Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2012, Side 20
Þórólfur Matthíasson, prófessor í hagfræði, útskýrir kenningu Lawrance:
Hrun er rökrétt afleiðing
„Þú getur ekki farið út í að byggja svona háar byggingar nema lóðaverðið
sé orðið það hátt að það réttlætir fermetraverðið uppi á toppi. Það gerist
rétt áður en blaðran springur,“ segir Þórólfur Matthíasson, hagfræðipró-
fessor við Háskóla Íslands, þegar hann er beðinn um að útskýra kenningu
Andrews Lawrence. Þórólfur rifjar upp eftirminnileg ummæli eins
fremsta fjármálakreppufræðings heims, Roberts Aliber, sem kom hingað
til lands árið 2007. Eftir að hafa séð alla byggingarkranana á höfuð-
borgarsvæðinu sagði hann að kreppa myndi senn skella á.
Þórólfur segir að eðli málsins samkvæmt sé gerð háhýsa feykilega
kostnarsöm; undirstöður, lyftur, innviðir, neyðarútgangar og fleiri ein-
stakir þættir kosti margfalt meira en í lægri byggingum. „Eignaverð, þar
með talið lóða og húseigna, þarf að vera í blóma þannig að þetta er alveg
rökrétt afleiðing af gangi bólunnar.
Þeir sem sitja með sín Excel-skjöl og reikna út tekjur af byggingunni fá
alveg rétt út. Ástæðan er sú að lóðaverð og húseignaverð er komið svo
hátt. Ef menn gera ráð fyrir að þetta haldi áfram er hægt að setja upp
rekstraráætlun fyrir þetta háhýsi sem gengur upp,“ segir Þórólfur og
bætir við að á stöðum eins og á Manhattan eða í Chicago séu þetta oft
síðustu lóðirnar sem hægt er að komast yfir.
Eins og Robert Aliber spáði réttilega um hrundi íslenska fjármálakerfið
á haustmánuðum 2008. Þá var lóða- og húseignaverð í hámarki og
sprakk bólan að endingu. Þórólfur bendir á að menn hafi verið að flýta
sér mikið þegar til dæmis Höfðatorgið reis, en eins og greint var frá 2009 skyggir turninn á innsiglingarvita á gamla Sjó-
mannaskólanum. „Þá er mönnum farið að liggja býsna mikið á.“
20 Erlent 13.–15. janúar 2012 Helgarblað
Vilja sköllóttar Barbie-dúkkur
n Telja að dúkkur geti styrkt sjálfstraust krabbameinssjúkra barna
M
ikill þrýstingur hefur verið
settur á framleiðanda Bar-
bie, Mattel, en beiðnin er
óvenjuleg. Aðstandendur
krabbameinssjúkra barna vilja að
fyrirtækið framleiði sköllótta Bar-
bie-dúkku til að styrkja sjálfstraust
barna og einstaklinga sem missa
hárið í erfiðum krabbameinsmeð-
ferðum.
Fordæmi eru fyrir framleiðslu
á dúkkunni því í fyrra framleiddi
Mattel eina slíka fyrir fjögurra ára
telpu sem hafði misst allt hárið
þegar hún undirgekkst lyfjagjöf
vegna krabbameins. Líkt og svo oft í
þessum tilfellum hefur verið stofn-
uð Facebook-síða málstaðnum til
stuðnings og hafa ellefu þúsund
manns skráð sig á síðuna.
Forsvarsmenn verkefnisins
segja þetta vera gert sérstaklega
til stuðnings ungum stúlkum sem
hafa misst hárið vegna veikinda
eða hafa jafnvel horft upp á mæður
sínar gera það. Þeir telja þetta geta
styrkt sjálfstraust þeirra og auð-
veldað þeim að takast á við veik-
indin. Tracey Kidd, móðir ungrar
stúlku sem berst við krabbamein,
segist styðja framtakið heilshugar.
„Það er oft of mikil áhersla lögð á
það hvernig hárið á litlum stúlkum
er og sérstaklega hjá börnum með
krabbamein. Það er mikilvægt að
þeim líði vel og hafi gott sjálfstraust
á meðan þau takast á við veikindin.“
Verði slík Barbie-dúkka framleidd
myndi það gjörbylta þeirri ímynd
Barbie sem Mattel hefur hingað til
framleitt, en Barbie er yfirleitt ansi
lokkaprúð.
Gagnrýnisraddir hafa heyrst
vegna málsins og telja margir að
framtakið missi marks. Gagnrýn-
endur segja að krabbameinssjúk
börn þurfi á peningum að halda
svo vísindamenn geti fundið lækn-
ingu. Lausnina sé ekki að finna í
Barbie-dúkkum. Talsmenn barátt-
unnar fyrir sköllótta Barbie segjast
vonast til þess að Mattel láti ágóð-
ann renna, að minnsta kosti að ein-
hverju leyti, til krabbameinssjúkra
barna. Mattel hefur ekki sagt til um
það hvort framleiðandi Barbie taki
áskorunni og hefji framleiðslu.
K
reppa virðist vera fylgifisk-
ur bygginga háhýsa. Þetta
er mat breska fjárfesting-
arbankans Barclays Capi-
tal, dótturfélags Barclays
Group. Til eru fjölmörg dæmi þessa
efnis, ráðist var í byggingu Empire
State-byggingarinnar í New York
skömmu áður en kreppan mikla
skall á haustið 1929. Þá var ráðist
í byggingu núverandi hæstu bygg-
ingar heims, Burj Khalifa-turnsins
í Dúbaí, skömmu áður en fursta-
dæmið fór næstum í þrot. Flest há-
hýsi í dag eru byggð í Kína og hef-
ur hávær umræða verið uppi um
framtíð kínverska efnahagskerf-
isins. Sérfræðingar telja að með
miklum framkvæmdum sé verið að
keyra upp hagvöxtinn og afleiðing-
arnar verði slæmar til lengri tíma.
Leiðrétting í hagkerfinu
„Oft eru hæstu byggingar heims
einfaldlega myndbirting bólu í há-
hýsagerð, endurspeglar undarlega
skiptingu fjár og yfirvofandi leið-
réttingu í hagkerfinu,“ segir í skýrslu
Barclays Capital en fjárfestingar-
bankinn hefur gefið út háhýsavísi-
tölu (e. skyscrapers index) á hverju
ári frá árinu 1999. Vísitalan er byggð
á hugmynd Andrews Lawrance,
fjármálasérfræðings hjá Dresdner
Kleinwort Wasserstein, sem varp-
aði fyrrgreindri kenningu fram árið
1999, að bygging háhýsa væri oft
merki um yfirvofandi kreppu. Taka
skal fram að í dag starfar Lawrance
hjá Barclays og var hann einn af höf-
undum umræddrar skýrslu. Í skýrsl-
unni er bent á fleiri dæmi þar sem
raunin hefur verið þessi. Elsta dæm-
ið er bygging Equitable Life-bygg-
ingarinnar en framkvæmdum við
hana lauk árið 1873. Í kjölfarið fylgdi
fimm ára efnahagskreppa. Bygg-
ingin var rifin árið 1912.
Meðal annarra dæma má nefna
Willis-turninn í Chicago, sem áður
var þekktur undir nafninu Sears-
turninn, en hann var byggður árið
1974, skömmu áður en olíukreppa
skall á í Bandaríkjunum og teng-
ing Bandaríkjadals við verð á gulli
var afnumin. Og árið 1997 var lok-
ið við byggingu Petronas-tvíbura-
turnanna í Malasíu, skömmu áður
en asíska efnahagskreppan skall á.
Uggur í Bretlandi
Breska ríkisútvarpið, BBC, fjallaði
um málið á dögunum og í um-
fjölluninni kom fram að framan-
greindar staðreyndir vektu ugg í
Bretlandi. Ástæðan er sú að nú
stendur yfir bygging háhýsis í
London, The Shard, en þegar fram-
kvæmdum við það lýkur verður það
hæsta bygging Vestur-Evrópu, eða
rúmlega þrjú hundruð metra hátt.
Það er hins vegar kínverska ból-
an sem sérfræðingar hafa mest-
ar áhyggjur af. Af öllum háhýsum
í heiminum sem nú eru í bygg-
ingu er yfir helmingur í Kína, sam-
kvæmt skýrslu Barclays. Ástæðan
er sú að spáð er að fasteignaverð í
Kína muni falla um allt að tuttugu
prósent í stærstu borgum landsins
á næstu tólf til átján mánuðum.
„Sem betur fer er enginn skýja-
kljúfur í byggingu sem áætlað er að
verði stærri en Burj Khalifa,“ seg-
ir í skýrslu Barlcays en þar er sér-
staklega rætt um Kína og Indland.
Eins og fram kemur fyrr í greininni
standa Kínverjar nánast fyrir fjölda-
framleiðslu á skýjakljúfum – og það í
fleiri en einni borg og fleiri en tveim-
ur. Áætlanir gera ráð fyrir að á næstu
árum muni fjöldi skýjakljúfa í Kína
allt að því tvöfaldast.
Höfundurinn, Andrew Lawrence,
segir að áform Kínverja veki ugg.
Eftirspurn eftir fasteignum í Peking
og Sjanghæ hafi minnkað verulega
undanfarin misseri og nú þegar hafi
fasteignaverð lækkað um fimm til
tuttugu prósent, eftir því hvar fast-
eignirnar eru.
Og á Indlandi er ástandið engu
betra þó að Indverjar séu ekki jafn
stórhuga og Kínverjar. Þrátt fyrir að
Indland sé næstfjölmennasta ríki
heims eru aðeins tveir skýjakljúfar í
landinu. Samkvæmt skýrslu Barclays
eru þó fjórtán slíkir í byggingu. Annar
þeirra, Tower of India, verður næst-
hæsti skýjakljúfur heims en smíði við
hann stendur yfir í Mumbai. Í skýrsl-
unni er bent á að svokölluðum óvirk-
um lánum (e. non-performing loans)
hafi fjölgað um þriðjung á síðasta ári.
Óvirk lán eru lán sem eru í vanskil-
um og ekki er greitt af. „Ef sagan end-
urtekur sig eru líkur á að þessi bygg-
ingarbóla springi,“ segir Lawrance og
bætir við að þetta gæti gerst á næstu
fimm árum.
Skýjakljúfar boða kreppu
n Kínverjar byggja helming allra háhýsa n Hagfræðingur segir að hrun í kjölfar byggingar háhýsa sé í raun rökrétt
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
„Þú getur ekki farið
út í að byggja svona
háar byggingar nema
lóðaverðið sé orðið það
hátt að það réttlætir fer-
metraverðið uppi á toppi.
Empire State Hæsta bygging Banda-
ríkjanna reis skömmu áður en kreppan mikla
skall á þar í landi.
Myndband
vekur reiði
Myndband sem sýnir bandaríska
hermenn kasta þvagi á lík nokk-
urra talibana hefur vakið mikla
reiði, jafnt innan Bandaríkjanna
sem utan. Ekki liggur fyrir hverjir
eru á myndbandinu eða hvar þar
var tekið en Sky-fréttastofan grein-
ir frá því að um sé að ræða banda-
ríska landgönguliða.
Hamid Karzai, forseti Afgan-
istans, hefur fordæmt hegðun
landgönguliðanna og segir hana
„skammarlega“.
Á myndbandinu heyrist einn
hermannanna segja „… eigðu
góðan dag“, meðan hann kastar
af sér vatni á eitt líkið. Talsmað-
ur Bandaríkjahers sagði að málið
yrði rannsakað til fulls.
Gift í 61 ár –
létust sama dag
Bandarísk hjón, Richard og
Nancy Trimmer, létust bæði
síðastliðinn sunnudag en þau
höfðu verið hamingjusamlega
gift í 61 ár. Richard hafði dvalið
á sjúkrahúsi undanfarnar vikur
en hann greindist með lungna-
krabbamein í nóvember.
Tengdadóttir hjónanna segir
í samtali við The Evening Sun
að Nancy hafi tekið því illa og
átt erfitt með að vera ein heima
fyrir á meðan eiginmaðurinn
var á sjúkrahúsinu.
Í síðustu viku var Nancy
flutt á sjúkrahús vegna hjarta-
verks. Henni hrakaði hratt og
snemma á sunnudag lést hún.
Þegar fjölskyldan fór á sjúkra-
húsið til að tilkynna Richard að
eiginkona hans væri látin hafði
honum einnig hrakað mikið.
Tólf tímum eftir andlát Nancy
lést Richard. Tengdadóttir
hjónanna segir að þau hafi ver-
ið mjög hamingjusöm og þeim
hafi líklega verið ætlað að fara
á sama tíma.
Leigumorðingi
átti að drepa
elskhuga
Dómstóll á Englandi hefur dæmt
26 ára konu, Samönthu Cadge, í
sextán ára fangelsi fyrir að ráða
leigumorðingja til að drepa fyrr-
verandi unnusta hennar. Unn-
usti konunnar, Adam Harsent,
hafði slitið sambandinu skömmu
áður og varð Samantha afbrýði-
söm þegar Adam hóf samband
með fyrrverandi vinkonu hennar.
Hún setti sig í samband við mann,
Marwan Goodridge, sem sagðist
vera reiðubúinn að myrða Adam
fyrir tíu þúsund pund, eða tæp-
ar tvær milljónir króna. Marw-
an tókst ekki ætlunarverk sitt
en hann skaut Adam nokkrum
skotum með þeim afleiðingum að
hann lamaðist. Marwan var einnig
dæmdur í fangelsi og þarf hann
að dúsa á bak við lás og slá í níu ár
hið minnsta.
Ólík staðalímyndinni Sköllótt
Barbie myndi hrista upp í þeirri ímynd
sem Barbie hefur hingað til haft.