Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2012, Side 28

Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2012, Side 28
28 Viðtal 13.–15. janúar 2012 Helgarblað B íllinn rennur niður eftir Ás- vallagötunni þar sem við rífum okkur upp úr hjólför- unum og leggjum bílnum í næsta snjóskafli. Sigtryggur Ari Jóhannsson er með í för. Hann er ljósmyndari á blaðinu en kom ekki bara til þess að taka myndir. Hann langaði líka til að heilsa upp á Þórar- in og ræða við hann um líf og dauða, sorg og gleði. Hann missti góðan vin þegar Þórarinn missti son og hefur sterkar taugar til fjölskyldunnar. Tíkin Trýna tekur geltandi á móti okkur. Þórarinn brosir þegar hann býður okkur velkomin og bendir okkur á að setjast í stofuna en Trýna lætur sig hverfa. Hún veit vel að hún má ekki fara upp í sófa en stelst stundum til þess þegar enginn er heima. Eins og áðan, svo Þórarinn byrjar á að hreinsa hundahárin úr sófanum, býður okkur kaffi og kem- ur sér vel fyrir. Hann er með roða í kinnum, ferskur eftir leikfimina, enda nýkom- inn heim þegar við mætum. Tvisvar í viku æfir hann með leikfimisflokkn- um AGGF, Afrekshóp Gauta Grétars- sonar fimleikastjóra. „Gauti er alveg snillingur í að viðhalda neistanum. Hann er hugsjónamaður sem veit hvað hann er að gera. Annars vegar miðast þetta að því að liðka menn sem eru farnir að gamlast og hins vegar að því að efla þol og styrk. Ég hef verið flokksmaður frá 1999.“ En það er ekki allt. Þórarinn hleypur líka helst þrisvar í viku, allt að tíu kílómetrum í senn. Einu sinni á ári bætir hann þó í og skellir sér í hálft maraþon. „Það finnst egóinu vera hápunktur ársins,“ segir hann stoltur. Myndir frá gamalli tíð Ást Þórarins á menningararfinum verður öllum ljós sem ganga inn á heimili hans. Að sjálfsögðu er bóka- skápur í stofunni en ofan á skápnum má sjá gamlan kistil og fleiri tréhluti, meðal annars það sem blaðamanni sýnist vera askur en reynist vera hlandkoppur. Á veggjum eru ljós- myndir frá gamalli tíð, til dæmis af foreldrum hans þar sem þau sitja ung og brosandi við bakka Thames í fyrstu utanlandsferð Halldóru. Myndina tók myndasmiður sem átti leið fram hjá og smellti af gegn gjaldi og sendi hana síðan til landsins. Þar eru einnig myndir af öfum og ömm- um, börnunum, tengdaforeldrun- um og systkinunum, þeim Þórarni og Ólöfu á þríhjóli fyrir utan Þjóð- minjasafnið. Þá prýða listaverk aðra veggi. Einn er lagður undir seríu frá Sig- rúnu systur, reyndar með einni við- bót frá yngsta syninum. Á öðrum vegg hangir teikning tengdamóð- urinnar af eiginkonunni og svo eru verk gömlu meistaranna á víð og dreif. Sum þeirra fékk Þórarinn í arf, eins og Kjarval sem hangir fyrir ofan sófann. Alnafni Þórarins og afi fékk myndina frá KEA á sjötugsafmæli sínu með þökk fyrir vel unnin störf, en hann var lengi stjórnarformaður félagsins. Langaði í venjulegt heimilisfang Þótt Þórarinn sé enginn sérstakur sérfræðingur í myndlist segist hann alla tíð búa að þekkingu sem síaðist smám saman inn á meðan hann lék sér á loftinu í Þjóðminjasafninu þar sem Listasafn Íslands var þá staðsett. Hann þekkir því yfirleitt handbragð gömlu meistaranna um leið og hann sér verkin. Þórarinn bjó í Þjóðminjasafninu í 18 ár. Flutti inn eins árs og flutti út árið 1968 þegar faðir hans varð for- seti og fjölskyldan settist að á Bessa- stöðum. Þaðan fór hann til Svíþjóðar í nám og þegar hann kom aftur bjó hann meðal annars um skeið á Sól- eyjargötu 1, þáverandi húsi foreldra sinna, en það vill svo til að þar eru nú skrifstofur forsetaembættisins. Hann hafði því mestanpart búið í opin- berum byggingum hérlendis áður en hann settist að á Ásvallagötunni þar sem hann hefur nú haldið til í rúm þrjátíu ár. „Mér fannst gaman að búa í Þjóðminjasafninu en mig lang- aði þó oft að hafa venjulegt heim- ilisfang,“ segir Þórarinn og hikar. „Þegar ég gaf upp heimilisfang í skólanum kallaði það alltaf á sömu brandarana – hvort ég væri safn- gripur. Þá þurfti ég að hlæja kurt- eislega sem er þreytandi til lengd- ar. Samt eru örlög fólks stundum svona og ég lendi sjálfur í því að segja brandara sem fólk hefur heyrt fimmhundruð sinnum áður. Og fyrst ég bjó ekki í venjulegu íbúðarhúsi huggaði ég mig við það að búa í húsi með koparþaki. Mér þóttu það ógurleg fínheit,“ segir hann kankvís. Ekkert merkilegt að vera forseti Að öðru leyti fékk hann hefðbund- inn uppvöxt í Vesturbænum. Fór í sveit á sumrin og sinnti ýmsum störfum. Gekk í Melaskóla, Haga- skóla og Menntaskólann. „Sem þá þurfti ekkert að kalla MR eða í Reykjavík því það var enginn annar menntaskóli í bænum. Það var ekki fyrr en ári seinna sem MH byrjaði. Þetta leið allt áfram í hamingju og velsæld. Lífið var ósköp ljúft.“ Hann var glaður drengur en ró- legur. „Það var enginn sérstakur djöfulgangur í mér. Ég var afskap- lega lítill og hafði hægt um mig.“ Í sjötta bekk urðu breytingar á hlutverki fjölskyldunnar og hún flutti á Bessastaði. Þar sem Þórar- inn tók ekki virkan þátt í opinberu starfi foreldra sinna upplifði hann það ekki mjög sterkt að hann væri sonur forsetans. „Það getur vel ver- ið að fólk úti um allan bæ hafi hugs- að þannig um mig, sérstaklega á ákveðnu tímabili, en ég veit ekkert um það og hef engan áhuga á að setja mig inn í það. En það voru aðr- ir tímar þá. Séð og heyrt var ekki til.“ Sjálfur upplifði hann enga stór- kostlega breytingu á lífi sínu. „Ekki nema að því leyti að við þurftum að flytja úr bænum og það varð lengra að fara í skólann. Fjölskyldan leit ekki þannig á að þetta væri eitthvað til að miklast af. Jú, vissulega var þetta óvenjulegt ævintýri í sögu fjölskyldunnar en foreldrar mínir gengu bara í þetta eins og hvert annað starf sem þeim væri trúað fyrir. En þetta var ekkert til að stæra sig af eða þess háttar. Mér finnst miklu merkilegri sú staða sem pabbi hefur í íslenskri fornleifa- fræði og að eftir hann liggi klassísk verk á því sviði. Ég held að það sé líka það sem honum þótti mestu varða. Það er ekkert merkilegt út af fyrir sig að vera forseti.“ Myndi ekki gelta Hann hefur allavega ekki minnsta áhuga á því. Hann getur heldur ekki leynt undrun sinni þegar hann heyr- ir að lesendur DV hafi nefnt hann á nafn sem næsta forsetaefni. „Ég hef ekki séð þetta,“ segir hann, „en ég treysti því að þið séuð að segja mér satt.“ Hann heldur áfram: „Ef fólk er að hugsa þetta í alvöru þá hefur það sýnt mér þá lofsverðu tillitssemi að blanda mér ekkert í það. Ef einhverj- um dytti í hug að nefna þetta við mig myndi ég ekki særa viðkomandi með því að gelta að þeim. Með eins kurt- eisum hætti og mér væri unnt myndi ég bara segja nei og þar með væri málið útrætt. Auðvitað hef ég sterkar taugar til staðarins. Þar hóf ég til dæmis minn búskap og hjúskap í hjáleigunni sem svo hét. Núna er búið að rífa hana svo þetta er ekki sami staðurinn og áður. Þeir Bessastaðir sem ég þekkti eru eiginlega ekki lengur til. Það er búið að gjörbreyta öllu.“ Geymdu hross Stefáns frá Möðrudal Bessastaðastofa var endurbyggð og gömlu húsin rifin. „Á bak við Bessa- staðastofu voru lengi útihús og þess háttar. Þar var lítil íbúð sem var köll- uð hjáleigan. Nú er búið að byggja eitthvað annað þar en ég veit ekki hvað það er. Ég þekki ekki svo vel til þarna lengur. En þetta er auðvitað skemmti- legur staður og kvöldfagurt mjög. Svo er Bessastaðanes ótrúlegt flæmi sem fáir vita af. Í raun er þar fullkom- ið flugvallarstæði, en mátti ekki nýta þannig. Í tíð foreldra minna voru þar hross um tíma. Stefán frá Möðrudal hringdi í pabba og spurði hvort hann mætti ekki geyma hrossin sín í nesinu. Það var auðsótt mál, hann kom með hrossin og pabbi leit eftir þeim. Öðru hverju hringdi Stefán svo og spurði hvort pabbi hefði nokkuð séð þann brúna,“ segir Þórarinn og hlær. „Svo borgaði hann með myndum. Ein er hér frammi á gangi. Herðubreið að sjálfsögðu.“ Skyndilega rýkur Trýna upp með látum og geltir að glugganum. Þór- arinn lætur það ekki á sig fá, segir að sennilega hafi köttur gengið fram hjá. Hún veit ekkert verra en ketti og má ekki sjá eða heyra í þeim án þess að gelta. Þá skiptir engu máli þótt hann sé í næstu götu. „Ef hún sér kött þegar við förum út að ganga á hún það til að nánast slíta af manni handlegginn. Hún þolir þá ekki!“ Stundum gengur ekkert upp Ritstörfin eiga hug hans allan. Alla daga gengur hann til verka líkt og hann hafi verið ráðinn til starfa. Fyrir hádegi sinnir hann eigin verkum og fram eftir degi. Þá snýr hann sér að öðru, eins og því að snara Shake- speare yfir á íslensku, fyrst Lé kon- ungi og nú Macbeth fyrir Þjóðleik- húsið. Í millitíðinni þýddi hann reyndar verk Ingimars Bergman, Fanný og Alexander, sem er nú á fjölunum í Borgarleikhúsinu. „Það er verk sem mér þykir vænt um,“ segir Þórarinn sem bjó lengi í Svíþjóð. Hvað um það, meira um ritstörf- in: „Ég hef reynt að temja mér að skrifa á hverjum degi í stað þess að bíða eftir því að andinn hellist yfir mig og þetta komi í gusum. Ef ég væri alltaf að bíða eftir því að komast í „Söknuðurinn hverfur aldrei“ Hann ólst upp á Þjóðminjasafninu og flutti síðan á Bessastaði. Hann er sonur forseta og þegar leitin að næsta forseta lýðveldisins hófst var hann nefndur á nafn. Því fer þó fjarri að Þórarinn Eldjárn vilji feta í fótspor föður síns að þessu leyti. Í hjarta hans býr skáldagyðja og hugur hans er við listina sem hjálpaði honum að takast á við sorgina þegar hann missti tvo elstu syni sína með skömmu millibili. Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir ingibjorg@dv.is Viðtal M y n d ir S iG tr y G G u r a r i „Þegar ég gaf upp heimilisfang í skól- anum kallaði það alltaf á sömu brandarana – hvort ég væri safngripur. Vandamál rithöfunda „Þetta gengur samt misvel. Stundum er ég ekki vel upplagður. Það koma alltaf tímabil þar sem mér gengur illa og ekkert gengur upp.“ Myndir SiGtryGGur ari JóHannSSon

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.