Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2013, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2013, Blaðsíða 26
26 Umræða 5.–7. apríl 2013 Helgarblað Við bjóðum góða þjónustu islandsbanki.is | Sími 440 4000 E N N E M M / S ÍA / N M 5 11 4 2 Vilborg pólfari átti sér þann stóra draum að ganga á suðurpólinn og hún gerði hann að veruleika með því að setja sér markmið. Íslandsbanki býður viðskiptavinum upp á frábæran fyrirlestur með Vilborgu þar sem hún segir frá því hvernig lítil markmið geta á endanum orðið að stórum sigri. Hér býðst unglingum og foreldrum kjörið tækifæri til að hlusta saman á uppbyggilegan fróðleik. #svaltmarkmið Það er svalt að setja sér markmið Vilborg Arna Gissurardóttir, pólfari Við bjóðum þér að hlusta á Vilborgu pólfara í Háskólabíói: mánudaginn 8. apríl kl. 18 miðvikudaginn 10. apríl kl. 18 Skráðu þig á islandsbanki.is/fyrirlestur og þú mátt taka einn vin með. „Ég fann sjálfa mig á fjalli“ Vill gera stjórnmál skemmtilegri Heiða Kristín Helgadóttir, frambjóðandi Bjartrar framtíðar í Reykjavík norður, svaraði spurningum lesenda á Beinni línu. Þorsteinn Harðarson: Af hverju á ég að kjósa Bjarta framtíð?  Heiða Kristín Helgadóttir Ef þig langar að kjósa fólk sem vill leggja sig fram um að búa til betra samfélag sem er stöðugt, fjölbreytt og skapandi þá erum við þitt fólk. Níels Ársælsson: Sæl og blessuð Heiða. Hver er afstaða BF til núverandi kvótakerfis við fiskveiðar?  Heiða Kristín Helgadóttir Við viljum að þjóðin fái að njóta arðs af auðlindum sínum. Við erum hlynnt aflamarkskerfinu, en það þarf hins vegar að tryggja nýliðun í kerfinu. Þannig finnst okkur sumt ágætt og að annað megi bæta. Birgir Olgeirsson: Hvert er uppáhalds- lagið þitt með Ríó Tríó?  Heiða Kristín Helgadóttir Nú auðvitað hið æsihressa lag „Á pöbbinn!“ darrrdarrrraraaaarrrarrraaaaa Guðmundur Gíslason: Hvað ætlar Björt framtíð sér að gera til að leysa úr skuldavanda heimilanna?  Heiða Kristín Helgadóttir Við erum opin fyrir leiðum sem eru raunhæfar og viljum ekki festa okkur við einhverjar sérstakar hug- myndir. Við viljum reyna til frekari hlítar hvort hægt sé að ná samningum við lífeyrissjóðina um að lánsveðshópurinn geti fallið undir 110% leiðina. Við viljum afnema stimpilgjöld. Að skoða að setja þak á verðbætur verð- tryggðra lána. En þetta sem ég nefni og fleiri leiðir standa og falla með því að greina vel hver vandinn er og hvað það kostar að leysa hann og hvaða afleiðingar það hefur. Fanney Stefánsdóttir: Er ESB lykillinn að bjartri framtíð? Jóhann Benediktsson: Sæl vertu. Hvaða stefnu hefur Björt framtíð gagnvart ESB?  Heiða Kristín Helgadóttir Við viljum ljúka aðildarviðræðunum við Evrópusambandið og sjá til þess að þjóðin fái að kjósa um eins góðan samning og mögulegt er. ESB er ekki töfralausn á öllum okkar vanda. En ég tel að þar getum við komist að borðinu með öðrum þjóðum sem eru líkar okkur og haft e-ð um þá löggjöf að segja sem við þiggjum frá ESB að mjög miklu leyti í dag í gegnum EES. Eins er þetta stórt hagsmunamál fyrir heimilisbókhaldið. Þetta snýst um að geta tekið lán á sambærilegum kjörum og gerist annars staðar t.d. Svo snýst þetta líka um það að við getum selt vöru og þjónustu úr landi án tolla og múra. Það myndi auka útflutningsmöguleika okkar og styrkja þannig fjölbreytni í atvinnulífinu. Eins tel ég að sveitarfélög og dreifðari byggðir eigi mikið í Evrópusamstarf að sækja í formi styrkja og alls konar stuðnings sem Evrópusambandið hefur margra áratuga reynslu í. Astridur Jonsdottir: Hvaða kosti þarf þingmaður að hafa til þess að sinna þörfum kjósenda sinna?  Heiða Kristín Helgadóttir Hann þarf að geta sett sig í spor annarra, vera meðvitaður um kosti sína og galla – hvar hann er sterkur og hvar hann þarf meiri stuðning og hjálp. Svo er mikilvægt að taka sig ekki of hátíðlega og hugsa um þetta sem þjónustu. Það að vera kjörinn fulltrúi er mjög gefandi starf og mjög gott tækifæri til að kynnast hlutum sem maður hefði aldrei annars kynnst. Sem gerir það bæði skemmtilegt og krefjandi. Heiða Heiðars: Sæl Heiða Kristín. Mig langar að vita hvar hugsjónir þínar, persónulega, liggja. Það sem hefur sést til þín er frekar flatt, að mínu mati, og mig langar að vita hvaða hugsjónir þú persónulega stendur fyrir. Sjá smá ástríðu :)  Heiða Kristín Helgadóttir Takk fyrir það nafna. Ég brenn fyrir því að gera stjórnmál skemmtilegri, aðgengilegri og áhugaverðari. Mér finnst stjórnmál ekki eiga að vera einka- vettvangur þeirra sem líta út fyrir að vera með allt á hreinu. Stjórnmál þurfa á ólíkum röddum að halda – ekki bara þeim sem eru háværar og frekar. Svo brenn ég líka fyrir því að við lærum af mistökum og höldum áfram. Hættum að þvaðra um það sem er löngu búið og gerum betur í dag en við gerðum í gær. Ása Jóhanns: Hvaða afstöðu hafið þið til nýrrar stjórnarskrár?  Heiða Kristín Helgadóttir Við erum mjög hlynnt nýrri stjórnarskrá.Við höf- um reynt hvað við getum að koma því máli áfram og höfum gert það með því að tryggja það að málið haldi áfram á næsta þingi. Svala Jonsdottir: Hvernig svarar þú þeim ásökunum að Björt framtíð hafi brugðist í stjórnarskrármálinu og snúist á sveif með Sjálfstæðisflokki og Framsóknar- flokki á síðustu metrunum í því máli?  Heiða Kristín Helgadóttir Ég hef ekki heyrt þetta ennþá og finnst það fáránlegt. Við erum ekki vandamálið – heldur komum með lausn. Hún var fólgin í því að forða málinu frá því að deyja á næsta þingi með atkvæða-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.