Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2012, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2012, Blaðsíða 34
34 | Ættfræði Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson kjartan@dv.is 13.–15. janúar 2012 Helgarblað B ent fæddist í Árósum í Dan- mörku. Hann lauk stúdents- prófi frá MR 1943 og B.Sc.E.- prófi frá Wharton School of Finance and Commerce við Pennsylvaniu-háskóla í Fíladelfíu í Bandaríkjunum 1945. Bent hóf störf í viðskiptaráðuneyt- inu 1947, var deildarstjóri og fulltrúi skömmtunarstjóra 1947–50, fulltrúi hjá póst- og símamálastjóra 1950–53, starfsmaður Metcalfe Hamilton og síðar Hedric Grove á Keflavíkurflug- velli 1953–57, fulltrúi hjá Rafmagns- veitum ríkisins 1957, deildarstjóri þar 1961 og fjármálastjóri þar 1978– 84. Hann hefur síðan stundað ýmis verðbréfaviðskipti. Bent var trúnaðamaður Versl- unarmannafélags Reykjavíkur og ASÍ á Keflavíkurflugvelli 1954–57, sat í stjórn Skrifstofu- og verslunar- mannafélags Suðurnesja og LÍV og hefur setið í ýmsum nefndum á veg- um iðnaðarráðuneytisins. Þá hefur hann setið í stjórnum ýmissa hluta- félaga. Bent hefur stofnað þrjá sjóði sem starfræktir eru innan Háskóla Íslands. Sá fyrsti var stofnaður til minningar um Óskar Þórðarson og er veitt úr honum til náms í barna- lækningum. Annar sjóðurinn var stofnaður til minningar um Þorstein Sch. Thorsteinsson og Bergþóru Pat- ursson en úr honum er veitt til náms í lyfjafræði, en þriðji sjóðurinn er stofnaður í nafni Bents og konu hans, Margaret, og er veitt út honum til höfuðs einelti. Þá stofnaði hann sjóð við Landspítala háskólasjúkrahús sem veitt er úr til hjarta- og lungna- sjúkdóma. Bent og eiginkona hans dvöldu oft langdvölum yfir vetrartímann í Orlando í Bandaríkjunum á árunum 1995–2002. Fjölskylda Bent kvæntist 23.6. 1946 Margaret Ritter Ross Wolfe, f. 18.7. 1924, svæf- ingarhjúkrunfræðingi. Hún er dóttir Charles D. Wolfe, verslunarmanns í Greenville í Ohio í Bandaríkjunum, og Caroline Ritter Faust einkaritara. Börn Bent og Margaret: Gunnar Bent Sch. Th., f. 13.4. 1947, skipstjóri í Reykjavík, og á hann þrjú börn; Sus- an Auður Sch. Th., f. 1.9. 1950, fé- lagsfræðingur í Odense í Danmörku; Carole Ann Sch. Th., f. 22.3. 1952, leikskólakennari, búsett í Kópavogi og á hún einn kjörson; Guðrún Mar- grét Sch. Th., f. 28.3. 1958, námsráð- gjafi á Selfossi, gift Símoni Ólafssyni verkfræðingi og eiga þau eina dótt- ur; Ósk Sólveig Sch. Th., f. 20.7. 1960, bankastarfsmaður, búsett í Kópa- vogi, og á hún þrjú börn; Þorsteinn Sch. Th., f. 28.7. 1961, stýrimaður, búsettur í Reykjavík og á þrjú börn; Ástríður Þóra Sch.Th., f. 16.8. 1970, lögfræðingur hjá ESA í Brussel en maður hennar er Karl Einarsson við- skiptafræðingur. Systir Bents, sammæðra: Auður Helga, f. 26.3. 1931, d. 22.4. 1991, var auglýsingastjóri hjá Ríkissjónvarpinu. Hálfbróðir Bents, samfeðra: Gunnar, f. 29.5. 1923, d. 13.6. sama ár. Kjörbörn Þorsteins og k.h., Berg- þóru Patursson, eru Sverrir Sch. Th., f. 18.6. 1928, jarðfræðingur á Höfn í Hornafirði; Unnur Sch. Th., f. 18.9. 1930, húsmóðir í Reykjavík. Foreldrar Bents voru Þorsteinn Scheving Thorsteinsson, f. 11.2. 1890, d. 23.4. 1971, lyfsali í Reykjavík- urapóteki, og Guðrún Sveinsdóttir, f. 1.3. 1892, d. 18.8. 1967, húsmóðir. Ætt Bróðir Þorsteins var Magnús, faðir Davíðs Sch. Th. framkvæmdastjóra. Þorsteinn var sonur Davíðs Sch. Th. læknis í Reykjavík, hálfbróður Péturs Jens Th., kaupmanns og útgerðar- manns á Bíldudal. Davíð var sonur Þorsteins Th., verslunarstjóra á Þing- eyri og b. í Æðey, Þorsteinssonar. Móðir Þorsteins lyfsala var Þór- unn Stefánsdóttir Stephensen, prófasts í Vatnsfirði, Péturssonar Stephensen, pr. á Ólafsvöllum, Stef- ánssonar Stephensen, amtmanns á Hvítárvöllum Ólafssonar, stiftamt- manns í Viðey, ættföður Stephen- senættar. Móðir Stefáns í Vatnsfirði var Gyðríður, systir Sigríðar, ömmu Jósefínu, ömmu Matthíasar Johann- essen skálds, og systir Þuríðar, lang- ömmu Vigdísar Finnbogadóttur. Gyðríður var dóttir Þorvalds, pr. og skálds í Holti, Böðvarssonar, pr. í Holtaþingum, Högnasonar presta- föður á Breiðabólstað, Sigurðssonar. Móðir Þórunnar var Guðrún, systir Páls Melsteð sagnfræðings. Guðrún var dóttir Páls Melsteð amtmanns og Önnu Sigríðar Stefánsdóttur, amt- manns á Möðruvöllum, Þórarins- sonar, ættföður Thorarensenættar, Jónssonar. Móðir Önnu Sigríðar var Ragnheiður Vigfúsdóttir Sch., sýslu- manns á Víðivöllum, Hanssonar Sch., klausturhaldara þar Lauritz- sonar, sýslumanns á Möðruvöllum, ættföður Scheving-ætta. Guðrún, móðir Bents, var systir Maríu Jóhönnu, móður Jóns Skag- an sóknarprests. Guðrún var dótt- ir Sveins, útvegsb. á Hrauni á Skaga, Jónatanssonar, b. á Þangskála, Jón- atanssonar, b. í Víkum, Ólafssonar. Móðir Sveins var María Magnúsdótt- ir, b. á Fjalli á Skagaströnd, Jónsson- ar, pr. í Vesturhópshólum, Mikaels- sonar. Móðir Guðrúnar Sveinsdóttur var Guðbjörg Jónsdóttir, hreppstjóra á Hóli á Skaga, Rögnvaldssonar. Bent heldur upp á daginn í faðmi fjölskyldunnar. S veinn fæddist í Ytra-Kálfs- skinni og ólst þar upp. Hann lauk landsprófi frá Lauga- skóla, stundaði nám við Rysl- inge Hojskole í Danmörku, lærði húsasmíði í Reykjavík, lauk sveinsprófi 1959 og öðlaðist meistara- réttindi 1962. Sveinn hefur stundað húsasmíði og búskap í Ytra-Kálfsskinni frá 1959, hefur starfrækt ferðaþjónustu að Ytri- Vík frá 1983 og síðar jafnframt í Kálfs- skinni, ásamt fjölskyldu sinni, stofnaði Sportferðir ehf. ásamt sonum sínum 1994, var einn af stofnendum Tréverks hf. á Dalvík 1962 og byggingarfélags- ins Kötlu ehf. 1985. Þá hefur hann stundað kennslu við Árskógarskóla. Sveinn sat í stjórn ungmenna- félagsins Reynis, var formaður þess, sat í stjórn og var formaður UMSE, sat í stjórn Búnaðarsambands Eyjafjarð- ar 1969–84 og var formaður 1973–84, búnaðarþingsfulltrúi 1978–94, Stétt- arsambandsfulltrúi 1979–84, sat í hreppsnefnd Árskógshrepps 1970–94 og var oddviti 1985–94, sat í bæjar- stjórn Dalvíkurbyggðar 1998–2002, var skólanefndarformaður Árskógar- skóla í aldarfjórðung, formaður Fræðsluráðs Eyjafjarðarsýslu 1968–74 og safnaðarfulltrúi Stærri-Árskógs- kirkju í nokkur ár. Sveinn var formaður Félags frí- merkjasafnara á Akureyri og frí- merkjafélagsins Akka á Dalvík og ná- grenni, sat í stjórn Félags íslenskra frímerkjasafnara og Landssam- bands íslenskra vélsleðamanna, rit- stýrði blaðinu Vélsleðanum í tvö ár, sat í stjórn Sparisjóðs Árskógsstrand- ar 1980–90, í stjórn Sparisjóðs Svarf- dæla frá 1993–2004 og formaður hans frá 1995 og hefur setið í stjórn ýmissa hlutafélaga, s.s. Ferðaþjónustu bænda ehf. Fjölskylda Sveinn kvæntist 30.8. 1958 Ásu Mar- inósdóttur, f. 9.2. 1932, ljósmóður. Foreldrar hennar voru Marinó Steinn Þorsteinsson, bóndi í Engihlíð á Ár- skógsströnd, og Guðmunda Ingibjörg Einarsdóttir ljósmóðir. Börn Sveins og Ásu: Jón Ingi Sveinsson, f. 5.6. 1959, framkvæmda- stjóri hjá Kötlu ehf., búsettur í Kálfs- skinni, kvæntur Guðbjörgu Ingu Ragnarsdóttur skrifstofumanni og eru börn þeirra Ásrún Ösp, Sveinn Elías og Einar Oddur; Margrét Sveinsdóttir, f. 27.9. 1960, framkvæmdastjóri eign- astýringar Arion banka, búsett á Sel- tjarnarnesi, gift Óla Birni Kárasyni, vþm. og framkvæmdastjóra, og eru börn þeirra Eva Björk, Kári Björn og Ása Dröfn; Erla Gerður Sveinsdóttir, f. 15.4. 1966, læknir, búsett í Garðabæ, gift Geir Borg, þróunarstjóra hjá Gag- arin ehf. og eru synir þeirra Jökull Elí Borg og Björn Víkingur Borg; Marinó Viðar Sveinsson, f. 11.9. 1971, fram- kvæmdastjóri Sportferða ehf. en fyrrv. sambýliskona hans er María Braga- dóttir hjúkrunarfræðingur, og er sonur þeirra Gabríel Daði. Langafabörn Sveins eru Anton Dagur Björgvinsson, f. 11.4. 2008, og Jón Alex Sveinsson, f. 14.11. 2010. Hálfsystkini Sveins, samfeðra: Brynhildur Jónsdóttir, f. 24.6. 1916, d. 6.7. 2008, var garðyrkjukona, búsett í Hveragerði; Gunnhildur, f. 24.6. 1916, d. 17.10. 2001, bjó á Árskógsströnd og í Keflavík; Helga Steinunn, f. 2.2. 1921, búsett í Hrísey; Bergrós, f. 2.2. 1921, búsett í Hafnarfirði; Einar, f. 12.11. 1922, d. 26.10. 2006, var útfararstjóri, búsettur í Kópavogi; Þórey, f. 30.8. 1927, d. 21.1. 2008, fiskvinnslukona og leiðbeinandi, búsett á Árskógsströnd. Foreldrar Sveins: Jón Einarsson, f. 12.10. 1892, d. 21.11. 1981, bóndi í Ytra-Kálfsskinni, og k.h., Jóhanna Mar- grét Sveinbjarnardóttir, f. 4.12. 1893, d. 16.12. 1971, húsfreyja. Ætt Jón var bróðir Steingríms Eyfjörð, læknis á Siglufirði. Jón var sonur Ein- ars, b. á Hömrum og á Bakka í Öxna- dal, bróður Jónasar í Stóragerði, afa Magnúsar ráðherra, Baldurs, rektors KHÍ, og Halldórs Þormar sýslumanns Jónssona. Einar var sonur Jóns, b. á Barká Ólafssonar, bróður Einars, lang- afa Einars Olgeirssonar alþm. Einar var einnig afi Sigríðar, langömmu Stef- áns Baldurssonar, fyrrv. þjóðleikhús- stjóra. Móðir Einars á Hömrum var Þórey Gísladóttir, systir Myrkár-Helgu. Móðir Jóns var Rósa Loftsdóttir, b. á Skáldalæk, bróður Hallgríms, lang- afa Guðjóns B. Ólafssonar, forstjóra SÍS. Loftur var sonur Hallgríms, b. á Stóru-Hámundarstöðum Þorláksson- ar og Gunnhildar Loftsdóttur. Móðir Rósu var Guðrún Jónsdóttir. Jóhanna Margrét var systir Sigur- veigar, ömmu Sigurjónu, konu Hall- dórs Ásgrímssonar, fyrrv. forsætis- ráðherra. Jóhanna Margrét var dóttir Sveinbjörns, b. á Hillum Björnssonar, og Hallfríðar Sigvaldadóttur. Sveinn verður að heiman á afmæl- isdaginn. Sveinn Elías Jónsson ferðaþjónustubóndi í Ytra-Kálfsskinni á Árskógsströnd Bent Hillman Sveinn Scheving Thorsteinsson fyrrv. fjármálastjóri Rafmagnsveitna ríkisins 90 ára sl. fimmtudag 80 ára á föstudag Henny Hermannsdóttir danskennari H enný fæddist í Reykjavík. Hún hefur dansað frá því hún man eftir sér. Á barns- aldri og unglingsárunum stundaði hún nám í sam- kvæmisdönsum hjá föður sínum jafnhliða tólf ára námi í klassískum ballett og jassballett við Þjóðleik- húsið. Eftir gagnfræðapróf stundaði hún nám í danskennslu á Íslandi, við Carl- sens Institut í Kaupmannahöfn 1967, í London 1968 og aftur í Carlsens Institut þar sem hún lauk prófum. Hún kenndi síðan dans við Dansskóla Hermanns Ragnars til 1997. Henný starfaði hjá Loftleiðum við flugafgreiðsluna á Keflavíkurflug- velli 1971–74, var flugfreyja hjá Loft- leiðum og síðar Flugleiðum 1973– 82 með hléum, rak tískuverslun í Reykjavík í fimm ár og var fararstjóri hjá Sunnu á Mallorca sumarið 1977. Henný var kjörinn Miss Young International á samnefndri fegurð- arsamkeppni í Tokyo 1970 og fór í þriggja mánaða sýningarferð til Ástr- alíu í kjölfar þess. Hún er einn af að- alstofnendum Módelsamtakanna og starfaði við tískusýningar hér á landi í u.þ.b. tuttugu ár. Henný sat í stjórn Danskennara- sambands Íslands um árabil og hef- ur starfað í ýmsum nefndum á veg- um Dansráðsins. Fjölskylda Fyrsti maður Hennýjar er Guðmund- ur S. Kristinsson, f. 28.12. 1936, d. 22.1. 1993, flug- afgreiðslumaður. Dóttir Hennýj ar og Guðmundar er Unnur Berg- lind, f. 3.12. 1977, danskennari og grunnskólakennari, búsett í Suður- Afríku, en maður hennar er Daniel Frances Jeppi, strútabóndi og lög- fræðingur og er sonur þeirra Daniel Frances. Annar maður Hennýjar var Gunnar Árnason, f. 14.2. 1957, d. 23.5. 1997, sýningarstjóri. Sonur Hennýjar og Gunnars er Árni Henry, f. 26.9. 1982, ráðgjafi hjá Sjóvá, búsettur í Kópavogi, en sam- býliskona hans er Anna Lára Sigurð- ardóttir, starfsmaður hjá Credit Info og eru börn hans Alexander Svavar, f. 7.12. 2000, og Henny Lind, f. 8.5. 2011. Eiginmaður Hennýjar er Bald- vin Berndsen, f. 27.2. 1943, fram- kvæmdastjóri. Foreldrar hans: Ewald Berndsen, f. 30.8. 1916, d. 8.4. 1998, framkvæmdastjóri í Reykjavík, og k.h., Jóhanna Sigríður Baldvinsdóttir, f. 1916, d. 2.3. 2005, húsmóðir. Börn Baldvins eru Baldvin Örn, f. 3.7. 1962, framkvæmdastjóri en kona hans er Berglind Helgadóttir og eiga þau þrjú börn; Jóhanna Sigríð- ur, f. 26.4. 1964, stöðvarstjóri; Ragn- ar Baldvin, f. 26.2. 1976, skristofu- stjóri, búsettur í Bandaríkjunum en kona hans er Jen Fernandez; Margrét Lára, f. 21.8. 1979, skrifstofustjóri í Bandaríkjunum en maður hennar er Patrick Amos; Ewald, f. 12.5. 1981, veitingastjóri, búsettur í Bandaríkj- unum. Bræður Hennýjar: Arngrímur, f. 1.12. 1953, framkvæmdastjóri Ís- lenskra ævintýraferða, búsettur í Reykjavík; Björn, f. 26.8. 1958, rekstr- arfræðingur, búsettur í Garðabæ. Foreldrar Hennýjar: Hermann Ragnar Stefánsson, f. 11.7. 1927, d. 10.6. 1997, danskennari í Reykjavík, og k.h., Unnur Ingeborg Arngríms- dóttir, f. 10.1. 1930, danskennari og framkvæmdastjóri Módelsamtak- anna. Ætt Hermann var sonur Stefáns Sveins- sonar frá Hvammstanga, verkstjóra á Kirkjusandi, og Rannveigar Ólafs- dóttur. Unnur er dóttir Arngríms, skólastjóra Melaskólans Kristjáns- sonar, b. á Sigríðarstöðum, bróðir Helgu, móður Jóns Péturssonar, prófasts á Kálfafellsstað. Kristján var sonur Skúla, b. á Sigríðarstöð- um Kristjánssonar og Elísabetar Þorsteinsdóttur. Móðir Elísabetar var Guðrún Jóhannesdóttir, b. í Leyningi Halldórssonar. Móðir Arngríms var Unnur Jóhannsdótt- ir, b. á Skarði í Grýtubakkahreppi Bessasonar. Móðir Unnar Arn- grímsdóttur var Henny Othelie, f. Helgesen, í Bergen, húsmóðir. 60 ára á föstudag
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.