæði í sund eins og þú lofaðir?
Jón Gnarr: Það er rosalega dýrt að
reka sundstaði. Við verðum öll að
taka þátt í því. Auðvitað reynum
við að bjóða eins góða þjónustu og
við getum fyrir lítið fé. Ég næ ekki
handklæðunum að svo stöddu.
Gunnlaugur Sigurðsson:
Finnst þér stjórnmálafólk vera
spillt?
Jón Gnarr: Nei, almennt er það eins
og annað fólk, mjög misjafnt. Áður
en ég byrjaði hafði ég fordóma en
þeir hafa mikið lagast. Þetta er yfir-
leitt vel meinandi fólk. Stjórnmála-
menningin hér er hins vegar slæm
margra hluta vegna. Við höfum
reynt að breyta því.
Bryndís Antonsdóttir:
Hvenær á að hækka
húsaleigubætur i samræmi við
hækkandi húsaleigu?
Jón Gnarr: Ég er bara ekki með það
á hreinu.
Atli Fanndal: Fé er takmarkað
en eru litlar og ódýrar
breytingar ekki mögulegar til
að bæta þjónustu Strætós? T.d.
pirrandi í kulda að mega ekki taka
götumál með kaffi í strætó. Kostar lítið
en breytir miklu.
Jón Gnarr: Við erum sífellt að
fara yfir svona hugmyndir. Góð
ábending.
Albert Ingason: Jón, þú ert
flottur, og ég elska þig :*
Jón Gnarr: Takk sömuleiðis, Albert.
Egill Kristjánsson: Hvað
stendur helst í vegi fyrir því að
sameina sveitarfélögin á
höfuðborgarsvæðinu?
Jón Gnarr: Fólk er misjafnlega
hrifið af hugmyndinni. Ætli það sé
ekki helsta ástæðan.
Óðinn Ragnarsson: Hvað
myndi gerast ef allur
niðurskurður yrði afturkallaður
líkt og borgarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokks og Vinstri-grænna vilja?
Jón Gnarr: Tekjur borgarinnar
myndu dragast saman, kostnaður
aukast og þá þyrfti að draga úr
þjónustunni.
Gísli Halldórsson: Að
utanskildum Besta flokknum,
hvaða stjórnmálaflokkur
samræmist best þínum skoðunum í
dag?
Jón Gnarr: Enginn.
Hrannar Gunnarsson: Jón,
með hverjum heldur þú í
enska?
Jón Gnarr: Þeim sem er að tapa.
Gunnlaugur Sigurðsson:
Telurðu að stjórnmálamenn
gæti frekar hagsmuna
þrýstihópa eins og t.d. LÍÚ en
almennings?
Jón Gnarr: Ég held að það sé mis-
jafnt eftir fólki.
Ólafur Bárðarson: Er eitthvað
að frétta af ísbirninum? Er
hann eitthvað að koma? Og
átti ekki að koma útisvæði fyrir hunda
á Klambratúni ?
Jón Gnarr: Ísbjörninn er ekki á
leiðinni til Reykjavíkur. Næsti ís-
björn sem kemur til landsins verður
að öllum líkindum drepinn með
köldu blóði. Ísland er eina landið
í heiminum sem beitir þessum
frumstæðu aðferðum til að takast
á við þessi glæsilegu dýr. Varðandi
hundagerði í borginni þá er gert
ráð fyrir þeim í nýjum hundasam-
þykktum. Ég er ekki alveg viss um
hundagerði á Klambratúni en þau
munu koma.
Óskar Guðmundsson: Stendur
til að gera eitthvað í
leigubílaröðinni um helgar í
miðborginni? Núverandi staðsetning á
röðinni, við Lækjartorg, er hræðileg og
veldur töfum á umferð og slysahættu
Jón Gnarr: Já, þetta er til skoðunar.
Bróðir minn er leigubílstjóri og
hann talar ekki um neitt annað við
mig.
Gunnlaugur Sigurðsson: Ertu
með ADHD og ef svo er, hvernig
hefur það haft áhrif á líf þitt til
þessa?
Jón Gnarr: ADHD er ég. Það hefur
mótað allt mitt líf.
Bryndís Antonsdóttir: Hvað
finnst þér þið vera búin að gera
fyrir einstæða foreldra? Annað
en að hækka gjaldskrár? Og er
einhverra breytinga að vænta i
húsnæðismálum?
Jón Gnarr: Það er ný og metn-
aðarfull húsnæðisstefna í mótun
hjá borginni til að útvega fólki
leiguhúsnæði á sanngjörnu og
viðráðanlegu verði og til að bæta úr
húsnæðiseklu. Varðandi einstæða
foreldra þá er Reykjavík með
lægstu gjaldskrá á landinu fyrir þá
jafnt sem annað fjölskyldufólk.
Ásgeir Einarsson: Hver er
skoðun Besta flokksins á
aðskilnaði ríkis og kirkju?
Jón Gnarr: Aðskilja strax!
Unnsteinn Jóhannsson:
Verður Laugavegurinn aftur
göngugata næsta sumar?
Jón Gnarr: Það ætla ég rétt að
vona!
Guðmundur Franklín
Jónsson: Ætlar Besti að láta
rannsaka meinta spillingu
innar OR fyrr á árum?
Jón Gnarr: Núna stendur yfir
úttekt á OR. Borgarstjórn skipaði
sjálfstæða úttektarnefnd sem mun
skila niðurstöðum seinna í vetur.
Reynir Traustason: Hvernig
gengur reykingabindindið?
Jón Gnarr: Vel. Reykingar eru líka
hættulegar eins og öll tóbaks-
notkun.
Björn Björnsson: Styðurðu
Bubba sem forseta Íslands?
Jón Gnarr: Já. Ég myndi kjósa hann
byði hann sig fram.
Ólöf Hugrún Valdimars-
dóttir: Má eiga von á
leikverki/kvikmynd/
sjónvarpsþáttum byggðum á reynslu
þinni sem borgarstjóri þegar þú lætur
af störfum sem slíkur?
Jón Gnarr: Það tel ég mjög líklegt.
Óðinn Ragnarsson: Hvers
vegna þurfa borgarbúar að
fara sjálfir með jólatrén sín á
endurvinnslustöðvar ?
Jón Gnarr: Þeir keyptu trén og
geta því skilað þeim. Eða styrkt
íþróttafélagið sitt til að taka þau,
Jón Gnarr, borgarstjóri í Reykjavík, heimsótti DV á miðvikudag-
inn og sat fyrir svörum á Beinni línu í hálfan annan tíma. Hann
var bæði spurður erfiðra spurninga og skemmtilegra. Hann
upplýsti til dæmis að hann ætlar ekki í forsetaframboð, hann vill
flugvöllinn úr Vatnsmýri og Héraðsdóm Reykjavíkur af Lækjar-
torgi. Hann segir ADHD hafa mótað allt sitt líf og að hann hlakki
til að verða fimmtugur.
Nafn: Jón Gnarr.
Aldur: 45 ára.
Starf: Borgarstjóri í Reykjavík.
Menntun: Grunnskólapróf.