Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2012, Side 18
18 Fréttir 13.–15. janúar 2012 Helgarblað
spennu á milli þeirra. „Ég þekki
hann ágætlega og hef aldrei vitað
til þess að hann sé ofbeldisfullur.
Það getur verið dólgur í honum og
hann á náttúrulega ekki að drekka
vín en það er samt ekkert svona.“
Ónafngreindur lögreglumaður
sem DV ræddi við sagði að Edda
Sif hefði ekki verið stórslösuð en
að meintri árás hefði verið lýst sem
grófri.
Tók vel á móti henni
Í lok ágúst greindi Edda Sif sjálf
frá vináttu sinni við Hjört í sam-
tali við DV og sagði að hann hefði
tekið mjög vel á móti sér þegar
hún mætti til starfa. „Maður þarf
að finna fréttirnar, vinna þær og
klippa. Á fyrsta degi er þetta mikið
álag, það er margt að læra og kapp-
hlaup að ná því á réttum tíma. Ég
hugsa stundum um það hvernig
mér hefði liðið hefði ég ekki starf-
að fyrir Sjónvarpið áður. Ég þekkti
forritin sem eru notuð í vinnslunni
úr störfum mínum sem skrifta og
það hjálpaði.
Engu að síður var ég komin
upp í matsal með félaga mínum
Hirti Júlíusi íþróttafréttamanni
og sat þar stjörf og horfði út í
loftið og snerti varla á matn-
um. Hjörtur leit á mig og
spurði hvort mér litist svona
illa á þetta og hvort það væri
ekki í lagi með mig.“
Fylgt á bráðamóttökuna
Líkt og fyrr segir átti atvikið
sér stað á Grand Hótel. Þeg-
ar líða fór á kvöldið heyrðu
gestir í boðinu einhvern
skarkala og urðu þess var-
ir að Hjörtur hvarf á brott
og sömuleiðis Edda Sif
sem fór samkvæmt heim-
ildum DV upp á bráðamót-
töku í fylgd annars starfs-
manns RÚV. Hann vildi þó
ekkert láta hafa eftir sér þeg-
ar DV náði tali af honum og
sagðist ekki ætla að kommentera á
það þar sem hann vildi ekki tjá sig
um það sem gerðist í einkalífi sínu.
Þar sem atvikið átti sér stað á
og við salernin sáu fáir hvað
gerðist. Þó gæti svo farið
að annar íþróttafrétta-
maður, Haukur Harð-
arson, verði kallaður
sem vitni í málinu en
hann vildi ekki stað-
festa það. „Því miður.
Við ákváðum að tala
ekki við neina fjöl-
miðla,“ sagði Hauk-
ur og bætti því við að
hann teldi það lang-
best fyrir alla. Eins og
aðrir bentu á er málið
allt hið erfiðasta fyrir
íþróttadeildina
þar sem
hefur ríkt sterk og góð liðsheild.
Ofbeldi aldrei ásættanlegt
Annar sagði að málið allt væri
hið agalegasta fyrir stofn-
unina. Þetta væri flók-
in staða og sár fyrir
marga sem þar starfa.
„Þetta tekur líka
á tæknimennina.
Það er RÚV-hjarta í
þeim öllum. Þetta er
bara leiðindamál,“
sagði einn og ann-
ar bætti því við að
það myndi senni-
lega vera samstaða
um að þegja málið í
hel. „RÚV sem stofn-
un er mjög annt um
friðhelgi einka-
lífsins. Þar
sem
þetta er í þokkabót dóttir útvarps-
stjórans þykist ég nokkuð viss um
að það verði reynt að láta þetta
liggja í láginni.“
Viðkomandi taldi þó mikilvægt
að ofbeldi væri ekki þaggað niður
eða umborið, af hvað tagi sem það
væri. „Hvort sem hún átti upptök-
in eða hann, þá er ofbeldi aldrei
ásættanlegt.
Þarna var um yfirmann íþrótta-
deildar að ræða og íþróttamenn
eiga að vera fyrirmyndir varðandi
drengskaparlund en maður leggst
varla lægra en að berja annan ein-
stakling, ef það var það sem gerð-
ist. En það skiptir varla máli hvort
hann sló hana, hrinti henni eða
löðrungaði því það hefur verið nóg
fyrst hún fékk áverkavottorð. Hún
hefði aldrei fengið áverkavottorð
ef það hefði ekki séð á henni. Það
er aldrei í lagi.“
„Við erum öll í áfalli“
Aðrir sögðu að flestir sýndu því
skilning að Hjörtur hefði verið lát-
inn fara. „Þetta er ekki það sem
RÚV sem vinnustaður er.“
Allir sem DV ræddi við áttu
það sameiginlegt að vera í sjokki
vegna málsins og sögðu að al-
mennt væri samstarfsmönnum
brugðið. Þeim stæði ekki á sama.
„Við erum öll í áfalli.“
Þeir þekkja Hjört ekki af öðru
en góðu. „Þetta er ljúfur drengur
sem gott er að vinna með,“ sagði
einn. „Hann er sjálfsöruggur
og áberandi,“ sagði annar og
sá þriðji sagði að Hjörtur væri
toppmaður. „Ég þekki hann ekki af
öðru.“ Enn annar lýsti honum sem
ungæðislegum íþróttastrák.
Þá benti einn á að þetta væri
erfitt þar sem allir væru vinir og
öllum liði illa.
Fær knús þegar hún kemur
Edda Sif hefur ekki mætt til starfa
síðan þetta gerðist. Nokkrir höfðu
áhyggjur af því að málið gæti stað-
ið henni fyrir þrifum þegar hún
kemur aftur. Allir voru sammála
um að hún hefði staðið sig vel í
starfi og ætti heima á skjánum. „Af
því að það er talað um þessi vensl
þá verð ég að taka það fram að
hún stendur sig mjög vel. Það má
ekki horfa bara á kunningjasam-
félagið heldur verið líka að líta á
hæfileikana og hún hefur þá. Það
var tímabært að fá konu í íþrótt-
irnar og þegar upp er staðið finnst
mér ekkert að því að hún sé þarna.
Það má heldur ekki refsa fólki fyrir
uppruna sinn.“
Edda Sif sagði eitt sinn að hún
hefði alltaf haft áhuga á íþróttum
og henni þætti gaman að vinna á
fréttastofunni þar sem hún starf-
aði við hlið fólks sem hefði metn-
að fyrir starfi sínu. „Þetta er gef-
andi starf og ég er alveg húkkt
á því,“ sagði hún þá. „Hún hef-
ur okkar stuðning og við knús-
um hana þegar hún kemur,“ sagði
einn samstarfsfélaginn. „En þetta
er svo hræðilegt, ímyndaðu þér
hvernig þetta verður fyrir hana.
Íþróttahreyfingin heldur með sín-
um mönnum og Hjörtur er inni í
þeirri klíku.“ Enda er hann mjög
góður íþróttamaður og íþrótta-
fréttamaður sem nýtur virðingar á
skjánum. „Þeir þekkja Hjört nátt-
úrulega betur en hana. Þetta er
svo mikið karlavígi, þetta íþrótta-
fréttastarf. Þess vegna var svo
gaman að sjá konu fá þessa stöðu.“
Og eins og einn sagði: „Á endan-
um fennir yfir þetta eins og allt
annað.“
Mikill markvarðahrellir
Áður en Hjörtur vakti athygli fyrir góða frammistöðu á sjónvarpsskjánum
var hann þekktur meðal knattspyrnuáhugamanna fyrir afrek sín á knatt-
spyrnuvellinum. Hjörtur hóf feril sinn hjá Skallagrími í Borgarnesi og þótti strax
ljóst að hann væri mjög efnilegur. Á sínu fyrsta tímabili í efstu deild, árið 1997,
skoraði hann fimm mörk fyrir Skallagrím í þrettán leikjum. Félagið féll reyndar
úr deildinni en Hjörtur hélt áfram að spila með félaginu í fyrstu deildinni. Sum-
arið 1999 varð hann markahæsti leikmaður deildarinnar þegar hann skoraði 19
mörk og fór svo að hann gerði samning við ÍA að tímabilinu loknu. Hjörtur lék
þar við góðan orðstír í sjö ár og varð til að mynda markakóngur deildarinnar árið
2001 með fimmtán mörk í átján leikjum. Það tímabil urðu Skagamenn einmitt
Íslandsmeistarar í knattspyrnu. Hirti gekk ekki jafn vel að hrella markverði and-
stæðinga sinna eftir þetta tímabil og á næstu sex tímabilum með ÍA skoraði
hann samtals nítján mörk í 76 leikjum fyrir Skagaliðið.
Fyrir tímabilið 2007 ákvað Hjörtur að róa á önnur mið og fór svo að hann færði
sig yfir til Þróttar sem þá var í fyrstu deild. Hjörtur virðist hafa haft gott af því
að breyta um umhverfi því hann varð markakóngur fyrstu deildarinnar þetta
tímabilið með 18 mörk í 21 leik. Þróttarar komust upp í efstu deild og hélt
Hjörtur áfram að leika með félaginu þar, eða allt til ársins 2009 að hann skipti
yfir í Selfoss. Þar þótti hann leika ágætlega, skoraði sjö mörk í tíu leikjum en
ákvað að ganga aftur í raðir Skagamanna eftir aðeins eitt tímabil með Selfyss-
ingum. Sumarið 2010 skoraði Hjörtur 7 mörk í 21 leik með Skagaliðinu og sum-
arið 2011 skoraði hann 15 mörk í 18 leikjum og varð í þriðja sæti yfir markahæstu
leikmenn deildarinnar. Í haust ákvað Hjörtur að ganga í raðir Víkinga sem leika
í fyrstu deildinni. Hann var þó ekki með í leiknum sem fór fram á fimmtudags-
kvöld.
Leggur sig alltaf 100% fram
Knattspyrnumaður sem þekkir vel til Hjartar segir í samtali við DV að þó að
Hjörtur verði seint talinn í hópi með bestu knattspyrnumönnum Íslands hafi
hann ávallt lagt sig hundrað prósent fram fyrir þau félög sem hann hafi leikið
fyrir. Þá hafi hann lagt áherslu á að halda sér í góðu líkamlegu formi sem endur-
speglast í árangri hans í sumar þegar hann skoraði 15 mörk með Skagaliðinu
í fyrstu deild þrátt fyrir að vera á 37. aldursári. Hirti er einnig lýst sem miklum
baráttumanni inni á vellinum sem kunni að láta finna fyrir sér. Viðmælandi DV
segir að hann hafi þó aldrei haft það orð á sér að vera grófur inni á vellinum þó
hann hafi oft látið finna hressilega fyrir sér. Frá árinu 2001 hefur Hjörtur fengið
fjögur rauð spjöld inni á knattspyrnuvellinum sem þykir ekki mikið sé tekið mið
af þeim fjölda leikja sem Hjörtur hefur leikið, en þeir eru vel á þriðja hundrað.
Kallaði leikmann „Tyrkjadjöful“
Þó svo að Hirti sé ekki lýst sem grófum leikmanni hefur hann látið skapið
hlaupa með sig í gönur. Sumarið 2006 þegar Hjörtur lék með ÍA var hann
dæmdur í tveggja leikja bann fyrir uppákomu milli hans og Guðmundar Viðars
Mete, varnarmanns Keflavíkur, í leik á milli liðana. Þá kallaði Hjörtur Guðmund
„Tyrkjadjöful“ en faðir Guðmundar er af tyrkneskum ættum. Þá sagði Hjörtur
honum að koma sér heim.
Málið var litið mjög alvarlegum augum enda eiga kynþáttafordómar aldrei að
líðast í knattspyrnunni frekar en annars staðar. Hjörtur kom fram í Kastljósi
vegna málsins þar sem hann útskýrði sína hlið á yfirvegaðan hátt. Hann sagði
að Guðmundur hefði fyrr í leiknum hótað sér öllu illu og kallað móður hans
hóru. Hann sagðist engu að síður sjá eftir þessu og bað hann Guðmund afsök-
unar í kjölfar málsins. Þrátt fyrir það var Hjörtur óánægður með að fá tveggja
leikja bann og sagðist hafa vonað að hann fengi aðeins áminningu.
einar@dv.is„Það er svo klikkað
að hann er rekinn,
einn, tveir og þrír. Bara út
af því að hún fékk áverka-
vottorð.
Í óþægilegri stöðu Ráðning Eddu var umdeild á
sínum tíma. Nú þykir allt þetta mál enn viðkvæmara
og erfiðara en ella þar sem um dóttur Páls er að ræða.