Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2013, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2013, Qupperneq 10
„Við gerum þetta frá hjartanu“ 10 Fréttir 5.–7. apríl 2013 Helgarblað n Draumasetrið að verða að veruleika eftir mikla vinnu n Áfangaheimili fyrir fíkla n Um þrjátíu manns þegar fluttir inn n „Temmilega líbó“ segir íbúi V ið Faxaflóahafnir í Reykja- vík er að finna reisulegt hús sem nýlega fékk nýtt hlutverk. Áfangaheimilið Draumasetrið er þar að verða að veruleika eftir þrotlausa vinnu sjálfboðaliða undanfarna mánuði. Þegar DV bar þar að garði sólríkan eftirmiðdag var nóg um að vera. Rykmettað loftið bar þess merki að miklar framkvæmdir væru í gangi. Víða mátti sjá málningar- dósir, spýtur og annars konar dót. Enda hafa hér verið unnin stór- virki undanfarna þrjá mánuði. Á þeim tíma hefur húsnæðinu verið gjörbreytt og þrátt fyrir að vera ekki fullklárað hefur það nú þegar byrj- að að þjóna endanlegum tilgangi sínum; að verða áfangaheimili fyrir fólk sem misst hefur fótanna í viðj- um fíknar. Um 30 manns eru flutt inn og á næstu vikum og mánuðum munu enn fleiri bætast í hópinn og strax eru komnir biðlistar. Allir sem koma að rekstri heimilisins gera það í sjálfboðastarfi og af hugsjón að sögn forstöðumannsins. Spurning um vilja „Þetta er allt að koma hjá okkur,“ segir Ólafur Ólafsson sem er for- stöðumaður heimilisins ásamt Elínu Örnu Hannam. Hann segir það hafa verið vegna úrræðaleysis stjórnvalda sem hann ákvað fyrir nokkrum mánuðum síðan, ásamt Elínu og fleira góðu fólki, að reisa áfangaheimili fyrir fólk sem er að koma úr áfengis og vímuefna- meðferð. Þörfin fyrir slíkt heimili hafi verið afar brýn. „Þetta er bara spurning um vilja. Það er ömurlegt að horfa upp á ástandið. Það vant- ar eftirfylgni fyrir þetta fólk. Það kemur úr meðferð og helmingur- inn veit ekki hvert hann á að fara að meðferð lokinni. Þá fer það aft- ur í neyslu,“ segir Ólafur og tek- ur fram að það sé auðvitað gríðar- lega kostnaðarsamt fyrir ríkið þegar fólk fari í meðferð sem skilar ekki árangri. Hann segir þau hafa mætt litlum skilningi hjá velferðarsviði borgarinnar og illa gangi að ná í fólk þar sem hafi eitthvað um hlutina að segja. Reyndar hafi borgarstjórinn, Jón Gnarr, strax sýnt starfi þeirra áhuga en aðrir svari ekki. „Við erum ekki að fara fram á neitt sem þeir eiga ekki að skaffa. Það er fáránlegt að þurfa að bíða í þrjá mánuði til að komast að hjá þeim þarna í Borg- artúni. Á sama tíma og við erum að taka á móti fjölda heimilislauss fólks hérna,“ segir Ólafur og segir þörfina brýna. Ólafur segir tilganginn með opnun áfangaheimilisins vera þann að hjálpa fólki að komast á beinu brautina á ný. Hann segir marga vera á mjög slæmum stað og eiga erfitt með að fóta sig á ný eftir að koma úr hörðum heimi fíknarinnar. Efnin sem fólk sé að taka séu alltaf að verða harðari. „Sprautufíknin er verst en hún er orðin mjög algeng, miklu algengari en áður. Það er þessi rítalínfíkn sem er svo hrika- leg og fíkn í fleiri lyfseðilsskyld lyf,“ segir Ólafur. Drakk kassa af bjór á dag Þau sem standa að starfinu þekkja það sjálf vel að koma undir sig fót- unum á ný eftir meðferð. Sjálf- ur fór Ólafur í sína fyrstu meðferð árið 1981. „Síðan aftur árið 1985 og var þá edrú í ellefu ár. Ég fór svo til Svíþjóðar og ætlaði að vera þar í mánuð en endaði á að vera þar í tíu ár á sulli,“ segir Ólafur. Hann var orðinn illa farinn af áfengis- neyslunni sem stjórnaði öllu hans lífi. „Ég var aðallega að sulla í bjór, maður hélt það teldi ekki neitt en ég var kominn í kassa á dag. Ég var hættur að ná skjálftanum úr mér. Ég fór með miklar væntingar til Svíþjóðar en það var mikið sjokk að falla. Þá hugsar maður; fyrst ég er fallinn þá tek ég bara einn dag enn en ég tók tíu ár. Það var grátið á hverju kvöldi og ég sagði við sjálfan mig að nú færi ég heim,“ segir hann. Það kom svo að því að hann komst á beinu brautina á ný, sneri við blaðinu og hélt aftur til Íslands. Undanfarin ár hefur hann einbeitt sér að því að hjálpa öðrum fíklum að öðlast von um nýtt líf. Fyrst í gegnum United Reykjavík, sem er að sögn Ólafs hjálparstarf byggt á trúarlegum grunni og hann er í forsvari fyrir, og svo nú í gegnum Draumasetrið. „Við gerum þetta frá hjartanu. Það besta sem þú gerir er að hjálpa öðrum. Að sjá líf kvikna á ný, það er ólýsanlegt. Sumir eru að ná árangri sem þeir hafa aldrei náð áður,“ segir hann. Sjá ekki um fjármálin Ólafur segir þau hafa fjármagnað áfangaheimilið með styrkjum en margir hafi lagt þeim lið. Fjölmargir sjálfboðaliðar hafa unnið myrkr- anna á milli við að standsetja heim- ilið en auk þess hafa fyrirtæki gefið gólfefni, málningu, húsgögn og svo mætti lengi telja. „Það hafa margir vilja leggja okkur lið og við höfum fengið fullt gefins. Bæði frá einstak- lingum og fyrirtækjum,“ segir hann. Ólafur segir þau ekki koma að fjármálum heimilisins, þau hafi fólk í því. „Um leið og fólk fór að styrkja okkur þá bað ég endurskoðanda að sjá um öll fjármál. Svona heimili hafa farið illa eins og við þekkjum. Það eru peningar, heiður og kynlíf sem eyðileggur svona. Við ákváð- um að opna þetta bara sjálf og láta bara hlutina gerast. Við erum með og verðum að hafa rosalega góðan hóp sem horfir yfir öxlina á okkur,“ segir hann. Í fullu starfi annars staðar Fólkið sem býr á áfangaheimilinu er á öllum aldri en á það sameigin- legt að hafa barist við vímuefnafíkn. Á rölti okkar um húsið hittum við til að mynda mann sem er á fimm- tugsaldri og hefur lengi barist við Bakkus. Hann hefur tekið virkan þátt í uppbyggingu hússins og er í óða önn að smíða þegar okkur ber að. „Hann kom úr meðferð en byrj- aði aftur að drekka, svo þurrkaði hann sig upp sjálfur á gistiskýlinu og kom svo hingað. Það kemur svo í ljós að hann er svona handlaginn,“ segir Ólafur og sýnir herbergin sem eru nánast tilbúin á þriðju hæð hússins sem hann hefur meðal annars unnið að. Ólafur segir það auðvitað koma fyrir að fólk falli en þá sé því yfirleitt gefið tækifæri í eitt skipti til að snúa aftur sé það tilbúið til þess. Inni á heimilinu er fólki gefið tækifæri til þess að fóta sig á ný og læra að komast út í raun- veruleikann aftur. „Herbergin eru öll með nýjum rúmum og eru rúm- góð, fólk getur svo komið með eigin hluti líka en sumir eiga ekki neitt,“ segir Ólafur og bendir á að fólk sé á mjög misjöfnum stað þegar það kemur úr meðferð. Í einu horni hússins er að finna barnadót og segir Ólafur að þar komi til með að vera barnahorn og íbúar sem séu foreldrar geti boðið börnum sínum í heimsókn. „Sumir eru með börnin sín í helg- arumgengni og geta þá haft þau hér hjá sér.“ Ólafur tekur fram að þau séu í miklu samstarfi við allar ríkisstofnanir, þar á meðal barna- verndarnefnd. Þeirra takmark sé einfaldlega að hjálpa fólki. Á heimilinu eru engir starfs- menn á launum enn sem komið er en Ólafur segir að vissulega sé þó þörf á því. „Sumir hérna eru á það vondum stað að þeir þurfa mikla umönnun,“ segir hann en sjálf- ur sinnir hann fullu starfi í mat- sölu BSÍ með fram starfinu hjá Draumsetrinu. „Ég mæti snemma á morgnana til vinnu og er mættur hér um hádegisbil. Auðvitað er hætta á að maður keyri sig út en þetta bara gefur manni svo mikið og er svo gaman.“ n Viktoría Hermannsdóttir blaðamaður skrifar viktoria@dv.is „Við gerum þetta frá hjartanu. Það besta sem þú gerir er að hjálpa öðrum. Draumasetrið Draumasetið er áfangaheimili þar sem er gert ráð fyrir að 40 manns geti búið. Hver og einn íbúi borgar leigu og í sameiningu sjá þeir um húsverk og annað tilfallandi. Dvalartími fólks á heimilinu er talinn æskilegur um 6–18 mánuðir en þó er misjafnt hvað hver og einn þarf að vera lengi. Unnið er eftir 12 spora kerfi AA-samtakanna. Þeir sem búa á heimilinu þurfa að vera edrú og hafa trúnaðarmann. Á öllum þremur hæðum hússins eru herbergi, auk klósetta, sturtuaðstöðu, sameiginlegs eldhúss, þvottaaðstöðu og setustofa. Á fyrstu hæð hússins stendur svo einnig til að reisa kaffihús. Framkvæmdir Eins og sjá má hafa miklar framkvæmdir verið í húsinu undanfarna mánuði. Þar hefur öllu verið breytt. „Að sjá líf kvikna á ný, það er ólýsanlegt

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.