Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2012, Page 15
Fréttir 15Helgarblað 13.–15. janúar 2012
G
ustað hefur um Jens Kjartans
son lýtalækni síðustu daga,
en hann græddi silíkon
brjóstapúða frá franska
fyrirtækinu Poly Implant
Prosthesis (PIP), sem innihalda iðn
aðarsilíkon, í hundruð íslenskra
kvenna. Talið er að púðarnir rofni oft
ar en aðrir og iðnaðarsilíkonið er ætl
að til notkunar í húsgögn og snyrti
vörur, en ekki til ígræðslu í líkama.
Jens hefur gefið upp að um 440
konur sé að ræða á árunum 2000
til 2010. Samkvæmt heimildum DV
leikur þó grunur á að einhverjar kon
ur hafi greitt Jens undir borðið fyrir
aðgerðirnar, jafnvel án þess að vita
af því. Samkvæmt upplýsingum DV
óskaði hann í einhverjum tilvikum
eftir því að þær greiddu fyrir aðgerð
irnar með reiðufé gegn því að fá örlít
inn afslátt. Því er hugsanlegt að um
töluvert fleiri konur sé að ræða en
fram hefur komið. Ef miðað er við að
Jens hafi fyllt brjóst 440 kvenna með
PIPpúðum þá framkvæmdi hann
aðeins eina slíka aðgerð á viku á tíu
ára tímabili. Í ljósi þess að Jens hef
ur verið bæði farsæll og vinsæll lýta
læknir má setja spurningarmerki við
hve fáar aðgerðir hann segist hafa
framkvæmt.
Vegna orðróms af þessu tagi og
frétta af máli Jens síðustu daga hef
ur velferðarráðuneytið ákveðið að
senda fjármálaráðuneytinu erindi
til að meta hvort málið verði rann
sakað.
Breytir ekki réttarstöðu
kvennanna
Yfir sextíu konur, sem fengu um
ræddrar brjóstafyllingar hjá Jens,
hyggjast nú leita réttar síns. Þær
þjást margar hverjar af verkjum, út
brotum og öðrum einkennum sem
þær tengja við púðana. Saga Ýrr
Jónsdóttir, hæstaréttarlögmaður á
Vox lögmönnum fer fyrir hópmál
sókn kvennanna. DV bar undir hana
hvort það hefði einhver áhrif á rétt
arstöðu kvennanna ef í ljós kæmi að
þær hafi greitt svart fyrir aðgerðirn
ar, en hún telur svo ekki vera. Þar
sem Jens flutti sjálfur inn PIPpúð
ana í gegnum einkahlutafélag sitt
Jens Kjartansson ehf. sé erfitt fyrir
hann að halda því fram að hann hafi
ekki framkvæmt aðgerðirnar. Ekki
náðist í Jens þrátt fyrir ítrekaðir til
raunir.
Samkvæmt ársreikningi einka
hlutafélagsins Jens Kjartansson ehf.
árið 2010 var hagnaður félagsins
það ár tæpar 7,5 milljónir króna. Þá
var hrein eign þess í árslok árið 2010
tæpar 17,5 milljónir.
Með doktorsgráðu frá
Stokkhólmi
Jens er fæddur á Patreksfirði þann
16. ágúst árið 1951. Hann er sonur
Hrefnu Sigurðardóttur og Kjartans
Ingimundarsonar togaraskipstjóra.
Hann varð stúdent frá Menntaskól
anum í Reykjavík árið 1972. Þaðan lá
leið hans í læknisfræði í Háskóla Ís
lands þar sem hann lauk kandídats
prófi árið 1978. Hann útskrifaðist
sem sérfræðingur í lýtalækningum
frá Karólínska sjúkrahúsinu í Stokk
hólmi árið 1987 og með doktors
gráðu frá sömu stofnun árið 1988.
Á meðan hann var í sérfræðinám
inu framkvæmdi hann meðal ann
ars nokkrar kynskiptiaðgerðir. Loka
ritgerð hans fjallaði um blóðflæði til
húðgræðsluflipa að lokinni græðslu.
Farinn í veikindaleyfi
Jens hefur meðal annars verið
heilsugæslulæknir við Fjórðungs
sjúkrahúsið á Ísafirði, aðstoðar
læknir á Landspítalanum og við
Karólínska sjúkrahúsið. Þá var hann
yfirlæknir á St. Jósefsspítala um ára
bil. Síðustu ár hefur Jens verið yfir
læknir lýtalækningadeildar Land
spítalans og yfirlæknir á Domus
Medica þar sem hann er með einka
stofu.
Hann er nú farinn í fjögurra
mánaða veikindaleyfi frá störfum á
Landspítalanum. Jens óskaði sjálf
ur eftir leyfinu vegna veikinda sem
hann segir hafa ágerst vegna álags
ins sem hann hefur verið undir
upp á síðkastið. Hann tilkynnti yfir
mönnum spítalans um ákvörðun
sína á miðvikudaginn.
Kvæntist menntaskólaástinni
Jens kynntist eiginkonu sinni, Þór
eyju Björnsdóttur flugfreyju, í
Menntaskólanum í Reykjavík og
saman eiga þau sex börn. Hjónin
voru ekki saman í bekk.
Á heimasíðu sem sett var upp í til
efni 25 ára stúdentsafmælis árgangs
ins árið 1997 skrifaði Jens að það
besta frá menntaskólaárunum væri
að hann hefði fundið kvonfangið þar.
Íþyngjandi heimanám var hins vegar
það versta. Takmark hans fyrir 50 ára
stúdentsafmælið árið 2022 er að hafa
lokið farsælu lífsstarfi. Óhætt er að
segja að brjóstapúðamálið komi sér
illa fyrir Jens og komi hugsanlega til
með að varpa skugga á farsælan feril
hans hingað til.
Vildi bæta þjónustuna
Jens sagði í samtali við Smuguna í
vikunni að þegar hann var að hefja
feril sinn hefðu konur fengið ávís
un á brjóstapúða og sótt þá út í bæ.
Hann hafi hins vegar viljað bæta
þjónustuna og setti sig í samband
við franska fyrirtækið PIP sem hann
segir hafa haft gott orð á sér. Í kjöl
farið fór hann að flytja inn púðana
og kom sér upp lager af þeim. Jens
segist nokkrum sinnum hafa lánað
kollegum sínum púða ef þá vantaði
ákveðnar stærðir.
PIPpúðarnir sem Jens notaði eru
CEmerktir en ekki var sérstakt eftir
lit með innflutningi þeirra hingað til
lands, frekar en öðrum CEmerktum
vörum. Vottunarfyrirtæki votta fram
leiðslu á slíkum vörum og þau fyrir
tæki fá leyfi yfirvalda í hverju landi
fyrir sig. Ef vara hefur CEmerkingu
má flytja hana á milli allra EESland
anna án nokkurra hindrana. Í tilfelli
frönsku PIPverksmiðjunnar var það
þýskt vottunarfyrirtæki sem tók út
framleiðsluna.
Hafði samband við landlækni
Strax árið 2000 missti PIP leyfi til að
selja púðana á Bandaríkjamarkaði í
kjölfar athugasemda lyfjaeftirlitsins
þar í landi. Það var hins vegar ekki
fyrr en í mars árið 2010 að púðarnir
voru bannaðir í Evrópu.
Jens segist hafa sett sig í sam
band við landlæknisembættið þegar
ljóst var að púðarnir voru ekki við
urkenndir. Hann hafi ætlaði sér að
skrifa konunum bréf og upplýsa þær
um málið en landlæknir hafi talið
það óheppilegt vegna þess að ekki
hafi verið staðfest að púðarnir væru
hættulegir. Þær konur sem eru með
slíka brjóstapúða heyrðu því margar
fyrst af málinu í fjölmiðlum og urðu
eðli málsins samkvæmt skelfingu
lostnar. Nokkrar þeirra hafa stigið
fram í fjölmiðlum og lýst reynslu
sinni af púðunum.
Telur sig ekki bera fjárhagslega
ábyrgð
PIPfyrirtækið mun hafa framleitt
tvær gerðir af silíkonbrjóstafylling
arpúðum. Önnur gerðin innihélt
viðurkennt læknasilíkon en hin iðn
aðarsilíkon. Samkvæmt talsmanni
fyrirtækisins voru síðarnefndu púð
arnir seldir á afsláttarverði til kaup
enda. Því má ætla að Jens hafi fengið
púðana á hagstæðu verði. Gjaldskrá
hans er þó ekki lægri en annarra
lýtalækna sem nota aðra púða.
Jens telur sig ekki bera fjárhags
lega ábyrgð vegna málsins en seg
ist þó sem læknir vitaskuld bera
ábyrgð gagnvart heilsu kvennanna.
Íslenska ríkið hefur tekið þá
ákvörðun að bjóða öllum kon
um með PIPbrjóstapúða, sem eru
sjúkratryggðar hér á landi, upp á
ómskoðun þar sem kannað er hvort
þeir eru farnir að leka. Ef það er
raunin mun ríkið taka þátt í kostn
aði við að fjarlægja púðana sam
kvæmt almennum reglum um
greiðsluþátttöku hins opinbera.
Vilji konurnar fá nýja púða þurfa
þær hins vegar að greiða fyrir þá
sjálfar. Þá standa eftir allar þær kon
ur sem ekki eru með leka púða en
vilja losna við iðnaðarsilíkonið úr
brjóstunum.
Velferðarráðuneytið hefur
ákveðið að afla lögfræðiálits, meðal
annars varðandi ábyrgð vegna inn
flutnings og dreifingar PIPbrjóstap
úðanna og réttarstöðu kvennanna.
Þegar lögfræðiálit liggur fyrir verð
ur tekin ákvörðun um hvort ríkið
geri kröfu um endurgreiðslu kostn
aðar sem ríkið tekst á hendur vegna
þessa máls, en áætlaður kostnaður
ríkisins vegna málsins er áætlaður á
bilinu 800 þúsund til 6 milljónir.
Varpar skugga á ferilinn Jens hefur verið
einn vinsælasti lýtalæknir landsins um árabil.
Grunur leikur á að einhverjar konur hafi greitt Jens
undir borðið fyrir brjóstastækkunaraðgerðir.
Mynd: ÞorValdur Örn KriSTMundSSon
n Jens Kjartansson fyllti brjóst 440 kvenna með iðnaðarsilíkoni n Telur sig ekki bera fjárhagslega
ábyrgð n Hafi Jens brotið af sér hefur það ekki áhrif á réttarstöðu kvennanna n Varpar skugga á ferilinn
Sagðar hafa greitt
svart fyrir brjóstin
„Takmark hans fyrir
50 ára stúdents-
afmælið árið 2022 er að
hafa lokið farsælu lífs-
starfi.
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
blaðamaður skrifar solrun@dv.is