Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2013, Síða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2013, Síða 30
30 Viðtal 5.–7. apríl 2013 Helgarblað Kominn í ráðhúsið Besti flokkurinn kom öllum á óvart, þar á meðal Jóni. Hann trúði vart eigin augum þegar hann fékk afhenta hornskrif- stofuna í Ráðhúsi Reykjavíkur. Skjaldarmerkið Jón hefur sýnt borginni virðingu í verki og hefur látið húðflúra skjaldarmerki borgar- innar á innanverðan handlegginn. Ringo og Yoko Jón Gnarr er vinsæll hjá stjörnunum. Hér kemur hann fram á friðartónleik- um ásamt fyrrverandi Bítli Ringo Starr og ekkju bítilsins John Lennon, Yoko Ono. Í ökuferð Jón hefur unnið náið með Heiðu Kristínu Helgadóttur, stjórnarfor- manni Bjartrar framtíðar og fyrrverandi fram- kvæmdastjóra Besta flokks- ins. Gleðiganga Pussy Riot Jón hefur jafnan vakið mikla athygli fyrir framgöngu sína í Gleðigöngu. Síðast sýndi hann rússnesku pönkhljóm- sveitinni Pussy Riot stuðning sinn með dramatískum hætti. Með Star Wars á heilanum Jón hefur bæði komið fram sem ill- mennið Darth Vader og hinn góðhjartaði lærimeistari Obi-Wan Kenobi. Á kanósiglingu Það er sjálfsagt að sýna útivist í Reykjavík áhuga. Hér er siglt á kanó í Vatnsmýrinni. 1.000 dagar með Jóni Gnarr Þarna eru tvær kynslóðir sem virðast ekki skilja hvor aðra. Þetta er eitthvað séríslenskt held ég. Þetta er svo karllægt samfélag og kannski er þetta eitthvað tengt ákveðnum mýtum sem voru búnar til um karllæg gildi á 20. öldinni. Það þarf fleira fólk sem er tilbúið til að gera eitthvað sem er töff. Við þurfum meira töff og minna hallærislegt. Við erum búin að lenda í svo mörgu sem er svo hallærislegt. Hugsaðu um mannanafnalög. Hvaða rugl er það? Fólk er að hlæja að okkur um allan heim. Ég þarf í alvöru að útskýra fyrir útlendingum að ég heiti ekki í raun Jón Gnarr. Þetta er bara hlægilegt.“ Of mikið af gömlum körlum Jón hlær en er síðan fljótur að skipta um gír. „Það sem er ótrúlegt er að þrátt fyrir öll þessi karllægu gildi, þá er samt talið vera best að vera kona á Íslandi. Við höfum verið mjög frjálslynd á margan hátt. Við kusum konu sem forseta. Það er lesbísk kona sem er forsætis- ráðherra. Réttindi samkynhneigðra eru með því besta sem gerist í heiminum. En þetta er kannski alþjóðlegt vandamál. Það er of mikið af gömlum körlum. Ekki að gamlir karlar séu eitthvað slæmir, það vantar bara meira jafn- vægi.“ Réttindi kvenna eru Jóni greinilega hugleikin en margir femínistar vildu engu að síður gagn- rýna hann og handritshöfunda Vaktaþáttanna og -myndarinnar fyrir persónu Bjarn freðar. Skilur Jón þá gagnrýni, að persónan hafi verið samansafn af mýtum um femínista sem stand- ast engan veginn? „Mér hefur alltaf þótt gaman að gera grín að hlutum. Ég hef verið sakaður um að gera lítið úr þeim sem eru fatlaðir, gera lítið úr samkyn- hneigðum eða gera grín að konum. Ég myndi samt skilgreina sjálfan mig einhvers staðar á næsta bæ við öfgafemínista. Ójafnrétti sem byggist á kynjamismunun finnst mér rangt og mér finnst að við eigum að horfast í augu við slík vandamál og leiðrétta þau. Ég byrjaði daginn í dag til dæmis á fundi með fjármála- stjóra Berlínarborgar, til að kynna mér hvernig Berlín stendur að kynjaðri starfs- og fjárhags- áætlanagerð.“ „Fer í hnjánum þegar ég hitti Vigdísi“ En tekur Jón gagnrýnina til sín? „Ég skil gagnrýnina en það stóð aldrei til að sýna neinum óvirðingu. Frá mínu sjónar- horni er til dæmis Besti flokkurinn, ef hægt er að bera hann saman við eitthvað úr íslenskri stjórnmálasögu – þá væri það Kvennalistinn. Í báðum tilfellum er verið að bjóða fram mýkri gildi, ef svo má að orði komast, gegn rosalega karllægum heimi. Margir menn ganga í gegn- um tímabil þar sem þeim finnst nauðsynlegt að gera grín að pabba sínum. Það þýðir samt ekki að maður elski ekki pabba sinn. Ég hef gert grín að sjálfum mér en ég ber alveg rosa- lega mikla virðingu fyrir sjálfum mér. Ég hef gert grín að Vigdísi Finnbogadóttur! Hugsaðu þér. Það eru fáar manneskjur sem ég ber meiri virðingu fyrir. Ég fer alveg í hnjánum þegar ég hitti Vigdísi. Ég skil þessa gagnrýni en ég ætlaði aldrei að móðga neinn. Undanfarið hef ég til dæmis verið að horfa á Fóstbræður með sjö ára syni mínum og þar er skets sem heitir Hvað á að gera við afa? Mér fannst þetta gríðarlega vel heppnað skets en á sínum tíma hafði forstöðu- kona á elliheimili samband við mig út af þessu og var virkilega misboðið. Henni fannst ég ekki aðeins vera ófyndinn heldur sakaði hún mig beinlínis um að gera lítið úr gömlu fólki. Það er alls ekki ætlunin og ég hugsa að þegar það má ekki gera grín að þér þá er fyrst eitthvað að hjá þér.“ Þú minnist á eldra fólk. Skoðanakannan- ir sýna að Björt framtíð er vinsælust hjá ungu fólki á höfuðborgarsvæðinu. Hefur flokkurinn einhverja skírskotun til eldra fólks, eða til fólks á landsbyggðinni? „Mér finnst það auðvitað. Okkar stærsta vandamál sem þjóðar er gjaldeyrismálin okkar. Hvaða gjaldmiðil við komum til með að nota. Það gildir fyrir alla þjóðina og all- ar okkar gjaldeyristekjur. Þarna finnst mér ferðamannamálin skipta miklu, sem eiga sín helstu sóknarfæri á landsbyggðinni. Í dag er ferðamannaiðnaðurinn farinn að skapa meiri gjaldeyristekjur en sjávarútvegurinn og ef við höldum rétt á spilunum þá getum við nýtt þessa auðlind miklu betur. Auðlindin er þá auðvitað allt landið, því fólk kemur hingað til lands til að sjá náttúru Íslands. Um leið þurf- um við að huga að ágangi. Við þurfum að verja ákveðin svæði í náttúrunni okkar fyrir ágangi og við verðum að passa að gera þetta rétt. Við viljum ekki bara vera „flavour of the month“ þar sem hingað kæmi fullt af fólki til skamms tíma og svo værum við bara að þrífa upp um ókomna tíð.“ Dilkadrættir og ósanngjarnir fordómar Margir myndu tengja svona áherslur við latté- fólk í miðbænum, sem er ef til vill orðræða sem er sterk á landsbyggðinni. Að sama skapi telur fólk á landsbyggðinni að Reykvíkingar skilji ekki þarfir landsbyggðarinnar. Er hægt að brúa þessa menningar- og skoðanagjá sem mynd- ast hefur á milli höfuðborgarinnar og lands- byggðarinnar? „Við erum bara ein þjóð og þessi menn- ingarmunur er aðallega bara tilbúinn og nærist á fordómum. Ég hef sjálfur farið um allt þetta land sem grínisti og ég sé ekki stóran mun á því að skemmta á Egilsstöðum eða í Kópavogi. Þetta er í aðalatriðum sama fólkið sem hlær að sömu hlutunum. Að halda því fram að fólk sem býr í vesturhluta Reykjavíkur sé á einhvern hátt verra en annað fólk er bara ekki rétt. Eins og hér búi bara tómar liðleskjur á listamannalaunum, það er ekki gaman að hlusta á þetta. Við eigum svo merkilegt land, svo merkilega menningu og merkilega náttúru. Mér finnst að við mætt- um hætta þessum dilkadrætti með fólk, eins og það séu tvær þjóðir sem búi hérna. Við erum bara ein þjóð og öll tengjumst við sömu menn- ingu og sömu náttúru. Ísland er heimsfrægt fyrir menningargersemar, sama hvort það eru Íslendingasögurnar, Laxness, Björk eða Sigur Rós. Svo erum við heimsfræg núna fyrir þetta eldfjall sem enginn veit hvernig á að bera fram nafnið á. Náttúran, landsbyggðin og listin geta alveg unnið saman í vinsemd. Þegar ég fer á Borgarfjörð eystri lít ég ekki á mig sem að- komumann. Þetta eru oftast ósanngjarnir for- dómar. Að segja að þessi sé svona eða hinsegin því hann kemur frá Akureyri, eða hvaða stað sem er. Ég er bara stoltur af því að koma frá þessari eyju og stoltur af því að hér hafi verið fólk sem hafi tekist að byggja upp siðmenntað samfélag.“ Klausturbúi í tvo daga Um nokkurra ára skeið var Jón mjög trúaður. Hann skrifaði mikið um trú og gekk svo langt að ganga í klaustur. Er hann enn trúaður eða var þetta bara eitt stórt grín? „Já, ég gekk í klaustur en það var bara í tvo daga. Það var svo ógeðslega leiðinlegt! En ég leiddist til trúar af ýmsum ástæðum. Ég er gegnheill anarkisti og ég kynntist ákveðinni hugmyndafræði sem er kennd við rússneska rithöfundinn Leo Tolstoj, sem kallast kristi- legur anarkismi. Í stuttu máli gengur þetta út á að viðurkenna ekkert yfirvald, nema Guð. Það voru því hugmyndafræðilegar ástæður, í bland við persónulegar, sem leiddu til þess að ég reyndi að tileinka mér að verða trúaður. Ég taldi mig ná því ágætlega. Ég reyndi einlæglega að verða trúaður og þetta var alls ekkert grín. En þessi tilraun mistókst. Ég er ekki trúaður í dag. Ég trúi ekki á neinn æðri mátt þó ég geti al- veg skilið fólk sem gerir það. Ég ber fullkomna virðingu fyrir því ef fólk hefur skoðanir á þess- um málum. Ef fólk trúir á drauga er það í fínu lagi fyrir mér. Ég get alveg talað um það og fundist það merkilegt, jafnvel dáðst að því. En um leið og fólk byrjar að leggja mér einhverj- ar línur, út frá því hvað þeirra draugar segja, þar dreg ég línuna. Ef það er farið að mismuna fólki út frá einhverjum óljósum hugmynd- um sem þú kannt að hafa í þínu höfði, það fer í taugarnar á mér. Ein stærsta hindrunin fyrir jafnrétti, til að mynda milli karla og kvenna, eða gagnkynhneigðra og samkynhneigðra, er skipulögð trúarbrögð. Ég myndi til dæmis full- yrða að sú mismunun sem samkynhneigt fólk þarf að upplifa sé apartheid-stefna okkar daga. Þetta er nákvæmlega sama hugmyndafræði. Að þarna sé ónáttúrulegra fólk eða óeðlilegra fólk en við hin sem erum „eðlileg“.“ Samkynhneigð er eðlileg „Náttúran er nú bara þannig, að ef samkyn- hneigð væri eitthvað óeðlileg, þá væri náttúr- an búin að sjá um það. Samkynhneigð er bara eðlileg. Og það að fæðast í líkama sem sam- svarar ekki kyni þínu, það er líka bara eðlilegt. Það er bara eitthvað sem er eðlilegt í náttúr- unni og þú átt að eiga þinn rétt. Það óréttlæti sem konur verða fyrir víða um heim, á sér yfir- leitt rætur í einhverri eldgamalli hugmynda- fræði sem er löngu orðin úrelt. Ég geri auðvitað greinarmun á því að eiga sína persónulegu trú, og síðan að búa við skipu- lögð trúarbrögð. Margt af því fólki sem hefur haft mest áhrif á mig og margt af því fólki sem hefur haft ótrúlega jákvæð áhrif á mannkyns- söguna var trúað fólk. Gandhi var trúaður. Tol- stoj var trúaður. Martin Luther King var trúað- ur. Ég geri alls ekki lítið úr því. En þegar apparat eins og kaþólska kirkjan er að banna notkun getnaðarvarna og banna fóstureyðingar þá er það bein árás á konur. Ég vildi auðvitað að við tækjum vísindin fram yfir trúarbrögð. Það er alls konar mis- munun sem á sér stað um allan heim, algerlega að ástæðulausu. Meira að segja stutt frá okkur. Bara í Færeyjum hefur fólk þurft að deyja vegna þess að það var öðruvísi. Það er bara óþarfi og ömurlegt. Þér má finnast það sem þér sýnist en ekki þröngva því upp á aðra.“ Vill aðskilnað ríkis og kirkju Hvað finnst Jóni þá um aðskilnað ríkis og kirkju? „Hann á að fara fram, ekki spurning. Það er fáránlegt að ríki skuli vera að reka trúarbragða- starfsemi. Áðan töluðum við um listamenn. Um daginn talaði bæjarstjórinn í Vestmanna- eyjum um að hann vildi frekar fá nýjan lög- reglumann á vakt heldur en halda uppi lista- manni. Mér finnst þetta alltaf svo fáránleg nálgun. Nú er til dæmis söfnuður í Vestmanna- eyjum, margir söfnuðir meira að segja. Ríkið eyðir árlega miklu meira í kirkjuna en lista- menn, en fáir virðast gera athugasemd við það.“ Ávarpaður af Noam Chomsky Að lokum, hvernig finnst Jóni að vera orðin al- þjóðleg stjarna? Hann á tugþúsundir aðdáenda um allan heim og hefur fengið að hanga með stjörnum á borð við Lady Gaga sem lýsir yfir að- dáun sinni á borgarstjóranum. Bjóst hann ein- hvern tímann við þessu? „Nei, ég get ekki sagt það. Í sumar var ég til dæmis í Póllandi bara að slappa af þegar kona kom upp að mér og bað um mynd. Þá hafði heimildamyndin, Gnarr, einmitt verið á kvikmyndahátíð þar. Það fannst mér merki- legt. Ég er þó sennilega stoltastur af því að Noam Chomsky ávarpaði mig að fyrra bragði en hann er líklega þekktasti anarkisti í heimi. Hann sagði að ég væri uppáhaldsstjórnmála- maðurinn hans. Þannig að Besti flokkurinn var nú ekki meira grín en það, að einn gáfaðasti maður í heimi heldur upp á hann!“ n „ Já, ég gekk í klaustur en það var bara í tvo daga. Það var svo ógeðslega leiðinlegt! Stundum Þreytti-Jón, stundum Áhyggjufulli-Jón „En ég er anarkisti og borgarstjóri, ég er grínisti og borg- arstjóri en ég er líka bara einhver sem á fullt af börnum og borga reikninga og rek heimili.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.