Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2013, Qupperneq 32

Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2013, Qupperneq 32
32 Viðtal 5.–7. apríl 2013 Helgarblað S ýninguna Laddi lengir lífið samdi hann ásamt félögum sínum Sigurði Sigurjóns­ syni og Karli Ágústi Úlfssyni. Þegar hann varð sextíu ára fyrir sex árum ákvað hann að setja á svið sýninguna Laddi sextugur sem naut gífurlegra vinsælda og var sýnd fyrir fullu húsi í rúmlega tvö ár. Þegar Laddi var spurður hvort hann vildi ekki gera aðra sýningu var hann ekki til í að vera með upprifjun á ferlin­ um. „Ég var til í að gera þessa með því að gera það allt öðruvísi. Ég var til í að gera eitthvað glænýtt. Þannig að við settumst niður, ég, Siggi Sigur jóns og Karl Ágúst og sömdum alveg nýtt leikrit. Í sýningunni kynnast áhorf­ endur manninum á bak við allan þann fjölda karaktera sem hann hefur skapað á rúmlega fjörutíu ára ferli og fá þeir að sjá hvað Laddi gerir ef hann hefur ekkert gervi til að fela sig á bak við. „Erfiðasta sem ég hef gert“ „Þetta er sennilega það erfiðasta sem ég hef gert. Ég er alveg ég sjálfur,“ seg­ ir Laddi. „Ég byrja frásögnina þegar ég er þriggja ára í Hafnarfirði. Ég er að segja frá mínu lífi,“ segir Laddi sem mun fara yfir það hvernig hann fór að búa til karaktera ungur að aldri til að geta tekist á við þá miklu feimni sem hann er haldinn. Ef kennar­ inn kallaði hann upp að töflu í æsku og Laddi þorði ekki fór einhver allt annar en Laddi upp að töflunni. „Þá mætti upp á töflu einhver fíflakarak­ ter og kennarinn rak hann í sætið aft­ ur. Þannig losnaði ég við að reikna dæmin sem ég kunni ekki,“ segir Laddi brosandi á meðan hann rifjar upp þennan tíma. Eftir hann liggja ógrynni af karakterum sem þjóðin hefur hlegið að í hartnær fjörutíu ár. Ladda telst til að þetta séu rúmlega sextíu karak­ terar sem hann hefur skapað, sum­ ir einnota en aðrir hafa fengið að njóta sín mun betur. Skrámur var einn af þeim fyrstu sem hann byrj­ aði að nota í æsku, eða öllu heldur rödd hans. „Ég var ekki mjög gamall þegar ég fór að nota þessa rödd. Hún var reyndar örlítið öðruvísi í gamla daga, örlítið grófari. En hún þróaðist og varð fínni,“ segir Laddi. Saxi fyrstur Saxi læknir, sá sem læknar engan og ráðleggur fólki að leita til læknis, var fyrsti fullmótaði karakterinn sem leit dagsins ljós. Laddi sótti innblástur í breska gamanleikarann Terry Thom­ as þegar hann skapaði Saxa lækni. Terry þessi naut mikilla vinsælda þegar hann var uppi á sitt besta um miðbik síðustu aldar og var hvað þekktastur fyrir mikið skarð á milli framtannanna. Á meðan Laddi lýsir útliti Terrys breytist hann hægt og rólega í Saxa fyrir framan okkur á meðan við sitjum og drekkum kaffi í Hörpu. Þetta er tilkomumikil sjón. Hann þarf ekkert gervi og engan farða. Í örskotsstund er ekki lengur verið að taka viðtal við Ladda heldur Saxa lækni. Það var í upphafi áttunda ára­ tugar síðustu aldar sem Saxi varð til í sjónvarpssal. Þá hafði Laddi hafið vinnu í Sjónvarpinu ásamt bróð­ ur sínum Halla og áður en langt um leið ákváðu þeir sem sáu um dag­ skrárgerð að nota Halla og Ladda í þáttum. Þetta var ekki eitthvað sem þeir Halli og Laddi höfðu stefnt að en engu að síður virðast það hafa verið örlög Ladda að skemmta fólki allt sitt líf. Hann var dreginn inn í dagskrár­ gerðina þar sem Saxi læknir varð til í einhverjum fíflagangi á milli hans, Halla bróður og Kaffibrúsakallanna. Ætlaði aldrei að verða grínisti „Það var eiginlega aldrei ákveðið að verða grínisti. Þetta var eiginlega óvart, við drógumst út í þetta ég og Halli,“ segir Laddi en fljótlega eftir að þeir urðu áberandi í sjónvarpi fór þeim að berast tilboð um að mæta á árshátíðir að skemmta fólki. „Við héldum nú ekki. Þetta var alls ekki ætlunin að fara út í þetta. Svo var ágangurinn það mikill að fá okkur að við enduðum með að segja: Ókei!, og réðum okkur á tvo staði eitt kvöld til að pófa,“ segir Laddi. Þetta var vægast sagt örlagríkt kvöld því á fyrri staðnum var þeim tekið afskaplega illa og voru þeir staðráðnir í að taka ekki að sér að skemmta svona aftur. Voru næstum því púaðir niður „Við vorum næstum því púaðir niður. Þetta var hópur eldri borg­ ara í mjög litlum sal, sem við viss­ um ekki áður en við lögðum í þetta. Við vorum með smá Saxa lækni en svo vorum við með fimm mín­ útur af Spike Jones þar sem við hermdum eftir honum á segul­ bandi. Það féll ekki í góðan jarðveg hjá gamla fólkinu. Það var gamall maður á fyrsta bekk sem stóð upp og sagði: Hvers konar helvítis fífla­ læti eru þetta! og bara eiginlega rak okkur út. Þannig að við slökktum á segulbandinu og komum okkur,“ segir Laddi og héldu þeir bræður á næstu skemmtun í Hafnarfirði með hálfum hug. „Þannig að eftir það ákváðum við alls ekki að gera þetta oftar. En það var einn staður eftir, hann var suður í Hafnarfirði og þar virkaði þetta. Þeir kunnu að meta þetta Hafn­ firðingarnir, vinir mínir. Þannig að eftir það sögðum við; „Jú, þetta virkar og höldum áfram með þetta“. Þannig var þetta og eftirspurnin var slík að við héldum þessu áfram.“ Vildi verða tónlistarmaður Upp frá þessu hefur Laddi verið iðinn við kolann og líkt og fyrr segir liggja eft­ ir hann tugir karak tera þar sem hann nefnir Eirík Fjalar og Martein Mosdal sem eina af sínum uppáhaldskarakt­ erum. Laddi hefur lifað lífi grínist­ ans sem aldrei stóð þó til hjá honum. Hann ætlaði sér alltaf að verða tónlist­ armaður en hefur að vissu leyti getað sinnt þeirri ástríðu sinni í gegnum þessa karak tera þar sem hann býr að talsverðum tónlistar ferli. Eftir hann liggja sólóplötur og samstarfsverk­ efni með öðrum sem hafa notið tölu­ verðra vinsælda í gegnum tíðina en Laddi byrjaði um tvítugt í hljómsveit sem nefndist Faxar og var Halli bróð­ ir hans með honum í henni. Laddi var trommuleikari þeirrar hljómsveit­ ar sem ferðaðist með söngvaranum Al Bishop um landið og alla leið til Noregs. Birgir Olgeirsson birgir@dv.is Viðtal Langar að leika illmenni Þórhallur Sigurðsson, betur þekktur sem Laddi, hefur í nógu að snúast þessa dagana. Um páska var frumsýnd kvikmyndin Ófeigur snýr aftur þar sem hann fer með hlutverk draugs og nú er verið að frumsýna verkið Laddi lengir lífið í tónlistar- og ráðstefnuhús- inu Hörpu. Yfir kaffibolla í Munnhörpunni sagði Laddi meðal annars frá draumi sínum um að leika illmenni í kvikmynd og hvernig hann mátti aldrei vera alvarlegur, þá hafi menn einfaldlega hlegið að honum. „Þetta er mín martröð og mig dreymir þetta alltaf aftur mjög svipað.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.